Alþýðublaðið - 21.10.1943, Side 3
s
Fimmtudagur 21. október 1943
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Kreml í Moskva.
Sóknin á ítaliu :
Herír bandamanna hafa tek
ið Pignataro og Petaccio.
» —
ÞJóðverjar vinna skemmdarverk
hvarvetna á umdanlialdiBia.
FREGNIR frá Ítalíuvígstöðvunum greina frá áframhald-
andi sókn bandamanna og undanhaldi Þjóðverja'. 5.
herinn sækir sífellt fast fram á miðvígstöðvunum og hefir
náð á vald sitt borginni Pignataro um 10 km norður af
Capua. Bætir hann aðstöðu sína ávallt í átökunum á þessum
slóðum. Hörfa Þjóðverjar undan, en kveikja í bæjum, leggja
jarðsprengjur og vinna margvísleg spjöll á undanhaldinu.
8. hernum miðar einnig örugglega áfram í framsókn
sinni og tók í gær bogina Pétaccio, sem stendur nær 16
Mynd þessi er af hinni fornu kastalaborg Kreml í Moskva, þar
sem sovétstjórnin hefir nú aðsetur. í Kreml er þessa dagana þrí-
veldaráðstefnan haldin, þar sem utanríkismálaráðherrar Bret-
lands, Bandaríkjanna og Rússlands, Eden, Hull og Molotov sitja
á rökstólum ásamt aðstoðarmönnum sínum og ráða r.áðum sínum.
Þýzki herinn i Dnieprbngð-
unni er í alvarlegri hættn.
♦ ------
Russar loka undanhaldsleiðum hans og
hersveitanna suður á Krímskaga.
♦-------
FRAMSÓKN RÚSSA á vesturbakka Dniepr miðar
örugglega áfram. í afurelding í gærmorgun tóku þeir
járnbrautarborgina \Piatikatka, sem 'stendur um 80 km.
suðvestur af Kremenchug og nálguðust í gær óðum borgina
Krivoirog, sem er nær 125 km. frá Kremenchug. Er her-
sveiíum Þjóðverja í Dnieprbugðunni því mjög hætt, þar
er undanhaldsleiðir þeirra liggja einkum um þessar tvær
samgöngumiðstöðvar.
Hersveitir Rússa hafa einnig tekið borgina Visgorod, sem
stendur um 15 km norðvestur af Kiev. Er enn barizt suður í
Melitopol, og leggja Þjóðverjar ofurkapp á viðnám sitt þar,
meðan þeir freista þess að koma liði sínu brott frá Krím
Aðstaða þýzka hersins í Dni-
eprbugðunni verður nú alvar-
legri með degi hverjum. Eftir
að Rússar hafa náð á vald sitt
járnbrautarborgunum Piatikat-
ka og Krivoirog er undanhalds
leiðum þeirra lokað, en hina
fyrrnefndu þeirra tóku rúss-
nesku hersveitirnar árdegis í
gærdag og voru þær seint í
gærkveldi á næsta leiti við hin-
ar síðarnefndu. Veittu Þjóðv.
harðfengilegt viðnám í Piatikat
ka, en voru ofurliði bornir, og
náðu Rússar þar miklu herfangi
■— m. a. 15 járnbrautarlestum
hlöðnum hergögnum, 30 skrið-
drekum og 170 fallbyssum. —
Guldu Þjóðverjar mikil afhroð
áður en úrslit þessara átaka
voru ráðin. Telja Rússar, að
varnir þýzka hersins í Dniepr
bugðunni séu gersamlega brotn
ar og eigi hann ekki annarra
kosta völ en gefast upp eða
stráfella, eftir að undanhalds
leiðum þeirra hefir verið lok-
að, sem ætla má að brátt muni
verða með hinni hröðu og
hörðu sókn rússnesku hersveit-
anna.
Grimmilegir bardagar geisa
enn í Melitopol. Leggja Þjóð-
verjar ofurkapp á að halda
henni, sem lengst svo og svæð-
inu sunnan hennar, því að tak
ist Rússum að rjúfa járnbraut-
ina, sem liggur frá Krím, um
Perekop, eiga þýzku hersveit-
irnar á Krímskaganum engrar
undankomu auðið. Eru Þjóðv.
mjög í önnum við að flytja lið
sitt þaðan brott, því að við-
nám þeirra í Melitopol mun óð
um fara þverrandi.
Rússar treysta aðstöðu sína
sem bezt við Kiev og hafa nú
tekið borgina Visgorod, sem
stendur 5 km. vestur af Dniepr
en 15 km. norðvestur af Kiev.
Eru Rússar í þann veginn að
loka hringnum um hina xornu
og frægu höfuðborg Ukraníu.
Einnig verður Rússum vel á-
gengt norður í Hvíta-Rússlandi,
einkum við Gomel og náðu þeir
þar í gær 5.000 rússneskum
borgurum, sem flytja átti brott
til þrælkunarvinnu, úr greip-
um Þjóðverja.
Þríveldaráðstefnan í Kreml
hélt áfram í gær og stóðu fund
ir yfir í þrjár stundir. Þess er
getið í fregnum bandamanna,
að enginn tilkynning verði gef
Frh. á 7. síðu.
km norður af Termöli.
Þjóðverjar hörfa hvarvetna
norðan við Volturnoslétturnar
upp í hæðirnar, er þar taka
við. Framsveitir þeirra veita
þó vasklegt viðnám og valda
því, að undanhald þýzka hers-
ins er skipulegt, þrátt fyrir
þunga sóknar 5. hersins. Hefir
hann nú náð á vald sitt borg-
inni Pignataro, sem stendur um
1Ó km. norður af Capua. Einn
ig hefir hann tekið fleiri bæi
og þorp í framsókn sinni á þess
um slóðum. Bera Þjóðverjar
jafnan eld að bæjum og þorp-
um á undanhaldi sínu, leggja
jarðsprengjur og ráða óbreytt-
um borgurum og búpeningi
bana. Vinna þeir hermdarvei’k
á þessum slóðum eins og hvar
vetna annars staðar. Freista
þeir .þess mjög að kveikja bál
meðfram járnbrautum, svo að
þær hyljist reyk og flugmenn
bandamanna eigi örðugra með
að hæfa þær sprengjum. Einn-
ig beita þeir mjög stórskota-
liði til þess að torvelda her-
sveitum bandamanna eftir-
förina.
8. herinn er einnig í sókn á
austurströndinni og miðar þar
vel áfram. Náði hann í gær á
vald sitt borginni Petaccio, —
sem stendur um 16 km. norður
af Termoli. Einnig eru harðir
bardagar háðir á vígstöðvunum
hjá Vinchiatura. Þjóðverjar
hafa þar gert hverja gagnárás-
ina af annarri í því skyni að
stöðva framsókn bandamanna,
en verið ofurliði bornir í átök-
unum og neyðzt til undanhalds.
Það er greinilegt, að Þjóð-
verjar hyggjast búast um í nýj
um varnarstöðvum í hæðunum
norður af Volturnosléttunum
eftir að þeim varð ekki viðnáms
auðið á norðurbakka árinnar.
Hins vegar telja hernaðar-
fræðingar og fréttaritarar, að
sú tilraun þeirra muni reynast
árangurslítil, því að herjum
bandamanna muni reynast auð
velt að brjóta hinar nýju varn
ir þýzka hersins í hæðum þess
um, enda hafi sókn þeirra
norður yfir Volturno verið mun
meiri raun.
Flugher bandamanna er
mjög athafnasamur yfir Ítalíu
sem fyrr og réðist hann í gær
einkum til atlögu við samgöngu
miðstöðvar Þjóðverja á strönd
Adriahafsins. Einnig voru harð
ar loftárásir gerðar á flugvelli
Þjóðverja á eyjunum Krít og
Kos í gær.
Ógnarstjórnin í Noregi:
Tín nýir danðadðmar!
Og tveir langvarandi fangelsisdómnr
»
SAMKVÆMT fregnum frá skrifstofu norska blaðafull-
trúans í Reykjavík hafa enn tíu Norðmenn verið
dæmdir til dauða. Hafa Þjóðverjar borið þá þeim sökum að
hafa rekið erindi óvinaríkis og haft vopn í fórum sínum.
Menn þessir eru: Sigurd Jacobsen, Sverre Emil Halvorsen.
Olav Österud, Eugen Grönhöld, Kaare Gundersen og Sverre
Andersen, allir búsettir í Oslo, Emil Gustav Hval frá
Presteröd við Tönsberg, Erling Marthinssen frá Bergen,
Christian Fredrik Fasting Aall frá Álasundi og Lars Elias
Telle frá Televaag.
Einnig hafa Norðmennirnir Theodor Myrvaag frá Myr-
vaag og Comelius Ragnar Solheim frá Maalöy verið dæmdir
til sjö og fimm ára fangelsisvistar.
Er Gayda dauðurí
Signor Gayda.
ESS HEFIR verið getið í
fregnum, að Signor
Gayda, sem fyrrum var rit-
stjóri Giornale d’Italia og mál-
pípa Mussolinis langa hríð sé
dauður.
Heimildir eru hins vegar
ekki sammála um það, hvernig
dauða hans hafi borið að hönd-
um. Segja sumir, að hann hafi
verið tekinn af lífi í uppþoti
eftir að Mussolini hafði verið
steypt af stóli, en aðrir, að hann
hafi framið sjálfsmorð.
Áslralíumenn éska efl-
ir Innffyfjendum aS
styrjöldinni lokinni.
Curtin ræddi þessi
mál i ræðu í gær.
EFND hefir verið skipuð
" í Ástralíu, sem hefir það
hlutverk með höndum að ann-
ast undirbúning þess, að aukn-
ir fólksflutningar hefjist til
landsins að lokinni styrjöld-
inni.
Curtin, forsætisráðherra
Ástralíu flutti ræðu í tilefni
þess, að nefnd þessi var skip-
uð og ræddi þar innflytjenda-
málið ítarlega. Hann kvað öll
rök að því hníga, að nauðsyn
bæri til þess, að iðnaðarverka-
menn réðust til Ástralíu að
ráðnum úrslitum styrjaldarinn
ar. Einnig gat hann þess, að
gera yrði ráðstafanir til þess,
að uppg j af ahermenn og
skyldulið þeirra ætti þess kost
að fá landsvæði til ræktunar í
Ástralíu og þannig gefið tæki-
færi til þess að sjá sér og sín-
um farborða. Einnig minntist
hann þess að fá yrði þeim
Ástralíumönnum jarðnæði, er
hefðu áhuga fyrir að helga sig
landbúnaðarstörfum í framtíð-
inni. Curtin lét orð um það
falla, að Ástralíumenn gætu
ekki vænzt þess að njótavugg-
lausrar framtíðar, ef íbúatala
landsins ykist ekki og breyting
yrði á því ófremdarástandi, að
dauðsföll væru fæðingum fleiri
eins og verið hefði síðustu árin.