Alþýðublaðið - 12.11.1943, Side 7
Fimmtudagur 11. nóv. 1943.
^LÞYÐU>3LAÐIÐ
|Bœrinn í dag. |
ÓOOOOOOOOOOOOOOO<3><c><>3><3K>0<>3><3
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í nótt í Lauga-
vegsapóteki.
ÚTVÁRPIÐ:
20.30 Útvarpssagan. (Ragnar Jó-
hannesson).
21.00 Strokkvártett útvarpsins:
|Kvaírtett nr. 20 í Es-dúir
eftir Mozart.
21.15 Útvarpsþáttur. (Helgi Hjiör
var).
21.35 Spurningar og svör um ís-
lenzkt mál (Björn Sigfús-
son magister).
21.55 Fréttir.
22.00 Symfóníutónleikar (plötur)
a) Fiðlukonsert nr. 7 í D-dúr
eftir Mozart. b) Symfónía
nr. 1 eftir Beethoven.
23.00 Dagskrárlok.
Upplýsingastöð
Þingstúku Reykjavíkur er opin
hvern fimmtudag í Góðtemplara-
húsinu frá 6—8 e. h. Allir þeir
sem í erfiðleikum eiga vegna eigin
áfengisneyzlu, eða vfegna áfengis-
neyslu vandamanna sinna eða vina
ættu að snúa sér til Upplýsinga-
stöðvarinnar, sem veitir alla að-
stoð eftir fremsta megni. Með öll
mál, sem Upplýsingastöðinni ber-
ast er farið með sem trúnaðarmál.
Aðalfundur
Sundfélagsins Ægis
SUNDFÉLAGIÐ ÆGIR hélt
aðalfund sinn fyrir nokkr
um dögum. í stjórn félagsins
voru kosnir: Þórður Guðmunds
son, form., meðstjórnendur:
Theódór Guðmundsson, Ingi-
bergur Sveinsson og Guðmund-
ur Jónsson, sem var kosinn í
stað Jóns D. Jónssonar, sem
baðst undan endurkosningu
vegna annríkis. Fyrir í stjóm-
inni voru: Jón Ingimarsson,
Hjörtur Sigurðsson og Magnús
B. Pálsson.
Tillaga kom fram frá Jóni D.
Jónssyni og Eiríki Magnússyni
um að stjórn félagsins gengist
fyrir stofnun sundsambands
með þeim félögum, sem hafa
sund á sinni stefnuskrá.
Samþykkt var að stofna
minningarsjóð um Pál heitinn
Erlingsson sundkennara. Skipu
lagsskrá fyrir sjóðinn verður
samin innan skamms.
Félagslíf.
Í.R. — SKÍÐADEILDIN.
Farið verður í skíðaferð að
Kolviðarhóli næstk. laugardags
kvöld kl. 8. Lagt af istað frá
Varðarhúsinu. Farmiðar verða
seldir í ÍR-húsinu í kvöld
(föstud.) frá kl. 8—10.
Gistingu er aðeins hægt að
panta þar á sama tíma. (Kol-
viðarhóll tekur ekki á móti
pöntunum).
Dmræðnrnar nm ollifélðgii
á 6—14 ára komnir aftur.
H.TOFT
Sbélavðrðnstíg 5 Slmi 1035
Kanpum tuskur
{
hæsta verði. ^
.... pí
Baldnrsgðtn 30. i
Frh. af 2. síðu.
steinsson hefði byggt á því gagn
stæða. Væri því hér um að
ræða höfuðágreiningsefni ipilli
hans og fltningsmanna. Benti
ræðumaður síðan á ýmsar mót-
sagnir í þessum skýrslum og
mikilsverð atriði, 'er Garðar
hafði hliðrað sér hjá að fjalla
um í málsvörn sinni fyrir olíu
félögin.
Eysteinn kvaðst vera sömu
skoðunar og Stefán Jóhann Stef
ánsson um það, að í orðalagi
tillögunnar, „opinber rann-
sókn“, þyrfti ekki að felast það,
að sakamálsrannsókn ætti að
fara fram. Það gæti legið á
milli hluta, hvort rannsóknin
ætti að fara fram utan réttar
eða sem réttarrannsókn. Hitt
væri aðalatriðið, að hér þyrfti
að fara fram ítarlega rannsókn.
Framkvæmdaratriðin heyrðu
undir dómsmálastjórn landsins.
En Eysteinn kvaðst mundi
greiða atkvæði með breytingar
tillögu 2. minni hluta nefndar-
innar, ekki vegna þess að þar
væri um að ræða neinar grund-
vallarbreytingar á efni till.,
heldur vegna þess, að þar væri
greinilegar tekið fram það, sem
fyrir sér hefði vakað með flutn
ingi þessarar tillögu, svo og
vegna þess, að þar væri ítar-
legar tekið fram, hvað rann-
saka skyldi. Á breytingartil-
lögu 3. minni hlutans kvaðst
hann engan veginn geta fallizt,
þar eð hún virtistv vera fram
borin í því skyni að drepa mál-
inu á dreif.
Stefán Jóh. Stefánsson kvað
röksemdir framsögumanna 2.
og 3. minni hlutans meira en
vafasamar, þar eð þeir byggðu
báðir á því, að tillagan fæli í
sér fyrirskipun til ríkisstjórn-
arinnar um sakamálsrannsókn.
Það væri algerlega á valdi rík-
isstjórnarinnar hvaða leið hún
færi í þessu máli, hvort hún
byrjaði á því að láta fara fram
rannsókn utan réttar, og síðar,
ef þurfa þætti, léti fara fram
réttarrannsókn. Það væri vel,
sagði Stefán Jóhann, ef málið
upplýstist með rannsókn utan
réttar. En sú væri reynslan, að
erfitt væri að upplýsa flókin,
fjárhagsleg mál nema með rétt-
arrannsókn. Og þegar fyrir
lægi jafn ríkur grunur og í
þessu máli, að skýrslur, sem
fyrirtæki hefðu gefið opinber-
um yfirvöldum, væru einn
blekkingavefur frá upphafi til
enda, þá væri vissulega ekki
ástæðulaust, þótt réttarrann-
sókn væri látin fara fram. Og
þó að það væri rétt fram tekið,
að ákæruvaldið væri ekki hjá
alþingi, þá hefði það þó full-
komið vald til að láta í ljós .
vilja sinn um meðferð mála í
þjóðfélaginu og það væri ekk-
ert að því að finna, þó að al-
þingi gæfi ríkisstjórninni undir
fótinn um það, að þörf væri
réttarrannsóknar í þessu máli.
Sigurður Bjarnason, sem er
einn af flutningsmönnum þings
ályktunartillögunnar, kvað það
ekki að ófyrirsynju, þótt dregn
ar væru í efa skýrslur olíufé-
laganna, þótt raddir hefðu
heyrzt á alþingi um það, að
ekki mundi vera ástæða til
þess. Verðlagningu olíufélag-
anna hefði aldrei verið í hóf
stillt og það væri því rétt
stefna, að styrkja útvegsmenn
í því að afla sér þessarar vöru
á ódýrari hátt.' — Um breyting-
artillögurnar sagði Sigurður,
að hann teldi, að með breyting-
artillögu 2. minni hluta nefnd-
arinnar (Jör. Brynj.) væri til-
lögunni ekki að nokkru spillt.
Það er full þörf á rannsókn í
þessu máli — og ekki síður þörf
á tillögum um framtíðarskipun
í olíusölumálunum.
Fleiri þingmenn tóku til máls
og töluðu sumir ræðumenn oft.
Stóð umræðan þangað til kl. að
ganga átta í gærkveldi. Var
henni þá lokið, en atkvæða-
greiðslunni var frestað.
Stjórnarfrflmvarpið
olinpymana.
Frh. á 7. síðu.
hann kvaðst geta upplýst það,
að enn hefði engin breyting
orðið á olíuviðskiptunum og
verðið ekki hækkað enn.
Frumvarp þetta er í beinu
framhaldi af öðrum aðgerðum
ríkisstjórnarinnar í olíumálun-
um, sagði ráðherrahn. Ríkis-
stjórninni er ljóst, að það er
ekki nóg að útvega ódýra olíu í
heildsölu. Það verður einnig að
sjá svo um, að notendurnir eigi
hennar kost við hóflegu verði.
í því efni er einkum um tvær
leiðir að ræða: Að ríkið taki
einkasölu á olíu eða að það
styðji félagslegt framtak not-
endanna, er miði að því að afla
þessarar vöru á sem ódýrastan
hátt. Það er þessi síðari leið,
sem ríkisstjórnin hefir valið
með því að bera fram þetta
frumvarp.
Að umræðu lokinni var frum
varpinu vísað til 2. umræðu og
s j ávarútvegsnef ndar.
Framhald af 2. síðu
„í trausi þess að ríkisstjórn-
in láti hina væntanlegu milli-
þinganefnd í sjávarútvegsmál-
um afla allra nauðsynlegra
upplýsinga snertandi þetta mál
og að þeim fengnum undirbúa
frv. til laga um jöfnunarsjóð
aflahluta, er lagt verði fyrir
alþingi svo fljótt sem- auðið er,
tekur deildin fyrir næsta mál
á dagskrá.“
Samkvæmt dagskrártillög-
unni var málið sent milliþinga
nefndinni, og hefir hún samið
frumvarp það, er hér fylgir.
Um frumvarpið tekur milli-
þinganefndin fram eftirfar-
andi:
Frumvarp um jöfnunarsjóð
aflahluta hefir verið flutt fjór
um sinnum í neðri deild al-
þingis eða árin 1939, 1940 1942
og 1943. En það hefir ýmist
„dagað uppi“ í efri deild eða
verið vísað frá umræðum með
rökstuddri dagskrá. Milliþinga
nefndin hefir nú rannsakað mál
ið gaumgæfilega. M. a. hefir
hún beiðzt umsagnar margra
útvegsmanna og félaga varð-
andi sjávarútveg víða á land-
inu. Svör þau, er bárust, hnigu
öll í þá átt að hvetja til þess
að lögjöf yrði sett um hluta-
tryggingar. En áður höfðu þó
borizt miklu fleiri tilmæli og
áskoranir um þetta, bæði til
alþángis og flutningsmanna.
Nefndin telur því, að nokkuð
almennur vilji þeirra, er hér
eiga hlut að máli, sé fyrir því,
að sett séu lög um tryggingar
aflahluta.
Þá hefur milliþinganefndin
athugað af þeim gögnum, sem
fyrir liggja, hvað valdið hafi
tregðu alþingis í því að sam-
þykkja frumvörp þau, er flutt
Barnið, sem var borið út.
Fyrir nokkru síðan fannst þessi hvítvoðungur, sveinbarn,
sjö pund á þyngd, í sorptunnu hjá húsi einu í Atlanta í
Bandaríkjunum. Var honum varla líf hugað, en þó farið
með hann á sjúkrahús. Þar náði hann sér furðu fljótt og
virðist una lífinu vel í fangi hjúkrunarkonunnar, sem er
með hann á myndinni.
hafa verið um þetta efni á und
angengnum þingum. Virðist
henni, að orsakir séu fyrst og
fremst ágreiningur um það,
hvort tryggingarnar eigi að
vera skyldutryggingar eða
frjálsar, þ. e. heimild til þess
að stofna hlutatryggingafélög.
Af þessum sökum sér nefndip
ekki annað fært en leggja til,
að frjálsu tryggingarnar verði
valdar, syo að úr því fáist skor
ig með reynslu, hvort tilgang-
urinn náist eftir þeirri leið.
Frttmvarp nefndarinnar er því
byggt á þeim grundvelli.
í umræðum um mál þetta á
alþingi undanfarið hefir verið
að því fundið, að ekki lægi fyr-
ir nægileg vitneskja um það,
hver útgjöld ríkissjóði mundi
stafa af tryggingum þessum, ef
lögboðnar yrðu. Milliþinga-
nefndin hefir því fengið Fiski-
félag íslands til þess að reikna
þetta út eftir aflaskýrslum og
öðrum gögnum, í fyrsta lagi
miðað við þrjú næstu árin fyr-
ir styrjöldina og svo það styrj-
aldarárið er gaf hæsta afla-
hluti. Er þá miðað við hundr-
aðsgjald það, sem frumvarp
þetta gerir ráð yrir, og við allt
aflamagn í landinu.
Samkvæmt útreikningi Fiski-
félagsins hefðu útgjöld ríkis-
sjóðs miðað við það, er að ofan
greinir, orðið þessi:
Árið 1936 . . . . kr. 79765.00
-v- 1937 .... — 112070.00
>— 1938 .... — 116494.00
— 1942 .... — 577465.00
Einstakir nefndarmenn á-
skilja sér rétt til að gera tillög-
ur um breytingar við frumvarp
ið og fylgja breytingartillög-
um, er fram kunna að koma.“
„Ég hef komið hér áður“
. heitir leikritið eftir Priestley,
sem Leikfélag Reykjavíkur hefir
frumsýningu á.
Dagsbrúnarfundurinn
Frh. af 2. síðu.
armanna til verkamannavinnu
á félagssvæðinu.“
„Fundurinn skorar á trúnað-
armenn félagsins og alla með-
limi þess að framfylgja til hins
ýtrasta ákvæði félagslaganna
um að vinna ekki með ófélags-
bundunm mönnum og minnir
félagsmenn á rétt þeirra til að
skoða skírteini hvers annars.
Jafnframt minnir fundurinn fé-
lagsmenn á nauðsyn þess að
skýra fyrir ófélagsbundnum
verkamönnum tilgang og gildi
verkalýðssamtakanna fyrir alla
verkamenn og stéttina í heild.“
„Fundurinn skorar á alla þá
vinnuflokka á félagssvæðinu,
sem enn hafa ekki kosið sér
trúnaðarmenn, að gera það nú
þegar og tilkynna skrifstofu fé-
lagsins um 'kosninguna.“
Nýtt ágætt steinhús
til sölu með lausri íbúð. Upplýsingar gefur
GUNNAR ÞORSTEINSSON hrl.
Sími 1535.
Brot á verð-
lagsákvæðum.
Q KRIFSTOFA verðlagsstj.
tilkynnir: Nýlega hafa eft
irgreind fyrirtæki verið sektuð
fyrir brot á verðlagsákvæðum:
Bifreiðaverkstæðið Þórsham-
ar, Akureyri. Sekt og ólögleg-
ur h'agnaður kr_ 3138.57. Verk-
stæðið hafði lagt of mikið á •
selda vinnu.
Kaupfélag Patrðksfjarðar.
Sekt kr 200.00, fyrir of hátt
verð á kaffibæti o. fl.
Verzlun Samúels Pálssonar,
Bíldudal Sekt kr. 100.00. fjrrir
of hátt verð á kaffibæti.
Timburverzlunin Björk, ísa-
firði. Sektað fyrir að selja
timbur of háu verði. Sekt og
ólöglegur hagnaður riam kr.
1200,00.
Pétur Hoffmann
hefir beðið blaðið að geta þess,
að hann muni heimta fuh. mann-
gjölcl af Bandaríkjahernum fyrir,
árásina um daginn. „Það eru 100
silfurs — og vík ég ekki frá þeirri
kröfu. En ég verð að fá fræðimenn
til að reika þetta út í núgildandi
peninga. Þannig voru höfðingjai;
bættir á þjóðveldistímum ís-
lands“. Þetta sagði Pétur. „Hefði
slíkur höfðingi fallið, þá átti að
bæta hann með 300 silfurs, en ég
féll ekki“, bætti Pétur við.