Alþýðublaðið - 28.07.1942, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 28. júlí 1942.
ALÞYÐUBLAÐJÐ
I Bærinn í dag. |
Næturlæknir er.Eíalldór Stpfáns:
son, Ránargötu 12, sími 2234.
ÚTVABPIÐ:
12.10 Bádegisútvarp.
15.30 Miðdegisútvarp.
20.00 Fréttir.
20.30 Erindi: Ferðaþættir (jThorolf
Smith).
20.55 Hljómplötur: a) Symfónía
nr. 3 eftir Schumann. b)
Fíanókonsert í Es-dúr eftir
Liszt. c) Ungversk rapsodía
nr. 1 eftir Liszt.
21.50 Fréttir. — Dagskráriok.
Kvenskörnngurinn
heitir myndin, sem - Nýja Bíó
sýnir núna. Er það ameríksk stór-
mynd með Lauretta Young, Robert
Preston, Edward Arnold og Gladys
George í aðalhlutverkunum.
Ævjntýri í Argentínti
Heitir mýndin, sem Gamla Bíó
sýnir núna. Er það ameríksk dans
og söngvamynd með Maurin O'-
Hara og Thames Ellisori í aðal-
hlutverkunum.
Ferffalög um helgina.
Ferðaiélag fslands efndi til
gönguferðar á Botnssúlur í fyrra-
dag. Þátttakendur voru um 20. —
Um helgina kom hópur úr Arnar-
íellsföf (8 daga för). Voru 15 'þátt-
takendur og létu vel yfir. Á laug-
ardaginn fóru 20 manns í Öræfa-
ferð. Stendur hún yfir í eina viku.
Farfuglar fóru um 30 til viku dval
ar á'Þórsmörk.
Tófufaraldur
mikill hefir geysað í Þingvalla-
sveit í vor og hefir Einar Halldórs
son bóndi á Kárastöðum náð 80
dýrum á 10 grenjuni. í grenjum
þessum voru 7 dýr fæst en 10 flest
og náði hann þeim öllum nema
þremur.
Stafford Crlpps
svarar Gandhi.
London í gærkveldi.
Sir Stafford Cripps hefir í
útvarpi svarað hinum einbeittu
kröfum, sem Gandhi hefir bor-
ið fram um að Bretar f ari þeg-
ar í stað frá Indlandi. Kvaðst
hahn tala sem einlægur vinur
Indverja, sem vonaði, að eins
fljótt og hægt væri mundu þeir
fá sjálfsstjórn. Hins vegar
sagði hann, að ekki væri hægt
að fórna indverskum, ameríksk
um, kínverksum og brezkum
hermönnum fyrir flokkapólitík
í Indlandi. Hann sagði, að Ind-
land yrði að vera öruggur stað
ur, sem Bandamenn gætu hafið
sókn frá, þegar þar að kæmi.
Sir Stafford sagði, að engin
ábyrg stjórn mundi láta sér
detta í hug að fara frá Ind-
landi, eins og það er nú: Skipt,
svo að ekki verður fram úr séð
og algerlega varnarlaust, ef það
er yfirgefið. Hann sagði, að
ekkert nema örvinglan og
vandræði gætu hlotist af því, ef
kröfur Gandhis næðu fram að
ganga.
Valur befur 4 stíg, en Áreiapn 2 og
pau. eiga að keppa um sigurinn.
Nýgift hjón
óska eftir húsnæði í haust.
Konan lætur húseigendum í
té kápu og kjólasaum ef
Sskað er. iFyrirframgreiðsIa.
Tilboð -merkt „í haust" send-
ist Alþýðublaðlnu' fyrir
31. þ. m.
HANDKNATTLEIKSMÓT
Ármanns hélt áfram íjfyrra
kvöld með Icik á milli IR og
Vals. Leikurinn var fjörugur en
ekki jafn. Váluf sýndi þó yfir-
burði í samleik, en þó sérstak-
lega í staðsetningu. Leikur-
inn var prúðmannlega leikinn
af báðum, og endaði með sigi-i
Vals 13:3.
Það sem mezt er'ábótaVaiit í
leik í. R. er hvað boltinn geng-
ur seint fram, og eins hvað lítil
samvinna er á milli allrar f ram-
línunnar, venjulega eru það
aðeins innframherjarnir þrír,
sem hafa boltann, þar til ein-
hver missir hann í „sólo" leik.
Leikurinn milli Ármanns og
Víkings endaði meg sigri Vík-
ings 7:5 og var hann ágætlega
fjörugur og jafn og hefði vel
getað endað með jafntefli.
< Leikur Ármenningá er léttur
og hraður en hinar löngu bolta-
gjafir þeirra eru ekki nógu ná-
kvæmar, og má þar nokkru um
kenna, að engar handknattleiks
æfingar hafa getað farið fram á
vellinum; þar sem hann er al-
gjörlega upptekinn fyrir knatt-
spyrnuæfingar. Þá er staðsetn-
ing þeirra ekki góð, vörnin
liggur of langt framm og er
nokkuð reikul í að gæta mót-
herjanna. Víkingsliðið var
mun betur staðsett með kraft-
mikla sóknarlínu, en varnar-
aðferðir þeirra geta tæplega
átt heima í leik, og veldur þar
annaðhvort þekkingarleysi á
handknattleiknum eða ofurást
á vinningum. Samleikur Vík-
ings var stuttur og reyndist
þeim vel í hlaupunum, og eiga
þeir sigurinri að þakka nokkr-
um mjög duglegum einstakling
um og nokkuð harkalegri vörn.
í kvöld kl. 8 fara fram úr-
slitin milli Vals og Ármanns
og má búast við fjörugum og
ske*mmtileguttn leik, þar sem
þar eru einna mest þjálfuðu
handknattleiksliðin. Á eftir
keppa svo Víkingur og f. R.
Stígin standa nú þannig:
Valur 4 stig.
Ármann 2 stig.
Víkingur 2 stig.
í. R. 0 stig. Á.
Bróðir minn
MAGNÚS STEFÁNSSON (Örn Arnárson) skáld
andaðist á St. Jósepsspítala í Hafnarfirði laugardaginn 25. þ. m.
Jarðarförin verður ákveðin síðar.
Fyrir mína hönd, f jarstaddra systra og annarra vandamanna.
Stefanía Stefánsdóttir.
ÖRN ARNARSON
(Frh. af 2.ísíðu.)
í hlé, eftir þvi, sem hann gat
við komið. Hins vegar gat hann.
ekki komizt hjá því vegna
snilldar sinnar að verða fræg-
ur maður og það jafnt þótt
hann væri sífellt á'flótta undan
frægð sinni.
Magnús Stefánsson var mjög
óvenjulegur persónuleiki. Gáfur
hans voru stórbrotnar — og
andi hans fagur og mikill. —
Hann umgekkst fáa — og átti
fáa nána vini. En dómar þeirra,
semáttu því láni að fagna, að
kynnast honum vel, munu vera
á þá lund, að þeir hafi ekki
kynnst heilli né betri manni.
enntaður
einvaldur.
MIÐ-AMERÍKA. Það er líklegt,
að níu af hverjum tíu, sem
heyra þetta orð, detti í hug
barðastórir hattar, kúrekar,
skammbyssur og manndráp.
Engu síður má þar jinna eitt
juUkrmvasta ríki Vestur-
heims, þar F2in fr'ðsamir menn
reyntL á friðsaraan. hátt að
frySfS^a • U"PP hamingjusamt
mannféla^.
ÞETTA RÍKI er Guatemala,
lýðveldi að nafninu til, en þó
algerí einræði. Þar búa þrjár
milljónir manna, helmingur-
inn Indíánar, mestu sóma-
menn að sögn, en hinn helm-
ingurinn hvítir menn og kyn-
blendingar, sennilega ágætis-
menn, alveg eins og Indíán-
arnir.
GUATHMALA er sunnan við
Mexícó, lítið land, skógi vax-
ið frá fjulli til fjöru. Uppi á
hálendinu, þar sem há eldfjöll
stara stöðugt upp í himininn,
eru auðug nýbyggjarahéruð,
oa rústir ævagamalla Indíána
ríkja:
MAÐUR ER NEFNDUR Jorge
Vbico og er 73 ára gamall.
Hann kalíar sig „forseta, skv.
stjórnarskránni", en engum
dylst það, að hánn er eins full
kominn einvaldur og Hitler
eða Mussolini í rikjum sínum.
Ubico er þó ekki maður, sem
skipa má í flokk með þeim
Mussolini, Hitler, Stalin og
öðrum einvöldum 20. áldar-
innar. Hann tilheyrir miklu
fremur hinum svokölluðu
„menntuðu einvöldum", sem
uppi voru á 18. öld, því að
þeir reyndu oft, á móti vilja
þegnanna, að gera þá mennt-
aða, velmegandi og hamingju
sarha.
SAGA GUATEMALA er efcíci
beint fögur eða lík því, sem
nú á sér stað í ríkinu. Um
einn af forsetum ríkisins er
þessi saga sögð: Hann lá fyrir
dauðanum, þegar einn af ráð-
herrum hans kom til hans og
játaði, að hann hefði gert sam
særi til þess að ráða hann af
dögum. Bað ráðherrann hinn
deyjandi forseta miskunnar. -
Forsetinn lét fara með hann
burt óg skjóta hann, því að
hann var síðastur állra sam-
særismanna, til þess að koma
og Ijóstra þvi upp. Hinir
voru állir búnir að koma á
undan honum. önnur saga um
sama mann, er sú, að hann
hafí verið beðinn að fyrirgefa
óvinum sínum. Svaraði hann
þá, að hann hefði látið drepa
alla óvini sinaog hefði því erlg
an til þess áð fýrirýefa.
Konan mín,
STEINUNN JÓNSDÓTTIR
verður jarðsungin miðvikudaginn 29. þ.m. Athöfnin hefst með bæn
frá hemiili okkar, Austurbæjarskólanum kl. 1 % e." h.
Jarðarförin fer fram frá Fríkirkjunni
Fyrir mína hönd, barna okkar og annarra vandamanna.
Lúther Hróbjartsson.
UBICO FORSETI er ekki lík-
ur þéssum fyrirrennara sín-
um. Hann ferðast um landið
þvert og endilangt í flugvél
og setur ekki fyrir sig að heim
sækja smæstu þorp. Hann
skoðar alla skóla og spítal'a og
er sífellt að gefa fyrirskipan-
ir um endurbætur, aukið
hreiníæti, betri kennsluað-
ferðir. Indíánarnir hafa hinar
mestu mætur á Ubico og kalla
hann Tata ,ser$ þýðir pabbi.
UBICO ER afar illa við að
vera kallaður einvaldi. Engu
síður er hann það, en það er
eðlilegt, að han nekki úilji Iáto
blanda sér saman við evróp~
iska einválda, því að hann
hefir mikinn áhuga á að bæta
hag þjóðar sinnar og hefir enn
ekki sýnt neinn landvinninga
hug. Einu sinni sagði amer-
íkska .tímaritið „Time", .að
hann hefði sagt, að hann gæti
lagt undir sig Mexico, hvenær
sem hann vildi. Ubico varð
ofsareiður og bannaði „Time"
í landi sínu. ¦
„Yankee Doodle" stúlkan.
Þegar ameríkumenn halda stórhátíðir og ganga skrúðgöngur
með fjölmennar lúðrasveitir í fararbroddi, þykir þeim gaman að
hafa fallega stúlku fyrsta í fylkingunni Er hún þá venjulega
klædd eins og sést á myndinni og ber staf í hendi, eins og húa
stjórni lúðrasveitinni. — Stúlkan á myndinni heitir Evelyn Dins-
moor og var kjörin til þess að vera „Yankee Doodle" stúlka vW
mikla hersýningu í Palm iBearch í Kalifornlu. Hún virðist una sér
hið beztá í stöðunni, enda þykir það hirin mesti heiður, að ver*
kosin til slíkra starfa.