Alþýðublaðið - 18.09.1943, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 18.09.1943, Qupperneq 3
iLaugardagur 18. september 1943 ALÞYÐUBLAÐIÐ Raymoad Clapper: Erliðleikar Ditlers og sigrar Bandamaooa. &ÆÐZJR HITLERS eru ekki jafn áhrifamiklar núna, eins ■og seint á árinu 1930, þegar hann gat fengið heila þjóð á sitt hand á nokkrum dögum. Oft þurfti hann aðeins að halda ógnandi ræðu, til þess að minniháttar leiðtogar gengju í flokk hans. Á þeim tímum náði Hitler valdi yfir hinum mikilsráðandi her með orðunum einum. MISMUNURINN á fyrri ræðum hans og til- raunum hans síðustu dag- ana, til þess að sefa þýzku þjóðina eftir áfallið, sem hún hlaut, er Italir gáfust w upp, ber þess glöggt vitni, að Hitler á núna mjög erfitt með að halda ■meiriháttar ræður. Nú á tím- ■um fást ekki sömu áhrif og ■áður fyrr með því að öskra, sem hæst. Ef til vill er það ástæðan til þess, að Hitler hefur ekki látið til sín heyra síðustu 6 mánuðina. EN HVAÐA AFSAKANIR gat Hitler borið fyrir sig eftir síðustu viðburðina? Fyrir einu ári síðan var auðvelt að tala. Hitler var í sókn í aust- urátt, í RússlancLi stefndi hann að Volgu en í Afríku •að Suezskurðinum. í Kairo var allt undirbúið, ef yfir- gefa þyrfti borgina með augnabliks fyrirvara. Alex-, ander hershöfðingi reyndi að Stemma stigu fyrir framsókn Hitlers að Suez, en Timo- shenko reyndi að halda i Kákasus. J3ANDAMÖNNUM tókst að koma í veg fyrir framkvæmd hernaðaráætlana Möndulveld anna, sem hefðu einangrað Rússland frá Bandarhönnum sínum með því, að samband hef&i náðst milli Ítalíu og ■ Þýzkalands annarsvegar og ' Japan hinsvegar gegnum Mið jarðarhafið, ef ekki hefði tekist að stöðva sóknarheri J Þjóðverja. Bandamenn hefðu ■ getað beðið ósigur fyrir ári síðan og voru þá á barmi glötunar. NÚNA ER STÖÐUGT hert á hafnbanni Þýzkalands. Eng- in von er til þess að safmband • náist við Japan. Rússar fær- ast stöðugt nær og nær Þýzka landi úr autrinu. Öllum von- ‘ um Þjóðverja um að rjúfa á austurvígstöðvunum vegginn sem myndaður hefur verið um Þýzkaland, hefur verið • kollvarpað með mistökum á þriðju sumarsókn þeirra, sem nú hefur snúist upp í sókn á hendur þeim sjálfum. EITT ROTHÖGGIÐ á Hitler var, hve illa tókst með kaf- bátahemaðinn, sem var aðal tilraun hans tíl þess að létta Frh. á 7. síðu. Samband milli allra herja Banda~ manna á Italíu. Roosevelt. Boðskapur Roosevelts: Styrjðidin getnr dregizt á langinn En takmarkið er útrýming fasismans og prússnesku hernaðarkiikunnar. Innrásin á ítaliu ákveðin i Casablanca LONDON í gærkveldi. ROOSEVELT foi'seti ávarpaði þjóðþing Bandaríkjanna í dag. Hann gat þess í ávarpi sínu, að þingið kæipi saman þegar mikil átök í styrjöldinni væru að hefjast. Bandamenn hafa ákveðið, sagði forsetinn, að hefja stórkostlegar árásir á Þjóðverja og Japani. Hann upplýsti að innrásin á Ítalíu hafi verið ákveðin á ráðstefnunni í Casablanca. Miklu liði verður að safna saman í Bretlandi til að ráðast á ýrnsar stöðvar Þjóðverja. Hitler hefir talað digurbgrkalega um hið ósigrandi „Evrópuvirki“, en nú þegar hafa Bandamenn brotið sprxmgur í þennan virkisvegg. En þrátt fyrir undangengna sigra Bandamanna mim stríðið verða langt og erfitt. Það er ekki nóg að sigra nazismann í Þýzkalandi. Það verður að brjóta á bak aftur hina prússnesku hernaðarklíku. Mikla eftirtekt vekur sú upp- lýsing Roosevelts, að innrásin á Ítalíu hafi verið ákveðin á ráð- stefnunni í Casablanca og að herforingjar Bandamanna hefðu fyrir löngu gert áætlanir um hvernig1 henni skyldi hagað. En hann sagði einnig að búast mætti við að erfiðlega mundi ganga að hrekja Þjóðverja frá Ítalíu. Roosevelt sagði að Bandamenn væru búnir að á- kveða innrás á mörgum stöðum og miklu liði yrði safnað sam- an í Englanai í þessum tilgangi. Þá lagði Roosevelt áherzlu á það í ræðu sinni, að ekki væri nægilegt að leggja þýzka naz-' ismann að velli og handsama foringja hans, það yrði einnig að uppræta í eitt skipti fyrir öll hina prússnesku hemaðar- klíku. LOFTSÓKN Roosevelt sagði að Banda- menn mundu halda áfram loft- sókn sinni gegn Þýzkalándi, þó að hún væri kostnaðarsöm. Þeir mundu nota flugvelli a ít- alíu til þess að gera loftárásir á Suður-Þýzkaland. Hann upp- lýsti að Bandaríkjamenn hafi misst 53 flugvélar og 500 flug- menn í loftárásinni á olíulind- irnar í Ploesti í Rúmeniu. En þrátt fyrir þetta mikla tjón hafi loftárás þessi borgað sig. Þá gat Roosevelt þess í i-æðu sinni, að tjón Bandaríkjamanna á Sikiley hafi verið margfalt meira en Breta og Kanada- manna. ÞÁTTUR RÚSSA Roosevelt fór miklu loísorði um hernaðarafrek Rússa og sagði að ekkert ríki hafi ve'.tt andstæðingi sínum eins miklar hernaðarlegar ófarir ejns og Rússar Þjóðverjum síðan á dögum Napoleons. En þrátt fyi- ir þessa sigra og sigra Banda- manna við Miðjarðarhaf og loftárásirnar á Þýzkaland er Frh. á 7. affio. 5. og S. lierinn samein* uðust i gærmorgnn. . ■»-- ■ 5. herinn vinnur á og Þjóðverjar láta undan síga norður á bóginn. ............ ♦ LONDON í gærkvöldi. Q AMBAND er nú á milli allra hersveita Bandamanna ^ á Ítalíu, sem upphaflega voru landsettar á þremur fjarlægum stöðum. Framvarðasveitir úr 8. hernum og 5. hernum mættust snemma í morgun um 15 km fyrir sunnan vígstöðvarnar við Salerno. Þá hafa hersvteitir úr 8. hernum isefneinast brezku hersveitunum vi;ð jTaranto. Gagnsókn 5. hersins hefir borið mikinn árangur. Hann hefir náð öllu því landi aftur, sem hann missti í gagnsókn Þjóðverja og er nú kominn um 20 km inn í land. Sameiginleg sókn 8. og 5. hcrsins til Napoli stendur nú fyrir dyrum en Þjóðverjar vcita hvarvctna I:arða mótspyrnu. Frarasókn 8/ kcrsins hcfir vcr ið •mikhi hraðari cn r.okkurn hefir grunað. Hann sótti fram 300 km á fjórum dögum. 5. herinn hefir tekið Albanelli, sem er við ána Seli 20 km inn í landinu. Þjóðverjar hafa gert þrjú hörð gagnáhlaup en þeim hefir öllum verið hrundið. 5. herinn hefir nú yfir að ráða öÆIugum skriðdrdkahersveitum og voru það þær, sem hófu gagnsóknina að undangengnum miklum loftárásum og fallbyssu skothríð frá herskipum Banda- manna á stöðvar Þjóðverja. Fyrir dyrum stendur nú sókn Bandamanna til Napoli. Sú bar- átta stendur fyrst og fremst um veginn, sem liggur til Na- poli. Þjóðverjar gera harðar á- rásir enn á norðurhluta Saler- no vígstöðvanna til þess að tefja framsókn 5. hersjins. En j Ríssnesk kirkjo- nefnð væntanleg tD Englands. LONDON í gærkvöldi. BISKUPINN af Kantaraborg Dr. Temple skýrði frá því í dag, að biskupinn af York hafi farið til Rússlands til þess að efla samvinnu á milli ensku og .rússnesku .kirkjunnar .og mætti búast viðl að bráðlega kæmi nefnd kennimanna frá Rússlandi til Englands. Kesselring hershöfðingi hefir fyrirskipað her sínum að hörfa, en skilur eftir mjög öflugar Frh. á 7. síðu. Djóðverjar boða stórfellda „stytt- ingn víglínunnar" í Rnsslandi. Rússar hafa tekiö Rryansk. LONDON í gærkveldi. ÞÝZKÁ útvarpið boðaði í gær að Þjóðverjar væru að gera „stórfelda styttingu á víglínu sinni í Rússlandi“. Þykir þessi frétt benda til þess að þeir treysti sér ekki til að heyja bar- daga á jafn slóru svæði og áður þann vetur, sem nú fer í hönd. Rússar taka nú hvern bæinn á fætur öðrum í Ukrainu. Þeir hafa brotizt gegnum víglínu Þjóðverja við Poltava. Rússar hafa nú náð Bryansk, hinni miklu vamarstöð Þjóðverja á vígstöðvunum á sitt vald. Þetta var tilkynnt í dag með sérstakri dagskipan frá Stalin. Rússar höfðu áður en þeir tóku Bryansk tekið járnbrautar bæ borgarinnar, sem liggur á eystri bakka Desnafljótsins en Bryansk sjálf liggur á vestri- bakkanum. Rússar stefna nú liði sínu frá Bryansk til Gomel, sem er mikil borg ali langt fyrir vestan Bryansk. Þeir sækja einn ig í norður frá Bryansk til Rosslavl. sem liggur miðsvegar milli Bryansk og Smolensk. Rússar segjast hafa sigrað sex F herfylki m-eð tangarsókn við Bryansk. Rússar tilkynna að þeir hafi tekið 260 bæi og þorp í Ukrainu ígær. Hersveitir Rússa syðst á vígstöðvunum hafa tekið tvo bæi við Azovshaf og reka flótta Þjóðverja frá Mariopol. Mikil hreyfing er sögð vera í öllum höfnum Þjóðverja á Krimskaga og er álitið að þeir séu að hefja þaðan brottflutn- ing liðs síns.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.