Alþýðublaðið - 10.02.1942, Blaðsíða 1
ftlTSTJÓRI: STEFÁN PÉTURSSON
inni mw%vn
iUBLAÐIÐ
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXRI. ARGANGUR
ÞRIÐJUDAG 10. FEBR. 1942
35. TÖLUBLAÐ t
Sainingar andirriíaði
prentara og prentsmiðjueigend
Samið var upp á nákvæmlega sömu kjör og
áður, og gildir samningurinn tii 1. okt. 1943.
Prentarar hðVnuðu ðllnnm smáæarlséíiint
og vísœðn IMutnn gerðag’«iémsi»i
Prjó leiiiskip
tekin í notknn.
lemí póst- ag símasamband
við BandaríkiM.
RÍKISSTJÓRNIN gaf út
opinbera tilkynningu í
gærkveldi um samninga okk-
ar íslendinga við stjórn
Bandaríkjanna.
A@ mestu leyti var efni til-
kynningarinnar áður kunnugt,
og Jȇ fyrst og frfemst um lcaup
Bandaríkjanna á útflutnings-
vörum okkar til Bretlands og
greiðslu þeirra í dollurum.
Samkvæmt samningunum
hefir Bandaríkjastjórn lofað að
sjá svo um, að við getum keypt
nauðsynjar okkar í Bandaríkj-
unum. Þá var skýrt frá því, að
tekið myndi verða upp beint
síma- og póstsamband við
Bandaríkin, og mun það kom-
ast í lag innan skamms.
Þá var tilkynnt að ríkis-
stjómin hefði tekið þrjú flutn-
ingaskip á leigu í Bandaríkjun-
nm og hafa 'þau nú verið tekin
Frh. á 4. síðu.
SAMNINGAR varu undirritaðir í gærkveldi mi... -------------
íslenzka prentarafélags og Félags íslenzkra prent-
smiðjueigenda og Ríkisprentsmiðjunnar Gutenberg — og
tilkynti prentarafélagið það í útvarpinu í dag.
Samningarnir eru óbreyttir frá því sem var fyrir ára-
mót en samið er til 1. október 1943 — og telja prentarar
það hagstæðari uppsagnartíma fyrir sig en þann, sem þeir
hafa hingað til haft.
Tilboð hafði prentarafélaginu borist frá prentsmiðjueigend-
um og var það í aðalatriðum á þá leið, að vegna óhagstæðs samn-
ings á árinu 1941 skyldi fullnuma prenturum greidd 400 kr.
uppbót, og fullnuma stúlkum 200 króna uppbót fyrir s. 1. ár
mteð fjórmn jöfnum greiðslum, en sá böggull fylgdi því skammrifi,
að þeir, sem segðu starfi sínu upp á árinu, fengju ekki greidda
þessa uppbót að fullu, eða það sem þá væri ógreitt af henni.
Fjölmennur fundur prentarafélagsins í fyrrakvöld sam-
þykkti svo að segja í einu hljóði, að hafna þessu tilboði og taka
ekki við neinum smánarbótum, sem fyrirfram yar vitað að lagðar
yrðu fyrir hinn lögþvingaða gerðardóm. Kaus fundurinn heldur
að bjóðast til að undirskrifa samninga um óbreytt kjör frá því
sem áður var og gera þá til 1. október 1943, en að viðurkenna á
engan hátt hinn lögþvingaða gerðardóm.
Hótmæli oegn knonnar-
lögnnum «o gerðaMómi
í samræmi við þessa afstöðu
var eftirfarandi ályktun sam-
þykkt í einu hljóði :
Hið íslenzka prentarafélag
Japanir koma í nðtt metra
Uöi á land víð Sinpapore.
♦.-....-
Ná einnig á norðurströnd eyjarinnar.
—----—-------- v
‘jC' REGN frá Singapore í morgun hermir, að Japönum
-*■ hafi í nótt tekizt að setja meira lið á land á eyjunni
— nú á norðurströnd hennar.
Harðir bardagar hafa verið háðir síðan í gær á vesturströnd
eyjarinnar, og hafa Bretar orðið að láta þar eitthvað undan
síga. Fregn frá Tokíó í margun fullyrðir, að Japanir hafi náð
á sift vald Tenga-flugvellinum, sem er vestast á eyjunni..
Japanir halda uppi látlaus- Bandaríkjamanna
um loftárásum á Singapore og
á varnarstöðvar Breta, Ástra-
líumanna og Indverja. Það er
viðurkennt í fregnum að aust-
an, að ræðismannsskrifstofa
í borginni
hafi orðið fyrir skemmdum.
Fregnir frá Austur-Indíum
Hollendinga herma í morgun,
að Japanir hafi nú einnig sett
(Frh. á 2. síðu.)
samþykkir á fundi sínum 8.
febrúar 1942 eftirfarandi:
1. Félagið ítrekar mótmæli
sín gegn afskiptum ríkisvalds-
ins af löglegum ráðstöfunum
launastéttanna til kjarabóta.
Það mótmælir útgáfu bráða-
birgðalaga um gerðardóm, þar
sem eiðsvarnir dómarar hafa
orðið berir að augljósri hlut-
drægni og skirrast ekki við að
kaupa einn með því sem af öðr-
um er tekið.
2. Félagið harmar það að
nokkurt félag skuli liafa orðið
til að viðurkenna gerðardóminn
með því að leggja mál sín und-
ir úrskurð hans og hlíta honum,
og veikja þar með mátt þeirra
samtaka, er skapast höfðu gegn
honum.
3. Félagið vill Ieggja fram alla
baráttukrafta sína til þess að
afmá þá kúgunarf jötra, sem g<erð
ardómslögin eru, og heitir á all-
an verkalýð að sameinast um
Alþýðusambandið og beita því
sem vopni í baráttunni fyrir end
urheimtu á samningsfrelsi vferk-
lýðsfélaganna.
Þar sem samningar hafa nú
verið undirskrifaðir, munu
prentarar nú hverfa aftur til
(Frh. á 2. síðu.)
Franska hafskipið „Normandi“ og skipstjóri þess.
Stðrbrani i traiska bafskip-
inu ,Normandie‘ i Nev Vork.
PaH Iðggair mú á hliðlnni i hofn~
inni og sjórinn fossar inn í paö*
|J[ IÐ MIKLA franska haf-
skip ,Normandie“, sem
stjórn Bandaríkjanna lagöi
hald á í höfn vestra fyrir
nokkru og síðan var skýrt
upp og kallað „Lafayette",
liggur nú á hliðinni í höfn-
inni í New York eftir stór-
bruna, sem geysaði í skipinu
í samfleytt 7 klukkustundir
síðdegis í gær.
Eldurinn kom upp skömmu
eftir hádegi, og voru þá um
2500 verkamenn að vinna að
breytingu á skipinu. Er enn ekki
fullkomlega upplýst, hvernig
eldurinn kom upp, en í fregn
frá London í morgun er sagt,
að engimi sérstakur grunur
hvíli á um það, að um skemmd-
arverk liafi verið gð ræða.
Eftir að unnið hafði verið að
slökkvistarfi í skipinu í 7
klukkustundir, var' búið að
kæfa eldinn og töldu menn, að
skipinu hefði verið bjargað.
Það var þó búið að fá mikla
slagsíðu og í nótt, þegar 12
klukkustundir voru liðnar frá
upptöku eldsins, snaraðist það
á hliðina og fossaði vatn inn í
skipið. Liggur það nú þannig á
höfninni í New York.
Af þeim mikla mannfjölda,
sem í skipinu var, þegar eldur-
inn kom upp, fórst ekki nema 1
maður, en 75 særðust.
„Normandie" eða „Lafa-
yette,“ eins og það hét síðustu
mánuðina, var stærsta hafskip
franska flotans og yfirleitt eitt
stærsta hafskip í heimi. Það er
83 000 smálestir að burðar-
magni.
Eftir að voþnahléð var sam-
ið í Frakklandi sumarið 1940,
var skipið kyrsett í höfn í
Bandaríkjunum, og síðar gert
upptækt af Bandaríkjastjóm-
inni, eftir að tilraunir höfðu
verið gerðar til skemmdar-
verka á skipinu.
Heyrst hefir, að ætíunin
hafi verið að taka það nú í
þjónustu Bandaríkj afIotans og
byrjað hafi verið á því að
breyta því í flugvélamóður-
skip.
Skemmtifimdur F. U. J.
Félag ungra jafnaðarmanna efnir
til fræðslu- og skemmtifundar
næstkomandi fimmtudagskvöld í
Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu.
Nánar augl. í blaðinu á morgun.