Alþýðublaðið - 20.07.1943, Page 2

Alþýðublaðið - 20.07.1943, Page 2
j 2 Norðurför Ármanns. Úrvalsflokkar Ármanns í norðurförinni. Myndin var tekin í lysti- garðinum á Akureyri. Á myndinni sjást í öftustu röð frá vinstri: Ingibjörg Árnadóttir, Katrín Ármann, Soffía Stefánsdóttir, Sigríður Bjarnadóttir, Ragnhildur Elíasdóttir, Þórunn Björnsdóttir, Sigriður Valgeirsdóttir, Gerður Sigfúsdóttir, Ingunn Kristinsdóttir, Vilfríður Guðnadóttir, Herdís Símonardóttir, Guðrún Guðmundsdóttir. Önnur röð frá vinstri: Stefán Kristjánsson, Borgþór Jónsson, Ingvar Ólafs- son, Hörður Kristófersson, Sigurður G. Norðdahl, Óskar Halldórsson, Guðmundur Samúelsson, Hjörleifur Baldvinsson, Jóhann Eyjólfsson. Eremsta röð: Guðrún Nielsen, Inga Guðmundsdóttir, Þóra Stefáns- dóttir, Jón Þorsteinsson, kennari flokksins, Rós Pétursdóttir, Sigríður Bjarnadóttir, Unnur Jónasdóttir, Bryndís Guðmundsdóttir. Aineœningar konir n ” leikafðrsInniniNorðar Héldu níu sýningar á níu síöðum. Norðurfarar ár- MANNS, fyrsti flokkur karla og kvenna í fimleikum, komu heim í fyrrakvöld úr sýningarför sinni um Norð- urland, eftir hálfsmánaðar útivist og níu sýningar á níu stöðum víðsvegar um Norð- urland. Lögðu Ármenningarnir af stað héðan 3. júlí og var haldið til Hvammstanga og sýnt þar um kvöldið klukkan '11. Fór sýningin fram bæði úti og inni. Um nóttina var haldið áfram til Blöndóss og sýnt þar næsta dag kl. 1,30. Þaðan var haldið áfram og sýnt um kvöldið klukkan 6 á vorhátíð Skagfirð- inga í Varmahlíð. Um nóttina var gist á Sauðárkróki. Morguninn eftir var haldið ■ 1 ■ « Dátífakeodur hanðknatí- leSksmótsins i tooöum 00 skemiutlferöuei. \NDKNATTLEIKSMÓT ÍSLANDS stendur enn yfir. Síðastliðig föstudagskvöld bauð stjóm f. S. í. öllum þátt- takendum og fararstjórum í kaffisamsæti í Oddfellow. Á laugardag buðu Ármenn- ingar þátttakendum mótsins til Hafnarfjarðar, og var Hellis- gerði skoðað og nýju sundlaug- arnar, en í fyrradag bauð bæj- arstjórn Reykjavíkur flokkun- nm frá ísafirði og Akureyri til Þingvalla. í fyrradag kepptu K. A. og í. R. og unnu hinir fyrnefndu með 7:3. til Akureyrar og sýnt þar í sam- komuhúsinu um kvöldið. Dag- inn eftir bauð íþróttaráð Ak- ureyrar flokkinum til kaffi- drykkju í lystigarði Akureyrar. en klukkan 6 um kvöldið var haldið til Dalvíkur og sýnt þar, kl. 9 um kvöldið. Að því loknu var setin þar veizla í boði íþróttanefndar Eyjafjarðar og U. M. F. Svarfdæla. Frá Dal- vík var haldið aftur til Akur- eyrar og gist þar, en morguninn eftir var farið til Siglufjarðar og sýnt þar kl. 7 um kvöldið. Að lokinni sýningu var farið til Ólafsfjarðar og sýnt þar kl. hálf eitt um nóttina. Þar var setið bcð íþróttafélagsins Sameining að lokinni sýningu og því næst haldið til Akureyrar og komið þangað kl. 6 um morguninn. Daginn þar á eftir var haldið til Mývatns og gist á Laugum um nóttina. Næsta dag var haldið til Húsavíkur, sýnt þar um kvöldið og gist þar um nóttina. Næsta dag var farið í Ásbyrgi og að Dettifossi, en að Laugum um kvöldið og sýnt þar daginn eftir, og var það síðasta sýningin. Dvöldu því næst flokkarnir í viku á Laug- um og hvíldu sig og skoðuðu nágrennið. Var beim allsstaðar tekið tveim höndum. Um mót- tökurnar á Akureyri sá íþrótta- féléagið Þór, á Húsavík íþrótta- félagið Völsungar, en á Siglu- firði Ketill Ólafsson, íormaður skíðafélagsins Skjaldborg. Var allsstaðar húsfyllir á sýn ingum og varð fólk sumsstaðar frá að hverfa. Jón Þors'teinsson íþróttakennari stjórnaði sýning unum, en fararstjóri var Sig- urður G. NorðdahÍ. Telja Ármenningar að íþrótta árangur hafi orðið mjög mikill af förinni og láta hið bezta af henni. ALÞYÐUBLAÐIÐ .* "1 ......................... Alvarlegt biíreiðarslys á Snðurlandsbrant i fyrrinótt Stúika lærbrotnar og meiðíst á höfði, sraður fótbrotnar og fleiri skrámast. ALVARLEGT BIFREIÐARSLYS varð í fyrrinótt, er ís- lenzk fólksbifreið og ameríksk herbifreið rákust á hér innan við bæinn. í íslenzku bifreiðinni voru tvær stúlkur og tveir karlmenn og meiddust þau öll, en alvarlegast þó önnur stúlkan, sem var ekki partinn í gær. Slysið varð laust fyrir klukkan eitt í fyrrinótt, á Suð- urlandsbraut, rétt fyrir innan Múla. fslenzka bifreiðin, R. 2688, eigandi Einar Nikulásson, var á leið til bæjarins og var að koma frá Stóra-Hrauni í Hnáppadalssýslu. I bifreiðinni voru tvær dæt- ur Þórarins bónda á Stóra- Hrauni, Kristín og Lára, auk þess eigandi bifreiðarinnar, Einar Nikulásson, og ungur maður, frændi systranna, Árni Pálsson að nafni. Kristín ók bifreiðinni. , íslenzka bifreiðin ók á réttri vegarbrún. Ameríska herbif- reiðin, sem kom á móti þeirri íslenzku, ók einnig á réttri veg- arbrún, en beygð skyndilega yfir á vegarbrún íslenzku bif- reiðarinnar og ætlaði þar út á afleggjara, sem lá inn í herbúð- ir, sem þar eru, en í sama bili varð áreksturinn. Islenzka bifreiðin klesstist saman og er talin ónýt, en fór ekki um koll og ekki út af veg- inum. Lára Þórarinsdóttir, sem hlaut alvarlegnstu meiðslin, lærbrotnaði og meiddist mikið á höfði. Hafði hún ekki fengið meðvitund seinni partinn í gær. Einar Nikulásson fótbrotnaði, en Kristín og Árni skrámuðust og.var Árni minnst meiddur. Sjúkrabifreið frá hernum kom þegar í stað á vettvang og flutti hið slasaða fólk á herspít- ala, en Árni fékk strax að fara heim. komin til meðvitundar seinni Nýlt gistihús á Stokkseyri. Bætt úr hrýisni pörf ferða- maona ftar eystra. ÝTT GISTIHÚS tekur ■ ■ ^ um þetta leyti til starfa á Stokkseyri og er þar með bætt úr brýnni nauðsyn þar eystra, því að ferðamanna- straumur til Vestmannaeyja er þar allmikill, en ferðafólk befur ekkert afdrep getað fengið í þorpjrnu ,þegar það hefur orðið að bíða. „Hótel Stokkseyri“, svo'heit- ir hið nýja gistihús, er í nýrri, snoturri hyggingu, sem hluta- félag mfið sama nafni hefur látið reisa fyrir það. Alþýðublaðið hefur haft tal af Pétri Daníelssyni, sem er einn af stjórnarmeðlimum hins nýja félags. ,,Feroir eru nú orðnar alltíð- ar um Stokkseyri“ sagði Pétur; „sérstaklega til Vestmannaeyja og oft hefur það komið fyrir, að ferðamenn verða að bíða nokkurn tíma í þorpinu. Stokks eyringar hafa oft ekki getað sinnt þessum gestum vegna anna og rúmleysis og haft leið- (Frh. á 7. síðu.) Las fréttirnar meðan sprengja var að springa í húsinu í loftárás haustið 1940! This is london CALLING. Here is the news and this is Bruce Bel- frage reading it. Við þessi orð kannast hinir fjölmörgu hlustendur brezka útvarpsins hér á landi vel, því að undanfarin þrjú ár hafa þeir heyrt þau hvað eftir annað, sögð af karlmann legri röddu, sem síðan hélt áfram og las fréttir víðsveg- ar að úr heiminum. Bruce Belfrage, einn hezti þulur brezka útvarpsins, er nú staddur hér á landi. Hann er myndarlegur á velli, ekki ósvip- aður því, sem menn mundu í- myndu sér eftir röddinni, nú klæddur hinum dökkhláa ein- kennisbúningi flotans og með tvær gylltar rendur á ermunum — merki sjóliðsforingjans. Belfrage er í raun og veru leikari og vann frá 1936 við það að ráða leikara í ýmis leikrit, sem brezka útvarpið ákvað að flytja. Það var ekki fyrr en 1940, að hann var gerður þulur, en það er hjá brezka útvarpinu hið ábyrgðarmesta starf. Tíðindamaður blaðsips hitti Belfrage að máli á sunnudag, er hann var staddur hjá brezka útvarpinu frá stöðinni hér, og spurði hann um störf útvarps- ins almennt. ,,Það er að mörgu leyti erfitt að vera útvarpsþulur, t. d. við fréttalestur .Hversu miklar eða spennandi ,sem fréttirnar eru, verður þulurinn að lesa þær rólega og blátt áfram, án þess að láta tilfinningar sínar fara með röddina í gönur. Þetta er oft erfitt að varast, ekki síður, þgar lesturinn verður engu að síður að vera lifandi. j Þulurinn verður oftast að (Frh. á 7. síðu.) • Þriðjudagur 20. júlí 1943. Níi menn dæmdir fyrir að aka bíi nad ir áhrifnm áíeneis. _____ Tíu daga fangelsi hver og sviftir ökuleyfi i 3 mánuði C ÍÐASTLIÐNA tíu daga hafa níu menn verið dæmdir í lögreglurétti Reykjavíkur fyrir að aka bifreiðum undir áhrifum á- fengis. i; Hlaut hver um sig tíu daga varðhald og voru þeir enn fremur sviftir ökuleyfi í þrjá mánuði. Var þetta fyrsta brot hjá þeim öllum og hlauzt ekkert tjón af akstrinum. Brotin hafa verið framin nýlega, og er svo að sjá sem það sé að fara í vöxt, að menn aki bifreið undir á- hrifum áfengis. Meðal hinna dómfelldu voru atvinnubíl- stjórar. D. M. F. Mpetainpr gefinq glímnbikar. Til minningar um Geirfinn Porláksson frá Skútusiöðumo VIÐ miðdegisverð þann, er Í.R.A. bauð Framörum til S Reykjahlíð s.l. þriðjudag og sagt hefir verið frá hér í blaðinu, kvaddi Guðmundur Sigurjónsson fyrv. Olympiufari sér hljóðs og afhenti formanni ungmennafélags- ins „Mývetningur“, Árna Jónas- syni að Grænavatni, veglégan far- andbikar, sem keppa á um þar í sveitinni í íslenzkri glímu næstu 25 ár. Er bikarinn silfurbikar á tré- fæti og eru á fótstallinum 25 reitir með silfurplötu hver, þar sem grafa skal nafn glímukon- ungs Mývatnssveitar á hverju ári. Að 25 árum liðnum verður bikarinn eign þess manns, sena oftast hefir unnið hann á þess- um árum. í snjallri ræðu, er Guðmundur flutti við þetta' tækifæri, lét hann þá ósk í ljós að bikarinn bæri nafn Geir- finns Þorlákssonar, glímu- kappa Mývetninga, sem lézt af slysförum fyrir skömmu, og yrði nefndur Geirfinnsbikar- inn, en skipulagsskrá fyrir bik- arinn var ekki hægt að full- géra fyrr en gengið væri frá þessu atriði. Nú er það tryggt að bikarinn hlýtur þetta nafn og einnig það, að formaður Í.S.Í. staðfestir skipulagsskrána á næstunni. Er hér um veglega gjöf að ræða og mun hún verð til þess að efla og viðhalda glímuí- þróttinni í fæðingarsveit Guð- mundar, sem hann ann mikið eins og glímuíþróttinni sjálfri, en Guðmundur er áhugasamur um viðhald og veg íslenzku glímunnar og annarra íþrótta, og var á yngri árum með beztu glímumönnum landsins.. Mý- vatnssveit hefir líka langa tíð mátt heita vagga íslenzku glím unnar. Kemur því hin veglega gjöf Guðmundar niður á verð- ugum stað. Lítlð rafmagn um hádegið. RAFMAGNIÐ hefir dofnaff mjög undanfai-na daga um hádegisbilið. Skeði það fyrst á laugardaginn, svo á sunnudaginn og loks í gær. (Frh. á 7. síðu.)

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.