Alþýðublaðið - 17.10.1943, Page 3
SunBudagnr 17. október 1943.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
De Gaulle kannar lið sitt.
j Á mynd þessari sést foringi stríðandi Frakka, Charles de Gaulle, kanna lið sitt að Well-
I ington Barracks í London. i
i
4 Vígstöðvarnar á Italíu:
Sókn 5 og 8. hersins miðar
hvarvetna stöðugt áfram.
5. berisaEt komiain 20 km. norHaustnr fyrir Capua
8. herima kefir tekið borgina Vimefiaiafura*
—.... ♦
SÓKN HERJA BANDAMANNA á vígstöðvunum á Ítalíu
miðar hvarvetna örugglega áfram. 5. herinn sækir
fast fram á norðurbakka Volturno og hefur tekið bæinn
Caiazzo og Amarosi, svo og Cerretochenista, sem stendur
um 12 km norðaustur af Amarosi.
8. hernum hefur einnig orðið mikið ágengt síðasta sól-
arhrmginn. Hefur h'ann nú borgirnar Vinchiatura og Campo
basso á valdi sínu og nálgast Isernia óðum.
Hersveitir Clarks sækja fast
fram, þrátt fyrir öflugt viðnám
þýzka hersins. Eru þær nú
komnar þan,gað, sem Caloreáin
fellur í Volturno og tekið bæ-
ina Caiazza og Amarosi, sem
standa 12 og 20 km norðaustur
af Capua. Stefna þær hægt en
örugglega uppi í hæðirnar norð
ur af Capua, þrátt fyrir vask-
lega vörn ÍÞjóðverja og hefur
hægri armur 5. hersins tekið
þar bæinn Cerretochenista, sem
stendur um 12 km norðaustur
af Amarosi.
Jafnframt hefur 8. herinn
sótt fram af miklu harðfengi á
upplandinu og tekið Vinchia-
tura og Campobasso, sem eru
miíkilvægar samgöngumiðstöðv
ar, og nálgast Isernia óðum.
Eftir að hafa náð þessum bæj-
um á vald sitt mun sókn 8.
hersins til Volturnovígstöðv-
anna reynast greiðfær, en
hemaðarsérfræðingar og frétta
ritarar telja, að ætlun banda
manna sé sú, að hægri og vinstri
fylkingararmar herja þeirra
nái sambandi hvor við annan
áður en hin raunverulega fram
sókn til Rómaborgar hefjist.
AJ fregnum í gærkvöldi
imátti ráða það, að viðnám
þýzka hersins á Voltumovíg-
stöðvunum fer harðnandi, enda
þótt framsókn 5. hersins þar
miði hið bezta. Þjóðverjar hafa
dregið að sér aukið lið á víg-
stöðvum þessum og tefla nú
fram flugher allverulega, en
hans hefir lítt gætt af þeirra
hálfu til þessa í átökunum á
Italíu. Gerðu þýzkar flugvél-
ar í gær margar tilraunir til
árása á sóknarsveitir banda-
manna svo og á brýr þær, er
vinnusveitir bandamanna hafa
lagt yfir Volturno. Bandamenn
telja, að spjöfl hafi lítil orðið
í árásum þessum og segjast hafa
skotið alhnargar hinna þýzku
flugvéla niður. Hins vegar til-
kynna þeir áframhaldandi loft-
sókn af sinni hálfu, sem einkum
sé beint gegn samgöngumið-
stöðvum á leiðinni til Róma-
borgar.
Hernaðarfræðingar og
fréttaritarar telja aðstöðu
þýzka herliðsins norðan Vol-
turno hina alvarlegustu og
ætla að það muni ekki geta
veitt bandamönnum viðnám
nema skamma hríð. Spá sum
ir þeirra því meira að segja,
að Kasselring hafi þegar
fyrirskipað hersvQÍtum sín-
um að láta undan síga vegna
þunga sóknar 5. hersins, enda
þótt framvarðasveitir Þjóð-
verja verjist vasklega..
Sforza kominn
til Algier.
Mon eioa viðræðnr við stjórn
Badoglios.
G* FORZA greifi, ítalski stjórn
*** málamaðurinn, sem dvalizt
hefir landflótta í Bandaríkjun-
um á valdaárum fasistastjórn-
arinnar á Ítalíu, hefir nú lokið
heimsókn sinni í Englandi, þar
sem hann ræddi við ýmsa
brezka stjórnmálamenn, m. a.
Churchill forsætisráðherra og
Eden utanríkismálaráðherra.
Er Sforza nú kominn til Al-
gier, segir í Lundúnafregnum í
gær, og mun hann eiga víðræð-
ur við ríkisstjórn Badoglios
marskálks.
,,, ■ '
Tveir ugir norð-
meu skotair.
ÝZKIR varðmenn við
höfnina í Hellesylt í
Mörehéraði hafa skotið tvo
unga Norðmenn, og höfðu
þýzku hermennirnir áður skot-
ið á nokkrar ungar stúlkur á
reiðhjólum.
Hinir ungu Norðmenn, sem
lífið létu, hétu Ásbjörn
Tryggvestad, 16 ára gamall, og
ívar Tryggvestad, 17 ára. At-
burður þessi hefir vakið mikla
gremju, og óttast Þjóðverjar í
Hellesylt að til árekstra muni
koma í tilefni hans.
(Frá skrifstofu norska blaða-
fulltrúans.) I
| ^Austurvigstöðvarnar: ____
Rðssar sækia innlF Riev
aö norðan og snnnan.
.. . » ' ■ "
BálMr aðilar draga að sér araldð
lið í Melitopol.
.. . ♦ —
"O IJSSAR gera hvert áhlaupið af öðru á varparvirki Kiev
að norðan og sunnan. Rússnesku hersveitirnr, sem
tóku Zaparoshe hraða nú för sinni til móts við lið það, er
berst í Melitopol og hafa járnbrautina þangað fullkomlega
á valdi sínu.
I Hvíta-Rússlandi er barizt af sömu hörku og fyrr og veita
Þjóðverjar rússneska hernum enn viðnám í rústum Gomel, en
hörfa þó hægt og sígandi undan þunga sóknar þeirra.
Rússar eru í tangarsókn gegn*
Kiev og sækja að henni af of-
urkappi að norðan og sunnan,
en Þjóðverjar halda uppi harð-
fengilegri vörn. Rússar hafa
brotizt inn í yztu varnarvirki
borgarinnar og halda uppi
grimmilegri stórskotahríð og
látlausum loftárásum, en við-
nám þýzka | hersins er þar enn
óbrotið. Þjóðverjar tefldu fram
100 skriðdrekum og miklu
stórskotaliði í átökum þessum
í gær, en Rússar töldu sig hafa
grandað 67 skriðdrekum þeirra
áður en dagur var að kvöldi
liðinn. Rússar létu þess og get-
ið í fregnum sínum, að Þjóð-
verjar hefðu freistað þess að
taka með snörpu áhlaupi eyju
í fljótinu gegnt Kiev, sem rúss-
neski herinn náði á vald sitt
fyrir nokkrum dögum, en verið
ofurliði bornir.
Rússum hefir orðið vel á-
gengt í sókn sinni á vestur-
bakka Dniepr þar sem þeir
brutust yfir fljótið hjá Kre-
menchug. Hersveitir þeirra,
sem tóku Zaporoshe, hraða nú
för sinni mjög suður á bóginn
til liðs við hersveitir þær, er
berjast í návígi við lið Þjóð-
vérja á strætum Melitopol, og
er talið, að þess muni skammt
að bíða, að Þjóðverjar neyðist
til undanhalds þaðan. Það er nú
vitað, að í átökunum um Zapor-
oshe felldu Rússar að meðaltali
2000 menn af liði Þjóðverja á
hverjum sólarhring. Er mjög
ömurlegt um að litast í borg-
inni. Einnig hefir þess verið
getið í rússneskum fregaum, að
engin vinna hafi fram farið í
verksmiðjum Zaporoshe frá því
að Þjóðverjar náðu henni á
vald sitt 1941,
Báðir aðiljar leggja mikla á-
herzlu á orustuna um Melito-
pol. Draga Þjóðverjar þar að
sér aukið lið, og aukinn liðs-
kostur er á leiðinni Rússum til
handa með framsókn hersveit-
anna frá Zaporoshe.
Barizt er enn á strætunum í
Gomel, en viðnám Þjóðverja
þar talið þverrandi og segja
Rússar sig sækja á hvarvetna á
vígstöðvunum í Hvíta-Rúss-
landi.
P REGNIR frá Júgóslavíu
•*- herma, að þjóðfrelsisher-
inn hafi sótt fast fram síðustu
dægur og m. a. tekið borgina
Andreavitch í Svartfjallalandi.
Miklar orustur eru og háðar við
Adenitze í Bosníu.
Wendeil Wilkie ræð-
ir ntanrikisstefnn
Banðarikjanna.
\17ENDELL WILLKIE, sem
* » var forsetaefni republi-
kana við síðustu kosningar,
hefir' gert grein fyrir því í
ræðu, hver hann teldi að vera
ætti stefna flokksins í innan-
ríkis- og utanríkismálum í fram
tíðinni. í sambandi við afstöðu
flokksins til utanríkismálanna
komst hánn þannig að orði, að
hann teldi, að Bandaríkin ættu
að gerast aðili að alþjóðasamn-
ingum eftir styrjöldina. Hann
kvað sig andvígan samningum
milli tveggja stórvelda um við-
horf framtíðarinnar, en sagðist
álíta, að Bandaríkin, Breta-
veldi, Rússland og Kína ættu
í styrjaldarlok að bindast öfl-
ugum samtökum til þess að
tryggja friðinn og skapa far-
sæld í heiminum.
Pétir keouegir
Jágóslavs skipar þrfð
ofjs rððherra.
T UNDÚNAFREGNIR í gær-
kveldi skýrðu frá því, að
Pétur konungur Júgóslava
hefði skipað þrjá nýja ráðherra
í ríkisstjórn sína. Allir hafa
hinir nýju ráðherrar tekið virk-
an þátt í baráttu hinna júgó-
slavnesku ættjarðarvina og er
einn þeirra Króati. ítalir tóku
hann til fanga eftir hernám
Júgóslavíu og héldu honum í
fangelsi um hríð, unz honum
varð að lokum flótti auðinn og
komst af landi brott.
■OOOSEVELT forseti hefir
kveðið þannig að orði, seg-
ir í fregnum frá Washington, að
Bandaríkjamenn sökkvi nú
mun fleiri skipum fyrir Japön-
um en þeir smíði á sama tíma.
Roosevelt upplýsti, að kafbátar
bandamanna hefðu á s.l. sex
mánuðum sökkt hundrað skip-
um fyrir Japönum og hefðu þau
samtals verið 30 000 smálestir.
Hann tilkynnti einnig, að tala
flugvéla þeirra, er gerðu árás-
ir daglega á Þýzkaland, væri
allt að 850.