Alþýðublaðið - 28.06.1942, Side 5
Sunnudagur 28. júní 1942.
ALÞYDUBLAÐIÐ
8
Kosningaannáll.
Útsvörin.
ÐAL umræðuefni Reykvík-
inga síðustu vikuna hefir
án efa verið útsvarsskráin. Hafi
menn ekki áður trúað því, sem
Alþýðublaðið hafði sagt fyrir,
að yrði útkoman af hrossakaup-
um Ólafs Thors og Framsóknar
í skattamálunum á síðasta þingi,
þá veit almenningur í Reykja-
vík nú hið sanna í málinu. Út-
koman er í stuttu máli þessi:
Útsvör almennings, sem ekki
situr að stríðsgróðanum, þar á
meðal f astlaunamanna haf a
hækkað að meðaltali um 100%,
á sama tíma, sem kaupið hækk-
aði aðeins um 25%. Útsvörin á
stríðsgróðafyrirtækjunum eru
hverfandi lág og enda þótt
.stríðsgróðaskatturinn hafi ver-
ið hækkaður nokkuð, þá lætur
nærri að stríðsgr.óðafyrirtækin
greiði jafn há opinber gjöld sam
anlagt og í fyrra, þegar þeim
voru veittar stórkostlegar íviln
anir um tapsfrádrátt, varsjóðs
frádrátt og greiddu helmingi
lægri útsvör en önnur atvinnu-
fyrirtæki í Reykjavík.
Hafi menn haldið að nú ætti
að gera alvöru úr því, að skatt-
leggja milljónagróðann, eftir að
félögunum hafði verið leyft að
safna tugum milljóna í vara-
sjóði í fyrra, þá skjátlast þeim
hrapalega. Hreýstiyrði Ólafs
Thors um, að nú ætti að taka
90% af stríðsgróðanum voru
bara blekkingar og ekkert ann-
að.
Til smámuna má telja þær
upplýsingar útsvarsskrárinnar
að eignaskattur Thorsfjölskyld-
unnar hafi lækkað um helming
á sama tíma sem útsvör almenn-
ings tvöfaldast, og að tekju-
liæsti frambjóðandi við kosning
amar væri kommúnisti, sem
greiðir samtals um 60 þús. kr.
:í skatta og útsvör.
Sundnmgin í
Sjálfstæðisflokknum.
LÖÐ Sjálfstæðisflokksins
bera þess nú mjög merki,
-að flokkurinn er alvarlega kvíð
inn fyrir úrslitum kosninganna.
Vísir játar það beinlínis, að mik
II sundrung sé í flokknum, en
huggar sig við að svo muni vera
einnig hjá öðrum flokkum, en
þó svo væri, sém blaðið treyst-
ir sér ekki til að mótmæla, að
sundrungin væri mest í Sjálf-
stæðisflokknum, þá er það ekki
nema eðlilegt, þar sem hann er
flokkur allra stétta! Þarna gef
ur Vísir einmitt í skyn hina
réttu skýringu á því upplausn-
arástandi, sem ríkir í Sjálfstæð-
isflokknum. Sjálfstæðisflokkur-
inn hefir safnað og haldið sam-
an fylgi sínu með takmarka-
lausu lýðskrumi fyrir öllum
stéttum. En þegar flokkurinn
fær völdin undir forystu Ólafs
Thors þá svíkur hann allar stétt
ir fyrir hagsmuni fáeinna stór-
útgerðarmanna og stríðsgróða-
manna. Það sýndi sig að vera
sú eina ,,stétt“, sem hann bar
raunverulega fyrir brjósti.
Arftakinn.
AÐ er líka auðsætt að Sjálf
stæðisblöðin óttast að mik-
ill hópur af hinum fyrri kjós-
endum þeirra fari yfir á lista
hinna svokölluðu „Þjóðveldis-
manna“, sem aðallega er sam-
hristingur af nazistum og
kommúnistum. Vísir segir ber-
um orðum að framboð Þjóð-
veldismanna geti orðið til þess
að Sjálfstæðisflokkurinn missi
eitt þingsæti í Reykjavík.
Þjóðveldismenn ætla auðsjá
arilega að tileinka sér bajrdaga-
aðferð Sjálfstæðisflokksins og
hagnýta sér fortíð hans. Þeir
segjast líka vera „flokkur allra
stétta“ og beita lýðskrinni sínu
jafnt á allar hliðar. Og væri
það óeðlilegt þó eitthvað af því
fólki, sem trúað hefir því, að
Sj áKstæðisflokkurinn vildi vera
jafnt flokkur allra stétta, en
hafa sannreynt hann að full-
komnum svikum í þéssum efn-
um, vilji nú heldur halla sér
að hinum nýja „allsherjarstétta
flokki“, sem enn hefir ekki haft
tækifæri til að svíkja hin fögru
loforð sín.
Þannig hefnir hin óheiðarlega
landsmálabarátta Sjálfstæðis-
flokksins undan farin ár, síðan
Ólafur Thors tók við for-
ystu flokksins, sín grimmi-
lega á flokknum og það fyrr en
hann gat órað fyrir .
Jónas Jónsson og
kj ördæmamálið.
EGAR Framsóknarflokkur-
inn var ennþá frjálslyndur
flokkur og Jónas Jónsson ætl-
aði honum það hlutverk að
verða hinn stóri róttæki umbóta
flokkur bæði til sjávar og sveita,
þá ritaði Jónas bók um stefnu
flokksins, sem hann nefndi
„Komandi ár“. Ýmsir Framsókn
armenn hafa til skamms tíma
vitnað í þetta rit, sem einskon-
ar biblíu flokksins, enda þótt
hugsjóniú hans séu orðnar æði
rykfallnar síðan það kom út.
„ Jónas gerir í Komandi árum
grein fyrir þeim breytingum,
sem gera þurfi á kjördæmaskip
un landsins og eru þær í sam-
iræmi við það hlutverk, sem
hann ætlaði flokknum. Jónas
segir:
„Hinsvegar mætti greiða götu
glöggrar flokkamyndunar á ýms
an hátt, en með engu fremur
en að stækka kjördæmin og
beita hlutfallskosningu. Þá
koma stefnurnar fram fremur
en einstaklingsáhrif, ættarfylgi,
eða fjármagn. Ef 3—4 sýslur
væru í sama kjördæmi og kosið
með hlutfallskosningu, reynir
minna á „síðustu atkvæðin“, úr
skurð þeirra andlega ómynd-
ugu, sem fluttir eru í bifreið-
um á kjörstaðinn, eins og sauðir
til slátrunar. Hlutfallskosning
tryggir rétt minnihlutans. —
Með hlutfallskosningum í stór-
um kjördæmum má a. m. k.
fyrirbyggja algerðan sigur
byggðan á dómi þeirra óhæfu“.
Þegar athugað er þetta gamla
stefmunálarit Framsóknar-
flokksins, að því viðbættu að
upplýst er, að flokkurinn var
reiðubúinn til þess 1933, eftir
tillögum Sveinbjamar Högna-
sonar og Jónasar Jónssonar að
taka . upp hlutfallskosningar í
tvímenningskjördæmum, þá er
erfitt fyrir Framsókn að fá fólk
til þess að taka móðuirsýkisköst
frambjóðenda hennar nú, út af
kjördæmamálinu, alvarlega. Af
staða hennar nú er dæmd til ó-
sigurs. Það sá Jónas Jónsson
réttilega áður en hann varð gam
all íhaldssamur formaður í aft-
urhaldssömum 1 sérréttinda-
flokki, eins og Framsókn er orð
in nú.
Samvinna
Ólafs Thors og Jónasar.
IK L A athygli hefir vak-
ið sú yfirlýsing Ólafs
Thors á framboðsfundi í Kefla-
vík, að Sjálfstæðisflokknum
stæði til boða að taka upp aft-
ur samvinnuna við Framsókn
í haust. Það vekur líka sér-
staka athygli, að Jónas frá
Hriflu forðast allar deilur við
Sjálfstæðisflokkinn við þessar
kosningar.
Enda þótt Alþýðuflokknum
tækist að rjúfa samvinnu
íhaldsflokkanna tveggja í bili,
með kjördæmamálinu, þá er
ekkert líklegra en að þeir skríði
saman aftur að kosningunum af-
loknum. Þessir flokkar hafa
sömu stefnu í öllum öðrum
þýðingarmestu dægurmálun-
um:
í gerðardómsmálinu,
í gengismálinu og
í skatta pg útsvarsmálunum
gengur ekki hnífurinn á milli
þeirra. Þegir ekki Tíminn um
100% hækkunina á útsvörum
almennings í Reykjavík? Jú,
vitanlega, því þetta eru verk
Framsóknar og Ólafs Thors í
sameiningu.
í öllum þessum þýðingar-
mestu málum stendur Alþýðu-
flokkurinn á öndverðum meið
við Sjálfstæðisflokkinn og
Framsókn. Ef kjósendurnir gefa
ekld þessum flokkum duglega
ráðningu, þá skoða þeir það
sem samþykki við stefnu sína
í þessum málum, þá verður hert
á þrælatökunum í launamálun-
um, vinnuskylda upp tekin,
lagður á launaskattur, en gengi
krónunnar haldið niðri áfram
til ágóða fyrir Kveldúlf og önn-
ur stríðsgróðafyrirtæki. Þess
vegna verða kjósendurnir að
taka fram fyrir hendurnar á
Ólafi Thors og Jónasi með því
að lýsa vanþóknun sinni á
ráðabruggi þeirra við kosning-
arnar.
Það eina, sem komið getur í
veg fyrir, að stefna þeirra Jón-
asar og Ólafs verði framkvæmd
eftir kosningarnar, er það, að
Alþýðuflokkurinn eflist við
þær, því kommúnistar eru al-
gerlega áhuga- og áhrifalausir í
baráttumálum alþýðunnar. Frá
þeim kemur ekkert af viti og
þess vegna geta þeir engin á-
EG SE, að „kollegar“ mínir í
„Góðviljanum“ eru mér ákaf-
lega reiðir um þessar mundir ut
af ýmsum bréfum, sem mér hafa
borizt og athugasemðum, sem ég
hefi gert við þau. Mér datt í hug,
þegar ég las síðustu skammir
þeirra um mig: Mikið held ég, að
þeir yrðu reiðir, ef ég birti þó
ekki væri nema helminginn af
þeim bréfum, sem mér berast um
þá og þeirra framferði.
oci NÚ ÆTLA EG að birta það
síðasta. Bréf, sem „húsnæðislaus"
kom með til mín í gærmorgun. f
þvl segir: „Húsabrask kommún-
ista kom mér ekki á óvart. Eg
vissi um brask þeirra með Tún-
götu 6, hlutafélag þeirra keypti
það hús og að það seldi húsið
með stríðsgróða. Eg vissi líka um
Skólavörðustíg 19 og brask kom-
múnistanna með það hús.“
„EG VEIT LÍKA um fleiri
dæmi, er sýna, að kommúnistam-
ir, sem sjálfir ausa auri yfir allt
og alla eru sjálfir blettóttir af
fleiru en stríðsgróðabralli og
húsabraski. En það er allt af létt-
ara að brúka munn og átelja aðra,
en fara sjálfur eftir þvi, sem mað-
hrif haft í baráttunni fyrir
auknu, félagslegu réttlæti.
Hverju lofaði Ólafur Thors?
í MIN N komst nýlega
svo að orði um foringja
Sjálfstæðisflokksins- í ritstjóm-
argrein:
„Þeir svífast þess ekki, að
ganga á gerða samninga eins og
glöggt kom fram í þeirri yfir-
lýsingu Ólafs Thors, „að Fram-
sóknarflokkurinn hefði haft
ástæðu til að ætla, að kjör-
dæmamálið yrði ekki tekið upp
á þessu þingi.“ Og þessi ástæða
getur.naumast hafa verið annað
en hans eigin orð eða samn-
ingar við ráðherra Sjálfstæðis-
flokksins í ríkisstjórn“!
Það er full ástæða fyrir kjós-
endurna að muna það, að ekki
hafa allir af þingmönnum Sjálf-
stæðisflokksins sýnt jafnmikil
heilindi í kjördæmamálinu. —
Það er áreiðanlegt, að kjör-
dæmamálinu væri engin hætta
búin, þótt t. d. þeir Ólafur Thors
og Pétur Ottesen fengju að
sitja heima við þessar kosning-
ar, en í stað þeirra kæmu Al-
þýðuflokksmenn.
Verkfallið hjá Eimskip.
R S L I T verkfallsins
hjá Eimskipafélagi ís-
lands, þar sem verkamenn unnu
glæsilegan sigur og tókst að
brjóta algerlega á bak aftur
kúgunarákvæði gerðardómslag-
anna, ættu að kenna höfundum
þeirra, foringjum Sjálfstæðis-
flokksins og Framsókn, hversu
hættulegt það er, að setja lög,
sem eiga sér enga stoð í rétt-
lætistilfinningu fólksins, en eru
þvert á móti álitin frekasta
brot á öllu þjóðfélagslegu rétt-
læti og siðgæði, og því sett í
fullri óþökk allra þeirra, sem
Frh. á 6. síðu.
ur predikar. Hræsnin er mest á-
berandi á framferði kommúnista,
samfylkingarhræsni þeirra, verka-
mannahræsni þeirra, húsnæðis-
málahræsni þeirra o. s. frv. Það
er venjan að fólk sér að lokum í
gegnum hræsnishjúpinn — og svo
mun einnig fara um kommúnista.“
„NÚ ER VITAÐ MÁL, að
hundruð manna; sem kusu komm-
únista við bæjarstjórnarkosning-
arnar kjósa nú lista Þjóðólfs —
enda tala forsprakkar kommúnista
í vinnuflokkunum um að allmarg-
ir af þeim, sem eru meðmælend-
ur að lista Þjóðólfs séu merkt-
ir með kommúnistum á kjörskrá
þeirra. Það er því ekki furða, þó
að þessir herríir hafi dálítinn
hroll núna rétt fyrir kosningam-
ar.“
ÉG EÆT ÞETTA bréf nægja að
sinni handa kommúnistunum. Þeir
geta haft það sér til gremju og
leiðinda um stund. Ef til vill gef-
ur það hinum „falleraða“ rithöf-
undi þeirra efni í einn langhund í
Jónasarstíl — en langhundar hans
eru það helzta, sem fært er fram
i þessari kosningabaréttu af hálfu
„IUviljans‘,.
Undirfðt
margar tegnndfr
Náttkjólar
margar tegnndir
Stakir
nndlrkjálar
nýkomið
Langaveg 41
öskureiðir kommúnistar. Hvernig myndu þeir láta ef ..?
Aðeins eitt bréf um hræsni þeirra og aðra ónáttúru.