Tíminn - 01.08.1963, Síða 16
Fimmtudagur 1. ágúsl 1963
170. tbl. 47. árg.
STÓRFELLDÍR
HEYSKADAR
KW-Vopnafirði, 31. júlí.
f igærkveldi gerði hér ofsaveður
af suSri og suðvestri og urðu mikl
h- heyskaðtar á flötu heyi. Sums
StaSar hefur heyið sópazt svo
burtu, að þar sem heyflekkir voru
er eins og vel rakað. Mesti hey-
skaði á bæ, það ég hef frétt, er á
þriðja hundrað hestiar.
Seinni partinn í gær fór að
'hvessa hér af suðri og suðvestri
og var orðið mjög hvasst á sjöunda
tímanum. Mesta hvassviðrið stóð
í 2—3 tíma, en lægði síðan nokk-
Loksins
komust
þeir heim
FB-Reykjavík, 31. júli.
Færeyingarnir, sem þýzka skip-
ið Poseidon bjargaði úr sjávar-
háska vig Grænlamd fyrir helgina,
munu nú komast heim til Færeyja
í kvöld heilu og höldnu. Fyrri hóp
urinn hafði verið veðurtepptur á
Egil-sstöðutn, en flugvél frá Flug-
félagi íslands átti að fljúga með
mennina til Færeyja. Veður batn-
aði í dag, og var lagt af stað til
Færeyja um hádegisbilið, og þang
að komið klukkan um 2 í dag. —
Seinni hópurinn átti svo að fara
frá Egilsstöðum klukkan 5 í dag.
uð. Þó var hvasst fram undir morg
un.
Miklir heyskaðar urðu í veðri
þessu, einkum á flötu heyi. Á Refs
stað munu milli tvö og þrjú hundr-
uð 'hestar hafa tapazt og á næstu
bæjum við Refsstað, Egilsstöðum
og Engihlíð á annað hundrað hest
ar. Þá hafa einnig orðið miklir
heyskaðar á Vindfelli, Krossavík,
Eyvindarstöðum og Fagradal og
ef til vill víðar.
Talað við skipstjóra Snæfugls, sem sökk í fyrrakvöld
OLLI HOLRÚM í
LEST SLYSINU?
MB-Reykjavík, 31. júlí.
Blaðið áttl f dag tal vi® Bóas
Jónsson, sklpstjóra á Snæfugll
SU 20.
— Við fengum síldina 31
mílu suðaustur af Gerpi, sagði
Bóas. — Veður fór versnandi
meðan við vorum að háfa, og
var orðið slæmt, er við hf»ldum
heim á leið. Er við höföum siglt
háifan fjórða tíma mun veður-
hæðin hafa verið 7—8 vindstig
og sjúrinn ekki skárri, en veð
urhæði.n gefur til kynna. Þegar
Óhappið gerðist lá báturinn
uppi í báru 02 vindi. Allir voru
á fótum, þar af voru tv«ir
framí. Vélstjórinn var nýkom-
inn neðan úr vélinni og þar var
allt í lagi og engan leka að sjá.
— Svo tókum við eftir því,
að báturinn fór að hallast á
stjiórnborðshliðina. Mennirnir,
sem framí voru, komu strax
aftur á til okkar. Báturinn hélt
áfram að hallast svo ört, að
strax varð ljóst, að alls ekki
yrði unnt að gera neitt til þess
að rétta hann af. Við fúrum
strax að undirbúa okkur með
gúmbátinn og það gekk ágæt-
lega. Það voru aðeins liðnar
5—6 mínútur frá því að bátur-
inn fór að hallast, þar til við
vorum komnir í bátinn og að-
eins einn maður blotnaði upp
að mitti við það að stökkva út
á streng.
Það er ekki gott að segja til
um það með fullri vissu, hve
mikið báturinn hallaðist, áður
en hann sökk, en ég held að það
hafi ekki verið meira en 20—
30 gráður, en svo seig hann nið
ur að aftan og sökk þannig.
— Þegar ég kallaðl út á hjálp
var Guðmundur Péturs nýfar-
inn fram -hjá okfcur og ekki
kominn lengra en það, að ég sá
hann enn þá. Það liðu ekki
nema 15 mínútur frá því að ég
kallaði út og þar til við vorum
komnir um borð í Guðmund
Péturs.
— Um orsök slyssins er ekki
gott a® segja. Ég hef helzt verið
að ímynda mér, að orsökin hafi
verið „falskur steis“ þ.e. afþHj
að holrúm frá lestaropi og nið-
Framh á bls. 15
VARÐSKIPIN KOMIN
MED GÓDAR RATSJÁR
KH-Reykjavík, 31. júlí.
Til skamms tíma voru íslenzku
varðskípin heldur illa búim rat-
sjám, svo að erfiðleikum olli, bæði
vð töku togara og lei't að skipum.
Nú hefur ástandið hins vegar
breytzt mjöig til batnaðar, og eru
nú fjögur varð>skipanna búhi nýj-
um ratsjártækjum af vandaðri
gerð. Eitt skip ann fær væntan-
lega nýja ratsjá á komandi vetri.
í Óðni og Þór eru mjög vandað-
ar Sperry-ratsjár og einnig nokkru
minni Kelvin Hughes-ratsjár. Á
síðastliðnum vetii voru nýjar Kel-
vin Hughes-ratsjár einnig settar í
Ægi og Al'bert. Ægir hafði þá í
langan tíma orðið að notast við
gamlar og úr sér gengnar ratsjár
af gerðinni Korson og Decca. Kor-
son-ratsjáin vék nú fyrir Kelvin
Hughes, en Decca-ratsjáin er not
uð eitthvað áfram. Albert var ekki
betur settur, var með allgamla
Kelvin Hughes-ratsjá og gamla
Decca-ratsjá, strandgóss úr brezk
um togara, sem var nú seld. María
Júlía verður enn að notast við
mjög gamla Decca-ratsjá, enda hef I sjártæki í Maríu Júlíu. Þá eru ótal
ur það skip mest verið notað við in Sæbjörg og Gautur, en þau ski.p
rannsóknir að undanförnu. í vet- eru heldur ekki notuð til togara-
ur er þó ætlunin að setja ný rat-l Framhaid á 15. sfðu
Bílahjálp um helgina
HF-Reykjavík, 31. júlí.
Gert er ráð fyrlr mikilli bíla
umferð um verzlunarmannahelg-
ina eins »g endranær, og hefur
Félag íslenzkra bifreiðaeigenda
gert ýmsar ráðstafanir til hjálip-
ar ökufólki, sem lendir í vand-
ræðum á vegum úti.
KORT VÆNTAN-
NÆSTA SUMRI
20 NÝ
LEG Á
KH-Reykjavík, 31. júlí.
SÍÐAN Landmæliingar ríkisins
tóku við starfi Geodætisk Institut
um útgáfu fslandskorta fyrir
nokkrum árum, hefur stofnunin
endurskoðað og gefið út 10 kort,
en hefur nú 20 slík í undiirbúningi,
sem væntanlega koma út á næsta
sumri. Einnig er þar unni® að
jarffifræðikortum, og fyrsta gróð-
urkortið er nú að verða tilbúið til
prentunar. í sumar eru aðeins 2
menn starfandi við útimælingar,
þar sem landmælingarnar eru
komnar dálítið á undan kortateikn
ingum.
Ágúst Böð’varsson, forstöðumað-
ur Landmæli.nganna skýrði blaðinu
frá þessu í dag. Aðalstarf Land-
mælinga rikisins er fólgið í því
að flytja beim dönsku kortin og
f ndurskoða þau smám saman. —
Alls eru kortin, sem etndurskoða
þarf, 227 að tölu, fjórðungskort
í mælikvarðanum 1:50000, atlas-
blö® 1:100000, aðalkort 1:250000,
skólakort af fimm stærðum, flug-
kort og alþjóðakort. Fjórðungs-
kortin eru tiltölulega nýendurskoð
uð og eru gefin út eftir því, sem
upplagið gengur til þurrðar. Að-
aláherzla er nú lögð á ag endur-
skoða atlasblöðin, en aðalkortin
eru einnig i athugun. Búið er að
fá heim fra Danmörku frumgögn
að 30 kortum. Af þeim hafa 10
verið endurskoðuð og gefin út, en
20 eru nú í undirbúningi.
Miklar viðbætur eru á nýju
kortunum, og sem dæmi nefndi
Ágúst, a® 470 ný nöfn hefðu bætzt
é eitt kortið, af Hreppunum. Einn-
ig má geta þess, að á Heklukorti,
sem út kom í fyrrasumar eru
hraun hennar aðgreind og merkt
með ártolum, sem sýna, hvenær
hvert þeirra rann. Og eins og kunn
ugt er, hækkaði hún talsvert í síð-
asta gosi.
Við endurskoðun kortanna eru
rnikig notaðar flugmyndir, sem
Landmælingar taka fyrir sig og
einnig aðrai stofnanir, s. s. raf-
orkumál til undirbúnings virkjana,
fyrir ski.pulag bæja, jarðvegs- og
gróðurrannsóknir Atvinnudeildar-
innar o. fl.
í sumar hefur Sif, flugvél land-
helgisgæzlunnar verið fengin að
láni til þess starfa. Einnig hafa
Landmælingar fengið flugmyndir
hjá Varnarliðinu.
f allt verða gerðir út á vegucn
félagsins 15 bílar á Suðurlands-
undirlendi og í Borgarfjörð, og
einn verður i námunda við Akur
eyri. Bílar þessir munu annast
skyndiviðgerðir, og í þeim flest-
um verða skátar frá Iljálparsveit
Skáta í Reykjavík, og munu sjá
ucn hjálp í viðlögum.
Bílar þessir munu vera á sveimi
um eftirlitssvæði sín og sá aust-
asti verður í Vík í Mýrdal. Fólk,
sem lendir í einhverjum vandræð
um, er beðið að fara í næsta síma
og ná sambandi við hjálparbílana
í gegnurn Gufunes, sambandi við
Akureyrarbílinn má ná í gegnum
slökkvistöðina á Akureyri. Einnig
er ráð, að stöðva þá bíla, sem eru
Framhald á 15 slðu
Framhald á 15. síðu.
Sjópróf út af árekstri
Fróðakletts og Ægis
IH-Seyðisfirði, 31. ágúst.
Sjópróf hófust I dag vegna
slyssins, er Fróðaklettur sökk
í gærkvöldi, og komu skipverj-
ar af Fróðakletti fyrstir fyrir
rétt.
Samkvæmt framburði skip-
stjórans kvaðst hann hafa verið
um 34 mílur úti í Seyðisfjarðar
dýpi, er áreksturinn varð, i
myrkaþoku. Hann kvaðst hafa
séð þrjú skip í ratsjánni, þar
af eitt í tveggja mílna fjarlægð.
Skömmu siðar hafi Ægir svo
rennt út úr þokunni og hafi þá
bakborðsakkeri varðskipsins
lent í bakborðskinnungi Fróða
kletts. í fyrstunni kom lítill
leki að Fróðakletti og höfðu
dælur skipsins vel undan. Hafi
hann því haldið skipinu til hafn
ar ,en Ægir siglt burtu.
Er Fróðaklettur var á leið
til lands tók að hvessa og velt-
ingurinn jókst og um leið ágjöf.
Jókst þá einnig lekinn og hættu
dælur skipsins brátt að hafa
undan o-g varð brátt sýnt, að
hverju stefndi. Voru þá fleiri
síldveiðiskip komin í námunda
við Fróðaklett og biargaði
Eldey úr Keflavík mönnunum,
er fóru yfir í gúmbát, rétt áður
en Fróðaklettur sökk. Hélt Eld
ey síðan inn til Seyðisfjarðar
Framhald á 15. síðu.