Alþýðublaðið - 17.11.1943, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 17.11.1943, Blaðsíða 7
M&ðvikudagur 17. nóv. 1943. aygÐUgLAgju 00000O0OOO00<>»<3>000000<^^ Næturlæknir er í LæknavarS- stofunni, sími 5030. Næturvörður er í Laugavegs- apóteki. ÚTVARPIÐ: 12.10—13.00 Hádegisútvarp. 15.30—16.00 Miðdegisútvarp. 18.30 Islenzkukennsla, 1. flokkur. 19.00 Þýzkukensla, 2. flokkur. 19.25 Þingfréttir. 19.45 Auglýsingar. 20.00 Fréttir. 20.30 Kvöldvaka: a) Frú Guðrún Pétursdóttir: Um Ólafíu Jó- hannsdóttur (f. 1863); átta- tíu ára minning. b) 21.00 Gils Guðmundsson kennari: Þáttur af Guðmundi Schev- ing. Erindi. c) 21.30 Lúðra- sveitin ,,Svanur“ leikur (stjórnandi: Árni Björnss.). Enn fremur íslenzk lög. 21.50 Fréttir. Gjafir og áheit til Barnaspítala Hringsins. Gjafir: Kr. 1000.00. frá Ó. B. kr. 500.00 frá Helgu, Nonna, Gunna og Dadda. — Áheit: kr.25.00 frá Á. B. Á. kr. 25.00 frá M. Á. kr. 5.00 frá G. Ó. Áheit á Strandarkirkju. Kr. 100.00 frá Snæfellingi. Hjónaband. í dag verða gefin saman í hjóna- band á Isafirði ungfrú Ragnheiður Viggósdóttir og Sigurbjöm Sig- tryggsson, settur gjaldkeri við úti- bú Landsbankans. Heimili ungu hjónanna er á Sólgötu 8, ísafirði. Verðlagsbrot. Nýlega hefir bifreiðaverkstæðið Mjölnir h.f., Akureyri, verið sekt- að fyrir of háa álagningu á selda vinnu. Sekt og ólöglegur hagnað- ur nam kr. 3454.11. Kvenfélag Neskirkju heldur afmælisfagnað sinn í Oddfellow-húsinu. næstk. -mánu- dag 22. nóv. Þar verður margt til skemmtunar, svo sem, sameigin- leg kaffidrykkja og dans, auk skemmtiatriða. Konur eru beðnar að taka með sér gesti og tilkynna þáttöku sína fyrir næstkomandi föstudagskvöld. Leikfélag Reykjavíkur sýnir leikritið „Ég hef komið hér áður“, annað kvöld. Aðgöngu- miðar seldir frá kl. 4 í dag. Al- þingismönum og bæjarstjórn er boðið á þessa sýningu. Leikfélag Reykjavíkur sýnir Lénharð fógeta kl. 8 í kvöld. Kirkjublaffið, 14. tbl. — Aðalgreinin í blaðinu er eftir séra Bjarna Jónsson vígslu biskup: „Svona á presturinn að Félagsllf. Guðspekiféíagið. Reykjavíkurstúkan hefir fund í kvöld, miðvikudag 17. nóvem- ber, sama staðar og venjulega. Hefst fundurinn klukkan 8.30 síðdegis. Ræðumenn: Formaður stúkunnar, varaformaður, fv. formaður og deildarforseti. — Gestir velkomnir. Fræðslu- fundurinn, sem vera átti í kvöld, færist á föstudag, 19. nóvember. Stúkustjórnin. ’TÍUCfMÍNGAR Freyjufundur í kvÖld kl. 9 (ekki kl. 8,30), í G.T.-húsinu uppi. Inntaka ný- liða. Gísli Olsen: Sjálfvalið efni ÍFramhaldssagan. Fjölmennið stundvíslega kl. 9. Æðstitemplar. Atvinnumálin í Hafnarfirði. Frh. af 2. síðu. fjarðar, verði framkvæmdar á þessum vetri. 4. Haldið verði áfram fram- kvæmd hafnargerðarinnar og verði hópur þeirra verkamanna sem var vinna stækkaður.“ Greinargerð fylgdi þessari á- lyktun og segir m. a. í útdrætti: Góðæri það sem verið hefir að undanförnu varðandi at- vinnu hafnfirzkra verkamanna er nú sjáanlega að þverra, fleiri og fleiri verkamönnum er nú sagt upp vinnu og er nú svo komið að fullvíst er að 50— 60 verkamenn hafa enga at- vinnu og líkur eru til að fleiri muni á næstunnii bætast við í hóp atvinnulausra. Þótt flestir þessara manna hafi verið í sæmilegri atvinnu að undanförnu, þá hafa tekjur þeirra eigi verið hærri en svo að vart hefir gert meir en hökkva fyrir brýnustu nauð- synjum. Þess vegna segir það sig sjálft að í þeirri dýrtíð sem nú er, muni fljótt sverfa að þeim sem enga atvinnu hafa og eng- ar birgðir hafa til að ganga á. Að þessu athuguðu og svo því að Hafnarfjarðarbær mun vera eitt bezt stæða bæjarfélagið á landinu, virðist vera mjög sanngjarnt að bærinn sjái hin- um atvinnulausu fyrir vinnu við þau verkefni, sem bíða úr- lausnar og eru nokkur þeirra þessi: Bygging bátabryggju hefir lengi verið viðurkend nauðsyn- leg hér í bænum og undirstaða að frekari vélbátagerð enda hafa ráðamenn bæjarins marg- haft á orði við ýmis tækifæri að bátabryggja skuli byggð. íþróttasvæði og barnaleik- velli hefir lengi vantað hér. íþróttamenn bæjarins hafa krafizt þess að eini staðurinn sem kemur til greina, sem slíkur, en það eru Víðistaðirn- ir, verði keyptir og gerðir að íþóttasvæði og mörg félög sem starfa í þessum bæ hafa kraf- izt þess að byggðir væri barna- leikvellir. Bygging íþrótta- svæðis og barnaleikvalla er sérstaklega heppileg til að ráða bóta á því vandamáli, sem skapast hefir af atvinnuleysi unglinga. Endurbætur á vatnsveitu Hafnarfjarðar er mál sem ekki þarf að fjölyrða um, svo er öll- um orðin augljós þörfin á henni, þar sem heil bæjarhverfi eru vatnslaus mikinn hluta sól- arhringsins. Áfrajmhald hafnargerðarinn- ar er eitt mesta nauðsynjamál þessa bæjarfélags sem á alla tilveru $ína undir sjávarútvegn um, því virðist fyllsta þörf á því að verkinu verði hraðað svo sem verða má. Hver einstök framkvæmd af þeim sem hér eru nefndar ætti að verða til þess að bærinn verði að auka við þá tölu verka manna er nú vinna hjá honum; og framkvwmd þeirra allra, í einu, þýðir það að vofu atvinnu leysisins verði bægt frá bæjar- dyrum hafnfirzkra verkamanna að minnsta kosti þennan vetur. Minning up Jón Hjariarson Dáinn 26. október 1943 EIT'T eilífðar augnablik ævin vor er, sem áður en varir er liðið. Dauðans þá óðfluga elding að ber, aðeins eitt fyrir hans afli oss ver í auðmýkt sé vakað og beðið. Kristur er biðjendum vígi og vörn; verum því örugg og trúum. Hann annast og geymir sín ein- lægu börn, því enn er hans trúfesti misk- unnargjörn, ef til hans af hjarta vér snúum. Réttu nú, Jesúj fram huggandi hönd, og hvarmana tárvota þerrðu; teng aftur saman vor sundur- leyst bönd. Þar alsæl með englum oss gerðu. Þökk fyrir samstarf á lokinni leið, ljúfar skal minningar geyma. Meðan sól ljómar á himninum heið, höldum við áfram, oss ákveðið skeið, unz finnumst á himni Guðs heima. G. P. Skarlstssótt á fæðinnar- deild Landspitalans. SKARLATSSÓTT hefir kom ið upp á * fæðingardeild Landsspítalans. Ljósmæðra- nemar háfa tekið Veikina, svo og konur, er í deildinni lágu. Gert er ráð fyrir, að ekki verði hjáþ,ví komizt að loka fæðingardeiidinni. Óhagstæður verzlunar jöfnuður um 10.2 míiíj;, kr. í október. SAMKVÆMT bráðabirgða- yfirliti Hagstofunnar varð verlunarjöfnuðurinn óhagstæð- ur í okt. um 10.6 millj. kr. Nam innflutningurinn 28.2 millj. kr., en útflutningurinn að eins 17.6 millj. kr. Heildartölur þess, sem af er árinu, janúar—október, eru þess ar: Innflutn. 207,1 millj. kr., — útflutn. 191,8 millj. og er verzl- unarjöfnuður ársins skv. því óhagstæður um 15,3 millj. kr. Vlðreisnar- og hjálpar- starfsemin. Framhald af 2. síðu gripum sínum, þá ben-dir allt til þess að Danmörk geti tekið þátt í hj álparstarfseminni eftir stríðið, með því að auka fram- leiðslu mjólkurbúa og annarra matvælabóla. Vér vonumst einnig til þess að geta tekið þátt í hjálpar- starfseminni á annan hátt. Þó að mestur hluti kaupskipaflota Danmerkur hafi tapast í þjón- ustunni við málstað hinna sam- einuðu þjóða, þá getum við samt aðstoðað við flutning mat- væla og hráefna til annarra landa. Viðreisnarstarfsemin verður fyrst og frémst starf Evrópu- ,lan(danna sjálfra. Þessi starf- semi útbeimtir hina traustustu samvinnu, ekki aðeins mill Ev- rópuþjóðanna allra sem heild, heldur einnlg milli skyldra þjóða, eins og Norðurlandaþjóð- | anna. í Stefna Dana, hvað viðkemur ; alheimssamvinnu, er skýr og •. eindregin. Ég er fullviss um, að Danir munu verða reiðubúnir til þess að taka þátt í öllum helztu áætlunum, sem aðrar þjóðir geta komið sér saman um. Vér erum reiðubúnir, trl þess að leggja okkur alla fram, til þess aðstoða við uppbyggingu betri heims. Til þess að ná þessu takmarki eru Dánir reiðubúhir, Jarðarför mannsins míns og föður okkar, Eiríks Guðjónssonar, skósmiðs fer fram frá heimili hans, Hverfisgötu 98 A föstudaginn 19. þ. m. klukkan 1 eftir hádegi. Jarðað verður frá fríkirkgunni og jarð- sett í Fossvogskirkjugarði. Vilborg Sigurðardóttir. Sólberg Eiríksson. Sigríður Eiríksdóttir. Runólfur Eiríksson. Jarðarför É ás f SigurÓar Kristjánssonar, frá Vatnsholti í Grímsnesi, sem andaðist 7. þ. m. fer fram fimmtudaginn 18. þ. m. frá Báru- götu 32 klukkan 1 eftir hádegi. Þeir, sem vildu gefa blóm, eru heldur beðnir að láta and- virði þeirra ganga til barna hins látna. Athöfninni verður útvarpað. Fyrir hönd konu hans og barna. r Kristján Sæmundssom HJppkveik|a. Næstu daga verða seldir í Nýborg tómir kassar á krónu stykkið. Talið góð kaup til uppkveikju. Áfenglsverzlun ríkisins. s s i s s V s s A’, s s s s kmenntafélag gefnr ristileoar bæknr. l»i*|ár feæ&iss* lioma fyrii0 |ól! 1VT OKKKIR áhugamenn um kirkjuleg málefni hafa stofnað með sér nýtt bókaforlag, sem ætlað er ein- göngu að gefa út bækur kristilegs efnis, fræðibækur, sagnfræðirit og skáldsögur. Þetta nýja bókaútgáfufélag heitir: „Lilju-samtökm.“ Séra Sigurbjörn Einarsson skýrði þannig frá í samtali við Alþýðublaðið í gær. „Það eru aðallega nokkrir ungir menn, sem hafa áhuga fyrir kristilegum og kirkjuleg- um málum, se mhafa bundizt samtökum í þessu skyni. Hafa þeir lagt fram nokkrar þúsund- ir króna með frjálsum samskot- um, sem stofnfé útgáfufélags- ins. — Við völdum Lilju-nafnið vegna þess að Lilja Eysteins Ásgrímssonar var eitt fyrsta kristilega bókmenntastórvirkið, sem samið var hér á landi — og allir vildu Lilju kveðið hafa. Tilgangurinn með þessari starfsemi okkar er sá að fylla óskipað rúm í íslenzkri bóka- útgáfustarfsemi Það er lítið gefið út af kristilegum bók- menntum -— og við höfum þrá- faldlega orðið varir við erfið- leika fólks, sem hefir viljað gefa vini sínum ungum bók í fermingargjöf eða jólagjöf. En auk þess kemur til sannfæring okkar um það, að nauðsyn sé á að glæða trúarlíf. og trúar- þroska.“ til þess að hlýða hvaða takmörk- unum, sem fram kunna að koma og færa allar þær fórnir, sem með þarí.“ — Hvað ætlið þið að gefa út nú á næstunni? Þrjár bækur koma frá Lilju. Sú fyrsta er Prédíkanir séra Friðriks Friðrikssonar. Þessi bók kom út á dönsku fyrsta ár- ið, sem Danmörk vayíjiernumin, 1940, og bárust hingað tvö ein- tök af bókinni. Magnús Runólfs son cand. theol hefir þýtt bók- iha á íslenzku. Þá kemur út skáldsagan „Með tvær hendur tómar,“ eftir norska skáldið Ronald Fangen, sem lengi hefir setið í fangelsum Þjóðverj-a. Þessi skáldsaga kom fyrst út 1936 og hét á norskunni ,,Pá bar bunn“ og vakti hún geysi- lega athygli um öll Norður- lönd. Þessa sögu hefir Theódór Árnason þýtt. Þriðja bókin er æfisaga Hans Nielsen Hauges í skáldsöguformi. Hefir Ástráður Sigurðsteindórsson þýtt þá bók. Hauge var, eins og kunnugt er einn mesti prédikari, sem uppi hefir verð á Norðuríöndum og vakti hann til lífs, ekki að- eins trúarlega siðabót meðal horsku þjóðarinnar, heldur margvísl. felsishreyfingar, sem margir telja að hafi lagt grund- völlinn fyrir hinu nýja menn- ingarlífi í Noregi. Við viljum vanda til útgáfu okkar, eins vel og við höfum vit á — og svo verður tíminn að leiða í ljós hvernig okkur tekst það. Ægir, 10. tbl. kom út í gær. Efni þesa er meðal annars þetta: Markaðir og vöruvöndun, Sjóvátrygginga- félag íslands 25 ára, Skipstjóra- og stýrimannafélag íslands 50 ára, og ýmiss konar fróðleikur og skýrsL ur. Margar myndir prýða heftiS.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.