Alþýðublaðið - 24.09.1941, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 24.09.1941, Blaðsíða 4
MlÐVl KUDAGUR i Næturlæknir er María Hall- grimsdóttir. Grundarstíg 17, sími 4384. Næturvörður er í Laugavegs- og Ingólfsapóteki. ÚTVARPIÐ: 15,30—16,00 Miðdegisútvarp. 19.30 Hljómplötur: Lög úr óper- um: 20,00 Fréttir. 20.30 Erindi: Hraðfrysting og hraðfrystihús (Guðni Ás- geirsson frá Flateyri). 21.00 Einleikur á fiðlu (Þórir Jónsson): Sónata eftir Hán- del. 21,25 Hljómplötur: Tónverk fyr- ir strengjahljóðfæri, eftir Bliss. 21,50 Fréttir. Dagskrárlok. Læknablaðið, 5. tbl. 27. árg. er nýkomið út, gefið út af Læknafélagi Reykja- víkur. Efni: Lyfseðlasyndir, eftir Valtý Albertsson, Um Discus Pro- laps sem orsök Ischias eftir Kjart- an R. Guðmundsson. SwiftFeers sjúkdómur eftir Þórð Þórðarson, TJr erlendum læknaritum. Tónlistarfélagið og Leikfélag Reyjkavíkur sýna operettuna „Nitouche“ í kvöld. Bak við tjöldin heitir ný mynd, 'sem Gamla Bíó sýnir núna. Aðalhlutverkin leika Maureen O’Hara, Louis Hayward og Lucille Ball. Myndin er gerð samkvæmt bók eftir Vicki Baum. Nýja Bíó sýnir ennþá myndina Hetjur Kanada. Guðni Ásgeirsson frá Flateyri flytur erindi í út- sh» rcs e wo M. s. Helfli hleður á föstudag til Vest- mannaeyja. Vörumóttaka til hádegis sama dag. varpið í kvöld kl. 20,30 um hrað- frysting og hraðfrystihús. Fertug er í dag frú Halldóra Jónsdóttir, Vest- urgötu 33 B. Til Hallgrímskirkju í Saurbæ: Afh. af Þórði Jónssyni frá frú M. kr. 125,00. Frá Lárusi Björns- syni: Vinningur í Happdrættinu kr. 100,00. Með þakklæti móttek- ið. — Ól. B. Björnsson: ísafoldarprentsmiðja gefur út Gylfaginningu í tilefni Snorraafmælisins. Hefir Vilhjálm- ur Þ. Gíslason undirbúið útgáf- una og fylgir henni formáli og langar skýringar. Bókin er prýdd mörgutn myndum og handritasýn- ishornum. 40 ára er í dag frú Halldóra S. Jóns- dóttir, Vesturgötu 33 B. Vorubílarnir eru komnir. Oo leyninefpdii hefur loklö störfum. ÖRUBIFREIÐARNAR, sem bifreiðastjórar hafa beðið eftir með mikilli óþreyju eru nú loksins komnir. Þeir eru aðeins 250 að tölu, Ford, Chevrolet og nokkrir Stude- baker. Vterið er að skipa þeim upp Leyninefndin var i miklum vanda stödd. Fyrir henni lágu um 800 umsóknir, en a'ðeins 250 gátu fengið bifreið. Nefndih hefir lokið starfi sínu. úthlutaði hún 245 bifreiðum og sen.di tillögu sína til fjármálaráðuneytisi'ns. — Fimrn vögnirm var ekki útblutaö og var það gert til að ráðuneytið hefði möguleika til að uppfylla þarfir einhverra ákveðinina staða. Útbreiðið Alþýðublaðið. ÞJÓÐARVILJINN I ÁFENGIS- MÁLUNUM Frh. Bf 3. síðu. Barnaleg blaðammnska. Síðasti hluti gneinariunar er samantvinn- aðar endurtekiningar úr fyrri- hluitanium, kryddað með úttuggð- um slagorðum víndýrketnda, barnaskap um það, hverju les- endurnir trúi og dylgjum um lög- bnot, sem greinarhöf. sjálfur telur sig vita um, en mun þó hingað til hafa hylmað yfiri þótt hann viti sjálfur hvað við liggur. ekki sizt ef hanu' er .iögfrœðingur eins og ýmsir hyggja. En þessari ó- skemmtilegu. samsuðu verður líka að gera nokkur ski.]. Það sem greinarhöf. endurtekur og ýkir um ríkisstjórnina og á að vera ámœli, fer alveg fram hjá marki eins og fl. í grein þessari, því það eina, sem hún á skilið á- miæli fyrir, er það, að hún ekki varð við áskarun meiri' hluta kjósenda um að loka fyrir alla áfengissölu þá þegak — Nú hefir þetta verið gert, og þá á hún sízt ámæli skilið fyrir það., og þótt betra ihefðii verið að gera það strax, þá e-r ástæðulaust að deila um það nú. / (Niðuriag á morgiun.) Hjrndlistardeild við Handfðaskélann. AKVEÐIÐ hefir verið, að í sambandi við Handíða- skólann fari fram í vetur nám- skeið í tréskurði og verður Már Ríkarðsson arkitekt k'ennari í þeirri grein. Þá verður og stofnuð sérstök myndlistardeild við skólann, þar sem kennd verður teikning og málaralist. Kennarar. í þeim greinum verða Kurt Zier teiknikennari og Þorvaldur Skúlason listmálari. ■ GAMLA BIOH Bak við tjðldia (DANCE, GIRL, DANCE.) Aðalhlutverk: Maureen O’Hara, Louis Hayward, Lucille Ball, Sýnd klukkan 7 og 9. NYIA Btð Hetjnr Kanida (Hearth of the North). Skemmtileg og spennandi ameríksk mynd um hetju- dáðir Canadisku lögregl- unnar. Tekin í eðlilegum litum. Aðalhlutverkin leika: Dick Foran Gloria Dickson Gale Page. Börn fá ekki aðgang. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Þökkum hjartanlega ættfólki og vinum okkur auðsýnd- ■ ;; an vinarhug í tilefni af 25 ára hjúskaparafmælinu 19. þ. m. ; ;l Guðs blessun fylgi ykkur öllum. !; ii GUÐRÚN EIRÍKSDÓTTIR. ÓLAFUR ÞÓRÐARSON. !: Ráð bandamaana á fundi í London. RÁÐ bandamanna kom sam- an á fund í London í morgun og er það í annað skipti á þtessu sumri. Fyrsti fu'ndurinn var haldi'nn (Kinnig í Lomídon í júní og hétu fuil triiarnir þá, hver fyrir hönd ísinnar þjóðar, að haida samam í striðinu gegn Hitler þar til full- ur sigur væri unniran. Nú hafa Rússar bæst í tölú bandamanna og er Maisky sendi- herra fuiitrúi þeirra. Anthony Eden, utanrikismála- ráðherra Breta, er í forsæti á fundinum. • RÆÐA MAISKYS Frh. af 1. síðu. myndi halda baráttunni áfram. En það væri skylda allra þjóða, Þúsundára- ríkið eltir Upton Sinclair er j saga sem gerist áriö 2000, t par bregður fyrir gleði- j höllum og risafiugvélum framtíðarinnar, undraefn- um sem eyðileggja alit lífrænt á jörðinni, utan j ellefu manns sem voru uppi i himingeymnum. Lesið um átök og athafn- ir pessara ellefu manna, sem eftir lifðu ájörðinni, og pér munið sanna að Þúsundárarikið, er ein hin skemmtilegasta bók sem hægt er að fá- Útbreiðið Alþýðublaðið. sem tækju þátt í baráttunni á móti Hitler, að senda Rússum hjálp, því að með því hjálpuðut þær sér sjálfum. 63 VICKI BAUM: SUMAR VIÐ VATNIÐ og eðallyndari en jafnvel May. En þegar Puck litla kom við handlegginn á Hell, missti hann alla stjórn á sjálfum sér. Það hafðþ reynt mikið á þolinmæði hans þetta sumar. Hann var búinn að fá nóg. Hann þoldi ekki meira. — Láttu mig vera, hrópaði hann. Hvað hafið þið í hyggju? Hvað viljið þið mér? Hvers vegna getið þið ekki látið mig vera í friði? Nú er nóg komið! Nú er nóg komið, segi ég. Ég kæri mig ekkert um ykkur Ég vil ekíri sjá ykkur, enga ykkar. Hefir ykkur ekki skilizt það ennþá? Aldrei gétið þið séð mig í friði. Aldrei er stundarfriður fyrir, ykkur. Þið eltið mig hvert sem ég fer. Skiljið þið ekki, að ég hefi annað um að hugsa? Ég er maður, eihs og aðrir, maður, sem hugsar alvarlega, þið skuluð fá að kom- ast að raun um það Það er aðeins ein, sem mér iþykir vænt um, aðeins ein, en um allar hinar er mér sama. Auk þess er ég veikur, og aldrei fæ ég að borða lyst mína. Ég er að deyja úr hungri hérna fyrir augunum á ykkur, en þið hugsið ekki um ann- að en þessa heimskulegu ást En nú er nóg komið! Meir en nóg! Og til þess að gefa orðum sínum meiri áherzlu, sló hann þrisvar sinnum út í loftið með hægri hendi, en um leið fann hann svo mikið til, að hann þagnaði og hneig aftur á bak ofan á svæfil- inn, undrandi á sínu eigin máttleysi. Puck hafði hörfað undan aftur á bak inn í horn- ið, þar sem köngullóin spann vef sinn, og augu hennar urðu stór og lýstu skelfingu, eins og jörðin hefði opnazt við fætur hennar. Eitthvað hræðilegt var að ske. Hún dró ótt andann, og eitthvað fór fram í hjarta hennar. — Segirðu þetta við mig? Slærðu til mín? spurði hún. En af því að hálsinn á henni herptist saman og varir hennar voru stirðar, gat hún naumast stamað fram þessum orðum. Hell lá í rúminu sínu og sneri frá henni andlitinu. Það var olíulykt í her- berginu og sótflyksur svifu um • herbergið. Puck gekk að lampanum og skrúfaði niður í honum. Svo fór hún í blauta kápuna sína og setti á sig hattinn. — Nú fer ég leiðar minnar — lang, langt í burtu, sagði hún. Svo stóð hún kyr stundarkorn, eins og hún væri að bíða eftir einhverju, sem aldrei kom. — Já, farðu, hugsaði Hell, en hann sagði það ekki upphátt. Hann var búinn að fá óráð aftur, og honum fannst hann hafa breytzt í margar persónur, og enn á ný var hann að reyna að finna upp eldtraustar kvikmyndir. Hurðin var opnuð og svalur gustur kom inn í herbergið. En hve litla andlitið á henni var raunalegt undir hettunni, hugsaði Hell. Svo fannst honum í óráð- inu, að hann hefði misst saltsýru ofan á höndina á sér. Svo lá hann kyr og horfði á ljósið. Loks gat hann hert sig og með því að neyta allrar orku komst hann fram úr rúminu. Hann slökkti á lamp- num, reikaði að dyrunum og kallaði út í myrkrið: — Puck, þú mátt ekki reiðast. En Puck sást hvergi. Snemma um morguninn stendur rennvotur hund- ur á strönd vatnsins. Hundurinn heitir Tiger, og hann ýlfrar án afláts. Úti á vatninu er bátur, og bát- inn rekur fram og aftur. í honum er enginn mað- ur. Þetta er bátur Dobbersberg. Smalinn frá selinu uppi í fjöllunum, sem kemur á hverjum morgni með mjólkina hefir komið auga á bátinn. í höllinni ríkir- ókyrrð. Fólkið gengur eirðarlaust fram og aftur. Lenitschká leitar um allt, fer úr eíntú herbergi í annað. leitar í útihúsum, grætur og kallar, en það ber engan árangur. Hún skilur ekki, hvernig í þessu getur legið. Einn vinnumannanna fer upp að selinu, en það hefir áður komið fyrir að ungfrúin færi þangað, þegar hún hefir viljað fá að vera í friði, en iþar hefir enginn séð hana. Frúin situr alltaf við símann og baróninn, sem er ennþá gulari én venju-, lega, fer á hestbak og ríður eftir Wurmtal. Gestirnir eru óttaslegnir. Þetta eru allt saman leikarar frá Vínarborg. Þeir voru að skemmta sér kvöldið áður, og enginn hafði tekið eftir því, að barónsdóttirin hvarf. Stór maður með breiðar herðar fer í leður- stígvél og kallar á karlmennina. Frú Bojan þolir ekki svona alvarlegt áfall. Hún líður í ómegin og er borinn upp í svefnherbergi sitt. Brátt berast frétt- irnar yfir vatnið, yfir til þorpsins, sem var hinum megin. Gestirnir í veitingahúsinu Stóri Pétur, þyrp- ast saman á grasflötinni og ræða málið hljóðlega. Allir vissu, að barónsdóttirin var ekki með öllum mjalla. Og nú yar svo komið, að hún hafði svipt sig lífi. Hún hafði fleygt sér í vatnið til hinna tuttugu og fjögurra jómfrúa frá sextándu1 öld. Það er svalur morgunn. Það hefir verið rigning um nóttina, en nú er það ekki lengur. Rök þoka er yfir öllu. Það drýpur af trjánum og af þakbrúnum i+Mátiíinfcff

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.