Alþýðublaðið - 02.05.1942, Síða 2
Laug&rd&gm- 2. maí 1942.
Þúsundir laun-
þega tóku þátt
í hátíðahöldum
verkalýðsins.
Tflrann fhaldsins til
a® feljáfa raðir lann-
fiega nistékst
algerlega
Hátíðahöld verka-
LÝÐSFÉLAGANNA í
gær, 1. maí, voru f jölmennari
en nokkru sinni fyrr hér í
Reykjavík. Dagurinn varð
gleðilegur vottur um vaxandi
haráttuhug alþýðusamtak-
auna, mátt þeirra og faglega
einingu.
Kröfugangan, sem verka-
lýðsfélögin efndu til, var
stærri en nokkur önnur hópganga eða kröfuganga, sem
fram hefir farið áður hér á landi. Tóku margar þúsundir
manna úr öllum stéttum launþega þátt í henni.
Mjög mikill fjöldi fána var borinn í göngunni, en auk
þess var þar mikið af áletruðum spjöldum og borðum. Var
kröfugangan og hátíðahöldin yfirleitt samtökunum til sóma,
enda fóru þau fram með miklum virðuleik og festu.
Tilraun Sjálfstæðisflokksins til að kljúfa samtök laun-
þeganna á þessum hátíðisdegi þeirra mistókst gersamlega.
Við Varðarhúsið, þar sem Sjálfstæðismenn höfðu boðað til
útifundar, mættu að eins fáar hræður, og bar þar mest á
starfsliði flokksins og öðrum handbendum hans.
Kröfugangan á leiðinni niður Bankastræti.
htiil hluti hennar sest.
Veðrið var dásamlega gott,
logn og hiti, svo að allir gátu
íarið út á götuna, jafnt konur
og böm sem karlar. Fánar voru
dregnir að stöngum mjög víða
um bæinn snemma um morgun-
inn.
Hátíðahöld verkalýðsfélag-
anna hófust þegar eldsnemma
í gærmorgun. Starfslið samtak-
aruia mætti í skrifstofunum,
þar sem starfsemi dagsins var
imdirbúin. Tóku menn þar
merki til að selja, fengu að vita
um starfshlutverk sitt um dag-
inn o. s. frv.
Klukkan 11 predikaði síra Sig-
urbjöm Einarsson úr útvarps-
sal og talaði hann meðal annars
um verkfærin og mennina. Var
auðfundin samúð prestsins og
skilningur hans á baráttu verka
lýðsstéttarinnar fyrir bættum
kjörum og réttlátara þjóðfélagi.
Krðla gangan.
Klukkan 1,15 fór fólk að
safnast saman við alþýðuhúsið
Iðnó. Mættu þar fyrstir fána-
berar félaganna, svo og þeir,
sem báru spjöld og áletraða
borða í göngunni. Klukkan
rúmlega 2,30 ávarpaði Jón Sig-
urðsson framkvæmdastjóri Al-
þýðusambandsins mannfjöld-
ann af svölum Iðnó. Skýrði
hann frá þyí, hvemig starfsemi
dagsins yrði hagað, um hvaða
götur yrði gengið o. s. frv. Að
því loknu sagði hann:
„í fyrsta skipti um mörg ár
kemur verkalýður Reykjavíkur
nú sameinaður út á götur bæj-
arins, eða ég kalla það, því að
ég geri ekki ráð fyrir því að
það sé mikið af launþegum,
sem hlýða kalli höfunda kúg-
unarlaganna um að kljúfa rað-
ir samtakanna í dag. Nú er og
þörf á sameiginlegum átökum
í verkalýðsmálunum, því að
samtökunum og afkomu laun-
þegans er nú sótt hart og fast.
Við skulum sýna andstæðing-
um okkar í dag, að við erum
einhuga og að við erum þess
albúin að heyja harða og sleitu-
lausa baráttu fyrir frelsi sam-
takanna og sjálfsákvörðunar-
rétti launþeganna.“
Þegar Jón Sigurðsson hafði
lokið máli sínu, var gefin skip-
un um að leggja af stað í göng-
una. Hafði fólk þá safnazt sam-
an umhverfis Iðnó, í Vonar-
stræti og í Templarasundi und-
ir fánunum, en fremst fór
Lúðrasveit Reykjavíkur. Sér-
stakir verðir voru hafðir til
þess að gangan færi skipulega
fram, en þeir reyndust of fáir.
Var nú lagt af stað og farnar
þær götur, sem ákveðið hafði
verið að fara. Skal þess getið
til þess að sýna, hve gífurlegur
mannfjöldi tók þátt í göngunni,
að þegar Lúðrasveitin var að
óeygja upp á Frakkastíginn,
voru síðustu þátttakendurnir í
göngunni enn í Hafnarstræti.
gata, Lækjartorg og Banka-
Var það tilkomumikil sjón að
sjá allan þennan mannfjölda
í Hverfisgötu undir skógi af fán-
um og áletruðum borðum.
DtifnndHrifln við Baokastræti.
Ræðupallur hafði verið reist-
ur á túninu fyrir framan brauð-
gerðarhúsið í Bankastræti. Þeg-
ar mannfjöldinn kom niður
Bankastræti fóru þeir, sem
báru fána verkalýðsfélaganna,
inn á túnið og skipuðu sér í
fylkingu kringum ræðustólinn.
Lúðrasveitin kom einnig inn á
túnið, en aðrir þátttakendur í
göngunni héldu áfram inn í
Lækjargötu og alla leið að
Amtmannsstíg. Var Lækjar-
stræti, svo og túnin þama í
grénnd svört af fólki, sem
hlýddi á ræðurnar, sem nú fóru
fram, og lögin, sem Lúðrasveit
Reykjavíkur lék, en það voru
aðallega baráttu- og hátíða-
söngvar verkalýðsins, auk þjóð-
söngsins.
Þegar fólk hafði staðnæmzt á
þeim stöðum, sem að framan
eru taldir, hófust ræðuhöldin
og var útifundinum stjórnað af
Jóni Sigurðssyni.
Fer hér á eftir útdráttur úr
raéðum þeirra, sem töluðu, en
þeir voru 6, fulltrúar stærstu
verkalýðsfélaganna:
Sigurjón Á. Ólajsspn, for-
maður Sjómannafélags Reykja-
víkur og forseti Alþýðusam-
Sigurjón Á. Ólafsson talar á útifundinum við Bankastræti.
bands íslands: Hann hóf ræðu
sína með því, að biðja menn að
sýna hinum stríðandi félags-
bræðrum í öðrum löndum virð-
ingu og samúð með mínútu
þögn og var það gert. Síðan
sagði Sigurjón meðal annars:
„Á þessp ári hafa verkalýð
landsins verið færðar gjafir: Á
gamlárskvöld flutti forsætis-
ráðherra landsins ræðu og með
henni rauf hann friðinn í land-
inu og efndi til ófriðar. Hann
kom í veg fyrir friðsamlegt
samkomulag launþega og at-
vinnurekenda, hóf stríð milli
þessara aðila og lagði grund-
völlinn að næstu gjöfinni. 8.
janúar taldi forsætisráðherra
og lagsbræður hans í Fram-
sóknarflokknum og Sjálfstæðis-
flokknum að jarðvegurinn væri
nógu undirbúinn, og ríkis-
stjórnin setti hin alræmdu
kúgunarlög gegn verkalýðnum.
Með þeim var verkalýðsstéttin
svift samningsréttinum, samn-
ingar, sem gerðir höfðu verið á
friðsamlegan hátt, gerðir ógild-
ir og jafnframt efnt til enn
meiri óvildar. í gærkveldi sam-
þykkti alþingi kúgunarlögin og
er ekki hægt að líta á þá sam-
þykkt alþingis daginn fyrir há-
tíðis- og baráttudag alþýðunnar
öðruvísi en sem ögrun við
verkalýðsstéttina. Þetta var
þriðja gjöfin. Og nú er verið að
undirbúa þá fjórðu: Allsherjar
vinnumiðlunarskrifstofu, sem
ríkisstjórnin ætlar að nota til
þess að kúga verkalýðinn til
þess að taka boðum, sem eru
verri en hann annars þyrfti að
sæta. Um þetta er ríkisstjórnin
nú að semja við herstjóraina.
Við fylkjum nú liði gegn öllu
þessu. Við stöndum saman í
baráttunni gegn kúguninni og
ranglætinu, og ég get fullvissað
þá, sem berjást nú gegn verka-
lýðssamtökunum, að þau ætia
Frh. á 7. síðu.
AmeríkskQ f bermean
_ ‘- i nota
strætisvagna frð kL
' : ■ X<y
6.31 e. b. tii
kl. 6 f. h.
Herstjjórnin sér peint
fyrir farkostf á Jíess-
nm tinia.
C TJÓRN bandaríkska
^ setuliðsins hér á landi
hefir gefið út fyrirskipun til
hermannanna um það, að þeir
megi ekki nota íslenzka
strætisvagna á tímabilinu frá
klukkan 6,30 að kvöldi til kl.
6 að morgni.
Jafnframt hefir hermönnun-
um verið tilkynnt, að herstjóm-
in muni reyna að sjá þeim fyrir
farkosti á þessu tímabili. Segir
enn fremur í tilkynningunni, að
herstjórnin gefi þessa fyrirskip-
un vegna þess, að strætisvagn-
arnir eigi fullt í fangi með að
fullnægja þörfum íslendinga
sjálfra.
Eins og kunnugt er, hefir oft
verið á það minnst hér í blaðinu,
að það ylli miklum vandræðum,
hve hermennirnir nota mikið
strætisvagnana, sérstaklega á
vissum leiðum og á vissum tím-
um. Var þeirri fyrirspurn meðal
annars beint til herstjórnarinn-
ar nýlega, hvort ekki væri
mögulegt, að hún sæi hermönn-
um sínum fyrir farkosti á til-
greindum leiðum og á tilgreind-
um tíma.
Nú hefir herstjórnin orðið við
þessari 4>eiðni, og ber að þakka
•þá nærgætni, sem hún sýnir.
Samvirma um svona mál er
nauðsynleg, og það er gleðilegt,.
þegar hún tekst.
Einar N. Einarsson
skipherra flnmtugBr
EINAR M. EINARSSON
P INAR M. EINARSSON
skipherra, er fimmtíu ára
í dag.
Einar er einn af kunnustu
skipstjórum þessa lands. Hann
var lengi skipherra á varðskip-
inu „Ægi“ og gat sér mikinn
orðstír fyrir dugnað yið 'land-
helgisgæzlu og frækilega fram-
göngu við björgunarstörf:
Götulíf í New Vork
heitir framhaldsmyndin, sem
Gamla Bíó sýnir núna. Aðalhlut-
verkið leikur Jackie Cooper.