Tíminn - 22.08.1963, Síða 16

Tíminn - 22.08.1963, Síða 16
MB-Reykjavík, 21. ágúst. Nokkrir Vestmannaeyjabátar lágu Hér 1 höfninni i dag, hlaðn- ir af síld og blðu eftir l&ndun. Meðal þelrra var Kárt, VE 47, afla hæsta skipið á sumarsíldveiðun- um hér sunnanlands. Er frétta- memn Tímans komu niður að höfn, var skipstjórinn á Kára ekki við, en vlð hlttum stýrimann inn, Árna Hannesson, að máii. — Hvernig var þetta um dag- inn, þegar þið setluð út gúm- bátana? — Nú, við vorum á leið til Keflavíkur með talsverðan slatta á dekki, og fulla lest. Ætli við höfum ekki verið með svona 900 tunnur, þar af 450—500 í lest. Það var vel frá öllu gengið á dekki og breitt yfir síldina. Veðr ið var mjög sæmilegt, svolítil bára. Það bilaði skilrúm á dekk- inu og dálítið af síldinni rann aftur í næsta kassa og út um lensport, sem við höfðum opnað. Við það hallaðist báturinn á hina hliðina og tók þar d'álitla gusu inn á sig. Við settum strax út bátana til vonar og vara, því það yrði of seint, eftir að verr væri komið, Svo rétti hann sig við aftur og við misstum ekki út nema um 250 tunnur. Það, sem var á miðju dekkinu, haggaðist ekki, enda var vel frá öllu geng- ið, eins og ég sagði áðan. — Jú, Framh. á 15. síðu. Fjórir Eyjabátar, sökkhlaðnir afsíld, í Reykjavíkurhöfn, Kári annar frá hægri. ÍLjósmynd: TÍMINN—GE). MHG-Frostastöðum, 21. ágúst. Næstboinandi sunnuda.g verður minnzt 200 ára afmælis dómkirkj- unnar á Hólum í Hjaltadal með há- tíðarsamkomu þar á staðnum. — Hefst hátíðin laust fyrir klukkan 2 eftlr hádegi með skrúðgöngu biskupa og presta í kirkju. í kirkjunni fer fram hátíða- inessa sem þeir annast biskupinn yfir íslandi, herra Sigurbjörn Ein- arsson og séra Björn Björnsson, dómprófastur á Hólum. Við mess- una syngur kirkjukór Sauðárkróks undir stjórn Eyþórs Stefánssonar, tónskálds. í messulok flytur Bjarni Benediktsson, kirkjumálaráðherra ávarp. Að Xirkjuathöfninni endaðri verður nokkurt hlé á hátíðahöld- unum og fólki gefinn kostur á að njóta fjölbreyttra veitinga, sem íram verða bornar. Klukkan 5 er svo gert ráð fyrir ag hefjist samfelld dagskrá og verður hún flutt í kirkjunni. En þar sem gera má rás fyrir að meira fjölmenni verði saman kom- ið á Hóium þennan dag en svo, að kirkjan rúmi það, verður kom ið fyrir hátölurum, svo að allir geti hlýtt á það, sem fram fer, hvort sem þeir dvelja utan dyra cða innan. Syngur. nú kirkjukór Sauðárkróks á ný, dr. Páll ísólfs- son leikur nokkur orgelverk, flutt ir verða þættir úr sögu Hóladóm- kirkju, flytjendur dr. Kristján Eld „HALLAÐIST SKRATTIMIKIÐ" SACÐI STÝRIMAÐURINN Á KÁRA járn þjóðminjavörður o. fl., og lýk ur svo hinum almennu hátíðahöld- um meg því að sunginn verður þjóðsöngurinn. Framh. á 15. síðu. Skothríð Akureyri, 21. ágúst Fyrir nokkru tók lögreglan hér mann, er var ag æfa sig í að skjóta í mark inni á verkstæði sínu. Var hér um ag ræða iðnaðarmann, er hafði verkstæði, en fram af því var verzlun. Maðurinn átti forláta byssu, sem hann raunax hafði ekki leyfi til að bera, og vildi sýna leikni sína. Afgreiðslustúlkan varð smeyk vis aðfarir húsbónda síns, þar es hún óttaðist að skot- in kynnu að fara í aðra átt en til var ætlazt, og hringdi á lögregl- una. Kom hún á vettvang og hirti byssuna, sem maðurinn var nokk- uð tregur til að láta af hendi, enda bezti gripur, eins og fyrr segir. Var hún gerð upptæk í ríkissjóð. Fimmtudagur 22. ágUst 1963 177. tbl. 47. árg. Þetta er nýi læknisbústað'- urinn á Þórshöfn. Á efri hæðinni er ibúð læknisins, Friðriks Sveinssonar og fjöl- skyldu hans, en niðri eru tvær sjúkrastofur. Þar er einnig eitt herlbergi og eld- hús fyrir hjúkrunarkonu. Gamla læknishúsið stóg niðri við sjó og kom fyrir, að í það flæddi. Læknirinn sagði blaðinu í dag ag að- staða öll til lækninga væri HÓLADÓMKIRKJA SKIPT UM VEÐURATHUGU NARMENN í JÖKULHEIMUM ..Draugarnir komu bara með gestum, sem vildu hafa þá“ FB-Reykjavfk, 21. ágúst. Jöklarannsóknarfélagið tók upp þá nýbreytnl í sumar, að fá mann til þess að hafa aðsetur í skála félagsins í Jökulheimum við Vatnajökul og annast þar veður. athuganir og senda veðurfréttir til veðurstofunnar. Helgi Björns- son stúdent fór upp í Jökulheima um mánaðamótln júnl/júlf, og kom þaðan aftur s.l. sunnudag, og lætur hatnn mjög vel af dvöl stnnl þar efra. Ýmsir hafa álitið, að einmana- legt kunni að vera þarna uppi í óbyggðum, og þegar Pétur Sumarliðason kennari, sem tók við af Helga, lagði af stað, kvaddi hann Jón Eyþórsson veðurfræð- ing með þeim orðum, að hann ætlaði að kveða Andrarímur í ein verunni, en Hel'gi sagði okkur, að eíkki væri hægt að lesa þar neitt erfiðara en Úrval. — Hvernig var að vera svona langtímum saman langt frá &Uum mannabyggðum? — Það er vonlaust að fá fólk til þess að trúa því, að mér hafi liðið mjög veL Einna bezt gengi mér sennilega að fá það til þess að trúa, að ég hafi borið beinin þarna uppfrá, þótt ég standi sprell-lifandi fyrir framan það. — Ilafðirðu ekki nægan tíma til þess að hugsa um allt milli himins og jarðar? — Hugsa? Þegar einveran er annaðhvórt of lítil eða of mikil hugsar maður ekki. — Hefði ekki verið tilvalið að fá sér hund eða kött til þess að stytta sér stundir? — Ég hefði ekki látið slíkt eftir mér, annars er vinsælasta efni einleiksþátta, maður talandi við hund, orðinn brjálaður. — En það eru þarna fuglar, bætti Helgi við, og svo var þarna tófa, en hún er dauð. Framh. á 15 síðu. HELGI BJÖRNSSON 200 ára afmælishátíð Hólakirkju á sunnudag i

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.