Alþýðublaðið - 11.06.1942, Page 7
I'Í3®mtTw£ag'uz' 11. júná 1942.
ALJ>YÐUBLAÐ>tÐ
S’ýfv *' • * ■
n r
íslandsmótið :
- < í’. j. ýv v vj va
Nœturiaefcnif, esr María Hall-
grimsdóttir, Grundarstíg 17, sími
Næturvörður er i Iðunnarapó-
teki.
ÚTV'ARPK):
12,15—13,00* Hádegisútvarp.
15,30—16,00 Miðdegisútvarp.
19.25 Hljómplötur: Söngdansar.
10,40 Lesin dagskrá næstu viku.
20,00 Fréttir.
20,30 Minnisverð tíðindi (Jón
Magnússon fil. kand.).
20.50 Hljómplötur: Cellólög.
21,00 Erindi: Um vindrafstöðvar
(Guðmundur Marteinsson
raffræðingur).
21.25 Útvarpshljómsveitin: Lög
úr söngleikunm ..Ævintýri
Hof£manns“, eftir Offen-
bach.
21.50 Fréttir. Ðagskrárlok.
Nýlátin
er á Akureyri frú Jóna Norð-
fjörð, kona Jóns Norðfjörðs leik-
ara. Hafði hún átt við langvarandi
vanheilsu að stríða. Frú Jóna var
afar vel látin kona af öllum, sem
jþekktu hana.
Vikan,
sem kom út í morgun, flytur m.
a. þetta efni: Þeir sækja björg í bú,
grein um'útgerð Vestmannaeyinga,
Maðuiinn og fjallið, eftir James
Ramsey Ullman, Segið Joe það
ekki, smásaga eftir Hugh B. Clave,
Úr ýmsum áttum og margt og
margt smávegis.
Kevyan 1942,
Nú er það svart, maður, verður
sýnd annað kvöld klukkan 8. Er
mikil aðsókn að þessari revyu.
Stórstúkuþin gið.
43. þing stórstúku íslands verð-
xu- sett hér í Reykjavík mánudag-
inn 22. þ. m. Átti upphaflega að
setja þingið 24. júní á afmælisdag
stórstúkunnar, en af ýmsum á-
stæðum var hætt við það.
' Samtíðin,
júní-heftið, er komin út, fjöl-
breyít að vanda. Eiríkur Ormsson
skrifar þar hugleiðingar mn raf-
virkjun í dreifbýlinu. Þá er rit-
stjórnargrein um dagbækur og
nauðsyn þeirra, grein um Alfreð
Andrésson ieikara (með 7 mynd-
um). Gétur tæknin skapað betri
menn? eftir Friðgeir Grímsson
verkfræðing. Uppi á auðnum öræf-
anna eftir Guðm. Friðjónson.
Grein um dularfull fyrirbrigði.
Grein um uppruna sýfilis. Endur-
fundiir (saga). Fjöldamargt fleira
er í heftinu.
Dýraverndarinn,
4. tbl. 1942, er kominn út. Efn-
isyfirlit er sem hér segir: Fyrning-
ar, Vænt sauðfé, Gamla mín,
Gagnkvæm vinátta og ýmislegt
fléira. Er heftið hið skemmtileg-
asta yfirlestrar.
Ú tvár pstíðindi
,'éru nýkomin út. Flytja þau með-
al annars grein um Kristján Jóns-
son Fjállaskáld, grein um sænskt
kvöld,' sem verður bráðum í út-
varpinu, greinar um bækur o. m.
fl.
Sultusykurskammti
var úthlutað í gær og verður út-
hlutað í dag. Fer úthlutunin fram
í Góðtemplarahúsinu.
Noregssöfnunin.
Frá 3 systrum kr. 30,00.
Börn ern bólnsett
gegn barnaveiki á þriðjudögum
fcl. 6—7. Hringja verður fyrst í
síma 5967 kl. 11—12 sama dag.
Ungbarnavernd Líknar
er opin þriðjudaga og fimmtu-
daga kl. 3,15—4 fyxir böm, sem
hafa fengið kíghósta.
Við Rio Grande
heitir mynd, sem nú er sýnd á
Nýja Bíó. Er það kúrekamynd með
CSXiarles Starrett í aðalhlutverkinu.
einu
gegn engn
C« JÖLMENNI var mikið á i-
*• þróttavellinum í gær, er
fram fór fýrsti leikur íslands-
mótsins. Vóru það félögin Vdl-
ur og Víkingur, sem mættust.
Þegar félögin reyndu með sér
síðast, sem var á afmælismóti
Í.S.Í. fyrir nokkrum dögum,
vann Valur að vísu, en það þótti
þegar sýnt, að félögin máttu
heita mjög lík og alger tilviljun
mundi ráða úrslitum næst er
þau mættust. Það leyndi sér
heldur ekki af aðsókn og eftir-
væntingu áhorfenda, að al-
mennt var búizt við spennandi
keppni.
Fyrrl hálfleikur 0:0
Leikurinn hófst með laglegri
sókn og léttu samspili Víkinga.
Haukur var miðframherji til að
byrja með og Þorsteinn honum
til hægri. Virtist niðurröðunin
og samspil Víkinga, samfara
nokkrum sóknarhug, koma Vals
\
mönnum á óvart. Mátti heita, að
Víkingar héldu hinum lipra
samleik og nokkurri sókn allan
hálfleikinn og þurftu áhorfend-
ur ekki að kvarta yfir því, að
knattspyrnuna vantaði í leik-
inn. Ekki -náðist þó árangur
fyrir Víkinga, vegna 1 hinnar
traustu varnar Vals og þess,
hve það tók langan tíma fyrir
Víking að byggja sóknina upp.
Hpfðu andstæðingarnir á með-
an góðan tíma til að raða sér
til varnar. Nokkur skyndiá-
hlaup komu þó á báða bóga, en
þau fóru út um þáfur. Löngu
spörkin reyndust Víkingum
ekki eins viss.
Þegar háifleiknum lauk þann
ig, með jafntefli, var ljóst, að
alger óvissa ríkti um úrslitin.
Slðarl hálfleiknr 0:1
Síðari hálfleikur var svipað-
ur hinum, að öðru en því, að
sókn Víkinga var öllu harðari.
Varð Valur að leggja sig allan
fram til að verjast falli og mun-
aði oft mjóu. Fékk Víkingur 3
fríspörk á Val skammt utan
vítateigs og var aðeins óheppni
Víkinga um að kenna, að ekki
varð mark úr. Svo greinilega
hafði Víkingur yfirhöndina í
leiknum, að fyrsta spyrnan á
mark þeirra kom er 12 mínútur
voru eftir af leiknum, en það
var að afloknu skyndiáhlaupi
Vals, er endaði jneð óverjandi
marki. Kom nú fjörkippur í
Víkinga, sem þó fjaraði fljótt
út, því fum kom í stað samspils
er áður var og voru úrslitin þar
með ráðin.
Þorsteinn Einarsson dæmdi,
og fórst það prýðilega.
Þj'-mig lauk þá fyrsta leik ís-
L ... rr tsins að þessu sinni, og
má Valur að sjálfsögðu vænta
þess, að vera kominn yfir örð-
ugasta hjalla mótsins. Þó.getur
vel farið svo, að hin félögin
komi mönnum á óvart, því þau
hafa æft sig af kappi undir mót-
ið og ekki má gleyma því, að á
afmælismótinu vann Fram, fé-
lagið, sem gerði jafntefli við
Víking, svo ekkert þeirra er eig
inlega verst. Með eftirvæntingu
bíða menn einnig eftir því, hvað
Vestmannaeyingar geta, en þeir
keppa við K. R. í kvöid.
' . Áh.
Viðtal vlð Fleischer,
herstiöfðingja.
(Frh. af 2. síðu.)
— Flýja margir frá Noregi
til Bretiands?
„í haust sem leið kom mikill
fjöldi, en síðar hefir það minnk-
að nokkuð. Stafar það af ýmsum
ástæðum, auknu strandeftirliti,
björtum nóttum, Þjóðverjar
hafa tekið mikið af bátum á
sitt vald o. s. frv.
V -
Norðmennirnir, sem eru í
löndum Breta, hafa lagt sér-
staka stund á vetrarhernað og
kennt bandamönnum sínum
hann, þar eð þeir hafa á því
sviði allmikla reynslu.
Fyrir nokkru var frá því
skýrt, að Norðmenn mundu fá
lans- og leiguhjálp frá Banda-
ríkjunum. Mun hún skiptast í
tvennt: í fyrsta lagi vopna og
hergagnasendingar, meðan á
stríðinu stendur, en síðan marg
vísleg hjálp við endurreisnina
heima í Noregi eftir stríðið. Um
þessar mundir starfar nefnd
manna að máli þessu í Banda-
ríkjunum. Hefir Hambro, Stór-
þingsforseti átt þar allmikinn
hlut að máli.“
— Hafið þér heimsótt norska
sjúkrahúsið hér í bæ?
,,Já, það hefir unnið mjög
gott starf. í Englandi eru all-
mörg sjúkrahús Norðmanna,
fyrir norska sjúklinga og þar
starfa norskir læknar.
Við eitt þeirra er íslenzkur
læknir, Gunnar Finsen, en hann
hefir starfað sem læknir á
Spáni, í Finnlandi, Noregi og nú
með Norðmönnum í Englandi.“
Að lokum segir Fleischer:
„Allstaðar, þar sem ég hef
komið á íslandi hafa Norðmenn
verið mjög þakklátir fyrir þá
vinsemd og alúð, sem þeir hafa
mætt hvarvetna á íslandi. Ég
hef ferðast um allt landið og
alls staðar orðið var við þessa
miklu vinsemd og hjálpsemi."
Blf reiðaio nkanpln
Frh. af 2. síðu.
vörur, sem liggja lengi í Ame-
ríku, t. d. bifreiðarnar, sem taka
mikið rúm.“
Notnðo bifreidamgp.
— -En hvernig er með notuðu
bifreiðamar, sem allt af eru að
koma hingað?
,,Sáðan ég fór að heiman, hef-
1
Konan min.
JÓNA JÓNSDÓTTIR NGRBFJÖIÖ),
er andaðist 4. þessa mánaðar, verður ’j arðsungin laugárdaginn
13. júhí 1942. ■
■' ' ' ■
Athöfnin hefst með húskveðju írá heimili okkar, Munka-
þverárstræti 8, Akureyri,' kl. 1 síðdegis.
Jdn Norðfjörð.
ir mörgum einstaklingum verið
\reitt heimild til að kaupa not-
aðar bifreiðar vestr-a — og sér-
staklega mun hafa verið tekin
mjög vingjamleg afstaða gagn-
vart beiðnum farmanna, sem
alltaf eru í siglingum til Ame-
ríku. Hefir flutningur þeirra
bifreiða farið fram á þilfari yfir
sumarmánuðina. Ég varð jafn-
framt var við það, að allmargir
einstaklingar höfðu fest kaup á
notuðum bifreiðum vestra, án
þess að hafa tryggt sér innflutn-
ingsleyfi fyrir þeim eða flutning
á þeim.
Ég vil að lokum segja þetta:
Ég mætti alls staðar vestra mik.
illi vinsemd þeirra stjórnar-
valda, sem ég talaði við og átti
mál að sækja undir. Við íslend-
ingar njótum beztu kjara og
mikillar hjálpfýsi Bandaríkja-
manna. En þeir þurfa vitanlega
fyrst og fremst að hugsa um
hernaðarrekstur sinn, og okkur
ber að taka fullt tillit til þess.“
Frh. af 2. síðu.
fögrum stöðum íslenzkum, held-
ur og atvinnulífi þjóðarinnar til
sjávar og sveita. Þarna sást
smölun, safn í fjárrétt, sláttur
og heyband, síldveiðar og síld-
arverkun. Einkum er kaflinn
frá Siglufirði skemmtilegur og
vel saman settur, og er gaman
að fylgjast með handtökum
fólksins við síldarverkunina. —
Mörgum mun hafa hlýnað um
hj artaræturnar, þegar þeir sáu
síldarstúlkuna, blómlega og
eðlilega, líta í kring um sig í
sólskininu, á næsta augabragðþ
sést björgunarhringur, sefo
nafnið „Venus“ stendur á, svo
skiptir. um og nú sjást nokkrir
ungir og hraustir sjómenn, sem
sitja í báti sínum og senda „Ven_
usi“ á bryggjunni hýrt auga.
Þetta fólk ér íslenzkt fram í
fingurgóma.
Myudirnar frá heyskapnum
og réttinni eru tæplega eins
góðar, enda er sá kafli skemmri.
Enginn vafi er á því, að marg-
ir munu hafa yndi af því að sjá
þessa íslandskvikmynd.
‘pAsundlr
vita að æfilöng gæfa
fylgix hringunum frá
SIGURÞÓR.
Útbreiðið
AlpýðublaðlH
Kosningafnndnr í
Testmannaejrjnni.
Frummælandi var frambjóö-
andl Albýðnflokksins Gylfi Þ.
Gislason hagfræðingur.
O TJÓRNMÁLAFUNDUR var
^ haldinn í Vestmannaeyjum
fyrir helgina. Var frambjóðandi
Alþýðuflokksins, Gylfi Þ.
Gíslason, málshefjandi á fund-
inum. Hvorki frambjóðandi
Sjálfstæðismanna eða Fram-
sóknarmanna mætti á fundin-
um, en þeir sendu menn fyrir
sig: Sigurð Kristjánsson alþing-
ismann og Guðbrand Magnús-
son forstjóra.
Gylfi Þ. Gíslason gerði grein
fyrir því, hvers vegna kosning-
ar væru nauðsynlegar og bar
saman lýðræði og einræði. Síð-
an skýrði hann, hvernig flokka-
skiptingin byggist á því, að
borgararnir hafa ólíka hags-
muni og bera ólíkar hugsjónir
fyrir brjósti. Rakti hann svo
helztu atriðin í stefnuskrám
flokkanna og sýndi, hvernig
Sjálfstæðisflokkurinn hefir bar-
izt fyrir hagsmunum hinna
rxku, hvernig Framsóknarflokk-
urinn hefir breytzt úr hægfara
umbótaflokki í afturhaldsflokk
og hvernig stefna kommúnista
getur aldrei leitt til fullkomins
sósíalisma, þar eð þeir hyggjast
að ná völdum með stjórnarbylt-
ingu og afnema lýðræðið, em
hvernig Alþýðuflokkurinn hef-
ir barizt og mun berjast fyrir
hagsmunum verkalýðsins og
millistéttarina.
Sigurður Kristjánsson talaði
einkum um Framsókn, og Guð-
brandur Magnússon lofsöng
þjóðstjórnina. ísleifur Högna-
son kvaðst ekki reiðubúinn að
ræða við Gylfa um fræðikenn-
ingar kommúnismans, en söng
venjulega sönginn um Alþýðu-
flokkinn. Haraldur Guðmunds-
son svaraði honum og ræddi
klofningsstarf kommúnistanna
og dugleysi í verkalýðsmálum.
Lýsti Haraldur síðan stjórn-
málaþróunipni síðustu mánuð-
ina. Guðbrandwr Magnússon
kvartaði aðallega yfir því í
verðiagsmálunum, að laxveiði-
menn í Reykjavík þyrftu að
borga 30 aura fyrir ánamaðk-
inn, og henti Páll Þorbjöms-
son gaman að þessu og lýsti
ferli Framsóknar og Sjálfstæð-
isflokksins í dýrtíðarmálunum.
Menntaskólinn losnar.
Menntaskólinn mun nú vera um
það bil að losna úr höndum eetu-
liðsins. Verður látin fara fram við-
gerð ó honum, áður en skóli byrj-
ar í haust.