Alþýðublaðið - 12.06.1943, Page 6
ALÞTÐUBLAÐIÐ
Laugardagur 12„ júní 1943-
S
s
S
s
)
s
s
S
S
s
s
s
s
s
s
)
s
s
s
s
s
s
I
s
V
s
s
s
s
Hvað tekur við?
Þetta er spurningin, sem allir leitast við að
svara nú, pví öílum er ljóst, að núverandi
ástand, eða ástand pað sem ríkt hefir hér á
landi allt til pessa dags á sviði fjárhags- og /
atvinnumála, er óviðunandi.
Verðar horftð að somu leið og áðar?
Að minnsta kosti munum vér halda áfram
að framleiða okkar ágæta og ódýra
Fix
þvotta-
efni
Hver pakki kostar kr. 0.98.
Hvað fáið pér fyrir liverja krónuna nú ?
Athugið pað og styðjið okkur í baráttunni
við að draga ilr dýrtiðiaai.
Það er barátta, sem allir, hverjum flokki
sem peir tilheyra, geta sameinazt um.
Kaupið Fix-pakka strax í dag.
HANNES Á HORNINU
Frh. af 5. síðu.
urum fyrir nokkru síðan og kom-
inn í farmennskuna."
„RÉTT FYRIR sjómannadag-
inn kom ég svo heim aftur. Mitt
fyrsta verk, þegar ég var búinn að
gæta bús og barna, var að leita í
horninu þínu að bréfinu frá mér.
Með sívaxandi eftirvæntingu leit-
aði ég og leitaði, en hvergi var
bréfið. Hvað veldur? Hefir þú
brugðist mér og öðrum unnendum
hins frjálsa orðs svo geypilega, að
þú hafir stungið bréfi mínu und-
ir stól, eingöngu vegna þess, að
þar var farið með sannleika og
ekkert nema sannleika. Hefir þá
sannleikanum lokast þessi eina
leið, sem hann átti til fólksins, —
leiðin fyrir hornið þitt?“
„FRÁ ÞVÍ AÐ EG EYGÐI
möguleika á því að verða heima á
Sjómannadaginn, hugsaði ég lítið
um. annað ep þann dag. Hugur
minn var fullur af barnslegri til-
hlökkun, jafnvel djúpsprengju-
dunur og tundurskeytaárásir á
lestina okkar megnaði ekki að
draga úr tilhlökkuninni; ég ákvað
að komast á Borgina og taka úr
mér hrollinn. Svo rann hinn lang-
þráði dagur upp, dimmur og
drungalegur, dagur hinna miklu
vonbrigða fyrir mig. Þrátt fyrir
miðlungs veður komu sjómenn
mannmargir í hópgönguna og á í-
þróttavellinum fór allt vel og
skipulega fram. Formaður ráðsins
túlkaði vel og skörulega skoðanir
okkar sjómanna."
„HINIR RÆÐUMENNIRNIR
voru einnig góðir, aðeins fannst
mér ræðurnar heldur langar, en
vorkun er það, því á Sjómanna-
daginn er svo margs að minnast,
að ekki er það undarlegt, þó ræðu
menn verði langorðir. Eg þakka
þeim öllum fyrir frammistöðuna
og sérstaklega Guðmundi Jóns-
syni fyrir si'nn ágæta söng. Það er
nú meiri heljar barkinn, sem sá
piltur hefir.“
„EN HVAR VORU áhotfend-
urnir? Eru Reykvíkingar orðnir
þeir aukvisar, að þeir treysti sér
ekki út á götu í 1 eða 2 klukku-
tíma, þó að hitastigið sé eitthvað
fyrir neðan 10 stig og vindhæðin
fyrir ofan 4—5 stig. Eða eigum
við sjómenn og dagur okkar eng-
in ítök í fólkinu í þessum bæ
lengur? Man nú enginn lengur, að
allt prjálið, allur hégóminn og
allar nauðsynjar eru fluttar yfir
hafi.ð Ef til vill væri rétt fyrir
okkur sjómenn að hvíla okkur um
mánaðartíma og fá hækkaða
,,hræðslupeningana.“ Ætli að ein-
hver bæjarbúa rumskaði þá ekki
og færi að átta sig á því, að hér í
þessum bæ er til stétt, sem heitir
sjómannastétt og að skolli er erf-
itt að fljóta áfram sofandi að
feygðarósi á allsnægtum og mun-
aði, án þess að sjómennirnir
sigli.“
BRÉFIÐ ER LENGRA. í fram-
haldi gagnrýnir bréfritafrinn
slremmtiskrána á Borginni. Sú
gagnrýni er ekki réttmæt, nema
að litlu leyti og ýmislegt, sem
þar hefði mátt betur fara var al-
veg óviðráðanlegt fyrir þá, sem
stóðu að hátíðahöldunum. Hvað
segið þið til dæmis um það, að
hljóðfæraleikarar höfðu lofað að
leika til kl. 12 á miðnætti, en þeir
sviku það á síðustu stundu — og
er það furðulegt. Þetta breytti
mjög skemmtiskránni, gerði hana
losaralegri, en ekki gat sjómanna-
dagsráðið ráðið við þetta. — Eg
hlustaði á alla dagskrána frá Hó-
tel Borg og mér líkaði hún sæmi-
lega. Hléin voru að vísu of löng,
en það var einmitt vegna svika
hljóðfæraleikaranna. Eg hygg, að
„Togarakarl“ vilji ekki með gagn
Fyrsti kappleiknr islandsmótsins.
Knattspyrnumót IS-
LANDS, þessi merkasti
viðburður á knattapyrnusvið-
inu hér á landi, hófst í fyrra-
kvöld. Auk Reykjavíkurfélag-
anna Fram, KR og Vals, en Vík
ingur dró sig til baka úr mót-
inu á síðustu stundu, eins og
kunnugt er, þá munu tvö félög
utan af landi taka þátt í því,
frá Akureyri og Vestm.eyjum.
Akureyringar mæta til móts í
nafni I. R. A. eða íþróttaráðs,
Akureyrar, sem K. V. eða
Knattspyrnufél. Vestmanna-
eyja — og er það úrval úr
báðum félögunum þar.
— Viðhafnarlaust og rislítið
hóifst þetta lanidsmót í einni
vinsælustu íþrótt sem stunduð
er af íslenzkum æskulýð, og
sem hefir fleiri þátttakendum
á að skipa en nokkur önnur
íþróttagrein' hér á landi. Það
mundi setja allt annan svip á
mótið ef setning þess færi há-
tíðlega fram og með nokkurri
viðhöfn, þetta ætti forysta
íþróttamálanna að athuga, með
stjórn í. S. í. í broddi fylking-
ar.
Mótið hófst að þessu sinhi
með leik milli Fram og K. R.
stundvíslega kl. 8V2 hlupu leik-
mennirnir inn á völlinn, undir
dynjandi lófataki hinna fjöl-
mörgu áhorfenda.
K. R. átti völ á marki og
kaus að leika með vindi, sem
var dálítill. En þrátt fyrir það
var leikurinn yfirleitt mjög
jafn. Sóknir K. R. voru þó öllu
snarpari og framherjar þess
öllu samstilltari en Fram. Þessi
hálfleikur endaði með 1 marki
sem K. R. gerði og varð það
vegna mistaka eins úr vara-
liði Fram_ rak hann hælinn í
knöttinn rétt fyrir framan
markið og breytt stefnu hans,
svo markmanni var ógerningur
að ná honura, en hefði senni-
lega annars gómað hann.
Þannig lauk fyrri hálfleik að
K. R. sigraði með 1:0, hefði það
alveg eins geta verið Fram, en
jafntefli var réttmætt.
. (SLÍðari hálfleijkur, þar sem
Fram lék nú með vindi, var
þófkenndur lengi framan áf,
svo ekki mátti á milli sjá en
er milli 25—30 mín. voru þæfð-
ar af leiknum, tók hægri inn-
framherji K. R. sig til, Jón
Jónasson, sem er einn hug-
kvæmasti leikmaður þeirra. og
brauzt skyndilega í gegn um
varnir Fram og skoraði með
góðu skoti. Naumast var leik-
urinn hafinn að nýju fyrr en
vinstri innframherji K. R. Óli
B. Jónsson gerði slíkt hið sama,
stóð nú leikurinn 3:0 fyrir K. R.
og var nú bros á andliti hvers
K. R. silnna umhvdlöfis völl-
inn, en vinir Fram sátu gneyp-
ir — Frammarar sáú að ekki
mætti svo fram vinda. Hófu
skæða sókn sem endaði með
því að Þórhallur skoraði með
snjöllu skoti.
'Eftir það gerðist ekkert sögu-
legt en þófið hófst að nýju og
var þæft í gríð og ergi það
sem eftir var leiktímans.
Kappleikur þessi var í heild
fremur lélegur, og oft áberandi
snauður af hugsun. Iðulega
sendu leikmenn, í báðum lið-
um, knöttinn beint til mótherja
eða eitthvað út í bláinn, þó að
samherji þeirra stæði mjög
vel við að taka á móti honum
og iskila |honum áleiðis að
marki andstæðinganna .
Hornspyrnur mistókust, lentu
fyrir aftan mark, varpað var
rangt inn oftar en einu sinni.
Slíkt og þvílíkt á ekki að sjást
á meistaraflokksleikjum. Knatt
spyrnumenn í meistaraflokki
rýni sinni spilla fyrir sjómanna-
deginum, en það er gert, þegar hún
er óréttmæt.
Hannes á horninu.
eiga vera vaxnir upp úr slík-
um barnahrekum
Dómgreind og hugsun eiga
að einkenna leiki þeirra ekki
síður en öruggar spyrnur.
Knattspyrnan er ekki aðeins
spyrnur og hlaup, hún byggist
ekki síður á rökréttri hugsun
og athugun.
Dómari var Guðm. Sigurðs-
son og dæmdi hann vel. Áhorf-
endur voru margir.
Ebé.
Rykið í bænum.
(Frh. af 4. síðu.)
inn, en dálítinn tíma tekur það,
að gera steinana að flugdufti;
á meðan er þó friður fyrir ryk-
inu, og — ,.er á meðan er“. —
Sums staðar, t. d. í miðbæn-
um, þar sem allar göturnar eru
fullgerðar, ætti að geta liðið
nokkuð langur tími, þar til að
verulega mikið ryk kemur aft-
ur á þær; annars staðar yrði
tíminn styttri_
Vafalaust munu þeir finnast
hér í bæ, sem finnst, að þetta
megi ganga eins hér eftir sem
hingað til, eru ánægðir með
það, að lifa í ryki. anda að sér
ryki og éta meira eða minna af
ryki, — ryki (= skít) með öll-
um þeim óheilnæmum, sem í
því búa. Aðrir munu vera trú-
litlir á það, að slíkur bæjar-
þvottur komi að nokkru gagni
og trúa því sízt, að hann geti
orðið til nokkurrar frambúðar.
En — það kostar ekki svo
mikið að gera þetta einu sinni
og reyna það, — og ég er viss
um, að það sýnir þann árangur,
— ef samvizkusamlega og vel
er gert, — að það verði endur-
tekið.
*
Nú, þegar ég er að enda við
að hripa þetta upp (það hefir
verið í ígripum síðan um mán-
aðamót) skýra blöðin frá því, að
hefja eigi ,,hreinlætisvikur“ í
bænum. Þar með mun vera
meint eitthváð svipað og hér
var gert fyrr í ár: að tína burtu
bréfarusl og drasl, sem finnst
kann hingað og þangað um bæ-
inn í kring um hús manna. En
þó að slíkt drasl .sé ljótt og þó
að af rotnandi matarúrgangi og
öðru slíku geti stafað vond lykt
og flugnahætta, þá gerir allt
þetta bæjarbúum sama og eng-
an skaða á móts við bölvað
rykið.
Því á að gera bæinn hreinan
af því fyrst ogfremst.
Rykhatari.
Hvers vegna á KAbn
— en ekfei bér?
Frh. af 4. síðu.
svo að segja sömu dag-
ana og hann er að rembast
við að réttlæta það fyr-
ir kjósendum Sósíalistaflokks-
ins hér, að þingmenn þeirra
hafa svikið öll kosningaloforð
sín við þá og látið vinstri stjórn-
armyndun hér á íslandi stranda
á sér?
Hversvegna gátu kommúnist
ar ekki tekið þátt í stjórnar-
myndun hér norður á íslandi
úr því að þeir gátu gert það
vestur á Kúbu — og það meira
að segja án þess að nokkur „skil
yrði“ virðist hafa verið sett af
þeirra hálfu?
?Kaupum tuskur j
í hæsta verði. 4
’BúsBagnavinnnsteian >
! Baldrcsgötn 30. s
K. F. II. N.
Mafnarfirði.
Almenn samkoma, á Hvíta-
sunnukvöld kl. 8.3Ú Oand.
theol. Gunnar Sigurjónsson
talar. Allir velkomnir.
Hraðpressun
Kemisk hreinsun.
FATAPRESSUN
P. W. BIERING
Sími 5284. Traðarkotssunrí 3
(beint á móti bílaporti Jóh.
Olafssonar & Co.)
HVAÐ SEGJA HIN BLÖÐIN?
Frh. af 4. síðu.
gengið að óskum, myndi hann hafa
getað glapið enn fleiri en áður með
yfirlýsingunum um fylgi sósíalista
við róttæka vinstristjórn. Hann
hefði fengið enn fleiri en áður til
að trúa því, að vinstri stjórnin
hefði strandað á neikvæðri and-
stöðu Framsóknarflokksins og A1
þýðuflokksins.
En Framsóknarflokkurinn og
Alþýðuflokurinn léku ekki eins
á móti Brynjólfi og hann hafði ætl
azt til. í stað ákveðinnar neitun-
ar, sem hann hafði gert sér vonir
um að geta auglýst landsfólkinu,
var hann dreginn að samninga-
borðinu og látinn sýna svart á
hvítu, hversu einlæglega hann
meinti yfirlýsingar sínar. Þessi
prófun á Brynjólfi hefir sýnt, að
iróttæk umbótastjórn strandar á
honum og kommúnistaklíkunni,
sem hefir náð völdum í Sósíalista-
flokknum.
Vonir Brynjólfs um að geta glap
ið enn fleiri en áður með hinum
glæsilegu yfirlýsingum, eru ekki
aðeins foltnar út í veður og vind.
Þeir, sem hann var áður búinn að
ginna með þessum yfirlýsingum,
eru líka að fá sýn á prettum Brynj
ólfs. Þess vegna er ekkert undar-
legt, þótt Brynki sé bæði reiður
og hræddur vegna þess, hversu
refskákaráætlunin hefir snúizt
í höndum hans“.
Já, margt fer öðruvísi en ætl
að er.
CLAPPER UM STRÍÐIÐ
Frh. af 3. síðu.
Ég get ekki ímyndað mér að
brezka eða ameríska stjórnin
muni hlusta á neinar grátbeiðn-
ir um miskunn í lofárásum á
Þýzkaland eða Ítalíu. Stjórnin
sýnir enga tilhneiingu til þess
að víkja frá núverandi ákvörð-
un sinni. Vald Ameríkumanna
í loftinu eykst jafn og þétt.
Hinir tveir loftherir fylgja
reglunni um loftárásir allan
sólahringinn þetta auk hernað-
araðgerða á sjó og landi, mun
halda áfram þar til vald möndul
veldanna hefur algerlega Verið
brotið á bak aftur.
Við heyrðum aldrei neinar at
hugasemdir frá möndulveldun-
um um loftárásirnar á samein-
uðu þjóðirnar, þegar þau höfðu
yfirhöndina.
Svefnpokar,
Bakpokar,
Ferðatöskur,
Innkaupatöskur.