Alþýðublaðið - 22.05.1943, Qupperneq 6
Laugardag’ur 21. ma*í 1943.
N
S
s
s
N
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
\
\
s
I
s
s
s
s
s
s
s
$
s
s
Ástir og ævintýr
ævsiaga hins heimsfræga ævintýramanns og kvenna-
gulls
Jakobs Casanova
sem talin er hin merkilegasta persóna sem uppi var
á 18. öld, sakir glæsileika og hæfileika. Hann eyddi
allri æfi sinni í leit að nýjum og nýjum ástmeyjum.
Hann var gerður útlægur úr föðurlandi sínu Ítalíu og
sömuleiðis Frakklandi. Á gamals aldri hóf hann að
rita æfisögu sína, sem síðan hefir komið út á tungum
flestra menningarþjóða og er talið sérstætt rit og
merkilegt í heimsbókmenntunum.
1. hefti þessarar bókar er nú komið í bókabúðir.
Aðalútsala í Bókaverzlun Kristjáns Kristjánssonar
Hafnarstræti 19 sími 4179.
Lesið Ástir og ævintýr Casanova.
I
$
l
s
s
!
s
s
s
s
$
s
1
s
s
s
I
s
s
s
s
s
s
s
AU»YÐUBLAÐIÐ
Á hverjo strandaðijinstri stjórn ?
Er þá tilgangurinn sá, að
leiða athyglina frá eigin sök?
„Grípið þjófinn," sagði þjófur-
inn sjálfur og benti á annan.
Er það hin vonda samvizka
Þjóðviljans, óttinn við dóm
þeirra lesenda, kjósenda, sem
trúðu fagurgala blaðsins og
fullyrðingum um áhuga Sósí-
alistaflokksins fyrir vihstri
stjórn og nú eru vonsviknir,
sem fær Þjóðviljann til þess
að grípa til þess örþrifaráðs,
að gerast slíkt ljúgvitni um
viðkvæmustu hagsmunamál
verkalýðsins, allra launþega?
Er óttinn við dóm almenn-
ings svo itaumlaus, telur
Þjóðviljinn sjálfur aðstöðu
Sósíalistaflokksins svo vonlausa
að hann álíti það eitt geta
bætt úr skák, að ljúga því, að
Alþýðuflokkurinn, samstarfs-
flokkur hans í stjórn Alþýðu-
sambands íslands, hafi ætlað
að lögbjóða kauplækkun. Er
Þjóðviljanum það ekki nóg,
að hafa slitið öllum tilraunum
til að koma á samstarfi um
myndun vinstri stjórnar? Vill
haim lika slita samstarfinu inn-
an verkalýðssamtakanna?
Er tilgangurinn með þessum
síðustu álygum á Alþýðu-
flokkinn sá, að reyna að vekja
deilu og eyðileggja samstarf
verkalýðsflokkanna innan Al-
þýðusambands íslands?
Nægir ' Sósíalistaflokknum
ekki það, að tilraunin til að
mynda vinstri stjórn, þingræð-
isstjórn á Alþingi, mistókst al-
gerlega, og að ríkisstjórn skip-
uð utanþingsmönnum fer því
enn með völd án stuðnings
meirihluta alþingis eða at-
beina flokkanna, samkvæmt
hinni upprunalega tillögu
flokksins? Vill flokkurinn líka
feigt allt samstarf innan félags
samtaka verklýðsins?
Ætlar Sósíalistaflokkurinn
að leita þar sambands, sem
margir hafa haldið fram, að
hann sé ekkert annað en
gamli Kommúnistaflokkur-
inn, grímuklæddur.
Er það skýringin á skrif-
um Þjóðviljans og endanlegri
aðstoð Sósíalistaflokksins til
vinstri stjórnarmyndunar.
Dýpra og dýpra:
Tilraunir Þjóðviljans til pess að
afsaka morðið á Ehriich og Aiter.
HANNES Á HORNINU
Frh. á 6. síðu.
heitar pylsur á kvöldin til þess að
geta drukkið /neira eða satt sig
eftir langan og erfiðan dag. Menn
eru alls ekki sammála um þetta.Eg
birti bréf í fyrradag á móti vögn-
unum. En í gær barst mér annað
bréf, frá „Rólyndum vegfaranda".
Hann er með pylsuvögnunum. Þó
að málið sé úr sögunni, birti ég
bréf þetta. Það er svohljóðandi:
„ÞAÐ ER ÖÐRU HVORU rætt
og ritað um óþrifnað og ósóma í
þessum bæ, og vitanlega er ekki
nema gott til þess að vita. Það er
þörf á því, að vekja fólk til um-
hugsunar um þetta öðru hvoru. En
nú upp á síðkastið virðist skeytum
þessum aðallega og stundum ein-
göngu beint gegn pylsuvögnunum.
,Ve;gfarandi‘ skrifar í dálka þína í
dag, og er helzt á honum að skilja,
að allur ósómi, óþrifnaður, slags-
mál og rúðubrot séu pylsuvögnun-
um að kenna og alm^nningur sé/
mjög svo undrandi yfir því, að þeir
skuli ekki vera með öllu bannaðir
og það fyrir löngu. Þar sem ég tel
mig einnig til vegfarenda, langar
mig að leggja orð í belg og biðja
þig, Hannes minn, fyrir nokkrar
línur til þessa kollega míns.
„ÞAÐ ER ÞÁ FYRST til að taka,
að ég hygg að almenningur (sem
því miður hefir að ósekju verið
blandað inn í þetta mál, því mér
vitanlega hefir engin skoðana-
könnun farið fram um þetta) hafi
mjög svo skiptar skoðanir á þessu
máli, hafi hann þá nokkuð um það
hugsað; og þá sérstaklega því,
hverjar séu orsakirnar til óþrifn-
aðar, ósóma, slagsmála og rúðu-
brota. Öþrifnaður og ósómi kemur
víða fram, og mun almenningur
eiga erfitt með að þvo hendur sín-
ar hvað það snertir, en það er nú
annað mál.“
„ÞEGAR MINNST ER Á pylsu-
vagnana í því sambandi væri svo
sem ekki úr vegi að athuga sumar
svonefndar „sjoppur", sem varla
verða teknar til fyrirmyndar um
hreinlæti né sómasamlega af-
greiðslu neyzluvara, svo ekki sé
meira sagt, en það er bara erfið-
ara að vanda um við þær en
pylsuvagnana. Garðurinn er þar
mun hærri! — Um slagsmálin og
rúðubrotin er það að segja, að
órsökin til þeirra verður varla
rakin til þess, að menn eti pyls-
ur(H). Það er að minnsta kosti
hugsanlegt, að „kollega" minn geti
aflað sér staðbetri fræðslu um það
atriði hjá lögreglunni, ef hann á
annað borð fýsir að vita um hinar
sönnu orsakir til slagsmála og óláta
á götum úti.“
„EN ÉG TEL óhugsandi, að
pylsur hafi þau áhrif á menn, að
gera þá gjarna til slíkra hamskipta.
Það er þá víða pottur brotinn.
Pylsuvagnarnir verða því ekki
gerðið ábyrgir fyrir auknu lög-
reglueftirliti. — Um kæru Útvegs
bankans, sem „kollega“ minn gerir
að umtalsefni, má segja, að hún
snerti aðallega þá hlið málsins,
hvar pylsuvagnarnir eigi að vera
og um það verða að sjálfsögðu
ýms sjónarmið uppi. Það er þó
margra manna mál, að þeim hafi
verið valinn góður staður, þar sem
þeir hafa verið að undanförnu í
Kolasundi. Það beri lítið á þeim,
en séu þó ekki út úr.“
„MÉR ER SAGT, að í mörugm
borgum erlendis séu pylsuvagnar
víða á götum úti, og því fari
fjarri að þeir séu ákærðir fyrir
allt það, sem þar kann miður að
fara í almennri hegðun hvað ó-
sóma, óþrifnað og slagsmál snert-
ir. Aftur á móti séu þeir til mik-
illa þæginda fyrir almenning. Það
getur varla verið efamál, að sama
lögmál gildi um pylsuvagnana hér,
enda eru þess mörg dæmi. Er því
algerlega ósanngjarnt að bérjast
gegri þeim, ekki sízt, iþegar á þeim
hefir farið fram endurbót til mik-
illa muna.“
„AÐ ENDINGU vil ég geta þess,
að mér finnst „kollega“ minn hafa
reynt að gera úlfalda úr mýflug-
unni með því að telja pylsuvagn-
ana valda ósómanum, óþrifnaðin-
um o. s. frv. í miðbænum. En það
má ef til vill virða honum það til
vorkunnar. En að hann skuli ætl-
ast til, að bæjarstjórn geri slíkt
hið sama, það er fásinna, sem ekki
er hægt að vorkenna honum. Bæj-
arstjórn mun í þessu máli, hér
eftir sem hingað til, líta á mýflug-
una sem mýflugu og úlfaldann sem
úlfalda."
BRÉFRITARINN talar mjög um
að það hafi ekki verið pylsurnar,
sem urðu valdandi slagsmálum,
rúðubrotum og svínaríi. Nei, það
mun líka vera rétt. Næsta skrefið
er þá að banna ríkinu að selja
sprútt. Haldið þið að það verði
samþykkt? Neí, ekki aldeilis. Það
vérður aldrei samþykkt. Það er
líka ólíku saman að jafna: heitum
pylsum — og brennivíni.
Hannes á horninu.
(Frh. af 4. síðu.)
sem byrjaði að halda fundi um
jólaleytið.
Lokapáfttar) loddara-
lelksins.
En þá bregður svo við, að
um alllanga hríð er fátt rit-
að í Þjóðviljann um „vinstri
stjórn“. í þess stað er tekið
að skrifa um „vinstra sam-
starf“, án stjórnarmyndunar,
á alþingi og utan þess. Og
loks, þegar aðeins er eftir
hálfur mánuður til þingslita
og að því er komið, að nú
verður að hrökkva eða
stökkva um myndun vinstri
stjórnar, kveður Þjóðviljinn
upp úr með þeð, að eini
möguleikinn fyrir því að
mynda vinstri stjórn sé, að
hinir flokkarnir fallist á
stefnu sósialsita! Hann hafi
sett sín skilyrði, hinir flokk-
arnir verði annað hvort að
ganga að þeim óbreyttum
eða ekkert verði úr vinstri
stjórn.
Greinilegar er ekki hægt að
slíta öllum samningaumleit-
unum.
En til enn frekari árétting-
ar eru svo tillögur fulltrúa
flokksins í 9 manna nefnd-
inni fluttar og fyrir þeim
mælt rétt á eftir.
Jafnframt tekur svo blaðið að
boða þá nýju kenningu, að í
raun réttri sé enginn skaði
skeður, þótt myndun vinstri
stjórnar liafi farið út um þúfur.
Slík stjórn væri svo sem ekk-
ert sérstaklega æskileg frá
sjónarmiði alþýðustéttanna.
Hún hefði sennilega orðið að
mæta mörgum vanda, störf
liennar gætu orkað tvímælis og
jafnvel orðið til þess að valda
deilum.
Og einnig um Aiþýðuflokk-
inn flytur nú Þjóðviljinn nýjan
boðskap. Ekki svo að skilja, að
ókvæðisorðin séu spöruð eða
brigslin og aðdróttanirnar um
svik minni en áður. Nei, það er
nú eitthvað annað. En nú er Al-
þýðuflokknum ekki álasað fyrir
það, að hann vilji ekki vinstri
stjórn eða að Alþýðublaðsklík-
an komi í veg fyrir að hún sé
mynduð. Nú er höfuðsök Al-
þýðuflokksins allt i einu orðin
sú, að hann vill vinstri stjórn,
vill fá ráðherra í slíka stjórn
með Sósíalistaflokknum og
Framsókn. Og vísvitandi er
hamrað á þeim ósannindum i
Þjóðviljanum dag eftir dag, að
Alþýðuflokkurinn hafi ætlað
að ganga að því, að lögbjóða
kauplækkun, þótt allir viti, að
þessi fullyrðing er tilhæfulaus
með öllu, ,og annar ritstjóri
blaðsins hafi neyðst til þess að
jála ]>að opinberlega við út-
varpsumræður á alþingi.
Hver er sbýringin?
Hver er tilgangurinn með
þessum siendurteknu ályguin
Þjóðviljans, níði og rógskrif-
um um Alþýðuflokkinn í sam-
bandi við viðræðurnar um
vinstri stjórnina. Tæplega get-
ur hann verið sá einn að
þjóna lund ritstjóranna og
löngun þeirra til illyrðamokst-
urs. Alþýðublaðið hefir aldrei
fullyrt, að myndun vinstri
stjórnar hafi strandað á Sósí-
alistaflokknum einum. Það
hefir hins vegar verið sýnt
fram á, að það var hann, sem
raunverulega sleit samninga-
viðræðunura.
JÓÐVILJINN gerir i gær
nýja tilraun til ]>ess að af-
saka morðið á hinum pólsku
jafnaðarmönnum Ehrlioh og
Alter austur á Rússlandi.
Þorir blaðið þó ekki lengur
að segja neitt um þetta hrak-
lega niðingsverk frá eigin
hrjósti, heldur birtir um það
grein, þýdda upp úr ameríkska
kommúnistatímaritinu . .„New
Masses“.
Þar er þvi fyrsta lagi logið
upp, að Ehrlidi og Alter hafi
komið sem flóttamenn til Rúss
lands haustið 1939. Sannleikur
inn er sá, að þeir voru teknir
fastir af . sovétyfirvöldunum í
Austur-Póllandi, eftir að Rússar
höfðu lagt það undir sig með
i.nnrásinni að baki Pólverjum í
september þá um haustið.
í Þjóðviljagreminni er við-
urkennt, að -sovétstjórnin hafi
þegar í ágúst 1941 látið dæma
þá Ehrlich og Alter til dauða.
En um hitt er þagað í greininni,
— að sovétyfirvöldin lýstu því
yfir, þegar þeir voru látnir laus
ir litlu síðar sgmkvæmt banda
lagssáttmálanum við Pólland þá
um sumárið, að öll málaferlin
gegn þeim hefðu verið byggð á
missljilningi, eins og Elirlicli
skrifaði í bréfi til London þann
stutta tima, sem þeir félagar
voru frjálsir í Rússlandi.
Þá segir í Þjóðviljagreininni,
að þeir Ehrlich og Álter hafi
aftur verið teknir fastir í des-
ember il 9 4 2. Þetta eru bláber
ósannindi, sett fram, eins og
sjá má á greininni, til þess, að
geta þvi betur talið mönnum
trú um að, þeir félagar hafi
verið frjálsir ferða sinna og
athafna meðan barizt var við
íStalingrad, en kommúnistar
liafa sem kunnugt er talið það
liklegast ti.1 afsökunar fyrir hús
bændur sína austur á Rússlandi,
að ljúga þvi upp, að þeir Ehr-
lich og Alter hafi með úndir-
róðri þar eystra vegið að vörn
Rússa við Stalingrad. Þeir Ehr
lich og Alter voru tekiiir fast-
ir á ný strax i desember 19 4 1
en ekki í desember 1 9 4 2. og
því búnir að vera hér um bil
heilt ár í fangelsum sovétstjórn
arinnar í annað sinn, þegar bar
dagarnir við Stalingrad byrj-
uðu!
Að endingu reynir hinn ame-
ríkski kommúnisti, að afsaka
morðin á pólsku jafnaðarmönn
unum með þvi, að þeir hafi ver-
ið „orðnir sovéthorgarar“. Vit-
anlega byggist slík lygi ekki á
neinu öðru en en því, að Rúss-
land hafi 1939 lagt undir sig
'AUiStur-|Pó:lland og þar með
innlimað bæði það og alla Pól-
verja, sem þar voru, i hið rúss-
neska þjóðfangelsi. En hvernig
stóð þá á þvi, að sovétstjórnin
lét þá Ehrlich og Alter lausa í
bili samkvæmt kröfu pólsku
stjórnarinnar i London í ágúst
1941? Viðurkenndi liún ekki þar
með að þeir væru pólskir rík-
isborgarar,
Þannig eru öll „rök“ komrn-
únista í ]>essu máli, annaðhvort
bláber ósannindi eða gagnsæj-
ar blekkingar. Það er þvi alveg
sama livernig Þjóðviljinn, eða
erlendir kommúnistar, sem
hann ber fyrir sig, reyna að af
saka morðið á Ehrlicli og Alter
hinum pólsku jafnaðarmönn-
um og fresishetjum i barátt-
unni við ma^ismann. Það er
óverjandi glæpur við verkalýðs
hreyfinguna og þjóðfrelsisbar-
áttuna i heiminum, og Þjóðvilj
inn mun aldrei hafa annað en
sí aukna smán og fyrirlitningu
af því að reyna að bera í bæti-
fláka fyrir svo hraklegt gerræði
og níðingsverk.
HÖFUM
DRENGJAPOKABUXUR
> allar stærðir í ýmsum' litum.
Afgreiðsla ÁLAFOSS,
Þingholtsstræti 2. — Sími 3404.