Alþýðublaðið - 12.06.1943, Blaðsíða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Laugardagur 12. júní 1943»
N
S
s
s
s
s
s
$
s
s
s
s
s
s
*
s
s
s
s
s
*
s
s
s
Útvegsbankinn gefnr 50 pns. br.
til hvíidarheimilis sjómanna.
Samþykkt á aðalfnndi bankans í gær.
AÐALFUNDUR Útvegsbankans h. f. var haldinn í gær.
Á fundinum var samþykkt í einu hljóði, samkvæmt
tillögu fulltrúaráðs og bankastjórnar að gefa 50 þúsundir
króna í byggingarsjóði dvalarheimilis fyrir aldraða sjómenn.
Á fundinum gaf formaður bankaráðsins, Stefán Jóh.
Stefánsson, skýrslu um hag bankans og rekstur og er hag-
urinn mjög góður.
N
S
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
Hæstaréttardómur í gær:
Lárns Jóhannesson fær 17 hnsnnd
krónnr fvrir handleggsbrotið.
Bæjarsjóður sýknaður af kröfunni, en
rikissjóður verður að greiða bæturnar.
HÆSTIRÉTTUR dæmdi Lárusi Jóhannessyni, hæsta-
réttarlögmanni og alþingismann í gærmorgun 17
þúsundir króna í skaðabætur fyrir meiðsli, er hann hlaut
í höndum lögreglunnar fyrir um tveimur árum og auk þess
3 þúsundir króna í málskostnað. Málavextir voru þeir, eins
og menn munu minnast, að tveir lögregluþjónar tóku Lárus
Jóhannesson drukkinn að því er þeir töldu og er hann stimp-
aðist á móti, framhandleggshrotnaði Lárus o gátti hann lengi
í meiðslinu.
Rfkisstjóri hefur
legið í sjúkrahúsi.
£n er nú á hatavegi-
RÍKISSTJÓRI hefir ekki
verið á skrifstofu sinni
undanfarna daga, þar sem
hann hefur legið á spítala
vegna aðgerðar á kjálkaholu.
Ríkisstjóri er nú á góðum
batavegi eftir því sem Gunn-
laugur Einarsson læknir
uplýsiij, en mun þó verða
fjarverandi næstu viku.
Jón ívarssou dæmú-
nr aftar og á sðmu
infld og áðar.
VALDIMAR STEFÁNSSON
setudómarinn í máli Jóns
ívarssonar kvað í gærmorgun
upp dóm í málinu. Var dómur
hans á somu lund og fyrri dóm-
urinn, sem ónýttur var vegna
formgalla.
Jón ívarsson var dæmdur í
1500 kr. sekt og greiðslu máls-
sóknar.
í gær bárst Alþýðublaðinu
eftirfarandi tilkynning frá við-
skiftaráðuney tinu:
„Viðskiptamálaráðuneytið
hefir móttekið svohljóðandi
bréf frá Jóni ívarssyni, fyrrv.
alþingismanni, 5. þ. m.:
„Ég leyfi mér hér með að til
kynna hinu háa viðskiptamála-
ráðuneyti, að ég hefi ákveðið
að taka eigi sæti í Viðskipta-
ráði, án tillits til, hver úrslit
þess kunna að verða, er höfðað
Frh. á 7. síöu.
Lárus höfðaði mál út af þessu
gegn bæjarsjóði Reykjavíkur
og ríkissjóði og dæmdi
undirréttur þessa aðila til að
greiða Lásusi 20 þúsundir kr.
í skaðabætur. — Hæstiréttur
sýknaði bæjarsjóð, en dæmdi
ríkissjóð til að borga Lárusi
skaðabæturnar.
í forsendum hæstaréttar fyr-
ir dóminum segir meðal ann-
ars:
„Lögreglumenn þeir, sem í
máli þessu greinir, voru að
rækja störf sín í lögreglu
Reykjavíkur, þegar gagnáfrýj-
andi hlaut lemstur sitt. Yfir-
stjórn lögreglu Reykjavíkur og
ákvarðanir um framkvæmd
hennar eru falin handhöfum
ríkisvaldsins. v Athafnir lögreglu
þessar eru því þáttur í beit-
ing ríkisvalds, enda eru lög-
reglumennirnir um meðferð
starfa síns • ekki háðir stjórn-
völdum Reykjavíkur. Eru þess
vegna ekki efni til þess að
greiða gagnáfrýjanda bætur úr
bæjarsjóði Reykjavíkur og
breytir það ekki þessari nið-
urstöðu, þótt annar lögreglu-
mannanna taki laun sín úr
nefndum bæjarsjóði og bæjar-
stjórnin hafi haft hönd í bagga
um skipun hans. Ber því að
sýkna borgarsjóra Reykjavík-
ur f .h. bæjarsjóðs, en máls.
kostnaður gagnvart honum þyk
ir eiga að falla niður.
Kemur þá til álita krafa gagn
áfrýjanda á hendur ríkissjóði.
Það verður ekki talið lögreglu-
mönnunum til áfellis, þótt þeir
skærust í leikinn, er gagnáfrýj
andi ör af víni var að skipta sér
af ölvuðum erlendum sjóliða,
sem herlögreglumaður var að
taka fastan. Hinsvegar þykir
það sýnt, að lögreglumennirnir
hafa tekið gagnáfrýjanda of
hörðum tökum og það jafnvel
þótt óhrakin sé sú staðhæfing
þeirra, að hann hafi reynt að
gera tilraunir til mótspyrnu.
Réttlátt þykir og eðlilegt, að
þjóðfélagið beri ábyrgð á mis
Frh. á 7. síðu.
Almennt kesnaraping nm
islenzka tnngn og pjóðerni
¥erður sett með viðhðfn í há^
tiðasal háskélans 19. p. m.
Fjöldi kennara mun sækja þingið.
ALMENNT KENNARAÞING hefst hér í Reykjavík 19.
þessa mánaðar og stendur í 4 daga. Aðalviðfangsefni
þessa kennaraþings verður íslenzk tunga og íslenzkt þjóð-
erni. Er lögð mikil áherzla á það að stjórn kennarasambands-
ins að sem allra flestir kennarar sæki þingið.
Á þessu almenna kennara-
þingi flytja erindi: Einar Arnórs
son menntamálaráðh., Jakob
Kristinsson fræðslumálastjóri,
Björn Sigfússon magister, Sig-
urður Thorlacíus skólastjóri og
Ársæll Sigurðsson kennari.
Fundir þingsins verða haldn-
ir í Austurbæjarskólanum, en
sjálf setning þingsins fer fram
í hátíðasal háskólans 19. júní
um kvöldið. Þar flytur Jakoþ
Kristinsson ræðu, S. A. Friid,
blaðafulltrúi segir frá baráttu
norsku kennaranna. Sigurður
Thorlacius minnist Alþjóðasam
bands kennara, Haraldur Björns
son o. fl. flytja leikþátt. Jóhann
Tryggvason og Páll Halldórs-
son söngkennarar leika á fiðlu
og blandaður kór syngur.
Þá verða og sýningar í sam-
bandi við þingið.
Stjórn S. j. B. skipa þessir
menn: Ingimar Jóhannesson
formaður, Sigurður Thorlacius
varaformaður, Guðm. S. Guð-
jónsson ritari, Pálmi Jósefsson
gjaldkeri og meðstjórnendur
þeir Arngrímur Kristjánsson,
Gunnar M. Magnúss og Jónas
B. Jónsson.
Almenningur í landinu mun
áreiðanlega fylgjast af lifandi
áhuga með störfum þessa þings
kennaranna um íslenzka tungu
og íslenzkt þjóðerni.
Fyrirmæli lögreglunnar:
Bifreiðarner af
alferaleiðinni!
Á nokkura fyrirfram til-
greinda staði,
LÖGREGLAN hefir enn
hafið herferð gegn bif-
reiðunum, sem standa á öll-
um götum og gangstéttum.
Verða bifreiðaeigendur, að
viðlögðum sektum að fara
með bifreiðar sínar á til
tekna staði.
Bifreiðar mega standa á eft-
irtöldum stöðum: Á Hringbraut
að Flókagötu, á Vitatorgi.
Beggja megin við Leifsstytt-
una, við Gróðarstöðina, fyrir
neðan hana, á Hringbraut, og
austan Framnesvegar, sunnan
Sólvallagötu.
Verða bifreiðaeigendur nú
þegar, sem heima eiga í ná-
grenni þessara stáðá að flytja
bifreiðir sínar á næsta stað, —
annars munu þeir verða látnir
Frh. á 7 síðu
Fyrsta kvöldyaka blaðamanna i
útvarpinu á annan I hvitasonnii.
9 blahamenn koma fram á hvhld*
vökunni með margs Icaiiar ®fnf«
p YRSTA kvöldvaka
blaðamanna, sem út-
varpað er, verður að kvöldi
2. í hvítasunnu. Hefur nefnd
úr Blaðamannafélagi Islands
undirbúið þessa kvöldvöku
alllengi ,hvernig svo sem út-
varpshlustendum líkar það,
sem blaðamennirnir flytja
þeim að þessu sinni.
Sérstakur kynnir verður á
kvöldvökunni, en að öðru leyti
fer þetta fram: ,
Skúli Skúlason, formaður
Blaðamannafélags íslands flyt-
ur ávarp. Hannes á horninu
talar um daginn og veginn,
Axel Thorsteinsson segir end-
urminningar úr blaðamennsk-
unni á Islandi síðustu 20 árin,
en 20 ár eru liðin síðan Axel
Thorsteinsson fluttist heim og
hóf blaðamennskustörf hér.
iSigurður Guðmundsson flytur
erindi, sem hann nefnir: Hvers
virði eru blöðin? Jón Heígason
segir stutta frásögu. Karl ísfeld
segir skipafréttir á bundnu
máli. Jón H. Guðmundsson les
upp smásögu, sem heitir ,,Dag-
inn eftir“, og er hún frásögn
af manni sem fékk sér full-
mikið í staupinu. Bjarni Guð-
mundsson lýsir daglegu lífi
blaðamannsins. Þá syngjur
Árni Jónsson frá Múla.
Á bak við þetta allt heyrist
í íjarska setjaravélar pikka,
pressuvélar snúast, fréttarit-
arar síma eftir fréttum og blaða
drengir æpa. Þá verða loks
leikin lög eftir blaðamenn og
lög við Ijóð eftir blaðamenn.
Fimleðfaasýnini ármanns
á aniaii i hvitasunnu.
Fimleikasýning ár-
MANNS, sem vera átti í
gærkveldi, fórst fyrir vegna
rigningar og bleytu á vellinum.
Ákveðið er, að sýningin verði
á annan í hvítasunnu kl. 5, ef
veður leyfir.
Hátiðahöldin
17. júní.
Forsætisráðherra talar af
svolnm alþingishússins.
Framkvæmdanefnd
íþr'óttahátíðarinnar 17.
júní hefur setið á rökstólum.
að undanförnu og komið sér
niður á það hvernig deginum
verður varið, en það eru
íþróttafélögin Ármann, K.
R. og í. R., sem sjá um mót-
ið nú eins og að undanfömu.
Skýrði nefndin blöðunum fráv
því helzta viðvíkjandi hátíða
höldunum í gærkveldi.
Kl. 2 Ieikur Lúðrasveit
Reykjavíkur á Austurvelli, en
forsætisráðherra, Björn Þórð-
arson, talar af svölum Alþingis
hússins kl. 2,30, Lagt verður
af stað suður á íþróttavöll kl.
2.45 og Iagður blómsveigur á
leiði Jóns Sigurðssonar, en
íþróttasýningar og keppni hefj-
ast kl. 3. þar keppa 45 karlar
frá 7 félögum í frjálsum íþrptt-
um og 12 stúlkur reyna rtieð
sér í hlaupum.
Aðgangur að vellinum verð-
ur ókeypis, en merki verða seld
allan daginn til styrktar starf-
semi íþróttafélaganna þriggja.
Um kvöldið verða svo dans-
leikir í Hótel Borg og Odd-
fellowhúsinu.
Síðar verður nánar skýrt frá
hátíðahöldum íþróttamanna
þennan dag.
Bonesteel í boði
riúisstjórnarinnar
siðdegis i gær.
f ----
í tilefni af brottfor hps.
RÍKISSTÓRNIN hafði boð í
alþingishúsinu síðdegis x
gær í tilefni af brottför Bone-
steel hershöfðingja héðan.
Var hershöfðinginn mættur
ásamt ýmsum öðrum ameríksk-
um yfirmönnum. Fjöldi ís-
lenzkra embættismanna, þing-
manna og annarra forystu-
manna tók þátt í hófinu til að
heiðra hershöfðingjann með ná-
vist sinni.
Fyrirtæki dæmd fyr-
ir verðlagsbrot í
4200 króna sektir.
ATTA verzlunarfyrirtæki
hafa nýlega verið dæmd
í sektir fyrir brot á verðlags-
ákvæðum. Nema sektirnar
samtals 4200 krónum.
Þessi fyrirtæki hafa verið
dæmd:
Veitingasalan í Sýningar-
skála myndlistarmanna, fyrir
of hátt verð á veitingum, kr.
500,00. Bifreiðasala Haraldar
Sveinbjörnssonar, fyrir of hátt
verð á varahlutum, kr. 1500,00.
Verzlunin Drangey, fyrir of
háa álagningu á silkisokkum,
kr. 300,00. Saumastofa Kristín-
ar Gissurardóttur, fyrir of
hátt verð á kápu, kr. 200.00.
Hattabúð Ingu Ásgeirs, Lauga-
veg 20, of hátt verð á kvenhött
um, kr. 400,00. Tízkuhúsið,
Laugavegi 5, fyrir of hátt verð
á kvenhöttum, kr. 800,00. Veit-
®Yh. b 7. síöu.