Alþýðublaðið - 30.08.1942, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 30.08.1942, Qupperneq 3
ALÞYÖUBLAÐiÐ Sunnudagur 30. ágiist 1042. E1 Alamein í Egyptalandi. Mynd þessi er af járnbrautarstöðinni á E1 Alamein, sem mest hefir verið barizt um í Egypta- landi. Fyrstu stórárás ÞJáðverja á Stalingrad var hrundið. Rússar gera gagnáhlaup norð- vestan við borgina. . '♦ ......■- Vðrn Rússa harðnandi í flðllnnum við Svartahaf. RÚSSAR HAFA HRUNDIÐ fyrstu stórárás Þjóðverja á Stalingrad og stöðvað sókn þeirra austur á bóginn. Ef til vill hafa Þjóðverjar nú hafið aðra stórárás á borgina, en Rússar virðast ákveðnari en nokkru sinni að verja borg- ina, hvað sem það kostar. Norðvestan við Stalingrad gera Rússar hvert gagná- hlaupið á fætur öðru og segjast hafa hrakið Þjóðverja aftur allt að því 1600 m. á nokkrum stöðum. Þýzka herstjórnin hefir lofað fyrstu þýzku hermönnunum, sem fara inn í Stal- ingrad, sérstöku leyfi, en enginn hefir unið til þess enn. Suðvestan við borgina standa stórorrustur og reyna Rússar að vinna aftur land, sem þeir misstu, er Þjóðverjar brutust inn í víglínur þeirra fyrir nokkru. lertogiBD af Heut jarosettur í gær. Fjórir konung ar viðstaddir. London í gærkvöldi. ERTOGINN af Kent var arðaður án sérstakrar við- hafnar í St. George kapellunni í Windsorskastala, en þar liggja margir af konungum Englands. Jarðarförin fór ekki með þeirri viðhöfn, sem venja er í Englandi með meðlimi konungs fjölskyldunnar, að viðstaddir voru auk brezku konungsfjöl- skyldunnar konungur eða aðrir leiðtogar allra Bandamanna. Liðþjálfar úr flughernum báru kistuna inn í kapelluna, en flugmarskálkar stóðu heið- ursvörð. Á eftir kistunni gekk hertogafrúin af Kent og við hlið hennar Englandsdrotning. Rétt á eftir þeim gekk móðir hetogans, ekkjudrotning Eng- lands, en iþarfá eftir Georg VI. bróðir hans ihertoginn af Glouc- hester og fulltrúi hertogans af Windsor. , Þá voru viðstaddir 3 konung- ar, þeir Hákon Noregskonungur, Pétur Júgóslaviukonungur, Georg Grikkjakonungur og svo Wilhelmina, Hallandsdrotning. Þá voru þar forsetar Póllands og Tékkoslóvakíu. Þegar George Bretakonung- ur hafi kastað rekunum, blesu lúðraþeytarar flughersins síðasta .kveðjumerki. London — Þýzkar flugvélar háfa verið yfir Alexandríu- Kaíró svæðinu. Tvær flugvélar hafa verið skotnar niður yfir Málfá. Þegar Þjóðverjar sáu, að þeir j gátu ekki komizt beint til Stal- ingrad, gerðu þeir miklar til- raunir til þess að brjótast fram til Volgu báðum megin við borg ina, en það tókst heldur ekki. Þótt svo sé nú komið, að sókn Þjóðverja sé stöðvuð, eru Rúss- ar varkárir í tali um bardagana og halda fréttaritarar þeim möguleika mjög fram, að Þjóð- verjar séu aðeins þreyttir eftir hina miklu sókn undan farið, en muni innan skamms endur- nýja sóknina og ráðast á borg- ina. RHZEV. Miklir götubardagar eru enn háðir í úfhverfum Rhzev og verða Rússar að ná hverju húsi og hverju virki úr höndum Þjóðverja. Rússneskir fótgöngu liðar, sem vopnaðir eru Tommy- byssum brjótast inn í borgina, en stórskotaliðið, sem hefir að- setur í hæðum útan við borgina heldur uppi mikilli skothríð á stöðvar .Þjóðverjanna. Miðnæturtilkynning Rússa segir frá því, að þeir hafi í gær tekið sex þorp á þessum slóðum og sæki hersveitir Zhukovs fram, þótt það sé nokkru hægar en áður var, þar eð nú er inn í eina bezt vörðu borg Þjóðverja að fara. SVARTAHAFSSTRÖNDIN. í fjöllunum, sem eru á strönd um Svartahafsins, sunnan við Krasnodar, eru varnarskilyrði mjög góð og hafa Rússar þar stöðvað sókn Þjóðverja að mestu leyti. Þegar yfir þessi fjöll er komið, tekur við strönd hafsins og einu hafnirnar, sem Svartahafsfloti Rússa á eftir og er því eðlilegt, að mikil áherzla sé lögð á varnir þeirra. Þjóðverjar hafa lítið nálgazt Groznyolíusvæðin undanfarinn sólarhring. Þýzkar hersveitir hafa sótt alllangt suður í dali S 5 Norðmenn dæmdir til dauða. Steypiflngvélar USA sðkhva tnndorspilli við Salomonseyjar. Washington, 30. ágúst. MERÍKUMENN hafa nú sökkt stórum japönskum tundurspilli, ef til vill öSrum til og laskaS lítinn tundurspilli skammt frá Salomonseyjum. Um aðalflotadeild Japana, sem hélt undan frá eyjunum eftir stutta viSureign við Ameríku- menn, hefir ekkert frétzt. Flotamálaráðuneytið segir frá því, að eftirlitsflugvélar, sem hafa bækistöð á Guadalkanal, eynni, sem Ameríkumenn náðu úr höndum Japana, hafi séð til ferða tundurspillanna og þegar gert var aðvart. Voru tundur- spillarnir fjórir og er talið, að þeir hafi verið á leið með birgð- ir til japanskra herskipa, sem búizt er við, að séu í nágreinni við Santa Christobal eyju. Douglas steypiflugvélar lögðu þegar í stað frá Guadalkanal og gerðu árás á tundurspillana með þeim árangri, sem þegar hefir verið um getið, að einum tund- urspilli var sökkt, sennilega öðr um til og hinn þriðji mikið lask aður. NÝJA GUINEA. * Miklar orrustur eru stöðugt háðar á austurströnd Nýju- Guineu, þar sem Japanir gerðu síðustu landgöngu sína. Nánari fregnir hafa ekki borizt af bar- dögunum, en Bandamenn eru vongóðir um úrslit, því að her- sveitir þeirra voru viðbúnar og vel vanar landslaginu. „Ef ffitler hefði séð . . .“ Washington, 29. ágúst. ORMAN ARMOUR sendi- herra Bandaríkjanna í Ar- gentíu, sagði í dag, þegar hann hafði ferðast til hergagnaverk- smiðjanna í Ameríku að ef Hitl- er hefði ferðast til sömu staða, myndi hann komast að raun um að málsstaður hans er vonlaus. Armour, sem er í stuttu leyfi í Bandaríkjunum, sagði: „Allt sem ég hef séð þessa síð ustu fáu daga hefir styrkt og fullvissað mig um að stríðið muni ljúka með sigri Banda- manna. Ég sný aftur til Argen- tínu vissari en nokkurn tíma áður um sigur“. Armour sagði að samkeppnin í stríðsframleiðslunni milli verkamanna í stórum verksmiðj um hafi haft mikil áhrif á sig. Kaukasusfjalla og hafa Rússar háð þar orrustur við þá og hrak ið þá oft og tíðum aftur niður á sléttuna. FINNAR. Finnska herstjórnin tilkynn- ir, að Rússar hafi í fyrrinótt gert miklar árásir á Helsing- fors. Voru rússnesku flugvél- árnar yfir borginni í fjórar klukkustundir og köstuðu þær spfengjum á ýmsa staði. *Hvar er Asbjöm Sunde, sem gerði sprengjuárásina ? London í gærkvöldi. IMM NORÐMENN hafa verið dæmdir til dauBa af þýzkum herrétti. Eru það verka mennirnir Reider Kristofferson, Karl Johan Jakobsen og Bjame Hansen, liðsforinginn Thorleif Andersen og Karl Schei. Hafa þá alls verir teknir af lífi 103 Norðmenn, síðan nazistar náðu völdum í Noregi. Þrír aðrir menn hafa verið dæmdir í allt að 20 ára fangelsi fyrir að eiga í fórum sínum vopn. Allir voru þeir ákærðir fyrir að vera í „óeirðaflokkum“. Nokkrir þeirra ^voru ákærðir um að vera í sambandi við Asbjörn nokkurn Sunde, sem gerði sprengjuárásina á lög- reglustöðina í Qslo fyrir nokkru. Hefir 75 000 krónum verið heit ið hverjum þeim, sem getur gefið upplýsingar um Asbjörn. Þegar árás þessi var gerð, fórst einn lögregluþjónn og tveir særðust. Sprengingin var mjög mikil og eyðilögðust meðal annars leynilega prentuð norsk blöð, sem quislingar höfðu komið hönd á. V * Frá Stokkhólmi berast þær fréttir, að fyrir nokkru hafi fjórir norskir sjómenn stokkið fyrir borð á þýzku skipi, sem sigldi úti fyrir strönd Svíþjóð- ar. Tveim var bjargað af sjó- mönnum, en hinir tveir fundust dauðir á ströndinni nokkru seinna. Norskum sjómönnum, sem tekst að strjúka til Sví- þjóðar fer stöðugt fjölgandi. Loítárásir á Niirnberg m SaaMcken London, í gærkvöldi. REZKI flugherinn gerði t fyrrinótt. árásir. á. tvær mikilvægar . . járnbrautarmið- stöðvar og iðnaðarborgir í Þýzkalandi. Voru margar flug- vélar yfir Núrnberg og Saar- brucken og köstuðu sprengjum á ýmsa mikilvæga staði í borg- unum. Núrnberg er eins konar höf- uðstaður najzismans, og eru þar háð ársþing hans. Þar er einnig mikill iðnaður, meðal annars flugvélaiðnaður, auk þess, sem borgin er mikilvæg samgöngu- miðstöð. Saarbrucken er mikil námu og verksmiðjuborg og enn fremur mikilvægur staður fyrir samgöngur milli Þýzkalands og Frakklands, því að borgin er skammt frá gömlu landamær- um landanna. Bretar misstu í árásum þess- um 30 flugvélar. DAGÁRÁSIR. Það var tilkynnt frá aðal- stöðvum ameríska hersins í London í kvöld, að fljúgandi virki hefðu gert árás á flugvöll Frh. á 7. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.