Alþýðublaðið - 28.07.1942, Page 7
Þriðjudagur 28. júlí 1942.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
i Bærinn í dag.
Næturlæknir er Ilalldór Stefáns
son, Ránargötu 12, sími 2234.
ÚTVAKPIÐ:
12.10 Hádegisútvarp.
15.30 Miðdegisútvarp.
20.00 Fréttir.
20.30 Erindi: Ferðaþættir (Thoro'f
Smith).
20.55 Hljómplötur: a) Symfónía
nr. 3 eftir Schumann. b)
Píanókonsert í Es-dúr eftir
Liszt. c) Ungversk rapsodía
nr. 1 eftir Liszt.
21.50 Fréttir. — Dagskrárlok.
Kvenskönmgurinn
heitir myndin, sem Nýja Bíó
sýnir núna. Er það ameríksk stór-
mynd með Lauretta Young, Robert
Preston, Edward Arnolú og Gladys
George í aðalhlutverkunum.
Ævintýri í Argentína
heitir myndin, sem Gamla Bíó
sýnir núna. Er það ameríksk dans
og söngvamynd með Maurin O’-
Hara og Thames Ellisori í aðal-
hlutverkunum.
Ferðalög um helgina.
Ferðafélag íslands efndi til
gönguferðar á Botnssúlur í fyrra-
dag. Mtttakendur voru um 20. —
Um helgina kom hópur úr Amar-
fellsför (8 daga för). Voru 15 þátt-
takendur og létu vel yfir. Á laug-
ardaginn fóru 20 manns í Öræfa-
ferð. Stendirr hún yfir í eina viku.
Farfuglar fóru um 30 til viku dval
ar á Þórsmörk.
Tófufaraldur
mikill hefir geysað í Þingvalla
sveit í vor og hefir Einar Halldórs
son bóndi á Kárastöðum náð 80
dýrum á 10 grenjum. í grenjum
þessum voru 7 dýr fæst en 10 flest
og náði hann þeim öllum nema
þremur.
Stafford Cripps
svarar Gandhi.
London í gærkveldi.
Sir Stafford Cripps hefir
útvarpi svarað hinum einbeittu
kröfum, sem Gandhi hefir bor-
ið fram um að Bretar fari þeg
ar í stað frá Indlandi. Kvaðst
hann tala sem einlægur vinur
Indverja, sem vonaði, að eins
fljótt og hægt væri mundu þeir
fá sjálfsstjórn. Hins vegar
sagði hann, að ekki væri hægt
að fóma indverskum, ameríksk
um, kínverksum og brezkum
hermönnum fyrir flokkapólitík
í Indlandi. Hann sagði, að Ind-
land yrði að vera öruggur stað
ur, sem Bandamenn gætu hafið
sókn frá, þegar þax að kæmi
Sir Stafford sagði, að engin
ábyrg stjórn mundi láta sér
detta í hug að fara frá Ind-
landi, eins og það er nú: Skipt
svo að ekki verður fram úr séð
og algerlega varnarlaust, ef það
er yfirgefið. Hann sagði, að
ekkert nema örvinglan og
vandræði gætu hlotist af því, ef
kröfur Gandhis næðu fram að
ganga.
Nýgift hjón
óska eftir húsnæði í haust.
Konan lætur húseigendum í
té kápu og kjólasaum ef
óskað er. Fyrirframgreiðsla.
Tilboð merkt ,4 haust“ send-
ist Alþýðublaðinu fyrir
31. þ. m.
Bfsllíii
knattleikS'
Valur hefur 4 stíg, en Árniaon 2 og
pau. eiga að keþpa um sigurinn.
Handknattleiksmót
Ármanns hélt áfram í fyrra
kvöld mcð Icik á milli ÍR og
Vals. Leikurinn var f jörugur en
ekki jafn. Valur sýndi þó yfir-
burði í samleik, en þó sérstak-
iega í staðsetningu. Leikur-
inn var prúðmannlega leikinn
af báðum og endaði með sigri
Vals 13:3.
Það sem mézt er ábótaVant í
leik 1. R. er hvað boltinn geng-
ur seint fram, og eins hvað lítil
samvinna er á milli allrar fram-
línunnar, venjulega eru það
aðeins innframherjarnir þrír,
sem hafa boltann, þar til ein-
hver missir hann í „sóló“ leik.
Leikurinn milli Ármanns og
Víkings endaði meg sigri Vík-
ings 7:5 og var hann ágætlega
fjörugur og jafn og hefði vel
getað endað með jafntefli.
Leikur Ármenninga er léttur
og hraður en hinar löngu bolta-
gjafir þeirra eru ekki nógu ná-
kvæmar, og má þar nokkru um
kenna, að engar handknattleiks
æfingar hafa getað farið fram á
vellinum. þar sem hann er al-
gjörlega upptekinn fyrir knatt-
spymuæfingar. Þá er staðsetn-
ing þeirra ekki góð, vömin
liggur of langt framm og er
nokkuð reikul í að gæta mót-
herjanna. Víkingsliðið var
mun betur staðsett með kraft-
mikla sóknarlínu, en varnar-
aðferðir þeirra geta tæplega
átt heima í leik, og veldur þar
annaðhvort þekkingarleysi á
handknattleiknum eða ofurást
á vinningum. Samleikur Vík-
ings var stuttur og reyndist
þeim vel í hlaupunum, og eiga
þeir sigurinn að þákka nokkr-
um mjög duglegum einstakling
um og nokkuð harkalegri vörn.
í kvöld kl. 8 fara fram úr-
slitin milli Vals og Ármanns
og má búast við fjörugum og
skdmmtileguím leik, þar sem
þar eru einna mest þjálfuðu
handknattleiiksliðin. Á eftir
keppa svo Víkingur og í. R.
Stígin standa nú þannig:
Valur 4 stig.
Ármann 2 stig.
Víkingur 2 stig.
í. R. 0 stig. Á.
í
ORN ARNARSON
(Frh. af 2. síðu.)
í hlé, eftir því, sem hann gat
við komið. Hins vegar gat hann,
ekki komizt hjá því vegna
snilldar sinnar að verða fræg-
ur maður og það jafnt þótt
hann væri sífellt á flótta undan
frægð sinni.
Magnús Stefánsson var mjög
óvenjulegur persónuleiki. Gáfur
hans voru stórbrotnar — og
andi hans fagur og mikill. —
Hann umgekkst fáa — og átti
fáa nána vini. En dómar þeirra,
sem áttu því láni að fagna, að
kynnast honum vel, munu vera
á þá lund, að þeir hafi ekki
kynnst heilli né betri manni.
Bróðir minn
MAGNÚS STEFÁNSSON (Öm Amarson) skáld
andaðist á St. Jósepsspítala í Hafnarfirði laugardaginn 25. þ. m.
Jarðarförin verður ákveðin síðar.
Fyrir mína hönd, fjarstaddra systra og annarra vandamanna.
Stefanía Stefánsdóttir.
Menntaður
einvaldur.
MIÐ-AMERÍKA. Það er líklegt,
að níu aj hverjum tíu, sem
heyra þetta orð, detti í hug
harðastórir hattar, kúrekar,
skammbyssur og manndráp.
Engu síður má þar finna eitt
fmíkcmnasta ríki Vestur-
heimi', þar szrp, fr'ðsamir menn
'reynti á friðsaman hátt að
byggia upp hamingjusamt
manrféla
ÞETT/v RÍKI er Guatemaia,
lýðveldi að nafninu til, en þó
algerí einræði. Þar búa þrjár
milljónir manna, helmingur-
inn Indíánar, rnestu sóma-
rtienr, að sögn, en hinn helm-
ingurinn hvítir menn og kyn-
blenölngar, sennilega ágætis-
menri, alveg eins og Indíán-
arnir.
GUATEMALA er sunnan við
Mexícó, lítið land, skógi vax-
ið frá fjalli til fjöru. Uppi á
hálendinu, þar sem há eldfjöll
stara stöðugt upp í himininn,
eru auðug nýbýggjarahéruð,
oa rústir ævagamalla Indíána
ríkja.
MAÐUR ER NEFNDUR Jorge
Ubico og er 73 ára gamall.
Hann kallar sig „forseta, skv.
stjómarskránni“, en engum
dylst það, að hann er eins full
kominn einvaldur og Hitler
eða Mussolini í ríkjum sínum.
Ubico er þó ekki maður, sem
skipa má í flokk með þeim
Mussolini, Hitler, Stalin og
öðrum einvöldum 20. aldar-
innar. Hann tilheyrir miklu
fremur hinum svokölluðu
,,menntuðu einvöldum“, sem
uppi voru á 18. öld, því að
þeir reyndu oft, á móti vilja
þegnanna, að gera þá mennt-
aða, velmegandi og hamingju
sama.
SAGA GUATEMALA er ekki
beint fögur eða lík því, sem
nú á sér stað í ríkinu. Um
einn af forsetum ríkisins er
þessi saga sögð: Hann lá fyrir
dauðanum, þegar einn af ráð-
herrum hans kom til hans og
játaði, að hann hefði gert sam
særi til þess að ráða hann af
dögum. Bað ráðherrann hinn
deyjandi forseta miskunnar.
Forsetinn lét fara með hann
burt og skjóta hann, því að
hann var síðastur allra sam-
særismanna, til þess að koma
og Ijóstra því upp. Hinir
voru állir húnir að koma á
undan honum. Önnur saga um
sama mann, er sú, að hann
hafi verið beðinn að fyrirgefa
ótíinum sínum. Svaraði hann
þá, að hann hefði látið drepa
alla óvini sína og hefði því eng
an til þess að fýrirgefa.
Konan mín,
STEINUNN JÓNSDÓTTIR
verður jarðsungin miðvikudaginn 29. þ.m. Athöfnin hefst með bæn
frá heimili okkar, Austuxbæjarskólanum kl. lVz e. h.
Jarðarförin fer fram frá Fríkirkjunni
Fyrir mína hönd, barna okkar og annarra vandamanna.
Lúther Hróbjartsson.
UBICO FORSETI er ekki lík-
úr þéssum fyrirrennara sín-
um. Iíann ferðast um landið
þvert og endilangt í flugvél
og setur ekki fyrir sig að heim
sækja smæstu þorp. Hann
skoðar alla skóla og spítala og
er sífellt að gefa fyrirskipan-
ir um endurbætur, aukið
hreinlæti, betri kennsluað-
jerðir. Indíármrnir hafa hinar
mestu mætur á Ubico og kalla
hann Tata ,sert£' þýðir pabbi.
UBICO ER afar illa við að
vera kallaður einváldi. Engu
síður er hann það, en það er
eðlilegt, að han nekki vilji láta
blanaa sér saman við evróp-
iska einvalda, því að hann
hefir mikinn áhuga á að bæta
hag þjóðar sinnar og hefir enn
ekki sýnt neinn landvinninga
hug. Einu sinni sagði amer-
íkska .tímaritið „Time“, .að
hann hefði sagt, að hann gæti
lagt undir sig Mexico, hvenær
sem hann vildi. Ubico varð
ofsareiður og bannaði „Time“
í landi sínu.
„Yankee Doodle“ stúlkan.
Þegar ameríkumenn halda stórhátíðir og ganga skrúðgöngur
með fjölmennar lúðrasveitir í fararbroddi, þykir þeim gaman að
hafa fallega stúlku fyrsta í fylkingunni Er hún þá venjulega
klædd eins og sést á myndinni og ber staf í hendi, eins og hún
stjómi lúðrasveitinni. — Stúlkan á myndinni heitir Evelyn Dins-
moor og var kjörin til þess að vera „Yahkee Doodle“ stúlka við
mikla hersýningu í Palm Ðearch í Kalifomíu. Hún virðist una sér
hið bezta í stöðunni, enda þykir það hinn mesti heiður, að vera
kosin til slíkra starfa.