Alþýðublaðið - 12.08.1943, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 12.08.1943, Blaðsíða 8
■ III II in.'iw.1 IIIJI.IM |•|^|"■ I É . i'.l1 ■'■■■■ KBTJARNARBfÓffi SætaanbnriBi (Tfa« Sea Havpk). Amerísk stómjynd. Eraoll Flyan, h ti Breisda Marshall. Sýnd kl. 4 .30 9. Bönnuð Syját börn innan Í6 ára. „VONDRA LAST EI VELDUR SMÁN“ GÓÐIR HÁLSAR! Þér, sem berið það út og suður, að ég haji keypt ölföng fyrir 2 rd. eða meir, þegar „BdíliS“ vtar haldið við Goðafoss 28. ágústm. næstl. og viljið með því sverta mig saklausan. . .En ég lýsi því hér með yfir, að þessi orðasveimur er með öllu ósannur. Ég keypti aðeins fyrir 16 sk., og megið þér spyrja herra E. Halldórsson að því — yður til trúarstyrkingar hvort ég hafi keypt meir, því að hann skrifaði hjá sér, hvað hver keypti. En gáið þér að því: að þeir, sem kasta saur á aðra, þeir ata sjálfa sig mest. Hriflu 17. okt. 1870. Þ. Jónsson. Framanrituð yfirlýsing var birt í blaðinu „Norðanfara“ á Akureyri 12. nóv. 1870. * * * * Ástin hefir augu í hnakkan- um. ísl. málsháttur. ÓÞÖRF VARÚÐ Jonni litli var reiddur yfir á ofan á reiðingi milli klyfja. Þeg- ar komið var út í ána, kallar Tómas, sem teymdi lestina, til drengsins og segir: ,,Biddu nú guð fyrir þér, drengur minn!“ ,>Nei, þess þarf ekki,“ svaraði Jonni. „Ég held mér í klakk- inn.“ * * * Að elska er að fegra; að fegra er að elska. Anatole France. ■*sr vakið hana til lífs. Hann byrj- aði hægt og röddin var auð- mjúk . — Sjálfum fellur mér mið- ur, að Barbara skuli vera svona ung. Það gerir aðstöðu mína helmingi erfiðari en annars hefði þurft að vera. Jafnvel það, hversu hún er óspillt af heiminum, eykur erfiðleikana. Þú munt segja, að það komi þér ekki við, og þú hefir nokk- uð til þíns máls. Barbara skipt- ir þig engu máli. Ég er að biðja fyrir mínu lífi, frelsi mínu og réttinum til þess að velja og hafna sjálfur. Ég grátbið um frelsi úr ánauð, sem ég var hnepptur í, þegar Barbara var lítil telpa. Ég bið þig að hugsa um þau ár, sem þú hefir búið með mér. Hvaða gleði, fullnæg- ingu eða blessun hefir það veitt þér að taka vald samfélagsins þér til hjálpar, til þess að reyna af öllum mætti og með öllum hugsanlegum ráðum að halda mér föstum í ánauð, sem ég á enga sök á sjálfur? Geturðu munað eftir nokkrum einasta hamingjusömum, jafnvel að- eins friðsælum, degi öll þessi ár sambúðar okkar. Hann starði út í myrkrið og honum virtist hann sjá, að hún hristi höfuðið ofurlítið, en aðeins örlítið og gat verið missýning. Skilurðu það ekki, Anna, að ofbeldi er tilgangslaust, gersamlega til- gangslaust? Þú heldur mér hjá þér í þessu húsi, líkama mínum geturðu haldið sem tómri skurn. Hvers virði er hann þér, ef hjarta mitt gerir uppreisn og flýr, ef sál mín dæmir og fordæmir? Hvað áttu þá? Og verði þessari gæfusnauðu á- nauð haldið áfram, verður hatr- ið og beiskjan svo mikil, að það sem einu sinni var á milli okk- ar — en hefir lengi legið and- vana við fætur okkar — fer að kvoðna niður og rotna, og við bæði, sem erum hlekkjuð við þetta þefilla mein, munum eitra umhverfi okkar, og að lokum munum við farast sjálf, kafna í þessum viðbjóði. Við skulum grafa það, við slculum skilja af frjálsum vilja og sátt! Ef til vill getur svo farið, þótt seint sé, að á eftir slíkri lausn úr ánauðinni komi gleymska og fyrirgefning alls hins gamla og illa, og upp af þeirri til- finningu spretti vottur mann- legrar gæzku. Nú var hún orðin mjög álút Þúrrlegt, harðneskjulegt kjök- ur barst að eyrum hans. Hann gekk til hennar í myrkrinu, kraup á kné við fætur henni og fórnaði höndum líkt og í bæn. — Vegna sjálfrar þín, Anna, vegna mín, í nafni miskunn- seminnar, þá leystu mig úr þessum helfjötrum. Hún þerraði tár af hvörmum sér og rödd hennar var hás og hvíslandi. — Ég skal reyna það, en ég verð að fá frest til þess að venj- ast þeirri hugsun að lifa án þín. Ég verð smám saman að safna þreki til þess að geta afborið það. Gefðu mér frest, frest!! Hann reis upp og stóð frammi fyrir henni. Hún horfði á hann skelfdum augum. —• Ætlarðu að reka mig strax á dyr? — Þú verður hér kyr, Anna, sagði hann mildum rómi. — Þetta er heimili þitt. Hún var líka staðin á fætur og horfði í augu honúm. — Hlustaðu á mig. Herbert! Ef þú, að sex mánuðum liðn- um frá þesum degi, ert sama sinnis og nú, skal ég reyna að gera það, sem þú biður mig. Já, já! Málrómur hennar var orð- inn að örvæntingarópi. Ég geri það, ég geri það, ef ég verð ekki búinn að svipta mig lífi, þegar sá frestur er útrunninn. Með kynlegum, klúrum hreyfingum komst hún til dyr- anna. Hann heyrði hana kjökra meðan hún dróst upp stigann, heyrði að dyr voru opnaðar og að þeim var lokað aftur, og loks heyrði hann Eilen fara inn til móður sinnar og síðan heyrð- ist langt hvískur og hljóðskraf. Hann var vingjarnlegur og kurteis við hana í framkomu og minnti hana aldrei á loforð hennar. Með sorgblöndnu brosi bað hún hann um peninga til þess að kaupa fáeina muni til heimilisins: gólfábreiðu, lítið borð, hitunartæki úr kopar í dagstofuna, sem vissi út að garðinum. í brosi hennar fólst bending um það, að þetta yrði síðustu munirnir, sem hún fengi hjá honum, og að þess vegna myndi henni þykja miklu vænna um þá. Hann synjaði henni ekki um neitt, sem hún bað hann um, og gekk jafnvel skrefi lengra. Vonhýr og þakk- látur spurði hann hana, hvort hún þyrfti ekki þetta eða hitt. Sköpunargáfa hans, sein lengi hafði verið lömuð, blossaði upp á ný. Hann samdi lög fyr- ir Barböru og byrjaði á upp- kasti að stórfenglegu tónverki fyrir hljómsveit. Hann og Bar- bara voru daglega saman, og þar eð þau voru bæði auð- mjiúk og af fcijarta lítillát, höfðu þau hægt um sig og voru hlédræg. Þau biðu þolinmóð og vissu, að þeirra gátu beðið erfiðleikar, þrengingar og jafn- vel hættur. En þau voru saman, og einhverntíma, þótt það drægist ef til vill um ár, myndu ■ N*M BtÓ B Iflitfri á Bnal- HðJ. Aitgels Ow Broadway). Douglas Eaixfaauks Jr. ltita Haywortfa. Böm yj»gri 12 ára. M •kfai aögang. Sýjtd kl. 5, 7 •£ 9. þau geta skapað sér heimili. Vitundin um þetta vakti þeim svo mikinn unað, að það var nærri því plága. Þau voru eitt, á líkama og sál, þrá þeirra var svalað, friður og styrkur bjó í hjörtum þeirra. Herbert fannst hann þurfa að blíðka hina öf- undsjúku guði. Hann „lánaði“ Bronson peninga, sendi Lúellu • peningagjöf og hét Önnu því, að hann skyldi líta eftir Lú- ellu, þegar hún nyti ekki lengur umsjár Önnu. Þá féll fyrsti skugginn á veg hans. Dag nokkurn þjáðist hann af höfuðverk og kom því fyrr heim en hann var vanur. ef til vill einnig knúður af ó- Fimntt*áagmn 12, «gás>t 1943.- ........ »«' iwi-RHimniiiMi .m.'Wtrmn i i n ■ .• t HiGAMLA MÉM Gleðiborgin tLas Veg«s Niglrte). Bert Vieeler. CðRstauee M«»re. Toi»my Dorstf og hljómsveit hans. Sýnd kl. 7 og 9. Kl. 3.30—6.3«; m imu.».n .11 nn.iintwa SLUNGINN NÁUNía, Scattergood PaPUs rtw Stóögs). Gny Kíbbee. Susatt PePters. notatilfinningu, sem hafði þjáS hann allan daginn vegna þess að hann hafði saknað skrif- borðslykilsins síns af lykla- hringnum. Hann hlaut að haf« gleymt honum í lásnum. Ham. komst inn í húsið, án þess nokk- ur yrði hans var og gekk þög- ull og þreyttur upp í heribergi sitt. Lákt og oft áður furðaði hann sig á því, hvaða erindí. hann raunar ætti í þetta hús. Hann hugsaði sér, að einmitt svona myndi umkomulaus mað- ur, sem hefði verið dæmdur saklaus, stara á fangelsismúr- ana, án þess að geta skilið, hvers vegna þeir hyrfu ekfei og hann stæði á sólbjörtu engi VÍEIN6ÍRINN. — Húrra! æpti Vofuræninginn glaður. — Takið nw fast á, piltar! Áfram! Áfram! Blach Ike skal ekki sleppa frá okk- ur í þetta sinn. Skollinn hafi það. Menn hans svöruðu honum með gleðihrópum. Allir, að Vofuræningjanum undanskildum, stóðu með strengd* vöðva og gengu upp og niður af mæði, og gerviskipið rantt áfram, fram að sandi flæðarmálsins. Það hristiSt og nöiraði á ójöfnunum og seglin slógust í vindinum. Ned skipstjóri hafði falið skipið sitt, Sæfákinn, og hinm hluta skipshafnarinnar í vogi í míluvegar fjarlægð hinunat megi við skógivaxna eyjuna. Með gerviskipi sínu ætlaöi Ned að gabba Ike og láta hann álíta að þetta væri í rau» og veru Sæfákurinn, sem sigldi þarna inn bugðótt lónið bak: við sandrifin. Um leið og Black Ike kæmi á Blóðsugunni inn í lónið, yrði hann staddur í slæmri klípu. — Beindu sjónaukanum að bannsettri Blóðsugunni, Bob! hrópaði Ned. — Láttu mig óðar vita, ef Ike fær grun- semdir og breytir stefnunni. Ég má ekki glata þessu ágæt*. tækifæri til þess að ná honum! —Hæ! Hæ! Ned skipStjóri! öskraði Bob. — Ike heldur áfram á eftir okkur, ekki ber á öðru! Og hann er að búa sig undir orustu. Þú handsamar hann að lökum! Gleði Vofuræningjans og manna hans átti sér engin takmörk. ONLV ONE THtNG TO OO/ X’ve GOT TO DKAW ATTENíTtON TO /WVSELP AND KTEEP THE BLOODHOUNÐS AT HO/WE ... AND PLENTV * TT EU 6V/ THAT WEANS LUSVA AND AffCHlE MADE IT/ 0UT THEV WON’T SET FAR WtTH TODT’S BU'Z'ZACDS SEARCHtNC THE . woodb/micht HAVE ý* &*_, GUESSED IT / THAT MEAN9 TWEYCE ETtLL AROUNO/ HAWE EVERV AVAtLABLE MAN SEACCH THE POST AND THE WOODS/ X WAjslT THOSE PRtSONERS ( BACK V? ÍT’S THE LAST -—1 THtNíö WE DO / AP featttrn 7 ANOTHER FtRE / rTS THOSE PRtSONERS —AöAtN / \ TODT: Eldur aftur. Þetta er verk fanganna. Þetta sýnir, aö þeir eru hér enn þá. Sendið alla jnenn, sem hægt er, til þess leita í stöðinni og skóginum. Eg vil hafa hendur i hári þess- ara fanga. ÖRN (h'ttgjwiri: Þ#tð er auð- séð, að Lusyu og Cottridge hefir tekifct þao. En þau kom- ast ekki langt, ef hermenn Todt* Jeíta í skóginum. Þáð eina sem ég get gert, er að beina at- hyglinni að mér og snúa þebaa til bafea og láta þá hafa nóg '0> *«*a.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.