Tíminn - 23.10.1963, Síða 13

Tíminn - 23.10.1963, Síða 13
RÆDA Framfiala al y siðu Aðvaranir Framsóknarmanna En svona hlaut þetta að fara €íps og til var stofnað. Stjórnar- andstaðan serði þó skyldu sína og varaði við. Þeir byrjuðu með ráð- stöfunum, sem fyrirsjáanlega hlutu að valda verðhækkunaráhrifum upp á a.m.V. 1100 milljónum kr. í þjóðarbúskifj, þar sem allar þjóð- srtekjur voru taldar 5—6 millj- ónir og ætluðu kaupi og afurða- verði að vera óbreyttu. Um þetta sagði ég m. a. við um- ræður á Alþingi 1960: ,,Svona ráðstafanir er blátt á- fram ekki hægt að gera. Það er rr.eð öllu gersamlega óskiljanlegt hvemig nokkrum manni dettur í hug að koma fram með svona áætl- arir eða svona fyrirætlanir. Hefur þetta alls ekki verið athugað eða hvað? Hafa þessir hæstv. ráðherr- ar ekki gert sér grein fyrir því, hvað þeir voru rannverulega að fara? Hvernig halda menn að á- hrifin af þessu verði í þjóðarbú- skapnum? Og déttur mönnum í hug, að svona lagað sé framkvæm- aniegt? Eg vil í fuliri alvöru biðja hæstv. ríkisstjórn að endurskoða þessar fyrirætlanir og endurskoða þessar áætlanir því að vitanlega er ekk- ert til hættulegra í efnahagsmál- um landsins. en það að gera ein- hverjar panik-ráðstafanir, sem enga stoð i-.ipa í raunveruleikanum og enga möguleika hafa til að heppnast. Menn hafa ekki leyfi til þess að gera slíkar ráðstafanir, vegna þess að slíkt hlýtur að stór- au-?a vandann frá því sem hann er eða hefur verið.“ Þessum aðvörunum, sem bornar voru fram aí mér og félögum mín- um af þeirri einföldu ástæðu, að við vorum blátt áfram hræddir við fyrirsjáanlegar afleiðingar þess, sem vérið var að gera. var svarað með hmka og botn- lausum skómmum og háðsyrðum um þá kenningu Framsóknar- manna að ieysa vandann í áföng- um. Að leysa allan vandann í einu Þeir Ólafur Thors og Bjarni Benediktsson sögðu ýmist, að það yiði að horfast í augu við allan vandann í einu eða að þessar ráð- siaianir myndu koma í veg fyrir hina stöðugu síendurteknu ráðstaf- anir ár frá ári. Þeir fundu upp það spakmæli til að forherða sig og auka sér kjark til að leggja út í þetta, að það væri ekki hægt að stökkva yfir gjána í áföngum. Sem sagt, hér var fundin lausn- in í eitt skipti fyrir öll, þeir voru gagnteknir þeirri barnalegu skoð- un, að með viðreisninni væri kom ið sjálfvirkt kerfi — allur vandi íeystur í eitt skipti fyrir öll. En öllum þeim, sem höfðu minnstu nasasjón af íslenzku efnahags- og atvinnulífi, átti að vera ljóst, að þetta bar dauðann í sér. Afleiðingin hlaut að verða sú, að hver dýrtíðaraldan risi af ann- arri, sem afleiðing þeirrar hol- skeflu sem hleypt var yfir þjóðina með viðreisnarráðstöfunum 1960. Heynslan er nú orðin ólygnust um þetta, en dýr er hún orðin og þó minnst enn fram komið, því alls fjarri fer því, að afleiðingar við- reisnarinnar séu t. d. komnar inn í kaupgjald og verðlag. Hverjum dettur í hug, að almennt kaup- gjald og verzlunarmannakaup, svo dæmi séu nefnd geti staðið stundinni lengur eins og það er í dag, eða afurðaverð til bænda geti lengi staðist eins og það er nú samanborið við framleiðslu- kostnað og stofnkostnað. Hvað hafa menn Sært? Menn spyrja nú hver annan, ihvort ríkisstjórnin muni hafa lært af þessum óförum pg sumir telja svardagann, um að hækka ekki gengið nú vott þess. Betug að svo væri. Enn því miður bendir margt til að svo sé ekki, þrátt fyr- ir þessa svardaga. Megingrund- völlur viðreisnarinnar var að ná því, sem þeir kalla jafnvægi í þjóð arbúskapnum, með því að láta verðlag hækka, gera lánsfé dýr- ara og takmarka það, en kaup- gjald Oig afurðaverð stæði í stað. Um þetta vcrður ekki deilt. — Þetta var stefnan og því miður er þetta prédikað enn og allt sem frá stjórninni kemur enn gengur í sömu átt, nú síðast hækk un síma og póstgjalda og minnkun á niðurgreiðslu landbúnaðaraf- urða til að hækka verð til neyt- enda, þrátt fyrir mikinn afgang af tolla- og skatttekjum. Sýnilegt er, að þeir hafa brennt sig á geng- islækkuninni 1961 og sverja nú fyrir gengislækkun. En menn spyrja: Er sú meginstefna breytt að leita jafnvægis með því fyrst og fremst. að láta verðlag hækka og kostnað við lánsfé, en halda niðri kaupgjaldi og afurðaverði til bænda? Á að verða nýtt stríð á rústum viðreisn- arinnar Helzt er að sjá, af stjórnarblöð- unpra, og ræðujn ráðamanna, að þeim finnist það eitt nafá mis- tekizt, að halda niðri kaupinu o-g afurðaverði til bænda og megin- stefnan sé óbreytt, þrátt fyrir ó- farirnar. Þrálátur orðrómur geng ur um, að nýju úrræðin, sem ekki eru nefnd opinberlega og farið er í kringum, eins og kettir fara kringum heitt soð, séu þau, að halda niðri kaupgjaldi og afurða- verði með lagaboðum. Meginstefn an eigi sem sé að vera óbreytt, en leita „sterkari“ ráða, éins og það mun kallað í þessum herbúðum til að framkvæma þann þáttinn, sem þeir telja hafi bilað. Ég vildi að þessi orðrómur væri rangur, því ef hann reyndist réttur, hafa þeir ekkert lært og þá er bara efnt til nýrrar styrjaldar við al- menning í landinu á rústum við- reisnarinnar, og við því má þjóð- in allra sizt. Enginn mun fúsari að játa en ég, að úr vöndu er að ráða eins og nú er komið. í því sambandi bendi ég á nokkur aðalatriði, sem þýðingarmikil eru að mínum dómi. í áföngum Menn verða að gera sér grein fyrir því, bæði stjórnarvöldin og allur almenningur í landinu, að út úr þessu feni verður ekki kom- izt í einu stökki. Skekkjur þær, sem orðnar eru, verður að reyna að leiðrétta í áföngum. — Sporin hræða — Menn nafa fyrir augum sér, hvernig fer ef öðruvísi er að farið. Jákvæðu leiðina út úr vandanum Fyrsta boðorðið verður að vera að reyna að komast út úr vandan- um jákvæðu leiðina. Mæta pauð- synlegri hækkun kaupgjalds og af- urðaverðs til brenda með skipu- legri allsherjarsókn í landinu, undir merki vísinda og tækni, til að auka framleiðni og þjóðaríram- leiðslu. Taka verður þau mál með margvíslegu móti nýjum tök- um, sem of langt yrði hér upp að telja, og bjóða út öllum hinum beztu kröftum og samstilla þá. — Þetta er sú aðalleið, sem ein er sæmandi þeirri þjóð, scrn þrátt 'fyrir allt hefur á fáum áratugum sótt fram úr fátækt til bjargálna. Með aukinni vélvæðingu, bættum vinnuaðferðum, aukinni tækni verður að gera íslenzku atvinnu- vegunum fært að borga á ný mannsæmandi kaup og losa sig úr viðreisnarfeninu. En allir verða að hafa í huga, að í einu stökki verðup ekki komizt í land né æski- legum árangri náð. Þá verður að lækka vextina, því íslenzkum framleiðslugreinum er gersamlega um megn að keppa á erlendum mörkuðum með því að borga slíka okurvexti, sem nú gilda og atvinnuvegunum verður einnig um megn að borga þa kaup, sem unga fólkið þarf a hafa til að standa undir vaxta- byrðinni og bændur fá ekki það verð fyrir afurðir sínar, að þeir geti staðið undir svona vöxtum. Útflutningsgjöld þurfa að lækka, en þau eru nú 7,4% af verði af- urðanna og jafngilda tugum pró- senta af kaupgjaldinu við fram- leiðsluna. Sama er um tollana og yfir höfuð verður að gera allt sem unnt er til þess að gera framleiðsl unni mögulegt að standa undir því kaupgjaldi, sem viðreisnardýr tíðin gerir óhjákvæmilegt að borga. Þá verður að gera skipulegar ráð stafanir til að því fjármagni, sem þjóðin hefur yfir að ráða, verði beinf til þeirra framkvæmda, sem mekb' aúká frámleiðni og þjóðar- tekjur óg þéirra almannafram- kvremda sem mestu máli skipta og það fé, sem fæst með álögum á almenning og sparifjáraukningu sé hiklaust notað í þessu skyni, í stað þess að halda því fé föstu að verulegu leyti og láta þar með þessar framkvæmdir víkja fyrir því, sem þeim þóknast að fram- kvæma, sem af einhverjum ástæð- um hafa fullar hendur fjár, og hversu fjarri því, sem það kann að vera því að leysa brýnustu þarf ir þjóðannnar. Allir sjá nú hvílík ringulreið í fjárfestingarmálum. fylgir við- reisninni og svo er talað um á- ætlunarbúskap og framkvæmda- áætlanir. í stað upplausnar og nngulreiðar í fjárfestingarmálum og tæknimálum þarf markvissa stjórn til að beina fjármagninu í rétta farvegi, og margvíslegar aðr- aT ráðstafanir í sömu átt. Unga fólkið Þá verður í sem flestum grein- um að koma til móts við og létta undir með unga fólkinu, sem erf- iðasta baggann ber nú, því að öðr- u.m kosti skapast hér á næstunni öre’galið, sem allt verður að sækja undir þá, sem fyrir fjármagninu ráða, í stað þess að fram að þessu hefur það verið aðalsmerki ís- lenzks búsxaparlags, að hér hafa meon ekki átt allt að sækja til fárra sterkra auðfélaga, eins og á sér stað í öðrum löndum mörg- u.m Umfram allt verður að breyta um stefnu og sýna að horfið sé frá því að reyna að lækna allar mein- semdir með því að hækka verð á nauðsynjum, en halda te)kjum al- mennings niðri. Fyrstu skrefin þarf að stíga þannig, að þau veki traust og hjálpi til að losa þjóðina við þá panik, sem gjaldþrot stjórnarstefnunnar hefur valdið, en allir verða að mnna, að aðeins í áföngum er liægt að koma á samræmi í stað þeirrar ringulreiðar, sem orðin er. Síjóniin iVjveranui ríkisstjórn hefur yf- irleitt ekki traust og bætist það ofan á annan vanda, að mönnum vaið það á, að sleppa henni með mcirihluta gegnum kosningar. Að vísu byggðist það á blekkingum eino og nú má heyra á þeim játn- ingum, sem ráðamenn flytja á torg unum. í rengstu lög skulum við þó vona, að stjórnin hafi eitthvað lært af þessu öllu. En fram hjá því verður okki komizt, að hún hefur enn g.'atað trausti og hefur veikan meirihluta og illa fenginn. Samt verður ekki fram hjá því komizt, að meirihlutann mörðu stjórnarflokxarnir og því er það rík'sstjórnarinnar að koma fram með úrræði sín. Bíða menn nú og sjá, hvort hún vill draga skyn- samlegar ályktanir af reynsl.unni eða ekki. En Framsóknarflokkurinn mun ótrauður halda áfram baráttunni fyrir sínum áhuga- og stefnumál- um. Víðivangur evu auðug jarðefni. Hér eru lieilsubrunnar. Dóná er ekki blá, þótt skáld hafi lýst henni svo — en íslenzk fjöll eru blá. Hvernig má það ske, að við svo fá og smá skulum eiga slíkt land? íslendingar eiga landið af því, að þeir liafa byggt það. \ ið eigum það allt af því að fóikið, sem var hér á undan okkur sem nú lifum, byggði bað allt Við byggjum það enn þá, en þó varla nægilega vel til þess að það sé öruggt til að helga okkur það til framtíð- ar. Ef sá dagur kemur, að níu liundu lilutar íslendinga verða samansafnaðir hér við suður- hluta Faxaflóa, þá verður Is- latid ekki lengur fyrir Islend- inga. Landsbyggðin er okkar landvörn og án hennar verður hér ekki til lengdar frjáls þjóð.“ HVERS VEGNA SELUR . . . Framhald af 7. síðu. skort heima fyrir, eða jafnvel hækka brauðverð. Stalín hefði skipað að herða á sultarólinni. HUGSANLEGT er, að Sovét- ríkin kaupi einnig korn til þess að sjá fyrir nauðþurftum evrópskra fylgiríkja sinna, þar sem mörg þeirra urðu einnig fyrir uppskerubresti. Þó virð- ist líklegra, að þau verði einn- ig að seilast í sinn litla forða af „hörðum“ gjaldeyri til hveiti kaupa á Vesturlöndum. (Áskil- ið er í samningi um hveiti- kaupin í Ameríku að hveitið verði ekki endurselt). Sum fylgiríkjanna hafa flutt inn mikið af korni frá Sovét- ríkjunum. 1962 seldu Sovétrík- in Austur-Þjóðverjum 1,25 milljónir smálesta af hveiti, Tékkum 900 þús. smálestir, Pól- verjum 500 þús. smálestir og Kúbumönnum nálega 270 þús. smálestir. Þessar þjóðir kunna að þurfa að knýja dyra annars staðar. Tveir stærstu kaupend- urnir utan komiraúnistaríkjanna 1962 voru Brazilíumenn (412 smálestir) og Brezka samveldið (345 þús. smálestir). ÓSANNGJARNT væri að líta svo á, að ástandið í ár beri vott um varanlegan samdrátt í landbúnaðarframleiðslu Sovét- ríkjanna. Verði veðrið ekki sérlega óhagstætt aftur að ári verður uppskeran eflaust meiri og kornútflutningur hefst að nýju frá Sovétríkjunum. Krústj- off hefur boðað háspennta á- ætlun um aukningu á fram- leiðslu tilbúins áburðar. Miðað er við að framleiðslan verði komin upp í 100 þús. smálestir árið 1970, en gert er ráð fyrir 20 milljón smálesta framleiðslu í ár. (Sambærileg tala í Ame- ríku er 35 milljónir smálesta). Til þess að unnt verði að ná þessu marki þarf að verða bylt ing í rússneskum efnaiðnaði, sem er dálítið á eftir tímanum. Auk þess þarf gífurlegt stofn- fé. Áætlunin virðist gerð af allt of mikilli bjartsýni, og til- raunir til að ná svo fjarlægu marki geta valdið truflunum á öðrum iðngreinum í Sovétríkj- unum. Samt sem áður verður framleiðsla tilbúins áburðar vafalaust aukin að mun og sam hliða auknum áveitum ætti það að auka uppskeruna. Yfirstandandi kreppa verður til þess að s'tyrkja þá leiðtoga Sovétríkjanna. sem krófjast for göngu landbún. um aufena fjárfestingu. Þess vegna ættu að verða verulegar framfarir á næstu árum, þrátt fyrir marg- víslegar tálmanir skipulagS'- legra vankanta og pólitískra afskipta, sem halda áfraim að hrjá landbúnað Sovétríkjanna. 11 T í MIN N, miðvikudaginn 23. október 1963

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.