Tíminn - 26.11.1963, Síða 6
TOMAS KARLSSON RITAR
JOHN F. KENNEDYS VAR
MINNZT Á ALÞINGI í GÆR
Fundur var í sameinuðu
Alþingi í gær. Aðeins eitt mál
var á dagskrá: Minnzt John
Fitzgerald Kennedys. Hér fer
á eftir það, sem forseti þings-
ins, Birgir Finnsson, sagði um
Kennedy á þingi í gær:
Síðastliðinn föstudag spurðust
þau hörmulegu tíðindi um heim
allan, að John Fitzgerald Kennedy,
forseti Bandaríkjanna, hefði beðið
bana í skotárás í borginni Dallas
í Texas, þar sem hann var á ferða-
lagi til þess að flytja ræðu.
Hvarvetna setti menn hljóða við
þessa skelfilegu fregn, eins og
jafnan, þegar mikirin voða ber
óvænt að höndum, og erfitt er að
sætta sig við, að slíkir hlutir geti
átt sér stað.
En fregnin var sönn, og í dag
fer jarðarfijr forsetans fram í höf-
uðborg Bandaríkjanna, að við-
stöddlm þjóðhöfðingjum og for-
ustumönnum þjóða víðs vegar að
úr heiminum.
John Fitzgerald Kennedy hafði
aðeins verið forseti þjóðar sinnar
í 3 ár, er hann lézt með svo svip-
legum hætti, en á þeim skamma
tíma hafði hann aflað sér siíks
álits og virðingar, bæði meðal
samherja og andstæðinga, að fá-
•títt mun vera í sögunni.
Þess vegna streyma í dag til
þjfóðar hans frá öllum löndum
hetans hinar einlægustu samúðar-
kveðjur. Þess vegna heiðrum við
minningu hans á þessum stað, og
i þessari stundu, og viljum jafn-
framt votta fjölskyldu hans, hin-
um nýja forseta, þjóðþingi Banda-
rikjanna og bandarísku þjóðinni
allri, dýpstu og innilegustu samúð
Alþingis og islenzku þjóðarinnar.
★ ★ ★
Ég leyfi mér að rifja upp örfá
atriði úr ævi forsetans.
John Fitzgerald Kennedy var
aðeins 46 ára gamall, er dauða
hans bar að höndum. Hann var
af írskum ættum, sonur Josephs
og Rose Fitzgerald Kennedy, og
var næst elztur af 9 systkinum.
Faðir hans er auðugur maður og
var um skeið sendiherra Banda
ríkjanna í Bretlandi. Afar hans
voru báðir þekktir stjórnmála-
menn á sínum tíma, og snemma
hneigðist hugur hins unga Kenn-
edys inn á þá braut. Hann stund-
aði háskólanám í þekktustu há-
skólum Bandarikjanna, í Princeton
og Harward og voru aðalnáms-
greinar hans stjórnvísindi og al-
þjóðastjórnmál. Hann útskrifaðist
með lofi frá Harwardháskóla árið
1940.
Á stríðsárunum starfaði Kenn-
edy í bandaríska sjóhernum, og
stjórnaði tundurskeytabáti á Kyrra
hafi. Kynntist hann þannig hörm
ungum stríðsins, og rataði í miklar þess studdi hann eindregið stefnu
mannraunir. Gat hann sér frægð- Trumans forseta varðandi efna-
ist árið 1953 eftirlifandi konu sinni fyrir gegn árásaröflum.
Jacqueline; fæddri Lee Bouvier, og Kjörorð hans var, að semja
og eiga þau tvö ung börn á lífi. aldrei af hræðslu, en vera heldur
Var hún manni sínum jafnan mikil ekki hræddur við að semja.
stoð, og glæsilegur fulltrúi yngri Þetta voru ekki innantóm orð.
kynslóðarinnar sem húsmóðir í Gleggsta sönnun þess úr lífi for-
Hvíta húsinu. | setans, er Kúbudeilan og lausn
Systkini hins látna forseta, og hennar. Þá var hann einbeittur og
fjölskylda hans öll, veittu honum hugrakkur á hættunnar stund, en
mikinn stuðning á stjórnmálaferli hikaði þó ekki við að semja við
hans. Bræður hans Robert, núver-J andstæðing sinn, þegar svo var
andi dómsmálaráðherra Bandaríkj- komið, að báðir gátu gefið eftir
anna, og Edward, öldungadeildar- með sæmd.
þingmaður fyrir Massachusetts, Hinar frjálsu þjóðir heims hafa
eru einnig þekktir stjórnmála-, við fráfall John F. Kennedys, for-
menn vestanhafs. seta, misst mikilhæfan og dugandi
Á fyrstu þingmannsárum Kenn- leiðtoga. sem þær virtu og treystu
edys lét hann sig einkum varða til árangursríkrar forustu.
málefni heimahéraðs síns og iðn-| Þann skamma tíma, sem honum
aðarins í Nýja-Englandi en auk auðnaðist að gegna forsetastörf-
um, var hann mjög athafnasamur
arorð fyrir björgunarafrek, er
hann vann, þegar bátur hans var
sigldur í kaf af japönskum tund-
urspilli.
Árið 1946 hófst stjórnmálafer-
ill Kennedys með því, að hann var
á sviði innanríkismála í Banda-
ríkjunum, og vann að marghátt-
hagsaðstoð til annarra ríkja og
Marshalláætlunina. Árið 1957 var uðum umbótum í menntamálum
hann kjörinn í utanríkismálanefnd og félagsmálum. Hann vildi koma
öldungadeildarinnar, og gerðist þá, á sjúkra- og ellitryggingum, og
og var jafnan síðan, talsmaður fyrir honum var lausn kynþátta-
þess, að auka bæri aðstoð til van- vandamálsins aðeins ein: Fullt
í framboði fyrir demókrata í j þróaðra ríkja. j jafnrétti þeldökkra manna og
Massachusetts og var kjörinn þing Hann taldi stjórnarfarslegt full-: hvítra, ekki aðeins í orði kveðnu,
þær og styrkja. Taldi
fyrir flokk sinn í Massachusetts við lagði hann til á þingi Sameinuðu hann friðinn í heiminum vera bezt
kosningar til öldungadeildarinnar. þjóðanna haustið 1961, að þau tryggðan með eflingu þeirra. Á
Bar hann við þær kosningar sigur- samtök helguðu framþróuninni Allsherjarþingi Sameinuðu þjóð-
orð af andstæðingi sínum úr flokki þennan áratug. j anna haustið 1961 komst hann
Repúblikana og átti eftir það sæti
í öldungadeildinni þar til hann var
kjörinn forseti Bandaríkjanna í
sögulegum og minnisstæðum kosn-
ingum haustið 1960.
Er þannig eitt ár eftir af kjör-
tímabili hans, og hefir það nú kom-
ið í hlut Lyndon B. Johnsons, sem
var kjörinn varaforseti Bandaríkj-
anna árið 1960, að taka við hinu
mikilvæga og vandasama forSeta-
embætti út kjörtímabilið. Hinn
nýi forseti er íslendingum að góðu
kunnur síðan hann var hér í heim-
sókn í s.l. septembermánuði ásamt
konu sinni og dóttur.
John Fitzgerald Kennedy kvænt-
Hann beitti sér fyrir því, að þjóð: þannig að orði í gagnmerkri ræðu,
hans fylgdi þessari stefnu í reynd að í nútímastyrjöld gæti hvorugur
og legði meira af mörkum en aðili sigrað. Það er ekki framar
nokkur önnur þjóð, til þess að hægt að útkijá deilumál með styrj-
hjálpa nýfrjálsum ríkjum og van-jöl.dum, og styrjaldir eru ekki leng-
þróuðum löndum til efnahagslegs ur málefni stórþjóðanna einna,
sjálfstæðis og sjálfsbjargar. Hann sagði forsetinn í þessari ræðu og
boðaði þá stefnu, að ríki heimsins hanrn bætti við: Hættan af kjarn-
skyldu öll vera frjáls og jafn rétt-; orkunni mundi breiðast út með
há, og stóð þess vegna fastur I vindum og vatni, og í krafti óttans,
fyrir gegn ásælni þeirra einræðis- J og hún gæti skollið yfir stóra og
afla, sem hvorki viðurkenna sjálfs-! smáa, ríka og fátæka — jafnt
ákvörðunarrétt né frjálsar kosn- þátttakendur í styrjöld, sem hina,
ingar. Hann hét því, að þjóð hans er utan við stæðu.
skyldi hvorki hefja árásir á aðra, j „Mannkynið verður að binda
né heldur gefa öðrum tilefni til endi á styrjaldir, því annars valda
árása, þó hún stæði ávallt föst styrjaldirnar endalokum mann-
kynsins“, sagði Kennedy forseti í
áminnztri ræðu, og það var vissu-
lega alvöruþrungin aðvörun, eins
og þá var ástatt í heimsmáiunum.
í framhaldi af þessum orðum,
gerði forsetinn síðan grein fyrir
stórmerkum tillögum stjórnar
sinnar um afvopnun og varðveizlu
friðarins.
Sá heimur, sem Kennedy forseti
sá fyrir sér, þegar búið væri að
yfirstíga ófriðarhættur okkar tíma,
var heimur friðarins. þar sem þeir
voldugu væru réttlátir, en hinir
veiku öruggir.
★ ★ ★
Þannig voru helztu hugðarefni
Kennedys, og hefir þó fátt eitt
verið talið. Sagan mun geyma verk
hans og dæma þau, en um mann-
inn sjálfan er dómur samtíðarinnar
óskeikull: Hann var mikill mann-
vinur og göfugmenni, drenglund-
aður og hugrakkur.
Það er fáum mönnum gefið að
gera hvort tveggja, að tileinka sér
háleitar hugsjónir, og lifa og starfa
og deyja fyrir þær, en slíkur mað-
ur var Kennedy forseti. Hann áleit
það undirstöðu mannlegs siðgæð-
is, ,að hver maður gerði skyldu
sína; þótt að honum kynnu að
steðja persónulegir örðugleikar,
hættur og ögranir.
Hann lifði samkvæmt þessari
lífsskoðun og dó vegna hennar, en
þó dauða hans hafi borið að svo
snemma og svo óvænt, og hann
hafi átt margt ógert, þá er það
víst. að störf hans hafa markað
spor, sem ekki verða afmáð af
spjöldum sögunnar.
Kyndill vonarinnar, sem hann
tendraði, verður ekki slökktur.
Aðrir munu taka upp merki hans
i baráttunni fyrir jafnrétti og frelsi
manna og þjóða, en það jafnrétti
er bezta trygging þess friðar í
heiminum, sem hinn látni forseti
vildi að ríkti
Ég bið háttvirta alþingismenn
að heiðra minningu John Fitz-
gerald Kennedys, forseta Banda-
ríkjanna, með því að rísa úr sæt-
um.
Strandferðaskip norðanlands
Þeir Gísli Guðmundsson,
Ingvar Gíslason og Karl
Kristjánsson flytja í sam-
einuðu Albingi tillögu til
þingsályktunar um strand-
ferSir norðanlands og út-
gerð strandferSaskips frá
Akureyri. KveSur tillagan á
um aS fram fari athugun
á möguleikum á því, að
SkipaútgerS ríkisins, í sam
ráSi viS hlutaSeigandi bæj-
ar- og sýslufélög komi á fót
á Akureyri útgerS strand-
ferSaskips, er annist strand
ferSir norSanlands, enda
séu ferSir þess í samræmi
viS ferSir strandferSaskipa
úr Reykjavík til AustfjarSa
og Vestf jarSa. f greinargerð
meS þessari tillögu segja
flutningsmenn:
Tími er til þess kominn að
endurskipuleggja strandferðir
hér við land með tilliti til breyt
inga, sem orðið hafa í seinni
tíð á atvinnulífi og samgöngum
í landinu Kemur þá mjög til
athugunar að taka upp verka-
skiptingu á þá leið milli strand
ferðaskipa á hverjum tíma, að
hvert skip veiti þjónustu af-
mörkuðum landshluta, og séu
þá ferðir þess sérstaklega við
þarfir þess landshluta miðað-
ar. Á Alþingi hafa verið uppi
tillögur, sem miða í þessa átt.
að því er varðar Suður-, Austur
og Vesturland. Er þá gert ráð
fyrir, að strandferðaskip, sem
sinni þörfum þessara landshluta
séu gerð út frá Reykjavík. Sams
konar þörf og eigi minni er á
sérstöku strandferðaskipi fyrir
Norðurland, en engin þörf er
á og miklu fremur óhagræði,
að það skip sé staðsett í Reykja
vík eða gert út þaðan. Eðlilegt
er, að Norðurlandsskip sé gert
út frá Akureyri, sem er höfuð-
staður Norðurlands og svo mjög
vaxandi iðnaðarbær. að þaðan
eru nú eða verður innan
skamms hægt að fá flestar þær
iðnaðarvörur, sem eru ekki
keyptar frá útlöndum eða flutt
ar á sérstakan hátt utan strand
ferðaskipanna (áburður, sem-
ent). Útiendum vörum til norð-
urhafna, sem nú er umskipað
í Reykjavík, ætti þá að umskipa
á Akureyri, að því leyti sem
þær verða ekki fluttar beint frá
útlöndum til ákvörðunarstaðar.
sem áður tíðkaðist í ríkara mæli
en nú og er vitanlega æskilegt.
Vel mætti hugsa sér t.d. að
Akureyrarskipið hefði enda-
stöðvar á ísafirði og Seyðisfirði
sneri við þar í hverri ferð vest-
ur eða austur frá Akureyri.
Mundu þá norðan- og sunnan
skip væntanlega skiptast á vör
um, farþegum og póstsending
um, aukagjalds, þannig að um
samtengt flutningakerfi væri að
ræða. En það fyrirkomulag þarf
auðvitað nánari athugunar við
Akureyrarskipið gæti verið
eign Skipaútgerðar ríkisins og
útgerðin þar útibú frá skipaút-
gerðinm í Reykjavík. Einnig ei
hægt að hugsa sér, að stofnað
yrði útgerðarfyrirtæki til
strandfe-ða norðanlands. t. d
með samvinnu hlutaðeigandi
bæjar- og sýslufélaga og S.R. og
nyti það þá nauðsynlegs stuðn
mgs frá ríkissjóði.
Tillaga þessi var flutt á síð-
asta þingi, en kom þá ekki til
umræðu
T I M I N N, þriðjudaginn 26. nóvcmbcr 1963.