Alþýðublaðið - 09.07.1943, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 09.07.1943, Blaðsíða 6
G *tLPYÐUBLA©l«3 Föstudagur 9. júK 1943 Einhversstaðar á íslandi. all- Hún var tekin af ljósmyndurum hersins, en send til blaða af Associated Press. 3ehn Steegmaa, sem stóð fyrir brezkw mynda- eýningunni hér og á Akureyri, er á förum Jiéðan. Lét hann mjég vel yfir dvöl skini hér og bað blaðamenn að skila kærri kyeðju einni til ailra þeirra, sem hafa greitt götu hans hér og stutt hafa starf hans. HANNES Á HORNINU Frh. af 5. síðu. hugsum um alveg eins og heimil- ið okkar. Við höfum bókstaflega gert allt, sem í okkar valdi stend- ur, til þess að verja trén og blóm- in. Við höfum talað við ungling- ana um blómin og um trén, sagt ' þeim í góðu, hvað þetta yrði fal- legt, þegar það væri komið í skrúða sinn og beðið þá að hjálpa okkur til þess að svo mætti verða.“ „EN ÞVÍ MIÐUR: Ekkert hefir dugað. Garðurinn héfir ver- ið eyðilagður á hverju sumri, stundum að því er virðist viljandi og stundum óviljandi. Þú hefir oft brýnt fyrir fólki að ganga vél um garðana og þakka ég þér fyrir það, en ég þakka þér ekki fyrir pistilinn þinn í gæ^, því að óvilj- andi er hann uppörvun fyrir skemmdarvargana.“ „ÉG ÁFELLIST EKKI húsa- meistara ríkisins fyrir varnir hans. Eg þakka honum beinlínis fyrir þær. Við höfum gert slíkt hið sama — og ég vona, að fólk yfirleitt, sem ekki getur varið garða sína með öðru móti, noti þær varnir, sem duga. Þá má svo fara, að fólk fái í friði að prýða og fegra kringum hús sín.“ ÉG MÓTMÆLI ÞVf ALVEG að ég sé að hvetja til skemmdar- verka í görðum. Það er ekkert, sem er mér eins fjarri skapi ög einmitt þess vegna tek ég við þess- ari ofa,nígjöf. Glerbrotin gegn skemmdarvörgunum fyrst annað dugar ekki! Þriðja snmarsóknin. Frh. af 4. síðu. Því má hins vegar, í sambandi við þær, ekki gleyma, að fyrir- ætlanir og framkvæmd þeirra eru sitt hvað. Það veit þýzka herstjórnin þegar af eigin reynslu austur á hinum enda- lausu víðáttum Rússlands. $ Þessi mynd, sem er, eins og ykkur mun renna grun í, héðaa af Islandi, hefir birzt í ? mörgum blöðum vestan hafs. L SJðlIstæðismðlið. Frn. af 4- síðu. bandsslita og stofnun lýðveldis- ins, fyrr en búið væri að hafa fullt samráð flokkanna á alþingi og athuga allar aðstæður vand- lega. En þessi varð því miður ekki raunin á. Kommúnistar höfðu, eins og áður er sagt, viljað samþykkja lýðveldisstjórnarskrána á al- þingi í vor og krafizt þess, að sambandinu yrði formlega slit- ið sem allra fyrst. Og um miðjan maí s. 1., eftir að ákveðið var að fresta fundum alþingis til 1. sept', sá formaður Sjálfstæðis- flokksins ástæðu til þess, að lýsa yfir opinberlega, að hann vildi tilkynna það öllum heim- inum, að íslendingar ætluðu að stofna lýðveldi og slíta „öll tengslin“ við Dani ekki síðar en 17. júní 1944. Engar viðræður höfðu orðið um þetta áður á milli flokkanna. En með þessu var asninn leiddur inn í herbúð- ir skilnaðarmálsins. Ffokkarnir höfðu yfirleitt ekki áður gert neinar samþykktir um ákveðinn, gildistökudag lýðveldisstj órnar- skrárinnar. Var því ekki nema eðlilegt, að brátt heyrðust radd ir bæði um það, að ýms örygg- is- og hagkvæmnisatriði væru enn ekki fyllilega rannsökuð, og eins hitt, að hið „ríkjandi á- stand“ væri enn óbreytt, og þyrfti því að hafa náin samráð á milli flokka, áður en endan- leg ákvörðun um tímatak- mark væri tekin, til þess að tryggja að engin víxlspor yrðu stigin, og framkoma íslenzka rík isins í þessu máli yrði, um leið og hún væri ákveðin, á þann veg, er sæmdi siðmenntaðri þjóð í skiftum við önnur vinsamleg ríki. En óðagots- og spákaup- mennirnir í skilnaðarmálinu, lögðu þá til óskemtilegra deilna um þetta viðkvæma alþjóðar- mál, og voru þá ekki spöruð frýjunarorð, getsakir, dylgjur og rangar fullyrðingar. En að þessum ósmekklega og þjóð- hættulega áróðri verður nú vik- ið nokkuð nánar. (Niðurlag á morgun.) Ing-var Gunnarsson kennari á sæti í stjórn Hellisgerðis í Hafnarfirði. Föðurnafn hans mis- prentaðist í gær. StrandhÍSggið i Dieppe. Frh. af 5. siðu. itt var um vik til hjálpar, þeg- ar svo stóð á nema með upp- skurði á sjúkrahúsi. Hann var fölur í andliti og átti erfitt um andardrátt. Ég fór að fálma eftir lyfja- tösku minni enn á ný. Vftiur minn gaf mér gætur, en ekki sagði hann neitt. Mér tókst að ná í öskju með morfíntöflum. Hann opnaði munninn og skaut bálítið fram tungunni. Við horfðumst sífellt í augu. Ég lét töflu á tungu hans, og hann kingdi henni. Ég gat ekki annað gert honum til hjálpar. Hon- var það ljóst eins og mér. Ég hélt áfram ferð minni á- leiðis til vígisins. Það má segja, að ég hafi verið sæmilega hug- rakkur fram að þessu vegna margra ára heraga og þjálfun- ar. Ég hafði ekki svo mjög fyllzt reiði vegna sára þeirra. er ég hafði fengið. En nú, þeg- ar ég sá vin minn liggja óvígan fyrir fótum mér, fyltist ég svo blindri og heilagri reiði, að ég gáði einskis. Það eina, sem ég hafði löngun til; var að drepa. Ég vildi ná mér niðri á óvinin- um. Það var mitt hlutverk að stjórna hernaðaraðgerðum flokks míns. Þess vegna varð ég að hafa hemil á þessu æði mínu. Enda fór svo, að það hafði örfandi áhrif á mig og skerpti hugsunina. Jafnframt verkaði reiðin á mig eins og deyfandi lyf. Þeg- ar við komum upp á hæðina, þar sem virkið stóð, varð ég fyrir þriðja skotinu, sem fór alveg í gegnum hægra úlnlið- inn á mér. Það var naumast að ég fann til þess. En ég skal á- ’byrgjast, að skto, sem fer í gegnum úlnlið manna, úr víðu byssuhlaupi, eins og hér var um að ræða, er nægilegt til þess að líði yfir hann undir venjulegum kringumstæðum — þegar hann er ekki í geðshrær- ingu. Heiftaræði mitt gerði mér kleift að komast áfram til virk- ióins. Ég sá að menn imínir höfðu hreinsað vel til í því með handsprengjum og eldsprengj- um. Þaðan gat ég fylgzt vel ;með þvf, spm fr'a mfór, og stjórnað hinum ýmsu hópum liðs míns í gegnum litla talstöð. Fangar frá Túnis. Raðir af ítölum og Þjóðverjum, hundruð og þúsundir þeirra, gengu á hönd bandamönnum, þegar herirnir í Tunis gáfusl upp. Nú er verið að senda þessa fanga til Ameríku og Eng- lands, þar sem þeir verða látnir vinna landbúnaðarstörf. Innan klukkustundar var svo að segja öll „ströndin á valdi okkar. En fjöldamargar leyni- skyttur áttu sér fylgsni allt í kring. Einni þeirra tclkst að koma á mig skoti, þegar ég reyndi að tylla mér hærra í víginu til þess að sjá betur út yfir landið. í þetta skipti kom kúlan í lærið á mér. Mér fannst ég fá á^.iig þungt högg eins og við fyrsta skotið, en einhvern veginn tókst mér að standa á fótunum. Menn okkar og skriðdrekar fóru nú að streyma inn í borg- ina. Ég vildi óður og uppvægur komast þangað líka. En þróttur minn var á förum. Ég var orð- inn óstyrkur. Þegar fimmta kúlan hæfði mig rétt fyrir ofan öklann á hægra fæti, varð mér fótaskort- ur, svo að ég féll við. Sú kúla útkljáði um örlög mín. Ég reyndi að standa á fætur, en gat það ekki. Ég var allur heit- ur og rakur hægramegin á lík- amanum. Þá fór ég að finna til sárs- auka. Ég baðst fyrir, æ fjálgara og fjálgara. Svo leið yfir mig. Seinna frétti ég að nokkrir manna minna hefðu borið mig til sjávar og út á skip. Þegar ég raknaði við, voru þýzkar flug- vélar að skjóta á skip okkar úr vélbyssum. Loftvarnabyssur skipsins þrumuðu án afláts tíu fet frá höfði mínu. Ég lixaðist um og sá, að ég lá á dýnamit- kössum. Ég vissi, að ég mundi þeytast í mörgum pörtum út í geiminn, ef kúla hæfði ein- hvern kassann. En ég kærði mig kollóttan um það þá. Ég hugs- aði með mér: ,.Fari það allt í kolað! Ef ég verð ekki drepinn núna, þá verð ég aldrei drep- inn!“ Slíkt skeytingarleysi um líf og dauða er fjórði megin- þátturinn í þeim eiginleika, sem kallast hugrekki. Ég lá þarna grafkyrr og horfði á Spitfireflugvélar okkar hrekja á brott þýzku flugvél- arnar. Mér var innanbrjósts eins og ég væri að horfa á kvik- mynd. Eftir stundarkorn vor- um við lausir við alla áreitni óvinanna. Þá vék sér að mér sjóliði og gaf mér vænan sopa af rommi úr tinbolla. Nokkrum mínútum seinna kom hann aft- ur hlaupandi til mín. „Afsakið þér,“ sagði- hann. „Þér hafið þó ekki fengið skot í kviðinn?" Ég hristi höfuðið. Honum létti bersýnilega mikið við það. „Það var gott,“ sagði hann „því að ef svo hefði verið, hefði ég ekki átt að gefa yður rommið.“ Þetta fannst mér eitthvað skemmtilegasta atvik, sem fyrir mig hafði borið. Ég fór að híæja og hefði líklega ekki hætt því fyrst 'um sinii, ef verkúrinn hægra megin í líkamanum hefði ekki alveg ætlað að gera útaf við mig. Ég vissi, að ég var úr allri hættu, og mér fannst það fjári skemmtileg tilhugsun.“ inp á snnnndaginn IÞRÓTTAMÓT Borgfirðinga verður háð á sunnudagina kemur við Þjóðólfsholt hjá Ferjukoti. Þátttakendur verða 45 frá ungmennafélögum Borgfirð- inga og verður keppt í fjölda mörgum íþróttagreinum. Þá mun flokkur hnefaleikamanna úr Glímufélaginu Ármanni sýna hnefaleika. Reykvíkingar, sem vildu sækja þetta íþróttamót, geta komizt með Laxfossi, sem fer héðan klukkan 7 nm morgwn- inn. x

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.