Tíminn - 10.07.1963, Qupperneq 15
LÁTINN í
KJALLARANUM
BÓ-Reykjavík, 9. júlí.
Snemma í gærmorgun fannst ung
ur maður látinn í nýbyggingu
Verzlunarskólans við Grundarstg.
Talið er, að' hann hafi farið inn
um glugga á fyrstu hæð og fallið
um stigaop niður í kjallarann, þar
HAFÍSINN
Framhald af 1. síðu.
væru stórir og smáir ísjakar
á reki.
Jón Eyiþórsson, veðurfræð
ingur, sagði blaðinu í kvöld,
að erfitt væri að segja til
um nálægð íssins, þar sem
ekkert könnunarfluig var far
ið í dag, en ísröndin virtist
hafa þokast nær landi, lægi
svona 5—10 núlur norður
af Horni. Ekki væri vitað
hversu mikil ísbreiðan væri,
þar sem þoka hefði hindrað
mælingar á því í ískönnunar
fluginu í gær. Jón kvaðst
búast við, að ekki þyrfti
nema hressilega austanátt,
svo að ísinn hyrfi á auga-
bragði. En nú væri hún svo
hæg, að hún gerði ekki bet-
ur en hindra það, að ísinn
reki austur á síldarmiðinn.
REHU MOANA
Framhaid at 16. siðu.
or. Mastrið var alls ekki eins
sterkt og æskilegt var, að sögn
Nydler, og nú var ekki um annað
að gera, en sigla inn á næstu höfn
og fá gert við vélina, því vélarlaus
hafði fleytan ekkert í Grænlands-
ísinn að gera.i Haft var samband
við London, en þaðan bárust þæi
íregnir að stormur væri í þann
veginn að skella á.
Það var orðið of seint að kom-
ast til Raufarhafnar, og til þess að
forða því að reka upp að Langa-
nesi norðanverðu, sigldu þeir fjór-
menningar á haf út. Stormurinn
skall á, og þá rak fyrir norðvest-
anvindi suður með landi. Ferðin
suður að Seyðisfjarðarflóa tók
ekki langan tíma, en eftir að inn
á sjálfan fjörðinn kom, gekk hún
ekki jafn greiðlega. Ekkert gat
fengið vélina til þess að fara af
stað aftur og siglingin tók sjö
tíma. Inn á Seyðisfjörð komu þeir
svo um hádegisbilið í dag, öllum
til hinnar mestu undrunar.
— Ég verð að fljúga heim strax
í fyrraimálið, sagði Naydler, og
hefði þurft að vera löngu farinn.
Tony Jennett, sem kom aðallega
með til að klifra í fjöllum Græn-
lands, hefur ákveðið að vera hér
eftir og reyna við ísjenzku fjöll-
in í staðinn, og Mac London, sem
flaug til London fyrir viku, er
ekki kominn aftur, og kemur lík-
ast til ekki úr þessu. Það eru því'
ekki aðrir eftir en Afcsel Petersen
og fyrirliðinn sjálfur dr. Davis.
Þeir ætla að sigla á flekanum aftur
til Englands, og búast við að verða
Lomnir þangað í endaðan júlí eða
fyrst í ágúst.
— Dr. Davis ætlar að taka þátt
í kappsiglingu yfir Atlantshafið á
Rehu Moana næsta sumar, og Pet-
crsen fer á Markó Polo, og svo
er Mac Lendon að hugsa um að
fara á eigin báti. Ef svo verður,
fer ég líklegast flugleiðis til New
York, og sigli svo með Petersen
til Danmerkur á eftir, sagði Naydl
er að lokum um leið og hann
kvaddi.
11.5 PUNDA LAX
Framhal 1 al 16. síðu
aðist mikið vatnsmagn i ánni af
hvoru tveggja, svo að laxarnir
ger.gu í flokum upp ána. Veiði-
veður var ekki gott, blanfcalogn,
sólskin og hiti, en samt veidd-
ust 11 laxar. Mest veiddist á flugu.
sem hann lá. Vitað er, að maður-
inn var á dansleik á laugardags-
kvöldið og líkur benda til, að at-
burðurinn hafi gerzt þá um nótt-
ina. Nafnið hefur ekki verið lát-
ið uppi, en nánustu ættingjar
mannsins eru víðsfjarri.
FERÐAMÁL
Framhald af 16. síðu.
hvað, sem betur mætti fara, svo
sem ófullnægjandi leiðarmerki
akvega, ófullnægjandi þjónustu á
merkisstöðum, þar sem ekki er
hægt að kaupa póstkort eða filmu
í myndavél og skort á framstillt-
um leiðbeiningum yfirleitt. Þeir
virtust gera sig ánægða með þjón
ustu, fæði og verðlag á hótelum,
en báðir vöruðu við ofskipulagn-
ingu í ferðamálum almennt og
töldu fyrir mestu að veita ein-
falda þjónustu og l'eggja áherzlu
á þau sérkenni, sem fsland hefur
umfram öll önnur nálæg lön'd.
KIND SKORIN UPP
Framhald af 1. síðu.
Nánari tildrög voru þau,
að allt fé hafði verið rekið
í rétt til rúningar. Vddi þá
svo illa til, að ær ein steig
ofan í sauðaklippur og stung
ust þær í kvið skepnunnar
og upp í gegn, svo gamirnar
lágu úti.
Læknir var þegar kvaddur
til, Kristján Baldvinsson, og
brá hann við skjótt og skar
skepnuna upp og kom fyrir
görnunum. Var síðan saum-
að fyrir og ærin látin í hólf,
en þar hefur hún verið síð-
an og vegnar vel. Ærm er
í eigu Jóhanns Jónssonar,
bónda í Hlíð.
PÓLSKI PÉTUR
Framhald af bls. 3.
hafi verið á spítalann í þetta sinn.
Rachmann hafi óttazt, að allt væri
að fara í kaldakol hjá sér og því
óskað að hverfa.
Bílstjóri Rachmans og Mandy
halda því hins vegar ákveðið fram,
að Raehman sé látinn og orðróm-
ur um dvöl hans í hinum og þess-
um löndum á þessu ári, sé upp-
spuni einn.
ÓEIRÐIR
Framhald af bls. 3.
konungshjónin ifóru. Nokkrir
uingkommúnistar dreifðu plögg
um, þar setn heimsókninni var
mótmælt og einnig voru hrópuð
ókvæðisorð að konungshjónun
um, sem ekki virtust láta ólætin
á sigf á. í allt munu hafa verið
kallaðir út um 7000 lögreglu-
menn ttt að vernda vkonungs-
hjónin.
Um kvöldið kom til harðra
átaka milll lögreglu og hundr-
aða manna, sem gerðu tilraun
til að brjótast inn fyrir hlið
Buckingham-hallar. Tókst
mannfjöldanum að rjúfa varnar
múr lögreglumannanna, sem
tókst þó með herkjum að loka
hfrium miklu járnhliðum.
Fjöldi brunabfla var kallað-
ur á vettvang tfl að' sprauta á
manngrúan. Margir óróaseggj
anna fengu harkalega meSferð
er þeim var troð'iS bin í lög-
reglubfla, sem síðan óku þeim
á lögreglustöðina.
Leikhús æskunnar
frumsýnir á Akureyri
ODDUR BJÖRNSSON
Sundkennsla
í Hrísey
ÞV-Hrísey, 9. júlí.
SUNDLAUG verður brátt opn-
uð hér í H'úsey, en hún hefur ver
ið í srníðum undanfarin ár. Sund-
kennari er kominn frá Reykjatfík,
Kristín Heigadóttir, og mun hún
væntanlega hefja sundkennslu á
morgun í hinni nýju sundlaug. —■
Fyrst og fremst verður öllum börn
um á skólaskyldualdrj kennt sund,
en auk þess getur hver sem er
,'engið þarna tilsögn í sundi.
BÓ-Reykjavík, 9. júlí.
Leikhús æskunnar frumsýnir
leikritið Einkennilegur maður, eft-
ir Odd Björnsson á Akureyri, á
laugardagskvöldið .
Leikritið var flutt í útvarp í
vetur, en það mun vera nálega
einsdæmi, að íslenzkt leikrit sé
frumflutt á sviði utan Reykjavík-
ur.
Hlutverk eru níu, flytjendur
ungt fóllk, flest við leiikli’starnám
eða nýútskrifað úr leikskólum.
Einn gamalkunnur leikari, Valdi-
mar Lárusson, hefur slegizt í hóp
inn. Leikstjóri er Guðjón Ingi
Sigurðsson.
Flokkurinn mun sýna á ýmsum
stöðum á Norður- og Austurlandi;
frá Akureyri verður haldið til
Húsavíkur, þaðan í Skúlagarð í
Kelduhverfi og lengra austur á bóg
inn.
í hausts er gert ráð fyrir sýn-
íngu í Reykjavík. Æfingar fara
fram í Hagaskólanum.
Sandgerðismálið
til saksóknara
BÓ-Reykjavík, 9. júlí.
RANNSÓKN „Sandgerðismáls-
ins“ er losið hjá sakadómi og
yerður það lagt fyrir saksóknara
til ákvörðunar. Málið er sem kunn
ugt er risið með kæru út af breyt-
ngu á skipshafnarskrá mb. Sigur-
páls sem er eign Guðmundar á
Rafnkelsstöðum. Aðalgjaldkerinn
við sýslumannsembættið í Gull-
tringu og Kjós viðurkenndi að
hafa bætt orðunum „í nóvember
1962“ við „samkvæínt samningi"
í dálkinn tyrir ráðningarkjör eft-
ii að skipverjar höfðu undirritað
skrána.
ÞJÚRSÁRDALSFERD
Framsóknarfélögin í Reykja-
vík fara í Þjórsárdal næstkom-
andi sunnudag, 14. júlí, undir
leiðsögn dr. Kristjáns Eldjárn
þjóðminjavarðar. Fargjaldið
verður aðeins 250 krónur með
tveimur máltíðum og 200 krón-
ur fyrir börn yngri en 12 ára.
RANNSÓKNARHVERFIÐ
Framhald af 1. síðu.
ega verið ákveðið, hvoru tilboðinu
verður tekið, en framkvæmdir eiga
eð hefjast um mánaðarmótn. Til
byggingarinnar verður varið fé
írá Áburðareinkasölu ríkisins, sem
samkvæmt samþykkt alþingis á
íyrst og fremst að verja til að
byggja yfir jarðvegsrannsóknir
búnaðardeildarinnar. Ennfremur
var fengið lán úr atvinnuleysis-
tryggingasjóði, og nemur allt bygg
ingarféð um 9 milljónum króna.
Þegar byggingin er risin, sem
væntanlega verður eftir IV2—2 ár,
ílytzt þangað öll starfsemi búnað-
ardeildarinnar, sem fer þá úr 450
fermetra húsnæði hjá Atvinnu-
deildinni í u. þ. b. 2000 ferm. hús-
næði. Verður þar unnið að öllum
þeim rannsóknum, sem búnaðar-
deildin hefur með að gera, eins og
til dæmis jarðvegsrannsóknum,
jurtakynbótum, kornrannsóknum,
beitilanda-, búfjár-, fóður-, og erfða
rannsóknum. Fullgerð verður bygg
ingin þrjár álmur með milligöng-
um og sex gróðurhús en í fyrsta
áfanga verða byggðar tvær álm-
ur og gróðurhús.
Jakob Gíslason, raforkumálastj.,
sagði blaðinu, að verið væri að
gera teikningu af byggingu Raf-
orkumálastjórnar, þar sem gerðar
yrðu ýmsar varnafræðilegar til-
raunir, Sú bygging væri þó aðeins
hluti af þeirri, sem síðar mundi
rísa. Vonir stæðu til að byggingin
yrði hafin innan fárra vikna og
gerð fokheld fyrir veturinn.
Miða er hægt að panta í símum
155 64 og 160 66 frá kl. 1—6
síðdegis daglega. Öllum er
heimíl þátttaka í ferðinni.
Málarar sömdu
BÓ-Reykjavík, 9. júlí.
VERKFALLI Málarafél. Reykja-
víkur var afstýrt með samkomu-
íagi, sem náðist á laugardagskvöld
ið. Verkfræðingar og skipasmiðir
sátu á árangurslausum samninga-
fundum fyrir helgi. Verkafólk á
Akranesi hefur boðað vinnustöðv-
un um næustu helgi en samninga-
fundir þar hafa ekki borið árang-
MÁLVERK AF ÖNNU BORG
Framharc ai 16. síðu.
verki, sem Hermann Vedel mál
aði á sínum tíma, og hefur mál
arinn Daniel Hvidt gert eftir-
myndina Ætlunin er að mál-
verkinu verði komið fyrir í
Þjóðleikhúsinu í Reykjavík.
Síldin
Framhald af 1. síðu.
söltunar til Dalvíkur í dag. Það
eru Björgvin með 700 tunnur, —
Mánatindur 700, Bjarmi 250, Bald
ur 1100, Eldborg 400, Árni Geir
600 og Sigurfari BA 300., Saltað
hefur verið upp úr öllum þessum
skipum á þremur söltunarstöðvum,
og stóð söltun enn yfir úr Baldri,
Eldborgu og Árna Geir, þegar síð-
ast fréttist. Von var á Hannesi
Hafstein inn í nótt níeð 500 tunn-
ur.
; Það var mikið um að vera í
Hrísey í dag, og söltun í fullum
gangi. Sæfari hafði komið inn með
um 1000 tunnur og von var á Sig-
urfara með milli 400—500 tunn-
ur, en hann hafði fyrst landað dá-
litlum slatta á Dalvík. Saltað hafði
verið í 1652 tunnur í Hrísey 7. þ.
m. Þar vinna 50 saltararar. Síldin
veiðist nú um 11 tíma siglingu frá
Hrísey.
Komið er á aðra viku síðan síld
barst til Krossaness, en þá hafði
verksmiðjan tekið á móti 11.500
málum. Söltun er ekki hafin þar
ennþá, og ekki var vitað um nokk-
ur skip, sem væru þangað vænt-
anleg í dag.
Fyrsta söltunarsíld sumarsins
brast til Hjalteyrar í dag. Það var
Ólafur Magnússon EA, sem kom
þangað með 600 tunnur. í kvöld
var ekki vitað um önnur skip, sem
væru á leið þangað inn. Bræðsl-
an hefur tekið á móti 33.5000 mál-
um. Undanfarið hefur verið unnið
að því að salta og bræða ufsa. í
bræðslu hafa farið 50 lestir og salt
að hefur verið í 2000 tunnur.
Verksmiðjan á Húsavík hefur
enn ekki tekið til starfa. Þar hefur
verið dálítil söltun undanfarið, og
í dag hefur verið saltað á tveimur
söltunarstöðvum.
Væntanlega verður saltað í einar
7000 tunnur á Raufarhöfn í dag,
en í gær var saltað í tæpar 6000
tunnur. Heildarsöltunin í kvöld
ætti að verða orðin 30.000 tunnur.
Nokkuð mörg skip hafa komið inn
í dag, en söltunarstöðvarnar gátu
ckki tekið á móti allri þeirri síld
sem þeim bauðst, svo mörg skip-
anna sigldu álefðs tl Eyjarfjarðar-
hafna. Stanzlaus söltun hefur ver-
iff undanfarna tvo sólarhringa. —
Mikil fólksekla er á Raufarhöfn.
Síldarlaust er á Seyðisfirði, en
milli 90 og 100 norsk skip liggja
þar inni auk allmargra íslenzkra
skipa. Bræla var á miðunum fyrir
auaustan s. 1. nótt og aðeins vitað
um einn bát, Kambaröstina, sem
'ékk 100 tunnur á Reyðarfjarðar-
dýpi.
Eiginmaður minn
MYRON JESSE APPLEMAN
andaðist í Landakotsspítalanum 9. þ.m.
Stefanía Eiríksdóttir Appleman.
Konan mfn
GUÐRÚN MAGNÚSDÓTTIR,
Hraungerði i Garðahreppi,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 11. júlf kl. 10,30
f.h. — Athöfninni verður útvarpað. — Fyrir hönd vandamanna.
Jóhannes Teitsson, ■
Innilegar þakkir fyrir vináttu og samúð við andlát og útför manns
ins mins
HARALDAR THORARENSEN,
frá Móeiðarhvolí.
Þakka einnig læknishjálp og hjúkrun á sjúkrahúsi Selfoss.
Aldís Thorarensen,
T í M I N N, miðvikudagurinn 10. júlí 1963. —
15
1