Alþýðublaðið - 17.11.1943, Síða 3

Alþýðublaðið - 17.11.1943, Síða 3
Miðvikudagur 17. nóv. 1943. ÆLÞYÐUBLAÐIÐ JMrantin vestnr af Gomel rofin. Eússar bæta aðstöðu síaa við Kerch. MOSKVAFREGNIR herma, að Rússar hafi nú rofið járn- brautina, sem liggur vestur frá Gomel, og hafa Þjóðverjar mú aðeins eina leið opna til undanhalds, í norðvestur til horgar- innar Minsk. Brezkir fréttaritarar segja, að þetta sé mikið og djarflegt hernaðarafrek, sem hafi tekið langan og nákvæman undirbúning. !Er þýzka setuliðið í Gomel í mikilli liættu, og horfur á, að það verði innikróað með öllu. Frá Krít. Mynd þessi, sem tekin er úr flugvél, sýnir Kandía, eina mikilvægustu borgina á Krít. Undanfarið hafa bandamenn gert margar skæðar árásir á flugvelli og stöðvar Þjóðverja á eyjunni, en, eins og kunnugt er, hafa Þjóðverjar bækistöðvar þar fyrir flugvélar, sem fara til árása á Leros og fleiri eyjar á valdi bandamanna. lltlð 01 hardaga ð Italia. Loffárásir á Aþemuborg. -«• • — ENGAR BREYTINGAR hafa orðið á afstöðu herjanna á Suð- ur-ítalíu svo teljandi sé. Þjóðverjar hafa unnið lítið eitt á á vígstöðvum 5-hersins. Hins vegar hafa bandamenn verið at- hafnasamir í lofti og gert skæðar árásir á ýmsar stöðvar Þjóð- verja, einkum á flugvelli í Aþenu og varð mikið tjón af. Þýzkur tundurspillir varð fyrir sprengjum undan Rhodos. Rússar fóru yfir Dniepr fyrir^ sunnan Ryetchitsa og náðu á sitt vald hverri varnarstöð Þjóðverja á fætur annarri. Fóru Rússar sér að engu óðslega og undirbjuggu lokaárásina á jám brautina og stöðvar Þjóðverja þar. Þjóðverjar gerðu mörg gagnáhlaup, enda var mikið í húfi, en tókst ekki að hefta framsókn Rússa. Loks sendu Rússar fram skriðdreka og Kó- sakkasveitir og brutu viðnám Þjóðverja á bak aftur. Korosten er í mikilli hættu, sömuleiðis Berdichev, sem er sunnar á Odessa-Leningrad- brautinni. — Á Kerch halda Rússar áfram að bæta aðstöðu sína, þrátt fyrir erfitt veður- far og öfluga mótspyrnu Þjóð- verja. Flugvélar flytja her- sveitum þeirra vistir og her- gögn. í feerlínarfregnum segir, að Þjóðverjar eigi í hörðum bar- dögum norðvestur af Kremen- chug, við Cherkassy, Zhitomir, og vestur af Smolensk segjast þeir hafa hrundið áhlaupum Rússa. Þeir greina einnig frá hörðum orustum á Nevel-víg- stöðvunum. Snðrp loftárás á Ply- mouth. BRETAR skýrðu frá því í gærkveldi, að Þjóðverjar hafi gert snarpa árás á borg í suðvestur Englandi. Sprengjur féllu á íbúðarhverfi borgarinn- ar og biðu allmargir menn bana eða særðust alvarlega. í Berlínarfregnum segir, að skæð loftárás hafi verið gerð á hafnarborgina Plymouth og hafi orðið miklar skemmdir í borginni. Mun hér vera um sömu borg að ræða. CORDELL HULL: Landamæradeilur verða að bíða. T VIÐTALI við blaða- . menn í gær sagði Cordell Hull, utanríkismálaráðherra Bandaríkjanna, að allur á- greiningur um landamæri eða tilkall til landssvæða yrði að bíða til styrjaldarloka. Cordell Hull hefir sent Molo tov skeyti, þar sem hann læt- ur í ljós þá trú, að Moskva- ráðstefnan marki nýtt spor í alþ j óðaviðskiptum, og væntir þess, að áframhald verði á góðri samvinnu Bandaríkjanna óg Rússlands. Loftárás á Rjukan. T ILKYNNT var í London í gær, að flugvélar úr lofther Bandaríkjamanna á Bretlandseyjum, hefðu gert árásir á stöðvar Þjóðverja í Noregi. Arásunum var einkum beint gegn aflstöðinni miklu við Rjukan og molyhden- námunum við Knaben skammt frá Stafangri. Flug- mennirnir sáu veí skotmörk- in og urðu mikil spjöll af árásunum. 6 þýzkar flugvél- ar voru skotnar niður. Síðast fóru amerískar sprengjuflugvélar til loftárása á Noreg í júlí sl. Var sprengj- um varpað á hinar mikilvægu aluminium verksmiðjur í Her- öya svo og kafbátahöfn og mannvirki í Þrándheimi. Varð mikið tjón af árásum þessum. í kjölfar fréttarinnar um árásir á Noreg er sámað frá Stokkhólmi, að orrustuskipið Lútzow, sem áður hét Deutsch- land, sé nú statt í Norður- Noregi. Skip þetta er eitt af hinum svokölluðu vasaorrustu- skipum, um 10.000 smálestir að stærð, og vopnuð fallbyss- um, með 11 þumlunga hlaup- vídd. Áfökin um Rabaul. Y APANAR REYNA að flytja liðsauka og vistir til Rabaul. í gær sáu flugmenn í ’Catalina flugbát til japanskrar skipalestar um 18 sjómílur und an Rabaul. Tókst flugbátnum að hæfa eitt beitiskip með 500 kg. sprengju. Þá tókst einnig að koma sprengju á 10 þús. smálesta kaupfar. Þá hafa amerískar flugvélar af Liberator-gerð gert loftárás- ir á Gilbert- og Marshall-eyjar. Brezkar flugvélar hafa gert skæðar árásir á ýsmar stöðvar Japana í Burma, meðal annars járnbrautarstöð norðaustur af Rangoon, flutningabáta á Ira- waddi og olíuvinnslustöðvar. Kínverjar frá landvist- arleylij^U.S.A. Frumvarp hefir verið lagt fyrir Bandaríkjaþing, þar sem farið er fram á, að Kínverj- um verði leyfð landvist í Bandaríkjunum. Var þess get- • ið, um leið og frumvarpið var lagt fram, hve mikið Kínverj- ar hafi lagt í sölurpar í oar- áttu sinni fyrir frelsi og mannréttindum undanfarin 7 ár. Snjór og bleytur torvelda mjög hernaðaraðgerðir á Italíu og er því lítið um fréttir af vígstöðvunum þar. Eru það helzt könnunarsveitir, sem eig- ast við, en um meiriháttar bardaga er ekki að ræða. Vest- anmegin Appenninafjalla hefir Þjóðverjum borizt liðsauki og hafa þeir gert snörp gagná- hlaup, og tekizt að ná land- spildu úr höndum Bandaríkja- manna. Flugvélar bandamanna, sem hafa bækistöðvar á Ítalíu gerðu árásir á tvo flugvelli við Aþenu Meðalstórar flugvélar af Mitc- hell-gerð fóru til árása á annan flugvöllinn, en fjögurra-hreyfla Liberator-flugvélar á hinn. Var sprengjum varpað á flugskýli, ýmsar byggingar og flugvélar, sem sátu á flugvöllunum, Ljós- myndir sýna, að á öðrum flug- vellinum eyðilögðust 8 flugvél- ar Þjóðverja. Lítið var um skothríð úr loftvarnabyssum. Allar flugvélar bandamanna komu aftur til bækistöðva sinna Júgóslavneskir flugmenn tóku þátt í árásum þessum í fyrsta sinn. Þeir höfðu stundáð flug- nám í Bandaríkjunum og hlutu að gjöf nokkrar Liberator-flug- vélar hjá Bandaríkjastjórn. Loftárásir voru einnig gerðar á Maritza-flugvöllinn á Rhodos og stöðvar á Krít. Amerískar flugvélar réðust á tvo þýzka tundurspilla undan Rhodos. Heinkel-flugvélar vorti í fylgd með tundurspillunum. Tókst að koma sprengju á annan þeirra. Allar flugvélar bandamanna komu aftur til bækistöðva sinna. Margar þýzkar flugvélar hafa verið á sveimi undanfarna daga. 4 síðustu daga vikunnar sem leið sáu bandamenn 150 þýzkar flugvélar á lofti. 17 þeirra voru skotnar niður og um 12 laskaðar. Göbbels vongóöur. OSEPH GÖBBELS flutti ræðu í gær í viðurvist hermanna, sem nýkomnir eru frá fremstu víglínu á austur- vígstöðvunum. Lét Göbbels svo ummælt, að Þjóðverjar myndu halda áfram styrjöld þessari, sem hann kvað Breta hafa neytt upp á Þjóðverja, — unz sigur fengist. Taldi hann sigur Þjóðverja óhjákvæmileg an. Dietmar hershöfðingi, her- málafræðingur þýzka útvarps- ins lét svo um mælt í útvarps- erindi, að augljóst væri af hinni hægu framsókn Rússa síðustu daga, að nú væri far- ið að draga úr hernaðarlegum mætti þeirra. Þá sagði hann, að nú hefðu Þjóðverjar tryggt svo vamir sínar á ströndum Ítalíu, að ekki þyrfti að óttast frekari landgöngu banda- manna þar. Libanon-deilan. "O ORFURNAR í Libanon eru enn hinar alvarleg- ustu, að því er síðustu fregnir herma. Catroux hers- höfðingi er nú kominn til Bey- rout, og er búizt við því, að hann muni sjá um, að þeir sem handteknir hafa verið, verði látnir lausir þegar í stað. Útvarpið í Beyrout hefir skorað á kaupmenn að opna aftur sölubúðir sínar og birtir jafnframt tilkynningu þess efnis, að þeir, sem hafi orðið fyrir eignatjóni í óeirðunum undanfarna daga, skuli fá full- ar bætur. Þjóðfrelsisnefndin fíanska kom saman á fund í gærkveldi. de Gaulle átti að flytja ræðu, en nánari fregnir eru ekki fyrir hendi enn sem komið er. Talið er víst, að ræðan muni snúazt um ástandið í Libanon. Tilkynnt er, að tveir komm- únistar hafi tekið sæti í nefndinni. Á annar þeirra að fjalla um iðnaðarmál, en hinn um heilbrigðismál. SÍÐUSTU FRÉTTIR: í ræðu sinni gerði de Gaulle frekar lítið úr atburðunum í Libanon, en lýsti yfir því, að ekkert mætti koma fyrir, sem torveldaði hernaðaraðgerðir bandamanna eða stofnaði í voða yfirráðum þeirra á þess- um slóðum. Kvað hann nú vera unnið að því, að binda enda á þessi mál. Badoglio hefir nú myndað hina nýju sérfræðingastjórn, sem boðuð var nýlega. Hann er sjálfur forsætis- og utanríkis- ráðherra. Auk hans eru 7 menn í stjóminni. * * * * Gort lávþrðúr, landstjóri á Malta er nýkominn þangað aftur að afstöðnum viðræðum við Alexander hershöfðingja.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.