Alþýðublaðið - 15.01.1943, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 15.01.1943, Blaðsíða 3
 »Föstudagur 15. janúar 1943. ALÞY&UBLAÐIÐ Washington. ILLIAM S. KNUDSEN herforingi, serri fæcLdur er í Danmörku, sagði í viðtali við blaðamenn, eftir að hafa ferðast til 600 stærstu stríðs- verksmiðja landsins, að amer- isk stríðsframleiðsla væri meir en helmingi meiri en Japana og langt á undan framleiðslu nazista. Þrátt fyrir þessar framfarir, sagði Knudsen, hafa Bandarík- in ekki enn getað hagnýtt nema eitthvað milli 50 og 60 % af getu sinni til stríðsfram- leiðslu. Konur leggja ómetan- legan skerf til framleiðslunn- ar, sagði hann. Tvær milljónir' kvenna vinna nú í stríðsverk- smiðjum, og talan hækkar senni lega upp í fjórar milljónir, áð- ur en árið er úti. Ikkert hlé á loít- árásum á megin- landlð. LO3SÍD0N í gærkvöldi. FLUGVÉLAR Bandamanna frá Bretlandi fóru aftur til árása á Norður-Frakkland í dag og gerðu árásir á samgöngu- leiðir Þjóðyerja. Þá igerðu flugvélar Banda- mjanna árásir á stöðvar Þjóð- verja ó Frakk 1 andsströnd. Hudson flugvélar gerðu loft- órásir á þýzka sMpa'lest við 'Hollandsstrendiur. Tvö kaup- sMp af meðalstærð urðu fyrir sprengjum. 2 Messersmith flug vélar voru skotnar niður fyrir Þjóðverjum. Þá hafa brezkar sprengju- flugvéiar gert 8. árás sína á 11 dögum á Ruhr-héruðin. Var varpað niður miklu sprengju- amagni. 4 flugvélar Breta komu ékki aftur. Amerískir tundurskeytabátar (réðust ó japanska tundurspilla við Guadalkanal og ihæfðu 3 þeirra tundurskeytum og lögðu þeir þá allir á flótta. Slæmt veður hefir hindrað hemaðaraðgerðir á Nýju Guinu undanfarið. Ameríski Rauði krossinn hef- ir hafið mjólkurgjafir til barna í Algier. Ætlunin er að hefja elíkar mjólkurgjafir til Ibanöa í öllum borgum Frakka í Norð- ur-Afríku Háskólar i Banda- ríkjunum vinna að þjálfun faermanna. Y ALEHÁSKÓLINN, einn stærsti háskóli Ameríku iilkynnir, að helmingur af stú- dentagörðum hans og meir en þriðjungur annars útbúnaðar, hafi verið lánaður flughernum. Fyrsti hópurinn, yfir 2,000 liðsforingjar, sem stunda flug- nám eru nú að koma. Undir- búningsflugkennsla er einnig veitt 600 mönnum, sem þegar hafa gengið í herinn. Fleiri menn úr landher og flota bæt- ast nú í hóp hinna reglulegu námsmanna, þar sem þeir æfa sig til fullnaðarþjálfunar. Harvard, Columbia, Cornell, Prihceton og aðrir háskólár hafa nú þegar herþjónustuskóla, og auka þá mjög ört. N s s s s s s s s s s s c s s s s s s s s s s s s s s s s s s N s s s s s s s s s s s s s s s s s s s V s s s s s s V s s s Upp úr rústum Stalinoradboroar. Á myndinni sjást tvser rússneskar konur vera að koma upp úr neðanjarðarbyrgi, þar þær höfðu leitað sjóls í einni hinna æðisgengnu loftárása Þjóðverja á borgina. sem S s i $ < s s s I s $ s s s s s s s s s s s s s s s s s S s s s s s s 1 s > s s s s s s s s s s s s s s s Samtal í New York vti Mr. Shepherd, hinn nj- iklpaia sendiherra Breta hér. O AMKVÆMT frétt frá New York hefir Arnaldur Jóns son blaðamaður átt samtal við Mr. Gerald Shepherd, sem ný- lega hefir verið skipaður sendi- herra Breta á íslandi. Hér fara á eftir mokkur atriði úr samtali þeirra: „Mér er mikil ánægja að mér hefir verið falið, að verða full- trúi þjóðar minnar á íslandi. Eg hef heyrt og lesið margt um íslenzku þjóðina ,en ég hef al- drei átt tækifæri á að kynnast henni’ af eigin reynd fyr en nú.“ Arnaldur Jónsson blaðamað- ur er ó leið til Minneapolis og ætlar að stunda nám við há- skóla í Minneasota. Hitti hann Mr. Shepherd að máli í skrifst. hans á Broadway í New York, þar s’em hann síðast liðið ár héfir hafft það starf á höndum að annast um börn þau sem hafa verið flutt frá Bretlandi vestur. Þá getur Amaldur Jónsson blaðaanlaður þess að Mir. Shep- herd hafi verið fulltrui Bret- lands í Danzig fyrir stríð. Mr. Shepherd hefir skrifalð skýrslu um störf sín í Danzig og undir- búning Þióðverja undir stríðið, sem birt Ibefir vecrio í }r2Iárri Hersveitir Rússa, sem sækja til Armavir eru nú 80 km. frá borginni og hafa tékið Kuma- gorski, sem er þýðingarmikil járnbrautarstöð. Rússar sækja þarna fram á mjög breiðri víg- línu og gengur sókn hersveit- anna, sem sækja fram á ber- svæði nokkuð greiðar en her- sveitanna, sem sækja fram með járnbrautinni, sem liggur um Armavir til Rostov. Fregnin um, að Rússar hafi brotizt í gegnum aðalvarnir Þjóðverja við Neðri-Don, vekur mikla athygli, því það er kunn- ugt, að þar hafa undanfarið staðið mjög harðir bardagar. Rússar hafa ekki enn tilkynnt neitt nánar u mþetta. En þess er getið í fréttum í dag, að bók“, sem brezka stjórnin hefir gefið út. Arnaldur Jónsson, ihlaðamað- ur var meðal gesta í veizlu, sem Helgi Briem aðalræðismaður héit til heiðurs Mr. Shepherd. Rússar briótast gegnum ¥arn- Ip Þjóðverja við Neðrl-Don. T Kákasusher Rússa 80 km frá borginni Armavir. LONDON í gærkvöldi. RÚSSNESKU herirnir, sem sækja fram í áttina til Armavir og Vorosilovsk hafa sótt fram um 20—50 km. Þá segir í fréttum frá Moskva í dag að rússneskar hersveitir hafi brotist í gegnum varnir Þjóðverja við Neðri-Don og fellt yfir 1000 Þjóðverja og tekið mikið herfang og þetta greiði mjög fyrir sókninni til Rostov. Rússar hafi tekið bæinn Kuban og að hersveitir Rússa séu að- eins 60 km. frá hinum þýðing- armikla samgöngubæ Salsk. Þá segir í fréttunum, að harðar árásir hafi verið gerðar á hinn innikróaða her Þjóð- verja við Stalingrad og eins hafi Rússar styrkt afstöðu sína í borginni sjálfri. Matvæla- skortur er nú orðinn mjög mik ill hjá her Þjóðverja þarna og ensi eru skotfæri hans mjög farin að minnka. Fjöldi herfor- ingja hafa yfirgefið herinn og bjargað sér undan loftleiðis. — Rússar hafa gert ákafar loftá- rásir á flugvelli Þjóðverja þarna undanfarið og auk þess hafa þeir skotið niður fyrir Þjóðverjum 26 herflutningaflug vélar. Rússar segjast vera með sókn araðgerðir á vígstöðvunum við Velikie Luki. Þjóðverjar segja enn frá árásum Rússa á Lenin- grad vígstöðvunum og eins hin- um nýju sóknartilraunum Rússa við Voronezh. Siglingar Banda- manna til Norðnr- Afríku. H. ANSON BALDWIN, hinú þekkti hernaðarsérfræSfr ingur New York Times skrifar að nau&syn sú, sem sé á aS birgja upp vígstöðvarnar í Af- ríku, hljóti auðvitað að draga mikið úr flutningum til allra annarra staða við Atlantshafið. „Hin mikla þörf á að sjá skipalestum til Afríku fyrir nægri herskipavernd hefir a)ö öllum líkindum orsakað hvarf skipa vorra af öðrum leiðum Atlantshafsins,“ segir Bald- win. „Hinn mikli árangur er vér höfum náð í skipasmíðum, hinn vaxandi styrkleiki Bandaríska flotans, að viðbættum hluta franska flotans við flota Banda- manna, verður að hefja áhrifa- mikla herferð gegn kafbátun um.“ Kaironan. FRANSKAR hersveitir hafa . . .unnið . . sigur. . á . . her- sveitum möndulveldanna 75 km. norðvestur af Kairouan og ráða nú yfir tveimur vegum til borgarinnar. Það er ekki getið um aðra landbardaga í Norður-Afríku og Tripolitaníu en að flugvélar Bandamanna hafa enn gert loft árásir á ýmsa staði í Tunis og Tripolis. Loftárás var gerð á veginn frá Misurata til Tripolis. Þá var loftárás gerð á Sousse í Tun- is. 4 Messerschmittflugvélar voru skotnar niður fyrir Þjóð- verjum, en 8 flugvélar Banda- manna skiluðu sér ekki aftur. Fréttaritari brezka útvarps- ins með 8. hernum skýrði frá því í brezka útvarpinu í kvöld, sem endurvarpað var frá víg- stöðvunum, að stöðugur straum ur bifreiða streymdi eftir strand veginum frá Cairo til fremstu vígstöðva 8. hersins í Tripoli- taníu með birgðir handa hon- um. Frakkar í Libyu hafa fekið 1600 fanga. FRÁ aðalbækistöð Le Clerc sem stjórnar hersveitum hinna stríðandi Frakka, sem sækja fram í gegnum eyðimörk Libyu og hafa meðal annars lagt undir sig höfuðborgina í Fezzanhéraði, hefir borizt til- kynning um að þeir hafi nú alls tekið um 1600 fanga og 18 fall byssur og auk jþess mikið ann- að herfang. Sendiboði frá Le Clerc er kominn til Algier með sérstök skilaboð til Giraud landsstjóra. 99 1918.“ SÆNSKA dagblaðið, „Nya Dagligt Allehanda“, sem barst hingað í dag, tilkynnti, að talan „1918“, sem minnh' n <- • á ósigur Þýzkálands það ár, — hafi verið máluð á veggina á húsum í Bergen, Oslo og öðr- um norskum bæjum. Tákn þetta er einnig hripað á þýzka staura, sem nazista- hafa komið upp. Blaðið segir, að tákn þetta hafi gert nazistá- yfirvöldunum í Þrándheimi gramt í geði, og báðu þeir borg- arana að mynda „sérstakt eft- irlitsfélag,“ til þess að finna sökudólgana. f

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.