Alþýðublaðið - 05.10.1943, Qupperneq 7
I>riðjudagur 5. október 1>43.
ALHtÐUBLAÐiÐ
t
|Bœrinn í dag.\
Næturlæknir er í Læknavarð-
sllofunni, sími 5030. '
ÚTVARPIÐ:
3(0.00 Fréttir
90.30 Erindi: Er styrjöldin stríð
milli hagkerfa? II: Kapítal-
isminn. (Gylfi Þ. Gíslason
dösent.)
90.55 Tónleikar Tónlistarskólans:
Einleikur á píanó (Árni
Kristjánsson).
ai.15 Hljómplötur: Kirkjutónlist.
21.50 Fréttir.
Símablaöið,
málgagn félags ísl. símamanna,
er nýkomið út. — Blaðið flytur
grein um Bandalag hinna vinnandi
atétta eftir Andrés G. Þormar,
Srein um endurskoðun launalag-
anna, greinar um hagsmunamál
símamanna, myndir o. fl.
Útvarpstíðindi
éru nýkomin út. í þessu hefti
><sr m. a. viðtal við Ragnar Jó-
ihannesson fulltrúa útvarpsráðs,
dagskrárkynning . og frásögn
'iim útgáfu þá á útvarpserindiun,
®r ritstjórar Útvarpstíðinda ætla
ziú að hefjast handa um. Hefur áð-
ur verið frá þeirri fyrirætlun
skýrt hér í blaðinu.
Samtíðin,
októbersheftið, er komið út. Efni
‘S*rá sjónarmiði skattgreiðenda
(Pétur Þ. J. Gunnarsson stórkaup-
maður), Merkir samtíðarmenn
(myndir og smágreinar), Molar úr
djúpi minninganna (Guðbjörg
Jónsdóttir frá Broddanesi), Strand
varnir (þýdd smásaga) Glundroði
falla er glötun orðlistar (Björn
Sigfússon), þýddar greinar, ýmis-
iegt smávegis o. fl. »
Á stefnumótinu
og yfirleitt hvenær sem þér hafið ^
stiaid til lesturs, þá er HEIMIL- j
ISRITIÐ tilvalið. •
Það kemur út mánaðarjega með í
léttar smásögur og úrvals smá- í
greinar. Efnið er sérstaklega val- {
ið til lesturs í frístundum og (
hvfldar frá störfum eða lestri (
þyngri bóka. \
Ritið er smekklegt og handhægt. \
Það má stinga því í vasann og J
hafa méð sér hvert sem er, án J
þess að mikið fari fyrir því. i1
Fæst £ næstu bókabúð. b
Afgr. Garðastr. 17. Símar
^eimiúsH/íð
Sendisveinn óskast
1. okt. hálfan eða allan dag-
inn.
GARÐflSTB.2 SÍM! I899
Bygginoarfélag
verbamanna.
Frh. af 2. síðu.
Hann beitti sér fyrir því til
þess að hægt væri að halda á-
fram að byggja og gera fólki
léttara með að eignast íbúð-
irnar og halda þeim, að fá vexti
og afborganir af lánunum úr
byggingarsjóði lækkaða úr 5%
í 4%. Og þetta tókst.
Strax hófst Byggingafélagið
aftur handa og hafa fram-
kvæmdir æ staðið síðan svo að
nú er búið að byggja 124 íbúðir
og má fullyrði að yfir 600
manns hafi fengið hið fullkomn
asta húsnæði.
Erfiðleikar hafa að sjálf-
sögðu komið fram í þessum
framkvæmdum, en fyrir hag-
sýni og fyrirhyggju stjórnar fé-
lagsins má víst fullyrða að
byggingar Byggingarfélags
verkamanna séu, jafnframt því
að vera fullkomnar. ódýrustu
íbúðirnar, sem bygðar hafa ver
ið í Reykjavík styrjaldarárin.
í sambandi við síðasta flutn-
ingusdag var hér í blaðinu
nokkuð rætt um hina ægilegu
húsnæðisneyð, sem nú er ríkj-
andi hér. Var á það bent að
hún stafaði af fyrirhyggjuleysi
og vanrækslu þeirra, sem ráðið
hafa í höfuðstaðnum og aldrei
vildu gera neitt í húsnæðismál-
um og vildu heldur greiða at-
vinnuleyisingjunum fyrrum
styrk úr bæjarsjóði og láta þá
ganga iðjulausa en að setja þá
í vinnu, sem stefndi að bygg-
ingum íbúðarhúsa.
Svo undarlega brá við að
blaðsnepill kommúnista svar-
aði þessari gréin næsta dag,
ekki með því að undirstrika
þau sannleiksorð, sem voru í
greininni hér í blaðinu, heldur
með árás á formann Alþýðu-
flokksins fyrir afskipti hans af
byggingarmálum verkamanna!
Kommúnistar hafa alltaf hat
ast v-ið verkamannabústaðina,
af því að þeir bæta öryggi
þeirra, sem komast í þá.
En auk þess er Þjóðviljinn
og kommúnistaflokkurinn orð-
in varðhundur íhaldsins — og
geltir, þegar það sigar.
Yí'irlýsing.
í tilefni af auglýsingu kjötverð-
lagsnefndar um verðlag á saltkjöti
vill Alþýðusambandið taka það
fram, að fulltrúi þess, Hermann
Guðmundsson, greiddi . atkvæði
gegn því í nefndinni, að saltkjöts-
verðið yrði ákveðið svo hátt sem
gert var. Alþýðusamband íslands. j
Oliufélogin og
rikisstjórnin.
Tilbynning frá viðsbiptamála-
ráðuneyfinn.
Eftirfarandi tilkynning
hefir Alþýðubl. bor-
izt frá viðskiptamálaráðu
neytinu með beiðni um
rúm fyrir hana í blaðinu:
UT af greinargerð olíufélag-
anna í Morgunblaðinu 3.
þ. m. um olíuverðið, óskar við-
skiptamálaráðherra að taka það
fram, að hann telur greinargerð
ina þurfa leiðréttingar við að
því er snertir viðskipti ríkis-
stjórnarinnar og félaganna um
málið. En af sérstökum ástæð-
um er ekki að svo stöddu hægt
að gefa opinbera skýrslu um
það sem fram hefir farið í mál-
inu. Strax og ástæður leyfa
verður slík skýrsla gefin á al-
þingi.
Tíelr Atlendir sjé-
menn dæmdir.
'T» VEIR útlendir sjómenn
voru dæmdir í lögreglu-
rétti Reykjavíkur á laugardag-
inn. Höfðu þeir gerzt sekir um
óleyfilegan innflutning og sölu
áfengis. Annar þessara manna
er frá Uruguay en hinn frá Aust
urríki. Var sá fyrrnefndi dæmd
ur í 800 kr. sekt en sá síðar-
nefndi í 300 kr. sekt.
Ksppleftur Vais sp
Víkings á sunnudag-
inn.
SÍÐAST LIÐINN sunnudag
fór fram knattleikur milli
Vals og Víkings. Leikur þessi
var einskonar knattspyrnueftir-
hreitur, þar sem öllum mótum
í þessari vinsælu íþrótt er nú
lokið fyrir nokkru.
Ágóðinn af Ieiknum rann til
slysasjóðs knattspyrnumanna,
sem er hin þarfasta stofnun, en
hlutverk þessa sjóðs er að
hlaupa undir bagga með þeim
knattspyrnumönnum sem á
einn eða annan hátt kunna að
verða fyrir meiðslum í leik.
Það er nú orðið æðilangt síð-
Hvíld
:
Ameríska söngkonan Greorgia Carrol hvílir sig eitt andartak
að loknu sundi. Hún er í sportbúningi, sem er allur úr baðm-
ull, en lítur út eins og hann væri úr silki.
Kveðjuathöfn móður okkar,
Elísabetar Hafliðadóttur,
Nönnugötu 8,
fer fram I dómkirkjunni, miðvikudaginn 6. þ. m. að aflokinni
húskveðju á heimili hinnar látnu, er hefst kl. 3 e.h. fimmtudag-
inn 7. þ.m. kl. 8 f.h. Verður hin látna flutt til greftrunar að Há-
bæjarkirkju í Þykkvabæ.
Þeim, er þess óska, verður séð fyrir fari þangað og heim að
kveldi, ef þeir tilkynna í síma 3931 eigi síðar en þriðjudagskvöld.
Blóm og kransar afbeðnir. Minnist í þess stað hvíldarheim-
ilis sjómanna.
Fyrir hönd vandamanna.
Jörgen Jónsson. Hjörleifur Jónsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarð-
arför móður og tengdamóður okkar,
Steinvarar Aradóttur.
*
Rósa og Jón ívars.
an Valur og Víkingur.hafa haft
taékifæri til þess að hittast á
leikvellinum og leiða þar sam-
an gæðinga sína.
Þá má og segja, að það hafi
heldur ekki verið úr vegi fyrir
Val að fá tækifæri til þess að
rétta nokkuð við knattspyrnu-
álit sitt eftir KR-leikinn fræga
á dögunum, sem mörgum mun
vera í fersku minni Leikurinn
var fremur daufur og tilþrifa-
lítill. Þó brá fyrir alisæmileg-
um sóknarlotum á báða bóga.
Valur átti fleiri tækifæri á
mark en Víkingar þó ekki nýtt-
ist af.
Þegar í byrjun leiks komst
vinstri útherji Vals, (Lolli)
snöggu skoti á mark Víkinga,
sem þó markmanni tókst að
bjarga, á elleftu stundu, með
því að kasta sér.
í fyrri hálfleik fékk Valur
dæmda vítaspyrnu. 1. úth.
framkvæmdi spyrnuna, skaut
langt yfir. Virtist þessi fram-
kvæmd vítaspyrnunnar vera
gerð af næsta augljósu skeyt-
ingarleysi um árangur, og er
slík framkvæmd vítaspyrnu,
sem að þessu sinni, mjög víta-
verð, og á ekki að sjást á leik-
velli, þó jafnvel leikurinn sem
slíkur, sé góðgerðarstarfsemi.
Fyrri hálfleikurinn endaði
með jafntefli, 0:0.
Seint í þeim síðari tókst v.
frmh. Vals (Alla) að skora mark
með snöggu skoti og var það
eina markið, sem gert var í
leiknum.
V. innherji Vals er slyngur
leikmaður, en það er mikill
ljóður á leik hans, hversu mikla
ástríðu hann hefir til þess að
„plata náungann“ og halda
knettinum of lengi, og gefa þar
með ihótherjunum tækifæri til
þess að valda. Slíkt pat og plat
getur að vísu skemmt áhorfend
um eitthvað, en er til hins
mesta ógagns flokknum í heild,
en það eru fyrst og fremst hags
munir heildarinnar, sem gilda,
en hagsmunir einkabrasksins
eiga að vera útilokaðir, ef vel
á að fara.
Þá komst v. úth. og í þessum
hálfleik í dauðafæri við mark
Víkings, var kominn einn inn
fyrir vörnina með knöttinn, en
skaut honum beint í markvörð
inn, virtist slíkt, eins og á stóð,
harla mikill óþarfi. Leikurinn
endaði með sigri Vals, 1:0.
Víkingsliðið, sem yfirleitt var
skipað sterkum og góðum leik-
mönnum, náði sér aldrei veru-
lega á strik og Valsmarkið var
aldrei í neinni yfirvofandi
hættu. Enda var og leikur
beggja liðanna þannig, sem
heild, að auðséð var að ekki
var eftir neinu sérstöku að
slægjast.
Ebé.
ATVINNUMÁLANEFNDIN
Frh. af 2. síðu.
nefndin fer þess sérstaklega á
leit, að þeir atvinnurekendur,
sem henni hefir ekki tekizt að
ná til. afli sér eyðublaða undir.
svör við fyrirspurnunum á
skrifstofu nefndarinnar í Aust-
urstræti 10. Svörin þarf nefnd-
in að fá hið allra fyrsta, og eigi
síðar en 10. okt.
í nefndinni eru þessir menn:
Sigurjón Á. Ólafsson og er hann
formaður hennar, Gunnar E.
Benediktsson, Helgi Hermann
Eiríksson og Sofonías Jónsson.
Kínatízka
Eftir heimsókn frú Chiang Kaí
Shek í OBandaríkjuiium í vor
fóru dömumar í ÍNew York að
klæðast samkvæmiskjólum eins
og þeim, sem sézt hér á mynd-
inni. Hann er stæling á kjólum,
sem frú Chiang Kai Shék hefir
oft sézt. mynduð í.
5 Kasipum tnskar
| hæsta verði.
^HðigagiavImnstoIaB