Alþýðublaðið Sunnudagsblað

Útgáva
Main publication:

Alþýðublaðið Sunnudagsblað - 20.10.1935, Síða 5

Alþýðublaðið Sunnudagsblað - 20.10.1935, Síða 5
ALÞYÐUBLAÐIÐ 5 Ur að fylgja mér á járnbra'utar- stöðina. Hann talaði mikið um sjálfan sig og hann var mjög beizlkur í skapi og hefnigjarn. Kvöld nokkurt gengum við gegnum sikemtigarð. „Sko til,“ sagði hann. „Á þess- um stað var ég nærri því orðinn morðingi!“ „Morðingi!“ „Já, ég lifði í mikilli eymd. Fé- lagi minn, sem var vanur að hjálpa mér, hafði neyðst til að fara frá Lausannc fyrir nokkrum vikum. Annar félagi minn, sem bjálpaði mér stöku sinnum, var atvinnulaus. Ég fór til þriðja fé- laga míns, til þess að biðja um bjálp. Hann var nýgenginn út, Þegar ég fcom. Ég örvænti. Ég hljóp heimleiðis, blótandi, veikur af hungri og skjálfandi. Alt í feinju sá ég tvær rosknar konur. Ég veitti því eftirtiekt, að þær voru enskar. önnur þeirra oþnaði tösku °g tók upp mat: brauð, egg og ost. Ég réðist á konuna og tók uf henni brauðið. Ef hún befði veitt minstu mótspyrnu, hefði ég drepið hana.“ Mussolini þagnaði. Hann fór að hlægja á sérkennilegan hátt; allur Kkaminn skalf. „Heldurðu ekki að það hefði verið betra, að ég hefði drepið hana? Hvenær kemur tími hefnd- minnar? Öll þessi snfkjudýr verða að hverfa.“ Eftir eina af beimsóknum mín- um til Mussolini fór ég til Genf, dl þess að finna ritara jafnaðar- mannafélagsins þar. Pietro Losio var ósviikinn italskur sosialisti — ákveðinn, gjafmildur og hug- sjónamaður. Hann var skósmiður °S hver sem vildi, gat fengið við- gerð á skónum sfnum hjá honum, an þess minst væri á borgun. „Hallo, Angelica,“ hrópaði kann. „Hvað kemur til ? — Lui- sia!“ Það var konan hans. „Komdu hingað Ög strjúktu rykið af stólnum. Komdu svo með eitt- hvað að borða og drékKa.“ „Hafðu ékki mikið fyrir mér, félagi. Ég ætla aðeins að dvelja Þjá þér fáeinar minútur." „Fáeinar mínútur? Kenrurðu hingað til Genf aðeins til að ^velja í nokkrar mínútur?“ „Ég kem frá Lausanne, þar sem ég hefi verið að hjálpa flótta- manninum Mussolini við vinnu sin.“ „Er Mussolini farinn að vimna? ^0,ta verð ég að segja konunni JT11nni. Ég er viss um að hún trúir Því ekki.“ Losio lýsti því fyrir mér, hvern- 1§' Mussolini dag nokkurn befði k'°mið heim til sín. Þetta var á ^nánudag, helgidag ítalskra skó- ara, og Losio var að sjóða risotto handa börnunum. Pilturinn, sem stóð við dyrnar, var svo svangur, að skóarinn gaf honum að borða ásamt fjölskyldunni. „En ég get ekki annað en verið 'tortrygginn í garð þessa Musso- linis. Hann horfir aldrei á maun. Hann er sérvitur og uppstökkur. Konan mín ber minna traust til hans en ég. Við fórum að ráðum hennar og skutum saman og gáf- um honum fyrir fæði á ódýrri matsölustofu." Ég gat skilið tilfinningar Losio og konu hans. Mussolini þjáðist mikið af hinu heilsufars- lega og þjóðfélagslega vanmati á sjálfum sér. Hann var fullur haturs og öfundar, einkum á f jölskyldu sinni, sem hann gerði ábyrga að kringumstæðum sín- um. Á síðari árum hefir hann varpað frá sér öllum, sem hjálp- uðu honum og lánuðu honum fé. Hann var einkum hefnigjarn með tilliti til þeirra. Auk mín átti hann enga vini. Hann vissi, að ég myndi aldrei keppa við hann urn frægð eða stöðu, heldur þvert á móti reyndi að hjálpa honum. Ég dró úr tortryggni hans og lækn- aði vanmatstilfinningu hans gagnvart sjálfum sér. Ég reyndi að koma honum í gott skap og láta hann fá traust á sjálfum sér. Gagnvart mér þurfti hann ekkert að grímubúa sig. Hann vissi, að ég reyndi að skilja á- galla hans og veikleika, og hann vissi líka, að ég þekkti hann of vel til þess að verða fyrir von- brigðum, þegar hann hafði rangt við. Hann var hreinskil- inn við mig, meir en við nokk- urn annan. Með okkur voru aldrei neinir kærleikar. 1 mínum augum var hann einn af þúsundum olboga- barna þjóðfélagsins, sem ég vildi reyna að hjálpa. Hann sagði mér oft einkamál sín og ég áleit það skyldu mína að hlusta á hann og reyna að hjálpa honum. En elnmitt vegna þess, að ég áleit hann svo ó- sjálfstæðan og háðan mér tal- aði ég aldrei við hann um sjálfa mig. Að nokkrum tíma liðnum fór Mussolini að skrifa smágreinar fyrir ítalskt jafnaðarmanna- blað, sem gefið var út í Sviss. Greinamar voru um prestaand- stöðu og hernaðarandstöðu. Hann fór líka að halda fyrir- lestra. Sakir þess að hann átti ekki fyrir fæði, vildu félagarn- ir borga honum 7 franka fyrir hvern fyrirlestur. Þetta var upphafið á sigur- braut hans. Hinn ungi Mussolini var mjög hrifinn og skrifaði mér um vel- gengni sína. Ég samgladdist honum, en bað hann að vanda meira fyrirlestra sína, sagði honum, að hann væri of mdda- legur í tali og yfirboroslegur. Italskur prestur var sendur til Sviss, til þess að reyna að snúa ítölsku verkamönnunum frá villu síns vegar. Það átti að koma á opinberum kappræð- um og átti Mussolini að mæta klerki, en hann vildi ekki. „Þið vitið, hve sniðugir þess- ir prestar eru“, sagði hann við félaga sína. „Og þeir eru góðir ræðumenn. Við skulum sjá til. Éf áheyrend- ur verða flestir okkar menn, skal ég gjarnan tala, en verði meirihlutinn haldinn trúargrill- um, tala ég ekki. Þið verðið að koma snemma og setjast næst ræðustólnum. Ef eitthvað kem- ur fyrir verðið þið að hjálpa mér“. Þegar útséð var um það, að meiri hiuti áheyrenda voru sosialistar, ákvað Mussolini að tala. Hann bað kunningja sinn að lána sér úr. Síðan steig hann í ræðustólinn, lagði úrið á borð- ið og sagði við kennimanninn: „Ég gef guði þínum 5 mínútna frest. Ef hann hegnir mér ekki innan fimm mínútna, verð ég að álíta það sönnun þess, að enginn guð sé til og að trúar- brögðin séu stærsta svindlið, er mannkynið hefir nokkru sinni komist í kynni við. Mussolini slapp við reiði guðs og varð frægur maður. Þegar konungurinn veitti pólitískum flóttamönnum sakar- uppgjöf, snéri Mussolini aftur til Italíu. Sosialistarnir í fæð- ingarborg hans, Romagna, gerðu hann að ritara flokksins þar og ritstjóra blaðsins „Stéttabai»áttan“, sem kom út vikulega. Alþýðan var mjög reið gegn stjórninni, sem var ao undirbúa nýlendustríð í Tripolis. Sosial- istarnir börðust gegn nýlendu- stríðinu og bændur og verka- menn fylktu sér til öflugrar kröfugöngu gegn stríði. Stjórn- in sjálf var mjög óróleg. Hún óttaðist alþýðuna og óttaðist mjög um lyktir stríðsins, þar sem þeim var í fersku minni ó- sigurinn við Adua árið 1896. Æstustu fundirnir gegn stríði voru haldnir í Romagna. Á ein- um þessara funda tók til máls ungur maður. Fólkið starði á piltinn. Var þetta ekki sonur hans Alessanders Mussolini, járnsmiðs í Predappio, sem oft hafði setið í fangelsi fyrir bylt- ingaráf orm ? Hvað sagði svo pilturinn? Hann sagði: „Hvers vegna eigum við að eyða tímanum í handaupprétt- ingar og pappírssamþyktir. Við verðum að stöðva stríðið með framkvæmdum, eu ekki með orðum. Eigum við ekki einhvers- staðar dynamit, til þess að sprengja upp lestimar, sem eiga að flytja hermennina? Getum við ekki eyðilagt brýrnar, veg- ina og járnbrautarteinana. Lát- ið ekki hraðlestirnar flytja syni ykkar á blóðvöll imperialist- anna. Er ekki til nógu mikill þrældómur í okkar eigin landi. Er ekki ennþá til nóg af fólki,, sém hvorki kann að lesa né skrifa. Er ekki fullmikið af fólki hér, sem deyr úr hungri á götunum, eða í skemtigörðun- um ? Hvernig eigum við að bæta siðmenningu annara? Þið vitið, hvað hin kapitalistiska stjóm. gerir ykkur til hagsbóta. Þúsundum verkamanna á að fórna til þess að sefa nýlendu- græðgi valdhafanna. Þetta er föðurlandsást þeirra. Hvað kem- ur okkur föðurlandsást við ? Hvar er dirfska okkar?“ Þegar heimsstjrrjöldin braust út árið 1914 bauð framkvæmda- nefnd sosialistaflokksins ítalska öllum fagfélögum að senda full- trúa á fund, sem átti að halda á skrifstofum „Avantis“ („Áfram“, blað sosialista í Milano). Á þeim fundi kom eng- inn skoðanamunur fram. Ákveð- in, byltingarsinnuð samþykt gegn stríði var gerð á fundin- um. Mussolini var þá, eins og ég, í ritstjórn „Avantis“. Honum fanst samþyktin ekki nógu bylt- ingasinnuð. Hann skrifaði rót- tækar greinar gegn þeim, sem vildu að Italía færi í stríðið með bandamönnum. Hann vildi að Italía yrði með Þjóðverjum ef hún færi í stríðið á annað borð. Ég minnist þess, að á flokks- fundi einum greip félagi fram í fyrir honum og sagði: „Við erum ekki með eða á móti Þjóð- verjum. Við erum alþjóðasinn- ar.“ Blöð auðvaldsins, sem gefin voru út fyrir fé bandamanna, réðust á sosialista. Brátt kom að því, að „Avanti“ var eina blaðið, sem þorði að berjast gegn stríði. Um sama leyti kom auðvalds- blað í Bologna með þá frétt, að áhrifamaður í framkvæmda- nefnd sosialistaflokksins hefði sagt: „Verið ekki hræddir við sosialistana. Þið getið verið handvissir um það, að ef stjórn- in ákveður að fara í stríðið með bandamönnum, samþykkja þeir það“. Við, sem vorum meðlimir

x

Alþýðublaðið Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/53

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.