Alþýðublaðið - 28.07.1943, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 28.07.1943, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 28. júlí 1943. ALÞY&U&ft&ÐBÐ 5 RAUNVERULEGA hafSi ég aldrei ferðast fyrr. Ég hafði að vísu ferðast til ítölsku vatnanna, Palestinu og Suður- Ameríku, en samt get ég ekki sagt, að ég hafi ferðast. Því að það eru ekki fjarlægð- irnar, sem um er að ræða. Ég hýst við, að hægt sé að ferðast til Englands og jafnvel til Kína* og heim aftur, án þess hægt sé að kalla það ferðalag. Ef ég ætti að lýsa þessu ferða- lagi nákvæmlega, myndi það fylla stóra bók, en örlíti'll þátt- ur ferðalagsins, þriggja daga ferð milli Saloniki og Skoplje, vona ég að geti sýnt, hvað ég á við. Engir æsilegir atburðir gerðust, við sáum enga stiga- menn, rákumst hvergi á hinn skuggalega félagsskap I. M. R. D., urðum ekki vör við neitt fréttnæmt, en ei að síður ferð- uðumst við í raunverulegri merkingu þess orðs. Tollverðirnir voru syfjanda- legir fitukeppir, og þó að þeir vjirtust vera með slírurnar í augunum, kröfðust þeir þess að fá að hnýsast í hvert hólf í ferðatöskunum okkar, og hólf- in voru mörg og töskurnar þung ar. Ekki datt þeim í hug að hjálpa okkur ti lað lyfta þeim upp á borðið í tollstöðinni. Einn þeirra benti á tyrkneska sæl- gætisöskju í töskunni minni og sagði: — Qu’est ce que c’est ca? (iHvað er þetla þarna?)“ — Des bonbons (sælgæti), svaraði ég. — Des bombes? (sprengjur) spurði hann í sínum venjulega tón, eins og maður, sem vill fá upplýsingar um eitthvert mál, án þess að láta það að öðru leyti til sín taka. Við svipuðumst um á stöð- inni, því að rússneskur kunn- ingi okkar hafði ætlað að sjá svo um, að prestur grísku kirkj- unnar á staðnum tæki á móti okkur, og við vorum full eftir- væntingar. Eg vildi, að ég gæti lýst séra Konstantín nákvæmlega. Hann var auðvitað í svartri síð- hqmpu með svartan stromp- hatt ,eins og háttur er grískra presta .Síður hárlubbbinn var ógreiddur, andlitið var magurt og bar vott um meinlætislifnað, nefið hátt og bogið, blá og skýr- leg augu og fallegt, brúnt skegg. Hann var barnslegur að sumu leyti, en þó ekki barna- legur. Hann hafði mikinn áhuga á því, sem gerðist á líðandi stund, hinn hreinskilningslega og ódulda áhuga, sem er eitt skemmtilegasta einkenni sak- leysisára æskunnar, og hvernig sem á því stendur verður þessa einkennis ekki vart eftir að fólk er komið á fullorðis ár, nema hjá mun'kum og nunnum. Vjð fórum út úr borginni, til þess að skoða gröft hinnar fornu rómversku borgar Her- akleum. í skærum bjarma kvöldljós- anna gengum við aftur heim til gistihússins. Frá þeirri stundu man ég gleggst eftir föður Konstantin. Lítill og óhreinn krakkaangi, sem var að flýta sér, rakst á hahn og hraut um koll. Hann laut niður, tautaði fáein huggunar- og gamanyrði við barnið og reisti það á fætur aftur. Þetta var mjög venjuleg- ur atburður, og flestir myndu vafalaust hafa hegðað sér ,á líkan hátt ,en allt um það get ég ekki gleymt blíðu hans og inni- leik við barnið. Þegar Marethlínan var tekin. S S S i ) S S s s S s s s S s s $ s s s s s s S s s S Margir brezku hermannanna, sem nú eiga í hörðum bardögum Jhjá Cataniu á Sikiley, ^ hafa áður staðið í eldhríðinni og borið sigur af hólmi, svo sem við E1 Alamein í Egyptalandi \ °g Marethlínuna í Tunis. Mypidin er tekin af áhlaupi brezkra hermanna í 8. hernuin á S Marethlínuna. s i u 'rri FTIRFARAND1 GREIN, sem er kafli úr bókinni ,.The First Time I . . . . “ eftir Betty Askwith ,er þýdd hér úr English Digest og fjallar um ferðalag höíundarins um; Balkan. Höfundur greinar- innar hefir ferðast víða um Evrópu og Suður-Ameríku. Nýja kirkjan í Sveti Naom er eins konar sambland af kap- ellu og klukkulurni og hefir byggingin tekizt hörmulega. Að utan er byggingim Ijót, en að innan ’hræðiíeg. Hún er skreytt veggmyndum í ýktri stæfð. Eina skemmtilega myndin var af Ijóni. Það var að lesa í bók, og var sýnilega steinhissa á því sem það var að lesa. Augun voru kringlótt og augnabrún- irnar spertar upp í hársrætur af undrun og skelfingu. Forsjónin foraði okkur frá því að þurfa að láta í ljós álit okkar á kirkjunni, því að geit var stöðugt að flækjast fyrir okkur. Þetta var hvít ’geit, sem klaustrinu hafði verið gefin um morguninn, og hún var ekki sérlega - mannfælin. Þetta var allra vingjarnlegasta geit og svo félagslynd, að hvar sem hún sá tvo eða þrjá menn sam- an, var hún komin í félags- skapinn. Ekki var hún heldur móðg- unargjörn. Tvisvar var hún rekin út úr kapellunni, en hún setti það ekki fyrir sig og kóm jafnharðan inn aftur. Þá tók ein hver rögg á_ sig, rak hana út og lokaði hurðinni. Fvrst heyrðist sparkað og stangað í hurðina, en svo varð steinhljóð. Eftir andartak birtipt hvítt geitar- skegg í skrúðhúsdyrunum, geit- in kom inn og sást vel fyrir. Svo hljóp hún til okkar og fór að naga leðurreimarnar á skón- um mínum. Eg voná, að henni haíi fund- izt þær eins góðar og okkur fannst sliömmu seinna. Það voru tveir fiskréttir, mjög smekklega fram bornir með hrísgrjónum og grænmeti, baunir, soðnar í j smjöri, rauðvín, kaffi og jugó- jj slavnesk vínblanda, sem ekkert s anísbragð var af, líkt og er af tyrknesku vínblöndunni. Séra Konistantín hafði sagt okkur, að í Qhrid væru þrjár kirkjur, sem við skyldum skoða. Sveti Sofia er stærst þessara kirkna, en er farin að þarfnast viðgerðar. Henni er lokað og ekki messað í henni. Hópur lítilla drengja var að leik sín- um fyrir framan kirkjuna. Einn snáðinn hafði svert andlit sitt og barði burnbu, sem reyndar var ’ekki annað en pjáturdós. Þannig kynntumst við tilvon- andi einræðisherra Jugoslava. Hann hafði ekki gert andlit sitt nægilega svart, að því er honum fannst, því að hann gerði bragarbót. Ekki vissi ég hvað Ihann hét, ";iié hverra manna hann var. Þetta var ofurvenju- legur snáði, fremur fráhrind- andi með klunnalega fætur í baðmullarsokkum, sem einu sinni höfðu verið hvítir. Iiann hefir getað verið urn ellefu ára, en ei að síður sýnilegt herfor- ingjaefni. Hann var fljótur að átta sig á umhverfi sínu og ná valdi á því — og sendi smá- hnokka af stað, umsvifalaust, að sækja kirkjulvkilinn og ráð- lagði honum að hafa hraðann á. Því næst hlevpti hann okkur inn, en hélt flestum félögum sínum utan dyra ,sem var þó ekki auðvelt verk. Hann fylgdi okkur um hálfrökkvaða kirkj- una, því að hlerar voru fyrir öllum gluggum, og skýrði fyrir okkur það, sem okkur langaði til að vita — að ég hygg rétt. ,Þegar við komum út, rak hann burtu æpandi strákahóp- inn, sem safnaðist um'hverfis okkur. En. þqgar hann hafði fengið aurana fyrir ómakið, svip aðist hann um eftir snáðanum, sem hafði hlaupið eftir kirkju- lyklinum. Snarræði hans, stjórnsemi og skipulagsgáfa, sem hann sýndi í viðskiptum v[i;ð féíaga sín,i.,; sem margir hverjir voru stærri en hann og eldri, var undraverð. Gostivar var einn þeirra staða, sem vekja athygli ferða- manna. Veðrið var grámyglu- legt og himinn skýjaður. Við hádegisverðurinn Útsðlumenn blaðsihs úti um land, eru beðnir að gera sem fyrst skil fyrir 2. ársfjörðung Alpýðublaðið. fórum ekki út úr vagninum. Hann stóð á miðju aurbornu ólögulegu torgi, sem skólplæk- ur rann eftir. T'veir ungir menn rneð albanskar húfur, fremur vasklegir og laglegir, sátu á gángstéttinni og drukku úr flösku. Hermaður kom eftir tqrginu, nam staðar hjá skó- burstara og lét bursta skóna sína ,sem voru orðnir mjög ó- hreinir. Þegar skóburstarinn brá sér burtu til þess að fá skipt peningum, kom ungur maður skyndilega á vettvang með vefjahött á höfði og burst- aði' skóna sína með tækjum. skóburstaraans. Fáeinir drengsnáðar voru að leika sér í göturæsinu. Lítill hnokki með vefjahött á höfði gekk til okkar. Hann var ber- fættur. en í nýjum og skjól- legum síðbuxum og treyju, sem sýnilega var sniðin úr uppgjafa- treyju af föður hans. Hann hafði 'hendur í vösum og bar sig eins og heimsmaður. Hann var þótta legur á svip og ávarpaði engan. Telja má það nokkrar upplýs- ingar um landið, þegar ný föt, sniðin úr gömlu efni, valda . siíkum þótta ,þótt hjá litlum snáða sé. Ég man vel éftir Skoplje, því að þar borðuðum við einhvern bezta miðdegisverð, sem við höfum nokkru sinni fengið. Af einhverjum misskilningi báðum við bæði um lambasteik og baunir og flesk og egg, og hvort- tveggja var svo gott, að við urðum að bórða það. Skammt frá Skoplje var lítið, fallegt klaustur. Fleira er það, sem ég man eftir frá Skoplje, svo' sem ung og þóttaleg síma- stúlka, sem lét mig, mér til mikillar gremju, skrifa langt skeyti á ný, vegna einnar ein- ustu villu, fáein bænahús, horn- skakkt og ólögulegt Tyrkja- hverfi, en miðdegisverðurinn og baðið kom okkur bezt þá stund- ina. Og þetta er einmitt unaður ferðalaganna ,sem veldur því, að maður verður miklu dómvís- ari. Miðdegisverðurinn og baðið. Maður hefir ekki áhyggjur út af morgundeginum og gerir engar áætlanir. Maður fer að hátta, eins og við gerðum þetta kvöld í Skoplje, og eins og við gerðum mörg önnur kvöld, saddur, þreyttur og ánægður, hvort sem dagurinn hefir verið góður eða slæmur. Þegar ,,boddyið“ fauk af bifreiðinni. — Verkamenn verða sjálíir að vinna að öryggismálmn sínum. — Upp- eldisfræðingur skrifar um unglingana. — Reykvíkingur heimsæbir Þjórsártún. VAÐ eftir annað hefir'verið rætt um húsin (boddy) á vöru flutníngahifreiðunum og vissar reglur gilda um þau. Vöruhifreiða stjcrar aílmargir svikust um að uppfylia skyldur sínar. í fyrradag vaf verið að flytja verkamenn í siíku húsi. Stormur var — húsið var laust á bifreiðinni og verka- meimirnir vissu ekki af fyr en hús íð og þeir iágu við veginn. Húsið fauk af birfréiðinni, að minnsta kosti annar maðurinn meiddist. ÞAB EK AEVEG óþarfi að þola slíka framkomu og þá, sem þif- reiðastjórinn sýndi. Ef verkamenn láta bjóða sér slíkt geta þeir ver- ið vissir um að þá og þegar verð- ur stórslys — og enginn veithver verður fyrir því. Þolið iþetta ekki. Hér er um að ræða sameiginlegt öryggismál ykkar. UPPELÖISFRÆÐINGUR skrif- ar: „Eitt allra ljótasta ei.ikenni þjóðarinnar er virðingarleysi fyr- ir öllu og öllum. Einkum er það á- berandi hve yngri kynslóðin hunds ar hina eldri. í kaupstöðum geng- ur dónaskapur barna og unglinga fram úr hófi. Þau mölva rúður viljandi, ’nenda endalaust snjókúl- um í fólk á vetrum og kalla upp- nefni og skammaryrði á eftir því. Jafnvel æðstu menn verða fyrir þarðinu á þessum óaldarlýð. En þegar ég hefi séð til fara þau vægi lega að höfðingjunum. Glenna sig á eftir þeim og tauta fúkyrðin lágt svo þeir verða þess ekki varir". „MÉR ÞÓl’TI vænt um greinina hjá þér, Hannes, í sambandi við skemmdirnar á A-usturvelli og frá- sögqina um sektina í sambandi við þær. Það þarf að kenna yngri kyn- slóðinni betri mannasiði. En barna eigendur þola yfirleitt ekki að börn unum sé sagt til syndanna. Þ'að er mjög heimskulegt“. „SÉRA GÚSTAF JENSEN segir í bókinni ,Kristin fræði,‘ að sú þjóð sem hafi misst virðingu fyrir öllu góðu sé búin að vera. „Trú, sið- gæði; þróttur lífið sjálft, lestar sig á braut frá slíkri þjóð,“ segir hann Það þarf að setja vissa menn í Reykjavík og öðrum mannmörg um bæjum aöeins til eftirlits með börnum og unglingum. Þetta mundi borga sig. Menningin er ekki að- eins bækur og listaverk heldur dag leg framkoma þjóðarinnar. Og góð framkoma kemur af góðum hugs' unarhætti. En góður hugsunarhátt ur af góðu uppeldi. En gott upp- eldi kostar fyrirhöfn“. „ANNARS ER FÓLK yfirleitt vanþakklátt kennurum fyrir störf þeirra. Og er slíkt vanþakklæti ekki í neinu því menningarlandi, er ég hefi komið til eða haft spurn (Frh. á 6. síðu.)

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.