Alþýðublaðið - 06.05.1942, Side 2
ALÞYÐUBUÐIÐ
Miðvikudagm- 6. maí 1942»
Setuliðsviniaan:
Samningum rikisstjórnarinn
ar við setuliðin er nú lokið.
—~— »
En ríkisstjórnin heldur ákvæðum þeirra
leyndum lyrir almenningi!
Jón Gfslason mnrari
dé af slysíörum
i iær.
JÓN GÍSLASON, múrari,
Barónsstíg 22, beið bana
af slysförum í gær. Hann var
57 ára að aldri.
Slysið varð kl. 1.25. Jón mun
hafa verið á reiðhjóli, og er
hann kom á gatnamót Lauga-
v. og Hverfisg., kom brezk
fólksbifreið á móti honum og
varð Jón fyrir henni. Kastað-
ist hann í götuna og-var fluttur
meðvitundarlaus í Landsspít-
alann. Þar lézt hann kl. 4.20.
Hafði höfuðkúpan brotnað.
Jón Gíslason var hið mesta
valmenni. Hann var bráðvel
gefinn, alvörumaður mikill og
trygglyndur. Hann var félagi í
Dagsbrún og hafði verið í því
félagi í fjölda mörg ár. Yfir
leitt var hann allt af boðinn og
búinn til starfa, þegar alþýðu-
samtökin 'þurftu á honum að
halda.
Er að Jóni Gíslasyni hinn
mesti mannskaði.
T
LOKKSBLAÐ FORSÆTISRÁÐHERRANS, Tímiirn,
skýrði svo frá í gær, að samningum ríkisstjórnarinn-
ar og yfirmanna setuliðsins um hernaðarvinnuna, muni nú
lokið. Segir það árangurinn hafa orðið þann, að talsverð
fækkun muni verða í hernaðarvinnunni, einkum sumarmán-
uðina, og allar ráðningar muni verða í höndum opinberrar
vinnumiðlunarskrifstofu. Kemst „Tíminn4 svo að orði, að
þetta megi eftir atvikum telja viðunandi úrslit, þar eð búast
hefði mátt við að setuliðsstjómirnar vildu heldur fjölga en
fækka verkamönnum í hernaðarvinnunni vor- og sumar-
mánuðina.
Engin opinber tilkynning hef-
ir verið gefin út af ríkisstjórn-
inni um það, að þessum samn-
ingum sé lokið, og því síður hafa
samningarnir sjálfír veri birtir.
Verður það að teljast mjög
merkilegt, að ekki skuli vera
gerð nánari gein, fyrir þessu
máli. Hér er þó um ráðstafanir
að ræða, sem snerta ekki að eins
þá verkamenn, sem með slíkum
samningum ríkisstjórnarinnar
eru sviptir atvinnunni hjá setu
liðunum og ofurseldir vinnu-
miðlunareinokun ríkisvaldsins,
þær snerta allar verkalýð lands-
yfirleitt, því að engum
Bændaglima sfnd á
igróítaviku Armanns
í kvöid.
IKVÖLD er næstsíðasti dag-
ur íþróttaviku Ármanns
og er þetta glímukvöld. Þor-
steinn Einarsson íþróttafulltrúi
flytur erindi um íslenzku glím-
una, þá sýna um 20 menn glímu,
en síðast fer fram bændaglíma
að fornum þjóðlegum sið.
Glíma hefir verið æfð af
kappi í vetur og aldrei hefir
verið svo mikil þáttaka í skjald-
argl. Ármanns sem í vetur. í
dag verður ábyggilega margur
Frh. á 7. síðu.
Vandræði sjðkrahnsanna nn
í hann veginn að leysasí.
— '»
Allmikið af starfsfóiki hefur gefið sig
fram, en þó vantar nokkrar stúlkur.
SKRIFSTOFUR RÍKIS-
SPÍTALANNA hafa,
eins og kurmugt er, auglýst
eftir starfsfólki svo að segja
viðstöðulaust í hálfan mánuð.
Var Ííka allt áð íkomast í
vandræði vegr? vöntunar á
starfsfólki hæði í Lands-
spítaíanum. á Vífilstöðum og
á Kleppi. Á Kleppi var ekki
hægt að taka til afnota nýja
og fullkomna sjúkradeild af
þessum ástæðum og svo leit
út að Vífilstaðahælið yrði að
draga saman búskapinn.
En þetta hefir nú mikið lag-
azt. Auglýsingar skrifstofa
ríkisspítalanna hafa nú boríð
þann árangur,að mest af nauð-
synlegu starfsfólki er þegar ráð-
i, þó vantar enn nokkrar stúlk-
*r, tvær til dæmis í Landsspítal-
ann og eins á Klepp. Karlmenn,
sem vantaði eru hins vegar
ráðnir.
Eru þetta mikil og góð tíðindi,
því að það hlaut að hafa ófyrir-
sjáanlegar afleiðingar ef sjúkra-
mmmmmmmmmmmm ú, . , -vr
húsin yrðu að draga saman
reksturinn vegna vöntunar á
starfsfólki. Framkvæmdastjóri
ríkisspítalanna Guðmundur
Gestsson skýrði Alþýðublaðinu
svo frá í gær, að hann hefði
góðar vonir um, að nægilegt
starfsfólk fengist fyrir og um
14. þessa mán., en þá skipta
stúlkur oft um vistir. Vinna á
ríkisspítölunum er talin góð,
matur góður og húsnæði mjög
vel við unandi. Kaup er líka
sæmilegt, að minnsta kösti er
ekki kvartað undan því.
Það er ljóst dæmi um það
hve ástandið hefir breyzt í þess-
um málum að fyrir styrjöldina
voru allt af tugir stúlkna og
pilta á biðlista hjá skrifstofu
ríkisspítalanna, en n,ú hafa
sjúkrahúsin verið í hreinustu
vandræðum. — Talið er líklegt
að hin nýja deild á Kleppi geti
tekið til starfa í þessum mánuði,
enda er á því mikil nauðsyn, því
sagt er að maxgir sjúklingar
bíði.
ms
blandast hugur um, að hér er
ekki að eips um tilraun að ræða
af hálfu ríkisstjórnarinnar til
að tryggja innlendri framleiðslr
nægilegt vinnuafl, heldur er
meining hennar með þessum
samningum — og ekki síður
en hitt —• að kúga verkalýð
landsins undir gerðardómslögin,
sem enn þá hefir ekki tekist, af
því að ríkisstjórnin hefir ekki
verið einráð um atvinnumögu-
leika hans.
Þess verður að krefjast, að
ríkisstjórnin birti tafarlaust
samninga þá, sem hún hefir
gert við yfirmenn setulið-
anna, og geri á þann hátt
fulla grein fyrir því, hvað hún
hefir á bak við tjöldin samið
af launastéttum landsins
Það er ekki til neins fyrir
ríkisstjórnina, að afsaka samn
inga sína með vinnuþörf fram
leðislunnar hér innan lands. Því
hefir verið yfirlýst af Alþýðu
sambandi íslands, að það sé
reiðubúið til samvinnu við hana
um skipulagningu vinnuaflsins
þannig að hin innlenda fram-
leiðsla sé tryggð — svo fremi
að kaupkúgunarákvæði gerðar-
dómslaganna séu úr gildi feld.
En því neitar stjórnin, það sýn-
ir bezt, að það er ekki fyrst og
fremst vinnuþörf framleiðsl-
unnar, sem hún er að hugsa um
heldur framkvæmd kúgunar-
Iaganna.
St|órnarflokkarnlr á
méti genglshækkun!
... *-------,
Fulltrúar þeirra í fjárhagsnefnd
hafa nú tekið ákveðna afstöðu
gegn gengishækkunarfrumvarpinu
FJÁBHAGSNEFND NEDRI DEILDAR, s-em um langt
skeið hefir haft gengishækkunarfrumvarp Alþýðu-
flokksins til athugunar, hefir nú klofnað út af því. Hafa
fulltrúar Framsóknarflokksins, Sjálfstæðisflokksins og
Bændaflokksins tekið ákveðna afstöðu gegn því, að gengi
krónunnar verði hækkað og stendur því fulltrúi Alþýðu-
flokksins í nefndinn einn með því.
Meiri hluta fjárhagsnefndar, sem þannig hefir lýst sig
andstæðan gengishækkun, skipa Framsóknarmennimir
Skúli Guðmundsson og Sveinbjöm Högnason, Sjálfstæðis-
maðurinn Jón Pálmason og Bændaflokksmaðurinn Stefán
Stefánsson. En fulltrúi Alþýðuflolcksins í nefndinni, sem
leggur til að gengishækkunarfrumvarpið verði samþykkt,
er Haraldur Guðmundsson.
Meiri hlutinn hefir enga ástæðu fært fyrir þeirri afstöðu,
sem hann hefir nú tekið til málsins.
l
UppeMisheinilið í Borgar-
flrðl byrjar i pessnm mánaðl
Ungmennadómstóllinh er nú þegar foú-
inn að dæma í 6 málum.
T TNDANFARIÐ hefir verið unnið mjög að því, að finn&
lausn á vandamáli, sem mikið hefir verið rætt, en þa8
er vandræði unglinga, sem leiðst hafa út á glapstigu, ekk-
ert heimili eiga, eða sama og ekkert, og foreldrarnir, eða
aðrir aðstandendur, ráða ekkert við.
Það var svo komið, að hið opinbera varð að hafa ein-
hver afskipti af þesu máli og þess vegna, meðal annars,
voru sett bráðabirgðalög um eftirlit með ungmennum í
desember síðast liðnum. Þetta frumvarp svo og annað f
sambandi við þetta vandamál, hefir nú legið fyrir til at-
hugunar hjá alþingi og verið rætt þar í nefnd og í deildum.
Starfsfyrirkomulag þessa
uppeldisheimilis, sem er raun-
verulega fyrsta uppeldisheimil-
ið hér á landi, mun verða snið-
ið eftir beztu reynzlu, sem feng-
izt hefir af rekstri uppeldis-
heimila á Norðurlöndum. Þar
verður unglingunum, sem allt
munu verða stúlkur, sköpuð
vinna, bæði innivinna svo og
útivinna, garðrækt og þess hátt-
ar. Mun forstöðukona þegar
hafa verið ráðin fyrir heimilið
svovog annað starfslið þess.
ÞjófnaSur.
í fyrradag kvað sakadómari
upp dóm yfir manni, sem hatði
stolið armbandsúri. Fékk hann 45
daga fangelsi og var sviptur kosn-
ingarrétti og kjörgengi. Hafði
þessi maöur áður fengið dóm fyr-
ir þjóínað, en skilorðsbundið.
En unglingaeftirlitið hefir
unnið að því undanfarið að
koma þessu máli — og þá fyrst
og fremst björgunarstarfi fyrir
unglingana — í sæmilegt horf.
Hefir unglingaeftirlitið ráðið í
sina þjónustu eftirlitsmann:
Ingimar Jóhannesson kennara,
sem manna bezt má treysta til
þess að vinna að þessum málurn
af þeirri nærgætni og sam-
vizkusemi, sem nauðsynleg er í
afskiptum af svo miklu tilfinn-
ingamáli, sem hér um ræðir.
Nokkurs konar upptöku-
heimili hefir verið stofnað hér
í bænum til bráðabirgða og er
það í „Sóttvarnahúsinu“. Er,
eins og að framan segir, ætlazt
til, að þangað séu unglingar,
sem eru á glapstigum, settir til
bráðabirgða. Síðan verði þeir
fluttir á uppeldisheimili. Þetta
uppeldisheimili verður að
Kleppjámsreykjum í Borgar-
,firði, en það er prýðisgóð jörð
og mjög fallegt þar. Þetta heim-
ili átti að vera tekið til starfa,
en erfitt hefir verið að fá ýmsar
framkvæmdir á húsakynnum
þar, en því mun nú að mestu
lokið og mun heimilið taka til
starfa í þessum mánuði.'
Það er ungmennadómstóll-
inn, sem þeir eiga sæti í Jóna-
tan Hallvarðsson sakadómari,
Ármann Halldórsson uppeldis-
fræðingur og skólastjóri og ÓI-
afur Sveinbjörnsson lögfræð-
ingur, sem úrskurðar ungmenní
á þessi heimili, en auk þess mun
barnaverndarnefnd einnig ráð-
stafa unglingum þangað. Það»
þarf ekki að taka það fram, að
mjög verður vandað til allrar
þessarar starfsemi, bæði rann-
sóknar á málum ungmennanna,
svo og aðbúð og starfrækslu
heimilanna og verður að gera
ráð fyrir, að dvölin á úþpeldis-
heimilinu að Kleppj árnsreykj-
Frh. á 7. síðu.