Alþýðublaðið - 31.10.1941, Page 1
Andarnir, sem Hitler hefir sært fram.
Hann hélt að hann hefði,gengið frá þessum þjóðum dauðum, nú sér hann, að hann ræður
ekki lengur við andana,, sem hann hefir sært fram.
Rússa* búa sig nn und>
]*~ að hðria úr Rostov.
/
Vélarnar fluttar úr verksmiðj-
unnm austur yfir Donfljótið.
------*------
Öllnm áblaupum hrundið
á ví gstöðvunum við Moskva
IHERSTJÓRNARTILKYNNINGU RÚSSA í MORGUN
er skýrt frá ógurlegum orustum vestan við Rostov í
gær og í nótt, og þykja fréttirnar þaðan benda ótvírætt til
þess, að Rússar búist ekki við að geta varið Rostov öllu
lengur.
Er sagt að allar verksmiðjur borgarinnar hafi þegar
verið yfirgefnar og vélar eða vélahlutir úr þeim verið flutt-
ir austur yfir Don, til þess að Þjóðverjar hafi þeirra engin
not, þótt þeir næðu borginni á sitt vald. Segja Rússar, að
Þjóðverjar fái þar ekkert annað en rústir.
Engu að síður þykir augljóst, að það yrð,i Rússum hinn al-
varlegasti hnekkir að missa Rostov, því að um iþá borg liggur
eina jámbrautarlínan, sem tengir Kákasus við Rússland. Olíu-
leáðsla liggur þangað einnig fKá Rákasus, en að sjálfsögðu verður
hún eyðilögð.
Rfkfsatjéri fellst
ekki ð laosiar-
beiloi stjóroarioo
ar fyrst om sioo.
Bíðut ettir afpreiðsiu dýr
tiðarBálanaa a alpingi.
RÍKISSTJÓRI lýsti því op-
inberlega; yfir í gær, að
hann hefði ákveðið að fallast
ekki á lausnarbeiðni stjórnar-
innar fyrr en séð væri, hverja
afgreiðslu dýrtíðarmálin fengju
á því þingi, sem nú situr.
Yfirlýsing ríkisstjóra, sem
send-var blöðunum og jafnframt
birt í útvarpinu síðdegis í gær,
var svohljóðandi.
„Eftir að hafa kynt mér svo
rækilega, sem kostur hefir verið
á, viðhorf.ið á ^lþingi, hefir rík-
isstjóri ákveðið að fresta því
að fallast á lausnarbeiðni ráðu-
neytis.ins, þar til útséð er um
það, hverj-a afgreiðslu dýrtíðar-
málin fá á aukaþingi því, er nú
situr. Ráðuneytið hefir ekki að
athuga við frest þennan og
mun það halda áfram stjórnar-
störfum á sama hátt sem hingað
Ornstan nm Moskvíi
Á vígstöðvunum við Moskva
segir í herstjórnartilkynningu
Rússa að barizt hafi verið af
hinni mestu heift í alla nótt,
en áthlaupum Þjóðverja hafi alls
staðar verið hrundið.
Verja Rússar nú, í hálfhringn
um, stern Þjóðverjar hafa slegið
um Moskva, sxiðurbakka Volga
fljótsins fyxir norðan borgina,
hjá Kalinin, norðausturbakka
Narafljótsins fyrir suðvestan
borgina hjá Malo Jaroslavetz og
norðurbakka Okafljótsins fyrir
sunnan borgina, skammt norðan
við Tula. Er látið skína í það
í fréttunum, að sókn Þjóðverja
sé sérstaklega hættuleg á þess-
um síðastnefnda stað.
Fyrir sunan Charkov sögðust
Þjóðverjar seinnipartmn í gær
Frb. á 4 siðu.
Blnti ðr pýzkn stríðskvlkmyBd-
inni „Eldsfeírnin“ sýndnr hér.
.---..
Náðist á Bermudaeyjuni og var settur Imn i
stórkostlega sðgnlega kvikmyod trá Amertkn.
KVÖLDIÐ áður en Þjóð-
verjar réðust inn í Nor-
eg í fyrra sýndi sendiherra
þeirra í Oslo nýja þýzka kvik
mynd þar og bauð ýmsum
norskum fyrirmönnum á sýn-
inguna.
Þessi kvikmynd hét „Eld-
skímin“ og sýndi vígvél Þjóð-
verja — og hin ægilegu hryðju-
verk þeirx-a í Póllandi, eftir að
þeir réðust á það land.
Átti kvikmyndin að líkindum
að sýna Norðurlöndunum á
hverju þeir ættu von, ef þeir
tækju sér vopn í hönd til varnar.
Þessa mynd sýndu Þjóðverj-
ar og víða í löndum áður en þeir
réðust á þau.
Hluti úr þessari kvikmynd er
nú kominn hingað og verður
sýndur í Gamla Bíó innan fárra
daga.
Er þessi hluti „Eldskírnar-
innar“ að vísu stuttur en sýnir
þó ógnarmátt hinnar þýzku víg-
vélar og eyðileggingarstarf henn
ar. Bandaríkjamenn náðu þess-
um hluta myndarinnar á Ber-
mudaeyjum, en hún kom þangað
í pósti til Suður-Ameríku.
Hafa Bandaríkjamenn sett
hana inn í mikla sögulega kvik-
mynd um hugsjónir Ameríku-
manna, þátttöku þeirra í síðustu
styrjöld og ástæðurnar fyrir
henni — og undirbúning' þeirra
undir átttöku í núverandi styrj
öld.
Öll þessi kvikmynd er hin
athyglisverðasta — og mun efni
hennar seint fyrnast þeim, sem
sjá hana.
Ingibjðrg H. Bjarna-
son skólastj. Kvonna
skðlaus lézt í gar.
\T LUKKAN hálf átta í gær-
kveldi andaðist hér í bæn-
um Ingihgörg H. Bjarnason,
skólastjóri Kvennaskólans í
Reyikjavík, tæplega 73 ára að
aldri. Banamein hennar var
hjartabiiun.
Hún hafði um alllangt skeið
verið heilsuveil, en íþó gegnt
störfum þar til í haust. Þá á-
gerðust veikindin svo mjög, að
hún hafði ekki haft fótavist frá
því skólinn var settur og var það
í fyrsta skipti frá því að hún tók
við skólastjórn, að hún gat ekki
sett hann.
í dag fellur niður kennsla í
Kvennaskólanum í tilefni af
láti hennar.
Ingibjörg H. Bjarnason var
fædd 14. desember 1868 að Þing
eyri í Dýrafirði, dóttir Hákonar
Bjarnasonar kaupmanns og frú
Jóhönnu Þorleifsdóttur prófasts
í Hvammi í Hvammssveit. Hún
var sett ung til mennta og var
við nám bæði innanlands og
utan. En því næst gerðist hún
kennari v.ið kvemxaskólann hér
í Reykjavík og tók við sicóia-
stjórn þar árið 1906 Hefir hún
alla tíð síðan eða í 36 ár. haft
iþað starf á hendi við vaxandi
vinsældir og virðingu nemenda
Hrh , á 4. sfóu.
5 mínútna allsheijarverk-
f all i Frakklaidi kU.idag?
De Gaulle skorar á þjóð sína að mót~
mæla þannig morðunum á gislunum.
DE GAULLE, leiðtogi
hinna frjálsu Frakka, hef
ir skorað á þjóð sína að gera
fimm mínútna allsherjarverk
fall klukkan fjögur í dag í
mótmælaskyni gegn morðun-
um á hundruðum Frakka
undanfarnar vikur, sem Þjóð
verjar hafa tekið fasta og lát-
ið skjóta í hefndarskyni fyrir
árásir á þýzka hermenn.
De Gaulle ávarpaði frönsku
þjóðina í útvarpi frá London í
gærkveldi og hvatti hana til
þess að leggja niður alla vinnu
á mínútunni klukkan fjögur í
dag. Er svo til ætlast, að allir
staðnæmist þar sem þeir eru
þær fimm mínútur, sem alls
herjarverkfallið á að standa.
Fimmtán mínútum áður en
allsherjarverkfallið á að hefjast,
verður útvarpað frá London
nýju ávarpi til frönsku þjóðar-
innar.
Naeturvarzla blfreiða.
er í nótt hjá Bifröst, sími: 1508.