Alþýðublaðið - 15.09.1943, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 15.09.1943, Blaðsíða 7
7 MiSvikudagur 15. sept. 1943. ALÞYÐUBLABIÐ \B œrinn i dag.) Næturlæknir er í Læknavarð- stofunni, sími 5030. ÚTVARPIÐ: 19.25 Þingfréttir. 20.00 Fréttir. 20.30 Útvarpssagan: „Liljur vall- arins“. Saga frá Tahiti, X (Karl ísfeld blaðamður). 21.00 Hljómplötur: Lög leikin á gítar. 21.10 Erindi: Korsíka og Sardinía (Einar Magnússon mennta- skólakennari). 21.35 Hljómpíötur: íslenzkir ein- söngvar og kórar. 21.50 Fréttir. Haustfermingarbörn í Hallgrímssókn komi til viðtals í Austurbæjarskólann á föstudag- inn kemur (17. þ. m.) kl. 5 e. h. Sóknarprestarnir. rmrt^rmní Vörumóttaka í dag til Stapa, Sands, Ólafsvíkur, Grunda- fjarðar, Stykkishólms, Salt- hólmavíkur, Króksfjarðar- ness og Flateyjar. Anglýsiogar, sem birtast eiga í Alþýðublaðinu, verða að véra komnar til Auglýs- ingaskrifstofunnari Alþýðuhúsinu, (gengið inn frá Hverfisgötu) fyrir kl. 7 að kvölíl. Sfmi 400«. Enskir karlmannaskór i táhettuðausir, stór númer. VERZL. liœiíSSS. Grettisgötu 57. SVBSSHESK ÚR í miklu úrvali hjá Sigurþór Hafnarstræti 4. VIKUR HOLSTEINN EINANGRUNAR- PLÖTUR Fyrirliggjandi. PÉTUR PÉTURSSðN Glerslipun & speplagerð Sími 1219. Hafnarstrœti 7. Fram vasn landsmót 1. fl. í knattspyrnn. Sigraði Val iúrslitalelk með 3:0 LANDSMÓTI 1. flokks í knattspyrnu lauk í gær- kveldi með úrslitaleik milli Fram og Vals. Sigraði Fram með 3:0. Skoraði 1 mark í fyrri hálfleik, en 2 í þeim síðari. Liði Fram var skipað á svip- aðan hátt og undanfarið, þó hafði þeim bæzt einn nýr leik- maður og ekki óþarfur, sem var Ottó Jónsson, hinn sprettharði Dalvíkingur, sem er reykvísk- um knattspyrnuáhorfendum að góðu kunnur af fyrri leikjum hans með Fram í sumar. Valsliðið var og svipað og áð- ur, nema að Frímann Heigason lék ekki með að þessu sinni. Sem heild var leikur þessi snerpulítill, af úrslitaleik í landsmóti að vera, einkum þó af Vals hálfu. Var leikur Vals- liðsins daufur og samleikur sáralítill, samanborið við það, sem við hefði mátt búast og sigurviljinn eftir því. En eng- inn vafi er á því að með ofur- lítið meiri skerpu hefði mátt ná betri árangri. Framliðið lék af miklu meiri snerpu og sigurvilja, enda fór árangurinri þar eftir. Þegar er 3 mínútur voru liðnar af leik, tókst Fram-mönnum að skora mark, og fengu þeir haldið því næsta auðveldlega allan leik- inn. Sóknaraðgerðir Vals voru hvorki harðar né ákveðnar og var mark Fram aldrei í raun- verulegri hættu. í síðari hálfleik tókst Fram að skora tvö mörk. Annað er um ,15 mínútu voru af 1-eik, en hitt er um 15 mínútur voru eftir af leik. Valsliðið gerði að vísu nokkrar virðingarverðar tilraunir til þess að jafna met- in. En allt kom fyrir ekki. Þeim tókst aldrei að ná nein- um verulegum samleik, yfir- leitt í leiknum, en leikur þeirra einkenndist mjög af heildar- lausu pati og „plati“ gegn mót- herjum, tilgangslaust og einsk- isvirði. Eftir leik þessum að dæma er Fram vel að sigrinum kom- inn á móti þessu. Að leik loknum afhenti Guð- jón Einarsson, fulltrúi Víkings í K.R.R., sigurvegurunum bik- ar þann, er um hafði verið keppt, en K.H. vann hann síð- astliðið ár. Hann minntist fé- laga þeirra utan af landi, er þátt tóku í mótinu, Akurnes- inga og Hafnfirðinga, og kvaðst vona að fleiri félög utan af landi sæju sér fært að koma næsta ár. Bað síðan áheyrendur að hrópa húrra fyrir sigurveg- urunum og öðrum þáttakendum mótsins, og sagði því síðan slit- ið. Jarðarför móður okkar og tengdamóður Jóhönnu Bjárnadóttur fer fram fimmtudaginn 16. þ. m. frá heimili okkar, Holtsgötu 1, kl. 1 e. h. Jarðað verður frá þjóðkirkjunni. Helga Jónsdóttir. Ingimimdur Jónsson. Fnlitrúaráðtð Frh af 2 siöu þeirra. Má til dæmis geta þess að síðan þeir tóku við stjórn og ráðum í Dagsbrún hafa þeir haft 3 og 4 starfsmenn. Skal í sambandi við þetta á það bent að upp á síðkastið hafa atvinnu- rekendur greitt árgjöld verka- manna og Dagsbrún því getað sótt þau til þeirra, en ekki þurft að haía starfsmenn til þess að innheimta félagsgjöldin hjá hin- um einstöku verkamönnum. Virðist því hin gífurlega starfs- mannaaukning hjá félaginu vera sprottinn af öðru en brýnni nauðsyn. Þorsteinn Pétursson er einn af helztu áróðursmönnum kom- únista. Nú vilja þeir láta hann ia skrifstofu undir sig og láta Fulltrúaráðið borga brúsann. Tilraunin tókst ekki að þessu sinni. ÍTALÍA Frh. af 3. ,síðu. uppi þaðan á samgönguleiðir Þjóðverja. Frá flotastjórn Bandamanna við Miðjarðarhaf var tiíkynnt í gær, að einn ítalskur tundur- spillir væri enn kominn til Malta og hefðu því nú 27 ít- alskir tundurspillar alls geng- ið Bandampnnum á hönd. En auk þeirra væru 19 ítalskir kaf- bátar komnir til hafna Banda- manna víðs vegar við Miðjavð- arhaf. í fregnum frá Sviss er enn talað um bardaga milli ítala og Þjóðverja víðs vegar um Masonite 09 krossviðs-plðtur eru ófáanlegar í bili, en OGK-pilplötor (gips-plötur) eru hentugar í þeirra stað. Fyrirliggjandi hjá okkur. Sæosk ísleczke Verzlunerfélagið h. f. iRAUÐARÁ. (Skúlagötu 55.) Sími 3150. > S $ N S s S s $ S s s s s s s S s s N s s s s landið, sérstaklega í iðnaðar- borgunum Torino og Milano á Norður-Ítalíu, en einnig um götubardaga í Rómaborg. í fregnum frá Berlín í gær- kveldi var fullyrt, að allt væri nú aftur með kyrum kjörum á Norður-Ítalíu, reglulegar járn- brautarferðir hafnar á ný, og byrjað væri aftur að gefa út blað Mussolinis, „Popolo d’It- alia“, í Milano. Slátron saoðfjár kfrjw hér I bænow í næstn vikn. Eaa ©aiBapá Mafa esagar ákvarð* aaiir verið teknar um verðið. AUÐFJÁRSLÁTRUN mun liefjast hér í bænum í næstu viku. Að vísu hefir þeg- Leikkona við járnsmíðar. Leikkonan Hope Emerson lítur nægiiega kraftalega. út til þess að vera járnsmiður, enda er hún yfir 6 fet á hæð, en á myndinni er hún aðeins að skemmta starfsbræðurm sínum, leik- úrunum Garry Moore og Jimmy Durante, með því ab látast vera að fást við járnsmíðar. ar verið slátrað nokkrum kind- um, en það hefir verið gert f æfingaskyni fyrir kjötmats- menn. Enn hefur ekkert verið ákveð ið um verð á slátrum í haust, en ákvörðun um það mun verða tekin næstu daga. Þá hefur heldur ekkert verið ákveðið hvað miklu verður slátrað, en gert er ráð fyrir að það verði heldur meira en í fyrra. Fyrir nokkru var ákveðið á fundi, sem haldinn var á Akur- eyri hvað miklu skyldi slátrað á félagssvæði Kaupfélags Ey- firðinga. Alls var áætlað að slátrað yrði 22,525 kindum og er það rúmlega 10% meira en í fyrra. Slátrun á Akureyri hefst ekki fyr en 24. september. Ástæðan fyrir því að ákveðið var að slátra þetta meiru á félagssvæði Kaupfélags Eyfirð- inga en var gert í fyrra, er minni heyfengur bænda nyrðra nú en þá. Má gera ráð fyrir að sömu ástæður séu fyrir hendi hér sunnanlands. UNDIRFÖT og NÁTTKJÓLAR. Nýkomið í miklu úrvali. H.TOFT SkölavðrðBstlo 5 Simi 1035

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.