Tíminn - 26.11.1963, Blaðsíða 1
benzín eÉa diesel
HEKLA
NTB—DALLAS, 25. ndvember.
Næturklúbbaeigandi myrti Oswald í gær beint fyrir framan nefið
á lögreglunni í Dallas, og liefur morðið valdið miklu öngþveiti vestra.
Dómsmálaráðuneytið hefur tekið málið að mestu úr höndum Dallas-
lögreglunnar, sem þykir hafa staðið sig slælega og hafa hugsað mest
um að auglýsa sjálfa sig í augum fréttamanna á staðnum. Allt var
gert til að auðvelda þeim aðgang að Oswald og er það talin ástæðan
fyrir því, að það tókst að myrða hann. Hefur þetta valdið mikilli
hneykslun vestra.
Myndin hér að ofan er tekin við I
pnddyri lögreglustöðvarinnar í
Dallas, þegar var verið að flytja
Oswald, grunaðan morðingja
Kennedys Bandaríkjaforseta, það-
an og í fangelsið. Næturklúbba-
eigandinn Jack Ruby ryðst fram
með skammbyssuna reidda og skýt
ur Oswald á örskömmu færi, án
þess að varðmennirnir fái neitt að
gcrt. Þeir standa bara og hafa
uppi undrunarsvip.
Oswald var þegar fluttur til
J'ortland-sjúkrahússins en lézt
skömmu síðar, þrátt fyrir allar til-
raunir lækna til þess að lífga hann
við.
f fréttum frá Dallas segir, að
utiit sé fyrir, að dómsmálaráðu-
ne.vtið í Washington hafi tekið í
sínar hendur rannsókn morðmáls-
ins, sem nú nær langt út fyrir tak-
mörk Dallas-borgar. Lögreglan í
burginni sjálfri er næstum lömuð
og á erfitt með að fá vinnufrið,
vegna allra þeirra blaðamanna og
útvarpsmanna, sem safnazt hafa
saman á lögreglustöðinni. Ástæð-
?.n fyrir þessu er aðallega sam-
Framhald á 15. slSu.
KENNEDY BANDARÍKJAFORSETA MINNZT MEÐ MIKILLI VIÐHÖFN HEIMA 06 ERI.ENDIS
SVÖRT SLÆÐAN HULDI ANDLIT EKKJUNNAR
NTB—WASHINGTON, 25. nóvember.
Kennedy Bandaríkjaforseti var jarðaður í kvöld i Arlington-kirkju-
garði í Washington. Um tuttugu þúsund manns voru í líkfylgdinni,
þar á meðal þjóðhöfðingiar og forsætisráðherrar erlendra ríkja. —
Frú Kennedy var með svarta slæðu yfir sér og var ógerningur að
greina andlitsdrætti hennar. — Um allan heim var í dag minnzt
hins látna forseta og berast frétHr frá svo að ségja hverju einasta
landi heims um minningarathafnir, guðsþjónustur og persónulega
sorg.
Hinar jarðnesku leyfar Kenne-
dys forseta voru í dag fluttar
sömu leið og hann áður hafði
farið, þegar hann tók við forseta-
embættin.i, frá þinghúsinu að
Hvíta húsinu í Washington. Hinni
flöggum sveipuðu kistu var lyft
niður af líkpallinum í hringsaln-
um í Capitola og komið fyrir á
fallbyssuvagni, sem dreginn var af
hestum.
Frú Jaequeline Kennedy kom
til Kapitol nokkrum mínútum áð-
ur en kistan var flutt úr hring-
salnum. Hún var með svarta slæðu
yfir sér og ómögulegt var að
greina andlitsdrætti hennar. Frú-
in gekk hægt upp tröppurnar að
þinghúsinu í fylgd með bræðrum
hins látna forseta, þeim Robert
Kennedy dómsmálaráðherra og
Edward Kenn.edy, öldungadeildar
þingmanni, og inn í herbergið, þar
sem kistan stóð, þar sem þau þrjú
krupu við hllð kistunnar og báð-
ust fyrir. Þegar þau risu aftur upp
til þess að ganga út úr bygging-
unni greip dómsmálaráðherrann
snöggt um handlegg frú Kennedy.
Framhald á 15. sfðu.