Alþýðublaðið - 15.09.1943, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 15.09.1943, Blaðsíða 5
lííðvifcudagur 15. sept. 1943. ALÞYÐUBLAÐIÐ gG hafði aldrei talað við Giraud fyrr. Við vorum fcynntir, og hann rétti mér stóra, vel snyrta hönd. Hann er hár maður og beinvaxinn, kviklegur í hreyfingum og var klæddur í einkennisbúning, þegar ég talaði við hann. Efri- vararskegg hans virtist ekki eins mikið og það hafði sýnzt tilsýndar, og um munninij, sem virðist ófríður tilsýndar, voru glettnislegir drættir. í stað drynjandi bassaraddar þess, sem vanur er að skipa fyrir, barst há og hljómþýð rödd af þunnum vörum hans. Hann hafði setið bak við stórt skrifborð, og á því var allt í röð og reglu. Hann stóð á fætur til þess að heilsa mér, og við settumst á armstóla milli þeirra og dyranna. Að- stoðarmaður hans skildi okkur eina eftir. Fyrst ræddum við um daginn og veginn. Hann spurði, hvort ég væri frægur blaðamaður. Nei, ég sagðist aðeins vera blaðamaður. Jæja, en hann hafði nú samt lesið að minnsta kosti eina grein eftir mig, sem var fræg, grein- ina, sem fyrst allra greina lýsti ástandi franska hersins <eins og það raunverulega var. En því miður höfðu ritskoðun- armennirnir stöðvað greinina. En nú fannst honum hann víst vera farinn að eyða tíma sínum til ónýtis. Giraud krosslagði fæturna og kvaðst vera reiðubúinn að segja mér það, sem mig lang- aði til þess að vita. Eg sagði honum, að ennþá sæti dálítill fcökkur í hálsi Breta og ýmis- legt þarfnaðist skýringa, áður en almenningur fengizt til þess að aðhyllast fullkomna sam- vinnu, þótt yfirvöldin aðhyllt- ust hana. Þessi atriði væru: Sambandið milli hans sjálfs og de Gaulle hershöfðingja. Orsök þess, að hin ótakmark- aða samvinna þeirra hafi ekki þegar í stað verið framkvæmd, og að síðast en ekki sízt: Hvemig á því stæði, að vissir „Vichymenn” héldu enn þá stöðum, sem heyrðu undir hann. Giraud skýrði málið mjög hreinskilnislega fyrir mér. Hann sagði, að Bretar ættu að styðja de Gaulle eftir megni og hann væri fullkomlega verður aðdáunar. — Eg dáist að honum sjálfur, sagði hann, ekki aðeins vegna hermennsku hæfileika hans, heldur einnig fyrir það starf, sem hann hefir unnið í London. Þetta starf varð að inna af höndum, og hann gerði það. Um tveggja ára skeið, hefir hann talað máli Frakklands. Því má aldrei gleyma. En ég þekki Norður-Afríku. Hér hefir hann ekkert fylgi. Þeir þekkja mig aftur á móti, og hvers vegna ættu þeir ekki að gera það? Hér hefi ég unn- ið störf mín. Og hvort sem það er verðskuldað eða ekki þá er Giraud þekktur hér. Svona standa nú málin. Hersýning til heiðurs Giraud. Mynd þessi er af liðsforingjaefnum við hernaðarháskóla á hersýningu, sem haldin var tilheiðurs Henri Honore Giraud, yfirhershöfðingja Frakka, þegar hann heimsótti Bandaríkinfyrir nokkru. Giraud stendur til vinstri á myndinni við hlið annarra hershöfðingja. Giraud hershöfðingi. EFTIRFARANDI grein, sem fjallar um Giraud hershöfðingja, er eftir hlaðamanninn Guy Ram- sey og er þýdd hér úr The English Digest. Annarri spurningu minni svaraði Giraud af sams konar hreinskilni: hvers vegna var hin ótakmarkaða samvinna ekki framkvæmd? Vegna þess, sagði Giraud, að ef Norður-Afríkumenn þekkja hann, þá þekkir hann Norður- Afríku. Við hér í Norður-Afríku er- um íhaldssamir. Ef ég rek alla hægri menn, get ég átt von á byltingu. Og getið þið búist við að ég kæri mig um bylt- ingu, þegar ég er að berjast gegn hættulegum óvini. Við fengum byltingu árið 1789 og hún litaði göturennur Frakk- lands rauðar. Nú fór hann að byrja að verða mælskur og rödd hans var há og mjúk og hljómaði líkt og bjölluhljómur í fjarska. Og þó að Giraud sé ekki sér- fræðingur í skriðdrekahernaði eins og de Gaulle, er hann eng- Kaupum tómar flöskur ffyrir hækkað verð, sömu tegundir og áður. Mótfaka í \ Nýborg alla virka daga, nema "V ■' laugardaga. Afengisverzlun ríkisins. s s s s s s ! inn viðvaningur í sverðaleik. Og þó að rödd hans væri mjúk voru orð hans eins og stál- broddur og í þeim var þungi or- ustugnýsins. — Eina styrjöldin, sem ég óska eftir, er styrjöld við Þjóðverja. Faðir minn barðist 1820, og ég barðist 1914 og aft- ur 1939—’40. — Eg hefi eytt tuttugu og þremur mánuðum í þýzkri fangavist, herra minn. Níu í heimsstyrjöldinni og fjórtán í núverandi styrjöld. Tvisvar hefi ég sloppið. Mig langar ekki til þess að verða fangi enn á ný, herra minn. Og það eru um 1,200,000 Frakkar enn þá í fangavist. Það eru þessir menn, 'sem ég er að hugsa um. Nú var kominn örlítill skjálfti í rödd hans, enda þótt hann hefði fullkomið vald á henni — líkt og sverð, sem bognar, án þess að brotna. Eg hefi kynnzt því sama og þessir menn hafa kynnzt, og meðan þeir eru fangar er franska þjóðin einnig í þrældómsfjötr- um og ánauð. Og meðan svo er, telst mér hver dagur sem tveir dagar. — Eg hefi séð menn mína berjast, herra minn. Þeir eru að berjast núna. Og þeir berj- ast vel. Þegar hann talaði um her- sveitir sínar, sem voru .að berjast í 400 mílna fjarlægð, var eins og þær væru skynj- anlegar í herberginu. Venja franskra herforingja, sem allt af kalla hermenn sína börnin sín, var ennþá við lýði. — Hér, í Norður-Afríku, er úrslitastundin ekki komin. En hún nálgast. Brezki og amer- íski herinn hér sækir fram. Sennilega, já áreiðanlega gæt- uð þið sigrað án okkar aðstoð- ar, þar eð við höfum ekkert að bjóða annað en samúð okkar, vilja og reynslu. En ég hugsa um fleira en Norður-Afríku. Eg hefi verið í Frakklandi, verið þar frá því ég slapp frá Þýzka- landi og þangað til ég komst hingað með aðstoð landa þinna. Eg veit, að Frakkar eru til- búnir að rísa upp á ný og berj- ast, jafnvel þótt þeir ættu, eins og við, að berjast vopn- lausir. Eg veit, hvað menn mín- ir geta gert. Og við höfum ekki verið iðjulausir, herra minn. Við höfum æft þá í meðferð þeirra fáu nútímavopna, sem við gátum falið fyrir vopna- hlésnefndinni. Eg veit, að menn mínir eru færir um að hand- leika hvers konar nútímavopn, sem þeim eru fengin í hendur — menn mínir hér í Afríku og jafnvel heima á Frakklandi. — Þér munuð hafa heyrt — og hljótið að hafa heyrt það Frh. á 6. síðu. Dularfullir njósnarar á krossgötum í myrkri. Lýst inn í vagna með sterkum vasaljósum. Tveir ráðherrar,, dómar og náðanir. Steinnin fær óvænta gistivini. ÖGREGLUÞJÓNAR standa M-A með vasaljós í myrkri á gatna mótum, stöðva bifreiðar og lýsa inn í þser. — Þeir kváðu gera þetta til þess að koma í veg fyrir að menn ækju bifreiðum ölvaðir. Öll um er kunnugt um að f jölða mörg bifreiðaslys verða vegna þess að menn eru ölvaðir við akstur. Ég get ekki áfellst lögregluna fyrir það, þó að hún reyni á þennan hátt að hafa hendur í hári hinna s brotlegu og gera að minnsta kosti um leið tilraun til að koma í veg fyrir slysin. EN ÞAÐ ERU SAMT ákaflega margir menn reiðir út úr þessu og þó eru menn enn reiðari yfir því uppátæki, að dómsmálaráðherrann okkar virðist ekki vera meðgjör- legur. Hann tekur engum skynsam legum fortölum, hvað sem sagt er við hann. Hann slær bara sinni nettu og hvítu hendi í borðið og segir með sinni mjúku röddu: „í Steininn með þá!“ STEINNINN HEFIR aldrei séð annað eins og það sem hann hefir séð undanfarið og á eftir að sjá næstu vikur. Hann er orðinn fínt hótel, þó að viðurgerningurinn kunni að vera eitthvað verri en ger ist á góðum hótelum. Ýmsir þekkt ir heldri menn, allt upp í milljón- era gista hann, dæmdir menn, sem hefir vérið neitað um náðun! SAKADÓMARI dæmir menn, sem eru ölvaðir við akstur á veg- um úti. Hinir umkomulausustu hafa tekið dómi sínum með þögn og þolinmæði og farið í Steininn, en hinir sem eru allt of fínir til að fara í steininn gera allt sem unnt er til að komast hjá því og þess skeleggari eru þeir sem þeir eru ríkari, enda ætti það, eftir öllum sólarmerkjum að dæma að fara eftir upphæðinni í bankabókinni, hvort þeir þurfa að taka út dóm sinn eða ekki! MEÐAN JAKOB MÖLLER va® ráðherra náðaði hann miskunar- laust og tók til greina allskonar læknisvottorð. Fæstir eða engir þurftu að taka út fangelsisdóm sakadómarans fyrir ölvun við akst ur. Jakob breytti öllu í sektir_ og hvað munaði hina ríku heldri menn um sektirnar? Þeir kvöddu Kobba brosandi! EN SVO KOM EINAR í sæti Jakobs. Einar var líka heldri mað- ur og hlaut að vera miskunsamur eins og fyrirennari hans, en þessi gamli harðhaus hafði annaðhvort aldrei verið í klíkunni, eða hann var búinn að gleyma samábyrgð heldri mannanna og óskaði ekki eftir vináttu og fylgisspekt þeirra manna, sem hafa ekki meiri ábyrgð artilfinningu en það, að þeir aka bifreiðum sínum ölvaðir við akst- MENN GERÐU TILRAUN, komu með læknisvottorð og allskonar skríverí, en Einar ýtti blöðurium til hliðar: „Engar sektir! í Steininn með hann!“ Sagt er þó að Einar hafi einu sinni hikað_ og látið und an. Hvað á maður að gera þegar einhver kemur með vottorð um (Framh. á 6. síðu.)

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.