Alþýðublaðið - 28.07.1942, Qupperneq 6
c
ALÞYÐUBUÐIÐ
t»riðjudagur 28. jálí 1942.
Heilbrigðismál fyrr á ðldm
Framh. af 4. síðu.
jr þjóðina, má fara nærri um, að
heilbrigðismálin hafa ekki risið
hátt. Mun óhætt að fullyrða, að
þrifnaði og hvers konar heil-
brigðismenningu fari nú hnign-
andi, frá því er tíðkaðist á sögu-
öld og Sturlungaöld. Má þar
einkum til nefna íþróttaiðkanir
og böð, er heita má, að hverfi
gersamlega úr sögunni. Um
læknismennt er naumast að
ræða, en hjátrú og hvers konar
hindurvitni og kukl yfirgnæf-
andi. Efalaust hefir það dregið
úr lækniskunnáttunni, er víga-
ferli lögðust hér niður. Ef til vill
hafa klaustrin haft einhverja
viðleitni við að líkna sjúkum og
þjáðum, en annarS hefir allt
kafnað í messuerðum, áheitum,
bænastagli, sulli með vígt vatn
og drykk af dauðra manna
kjúkum. En einmitt á þessu
tímabili dynja yfir landið hinir
austurlenzku sóttarfaraldrar,
bólusótt hvað eftir annað (í
fyrsta sinn, að því er talið er,
1240) og svarti dauði tvisvar (í
byrjun og lok 15. aldar), ofan á
aðrar farsóttir, landlæga sjúk-
dóma og margvíslega óáran. Ber
það þjóðinni vitni um því nær ó-
trúlega seiglu, að hún skyldi lifa
af allar þær hörmungar, eins
og allt var í pottinn búið. En að
vísu voru íslendingar ekki einir
um þessa hitu.
Erlendir bartskerar
á tslandl um siða-
skiptin.
Þó að ekki hafi verið miklu
fyrir að fara í nágrannalöndun-
um á sama tíma, hafa íslending-
ar þeir, er frömuðust erlendis,
ekki sízt þeir, sem leituðu til
Mið-Evrópu, kynnzt þar læknis-
aðgerðum, er stungu mjög í stúf
við það, sem leyst var af hönd-
um hér á landi. Jafnvel bartsker
ar þeir, er hingað hafa flækzt
til landsins með erlendum kaup-
mönnum eða verið í þjónustu
erlendra valdsmanna, hafa þótt
hér allmikíir fyrir sér og verið
almenningi aufúsugestir. Hefir
þetta leitt til þess, að mönnum
hefir orðið læknisleysið í land-
inu tilfinnanlegt, ekki sízt fyrir
það; að á þessu tímabili gengur
í landinu illkynjuð veiki, svo
nefnd sárasótt og almennt er
talin hafa verið sýfílis, er þá
var ekki fyrir löngu komin upp
í Evrópu og gqkk fyrst í stað yf-
ir löndin sem næm farsótt. En
mönnum hefir ekki dulizt, að
bartskerarnir liðsinntu þessum
sjúklingum með nokkrum ár-
angri. Er talið, að menn hafi
komizt mjög fljótt á að nota
kvikasilfur við sýfilis, en það
hefir sem kunnugt er, verið höf-
uðlyfið við þeim sjúkdómi fram
á vora tíma.
Frá árinu 1545 er til alþing-
isdómur, er heimilar erlendum
bartskerum landvistarleyfi
skera og höfðinglegar greiðslur
til þeirra.
Ráðstaf anir Ögmnnd-
ar biskups Pálssonar
gegn sárasétt.
Ein hin fyrsta almenna heil-
brigðisráðstöfun í nútíðarskiln-
ingi, er skjöl greina frá, mun
vera samningur sá frá árinu
1545, er Ögmundur Pálsson,
biskup í Skálholti, gerir við
þýzkan bartskera, Lazarus
Mattheusson að nafni, um að
selja honum jörðina Skáney í
ÍReykholtsdal, 40 hujndruð að
dýrleika, gegn því að hann
græddi 100 sárasóttarsjúklinga
eftir tilvísun biskups, og mun
hafa verið átt við fátæka sjúk-
linga. Er talið að Lazarus (Skán
eyjar-Lassi) hafi aðeins grætt 50
sjúklinga, og varð nokkur á-
greiningur um efndir samnings
ins af hans hálfu, en að vísu
hélt hann jörðinni og dvaldist
hér til dauðadags. Eftir dauða
hans mun annar þýzkur bart-
skeri hafa verið fenginn hingað
til lands í hans stað. Árið 1526
gengur dómur á Alþinga, þar
sem bartskerum er sett gjald-
skrá til að fara eftir við lækn-
ingu sárasóttarsjúklinga og er
eflaust hin fyrsta læknagjald-
skrá hér á landi. í alþingisdómi
þeim, er fyrr getur (1545). er
það og tilskilið, að bartskerarn-
ir séu „mögulegir um sitt
græðslukaup og góðum mönn-
um sýnist þeir vera skaðlausir
af.“ Sárasóttin dó hér með öllu
út, en ósagt skal látið, hvern
þátt ráðstafanir þessar hafa átt
í því.
Innlendir bartskerar.
Á 16. og 17. öld er auk er-
lendu bartskeranna getið nokk-
urra íslendinga, sem taldir eru
bartskerár. En ekki er ljóst,
hvernig námi þeirra hefir verið
háttað. Einn er þó talinn lærð-
ur innanlands. Erlendis var
bartskeranámið nánast iðnað-
arnám, þannig að hver kenndi
öðrum, enda lækningastarfsemi
bartskeranna að minnsta kosti
lengi vel rekin í sambandi við
rakara- og hárskerastörf. Eftir
að lærðir læknar komu til sög-
unnar, höfðu bartskerarnir mjög
takmarkaðan rétt til lækninga,
þannig að þeir máttu aðeins
fást við útvortis kvilla, aðal-
lega sára- og slysaaðgerðir. En
við þótti brenna, að þeir færu
út fyrir verksvið sitt. Hér á
landi hafa hömlur á lækninga-
starfsemi bartskeranna af eðli-
legum ástæðum ekki komið til
greina.
Þó að bartskera á íslendi bafi
hér verið að nokkru getið, má
enginn skilja það þannig, að
þeirra hafi nokkurn tíma gætt
verulega við almenna læknis-
þjónustu hér á landi.
Til Ástralíu.
Enginn veit hversu mörg þúsung Ameríkumanna hafa fengið fría ferð til Astralíu
sem af er ári þessu. Hins vegar er það vitað, að Japönum stendur stuggur af þeim
Ástralíumönnunum og þeir hafa ekki reynt innrásina margumtöluðu enn. Hér sjást
eríkskir hermenn á leið til suðurhvels
\
\
\
S
S
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
það $
og S
am- S
meðal annars vikið að ljósmæðr
um, sem prestum er skipað að
velja og uppfræða, en að vísu í
guðfræði, enda aðallega gert
ráð fyrir, að þær sinni sálar-
heill fæðandi kvenna og burða
þeirra. Einnig er þar minnzt á
spítala.og þá, sem sjúkir eru og
volaðir, þar á meðal ölmusu-
samskot til þeirra, svo og 'lækna
og lækningar. En lítt virðist
það hafa átt við hér á landi,
eins og þá til hagaði, nfema
fyrirmæli um að sinna and-
legum þörfum sjúklinganna
eftir þeirra tíðar skilingi, sem
einnig mun hafa verið aðal-
atriðið. Sömu ákvæði eru í
kirkjuordínantíu Kristjáns
fjórða hinni norsku frá 1607, er
hér var löggilt 1622. f báðum
þessum tilskipunum eru ein-
kennileg fyrirmæli um aflausn
og jafnvel fjársektir kvenna,
er kæfa undir sér böm sín.
Bendir það á, að slík slys hafi
þá verið algeng, og eru þau að
vísu tíðari enn í dag en margan
mundi gruna.
LOFTÁRÁS.
Frh. af 3. síðu.
hafa verið aðalmarkmið Breta
í þessari árás.
DAGÁRÁSIR
Brezkar flugvélar gera dag-
lega fjölda árása á stöðvar
Þjóðverja á meginlandinu, aðal-
lega í Frakklandi og Hollandi.
Ameríkskar orustuflugvélar
með ameríkskum flugmönnum
hafa nú farið í fyrstu árásar-
ferð sína.
TOWNSVILLE, önnur.
stærsta borg í Queensland í
HANNESÁ HORNINU
(Frh. af 5. síðu.)
„HEFIR ÞÚ ATHUGAÐ aðal-
verzlunargötu bæjarins, Lauga-
veginn? Hefir þú tekið eftir gryfj-
unni við neðri enda Bankastrætis,
þar sem _nú úm árabil hefir vantað
allmargar gangstéttarhellur? —
Hvernig lízt þér á Vitastíginn, að-
alumferðargötu. barnanna að Aust-
urbæjarskólanum? Eða þá báða
aðalvegina, sem liggja inn í höfuð-
borgina? Þeir eru alltaf illfærir
annað kastið á alllöngu bili rétt á
bæjarmótunum, en annars malbik-
aðir rétt að bænum.“
„ÞÁ KANNAST ALLIR VIÐ
bréfaruslið og moldrykið, ef bless-
uð sólin skín, og ekki er logn, og
nýjasta aðferðin við sorphreinsun-
ina spáir ekki góðu um bréfafokið,
það er sem sé farið að aka sorp-
inu í opnum vörubílum. Hefir þú
aldrei mætt slíkum flutningi? Þá
er eins gott að vera ekki allt of
lyktnæmur, og helzt ekki allt of
'fínn, ef maður fengi vel skítugan
blaðasnepil framan í sig!“
„ENN FREMUR mætti minnast
á göturæsin, sem mörg eru í mesta
ólagi, svo að í regni myndast víða
stöðupollar, og allstórir lækir.
Einnig mætti margt segja um við-
hald og útlit húsanna; lítum á
hvernig Safnahúsið skartar ár eftir
ár, sama mætti að mörgu leyti
segja um Sundhöllina. Hugsum
okkur útlit þessara húsa, frá því
sem nú er, aðeins ef þau væru
máluð smekklega.“
„HREINUÁTUR“ skrifar mér:
„Ég hefi heyrt að alþingi eigi að
koma saman eftir fáa daga. Þá
kvað eiga að breyta stjórnar-
skránni, ganga frá sjálfstæðismál-
inu og afnema kúgunarlögin.
Þetta eru stórmál mikil. Þegar ég
gekk um Austurvöll í gær og leit
upp á Jón , Sigurðsson, datt mér í
hug að hann þyrfti að „punta“ svo-
lítið undir þessa merkisatburði.
Hann hefir slæma þjónustu, vin-
urinn okkar. Hvernig stendur á
því, að þessum fáú minnismerkjum
okkar og myndastyttum er ekki
haldið betur við en raun er á?“
HVAÐ SEGJA HIN BLÖÐIN
Framh. af 4. síðu.
alþýða fái enn betur notið þeirra,
þá hugsaði ég sem svo: Gaman
verður síðar, þegar við íslending-
ar gerum hinum gömlu bókmennt
um okkar svipuð skii, því þá marg
faldast hin ágætu óhrif þeirra og
þýðing þeirra verður stórkostleg
fyrir íslenzka alþýðu. Og síðan
hefir mér margoft komið það
sama í hug', þetta, að sögurnar
yrðu útgefnar með nútíma staf-
setningu og aðstoð íslenzkra mynd
listamanna."
' Ragnar er því algertega sam
þykkúr því að gefa fornsög-
urnar út á svipaðan hátt og
nú hefir verið gert um Lax-
dælu. Ragnar lýkur greininni
með þessum orðum:
í 6—700 ár hafa fornbókmennt-
irnar verið ein lífæð þjóðarinnar,^
þær hafa verndað þjóðina, en það
hefir aldrei þurft að vernda þær
fyrir þjóðinni. Og mér finnst ís-
lenzku þjóðinni misboðið stórlega
með þessari samþykkt meirihluta
gekk um Austuvröll í gær og leit
ar þurfi að verndá með lögum
fyrir okkur íslendingum!
Og hjá öllu þessu óþarfa til-
standi í blöðum og á Alþingi hef-
ir verið auðvelt að komast með
einföldu ráði: Láta bara einhvern
sæmilegan barnakennara — —
færa söguna til hinnar lögskipuðu
stafsetiiingar; því þá var ekki
rauðu veifað framah i nautin —
ef H. K. L. hefði þar hvergi nærri
komið. Hafi hann þó, þökk fyrir
verk það er hann hefir innt af
hendi og útgéfendur fyrir bókina.
Og má ég svo óska éftir Sögu Eg-
ils bónda á Borg í sams konar út-
gáfu áður en langt um líður,
prýdda fögrum listaverkum.“
Þetta er nú álit Ragnars Ás-
geirssonar um þessa umdeildu
útgáfu.
KAFBÁTAFORINGI
ÞJÓDVERJA.
„landsmönnum til gagns og
góða“, jafnfamt því sem reistar
eru rammar skorður við lands-
vist annarra erlendra manna og
þó einkum hvers konar atvinnu-
reicstri þeírra. Frá þessum tíma
eru til skjöl, er greina frá við-
skiptum við þessa erléndu bart-
Heilbrigðlsfyrirmæli
í kirklntilskipannm
á 16. og 17. old.
í kirkjuordínantíu Kristjáns
þriðja frá 1537, sem löggilt varl
hér á landi 1541 og 1551, er|
Ástralíu, varð á laugardaginn
fyrir árásum japanskra flug-
báta. Köstuðu þeir nokkrum
sprengjum, en þær komu ekki
nálægt neinum. hernaðarstöðv-
um. - ' ... .......... ■■
H Japanir sækja nú. landveginn
j,til Port Mpresþy . á. Nýju Gui-
neu, eftir að þeir gengu á land
skammt frá borginni. Eiga þeir
yfir hálendan skaga að sækja
og hafa orðið skærur á skagan-
um, Vafalaust eiga eftir að
verða harðar orustur, þegar
innrásarmennirnir koma nær
borginni.
Framh. af 5 s.íðu.
hefði hann haldið að „Fíflið í
Berlín“ væri byrjað á stríðinu
án þess að láta sig vita.
Þetti miskunnarlausa sjóstríð
sker úr því, hvprt Dönitz hefir
varið lífsstarfi síriú til einskis
eða ekki. i