Tíminn - 22.08.1963, Side 8

Tíminn - 22.08.1963, Side 8
1 Böit------- I.LJLUUI ssm Jón h. r Aag nússoi n skrifar V:. * , ‘K Bandar ‘i. . \ . * íkj iui num: 0 Lð Qi RJ EGj LAI N líci l 1 CAG0 „ÞAÐ er yfirleitt auðvelt og um Iéi5 fljótlegt að finna út vinnubrögð afbrotamannsins og geta sniðið gildru eftir því, sem hann svo sjálfur fellur í. Til dæmis erum við nýbúnir að ná manni, sem rændi fólk i vissu hverfi hér í borginni. Hann kom alltaf aftan að fólki á fáförnum götum að næturlagi, stakk bys-su í bakið á því og hótaði þvi blý- kúlu í hausinn, ef það liti við; síðan tók hann veskið og lét fólk ið ganga nokkra metra og stakk svo af inn í eitt sundið”. Þannig útskýrði einn af yfir- mönnum í glæparannsóknadeild lögreglunnar í Chicago hvemig þeir vinna þar, fyrir fréttamanni Tímans, er hann var einn dag með iögreglu borgarinnar. „Þegar við erum búnir að sjá, að þjófurinn heldur sig í sama hverfinu og notar alltaf sömu vinnubrögðin og segir dlltaf það sama, samkvæmt lýsingum þeirra, sem fyrir honum verða, þá förum við á stúfana og leggj- um okkar net. T. d. sendum við lögreglumann klæddan eins og konu; og hefur hann byssu og iítið senditæki undir klœðum sínum og svo sendum við aðra lögreglumenn í nágrennið ásamt nokkrum ómerktum lögreglubíl- 2. grein um. Stundum gengur óþokkinn í gildrana í fyrstu tilraun, en stundum verðum við að halda þessu áfram um sinn. Þegar hann ræðst svo á „konuna” er hann kominn í gildruna, og „konan” kall'ar á hjálp í senditækið, og um leið birtast allir þeir lög- reglumenn, sem faldir voru og vinurinn er stundum svo undr- andi á öllu þessu, að hann veit ir enga mótspyrnu.” Það tók mig nokkra daga að komast í rétt sambönd í Chi- cago, sem síðan sáu til þess að ég gat eitt heilum degi og hluta af nóttu með Chicagolögreglunni. í fyrstu gat ég fengið venjulegan túr um aðalstöðvarnar; en þá sér maður bara það, sem allir sjá, sem gerir það að verkum, að efckert efni fæst í grein. Það var loksins á þriðjudegi, sem ég hitti réttan mann og hann hringdi í einn æðsta mann lög- reglunnar og sagði mér að „fara á fimmtudag og hitta Herman Goldstein, fulltrúa lögreglustjóra; hann kemur þér í hendurnar á réttum mönnum”. Herman Goldstein tók mér vel og sagðist háfa skipulagt ferð fyr ir mig um kvöl'dið ætti ég að hitta leynilögreglumann úr ungl ingadeildinni og vera með hon- um í bíl. Fyrst yrði ég þó að skrifa undir plagg eitt og taka alla ábyrgð á sjálfum mér og því, sem kynni að koma fyrir mig, jafnvel þó að ég yrði drep- inn. Ég sagðist fús vilja hripa nafnið mitt á blaðið, svo lengi sem þeir stæðu við sín l'oforð. Fyrst hlttl ég officer Potesta í upplýsingadeiidinni, hann sagði mér „að fimmtudagar eru daufir; föstudagur hefði verið betri”. — Potesta sagði mér hvað ég myndi sjá, hvenær og hvar; síðan kynnti hann mig fyrir ungum Svertingja, officer Normann White, sem átti að sýna mér aðalstóðvarnar. White hafði ver- ið „lögga” í nokkur ár og verið í ýmsum deildum, allt frá götu- eftirliti og nú siðast í upplýsinga deildinni; sagðist vonast til að komast í unglingadeildina, því að hann vildi vinna með vand- ræðaunglingum. Aðalstöðvarnar eru niðri í að- alhluta Chicago og þar fer svo til öll löggæzla fram, nema það sem framkvæmt er af lögreglu stöðvunum, sem eru í úthverfum. Borginni er slkipt niður i átta hluta og hver hluti hefur aftur svo og svo margar „hverfis”-lög- reglustöðvar. Hver hverfisstöð framkvæmir hin daglegu störf löggæzlunnar. Fyrst fór officer White með mig upp á aðra hæð, þar sem eitt fullkomnasta simakerfi í heimi er fyrir komið. Þetta kerfi er algjör nýjung og hefur að- eins verið í notkun síðan í nóv- ember 1961. — Eins og þú veizt þá er Chi- cago á átta hlutum, sem samtals eru 244 fermflur að stærð; þessu svæði þjónar þetta símakerfi og í því eru 3.500.000 manns. Eins eru í þvf 1400 lögreglubílar með taltáeki, en alls er bílakostur okk- ar um 10.000 bfl'ar. Við þurfum 300 manns til að vinna hér og er opið hér 24 tfma á dag 365 daga á ári. — Þetta nýja sfmakerfi bygg- ist á nýjum grundvelli, sem er hraði og betri vinnubrögð. Hvert skiptiborð, sem þú sérð hér, hef ur upplýst kort af þeim hluta þess hverfis, sem það þjónar og má sjá á þvf, hvaða lögreglubíll ORLANDO W. WILSON lögreglustjóri í Chicago er í gangi og hvar og hvað hann er að gera. Þegar símtal kemur inn, þá svarar lögreglumaðurinn og tekur niður á smá kort, hvað um er að ræða og hvað sé að gerast. Síðan kallar hann á þann bíl, sem bezt liggur við og send ir hann á staðintí. ’ Kíorfið fér svo áfram inn á spjaldskrárdeild ina, þar sem upplýsingarnar á því eru gataðar inn á það og síð- an fer það inn á rafmagnsheil- ann. — Hvert símaborð getur tekið við 10 símahringingum í einu, ef efcki er svarað innan 10 sek- úndna, fer símtalið yfir á skipti borð, sem aðeins svarar, þegar hinn getur ekki haft undan; þann ig að enginn þarf að hringja lengi. Uppi á hverju skiptiborði eru tvö Ijós, annað rautt, sem sýnir öryggisborðinu, að það þarf að svara, en hitt er til að fá snúningastrák til að sækja eitt eða annað, sem lögreglumað urinn þarf á að halda. Sfðan við fengum þetta kerfi getum við sent bíl á umbeðinn stað á allt að þrem mínútum, frá þvf að síminn hringir á skiptiborðinu. Undir gólfinu hérna liggja 25 mílur af vírum og köplum, sem tengja öll þessi skiptiborð við Chicago; allt þetta víradrasl tók við 1.600.000 símahringingum s. 1. ár. Símakerfi þetta er búið til af Motorola kompaníinu og hefur það sparað Chicagol'ögreglunni óskaplsga vinnu og gert það mun auðveldara að svara beiðni borg- arbúans. Eins gerir þetta lögreglu manninum starfið léttara, t d. getur hann nú fengið upplýsing- aar á svipstundu um stolinn bíl eða lýsingu á afbrotamanni. Næst sýndi officer White mér þá deild, sem sér um allar skýrsl ur, sem hver Iögregl'umaður gef- ur. Þetta er einnig nýtt fyrir- komulag og f staðinn fyrir að láta hvern mann puða við að skrifa hverja skýrslu, þá getur hann bara hringt hana inn. — Einhver ósköp voru þarna af seg- ulbandstækjum og blikkaði rautt ljós á þeim, sem voru í gangi. Á hverju tæki var smától, sem maður gat hlustað á lögreglu- manninn. Ég tók nokkur þeirra upp og hlustaði á þá gefa skýrsl- ur um innbrot, nauðgun, þjófn- að, slys og ýmislegt annað, — Þegar skýrslunni er svo lokið, tekur vélritunarstúlka spóluna og setur hana í samband við tæki sem hún hefur við ritvélina sína og skrifar skýrsluna upp. Eftir að hafa séð alla skrif- finnsku-hlið lögvaldsins, fórum við og fengum okkur kaffi. — Officer White kynnti mig fyrir hóp af lögreglumönnum. Ég not aði tækifærið og spurði þá álits á öllu því, sem hinn nýi lög- reglustjóri, Orlando W. Wilson, hefði gert fyrir lögregluna, síð- an hann kom þangað 1960. Áður en Wiison varð lögregl'ustjé*! var hann prófessor í sakamále- fræði við Kaliforníuháskólann og var sérstaklega ráðinn til að hreinsa til og reyna að bæta á- lit lögreglunnar í Chicago á með al borgarbúa. Lögreglan þótti lé- leg og öðru hvoru komu upp alls konar leiðindarmál, eins og t. d. að lögreglumenn væru flæktir í þjófnaðarmál og væru vægir við vissa stórglæpamenn, eins var Chicagolögreglan fræg fyrir spill ingu. Daley borgarstjóri snéri sér til Wil'son, sem hefur sérlega menkilegan feril að baki sér, bæði sem lögreglumaður og próf- essor í sakamálafræði. Síðan Wil son kom, hefur hann gjörsam- lega hreinsað tU, rekið menn í hópum og ráðið aðra í staðinn. Eins hefur hann látið endurbæta allt lögreglueftirKt, fengið nýja bíla, komið með alls konar nú- tímatæki til að hjálpa' til, eins og fyrrnefnt símakerfi; rafmagns heila og svona má lengi telja. — Wilson hefur skapað nýja lögreglu; það er aUt annað að vinna héma núna, sagði einn við borðið. — Hann hefur hækkað öll laun um samtals niu milljónir dollara á tveimur árum og stækkað lög- regluliöið úr rúmum 11 þúsund- um upp í rúm 12 þúsund, sagði annar. — I 12 þúsund manna lögreglu liði eru aUtaf nokkrir, sem taka við mútum og eða fást við ein- fiver skuggaverk. Annars er þetta allt öðru vísi núna, síðan Wilson kom; borgarbúar bera mifclu meiri virðingu fyrir lög- reglunni og mórallinn er miklu betri innan liðsins, Ég hugsa samt, að meir en níutíu og fimm prósent af okfcur höfum alltaf verið heiðarlegir í starfi okkar, sagði einn, sem hafði verið í búningi mestan sinn starfsaldur. — Ef við ættum að geta komið i veg fyrir öll afbrot, þá þyrft- um við að hafa 100.000 manna lið og það myndi setja Chicago á hausinn. Það væri verra en að hafa öll þessi afbrot og glæpa- verk, sagði officer White. Sá gamli sagði, að það yrði verst, þegar Wilson hætti, en það yrði fljótlega, þar sem hann er að ná aldurstakmarkinu. „Ég vona bara, að hann verði búinn að koma öllu í gang og i l'ag, af þvi, sem hann ætlar að gera og að einhver góður taki við af honum”. Síðan barst samtalið að hvort það sé lengur erfitt fyrir Svert- ingja að verða lögreglumenn. — Þeir eru allir sammála, að allur mismunur væri löngu horfinn, enda er um helmingur af starfs- HIS nýja sfmakerfi lögreglunnar. TÍMINN, fimmtudaglnn 22. ágúst 1963

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.