Alþýðublaðið - 21.12.1943, Page 2
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Þriðjudagur 21. des. 1943
IraAskilnaðarfEðkkarnir
stofna með sér nefni
Á hún „að kæfa þennan hljómu, sem
hefir farið svo í taugarnar á þeim?
HRAÐSKILNAÐARFLOKKABNIR, Sjálfstæðisflokkur-
inn, Framsóknarflokkurinn og Komúnistaflokkurinn,
hafa nú stofnað með sér sameiginlega nefnd til þess, að því
er sagt er, að j,undirbúa“ skilnaðartnálið undir næsta þing.
Hafa auk þriggja fulltrúa af hálfu hvers flokks, tveir full-
trúar ríkisstjórnarinnar tekið sæti í henni.
f nefndinni eiga sæti fyrir Sjálfstæðisflokkinn: Bjarni
Benediktsson, Gísli Sveinsson og Ólafur Thors; fyrir Fram-
sóknarflokkinn: Hermann Jónásson, Hilmar Stefánsson og
Jónas Jónsson; fyrir Kommúnistaflokkinn: Áki Jakobsson,
Brynjólfur Bjarnason og Einar Olgeirsson; og af hálfu ríkis-
stjórnarinnar: Björn Ólafsson og Einar Arnórsson.
Formaður nefndarinnar er Gísli Sveinsson; en auk for-
manns hefir hún kosið sér sérstaka framkvæmdarnefnd og
skipa hana Bjarni Benedikfsson, Einar Oigeirsson og Hilmar
Stefánsson.
Frá þessari nefndarskipun var skýrt í ríkisútvarpinu í
gær, en engin tilkynning hafði Alþýðublaðinu borizt um hana
í gærkvöldi. Ekkert var í útvarpinu frá því skýrt, í hverju
sá undirbúningur skilnaðarmálsins, sem henni er ætlað að
hafa með höndum, ætti að vera íalinn, en heyrst hefir þó,
að nú eigi að gera gangskör „að kæfa þennan hljóm“, sem
svo mjög hefir farið í taugarnar á hraðskiínaðarliðinu undan-
farið, og að hin nýskipaða nefnd telji það ekki hvað sízt hlut-
verk sitt, að vaka yfir útvarpinu og blöðunum í því skyni.
Bakarameisfarar
æfla aS reisa stórt
brauðgerðarhús
Aðaliega fil að haka
svoköiiaið gréfbrauö
Eldingu lýstur niSur í
íbúðarhús á Brokey
á Breiðafirði
IVSyna^i minnstu að
kviknaöi i húsinu
Bakarameistarafé-
LAGIÐ mun áður en
langt um líður, reisa alhherj-
arbrauðgerðarhús fyrir gróf
brauð eins og rúgbrauð óg
önnur slík.
Hefir Bakarameistaraíélagið
fengið til umráða lóð í Ilauðar-
árhverfinu, skammt frá húsi
Sjóklæðagerðar íslands. Ér lóð-
in 2800 fermetrar að stærð, og
er ráðgert að reisa þar mikla
býggingu.
Gert er ráð fyrir að byrjað
verði á byggingu þessari strax
á komandi ári. Mun verða
stofnað hlutafélag meðal bak-
arameistaranna til þess að
hrinda máli þessu í fram-
kvæmd.
30 flöskum af víni
stoiið aðfaranótt
sunnudags
Og 26 ávaxfadósum
A ÐFARANÓTT sunnu-
dags var bír.efinn þjófn
aður og innbrot framið í húsi,
sem stendur að haki lngolfs-
apóteki.
í kjallara hússins voru
geymdar 30 flöskur af ýmsurn
tegundum af víni: sherry, port-
vín, rauðvín, vermouth og
kampavín, og var öliu þessu
stolið. Enn fremur var stolið
26 ávaxtadósum.
HINN 15. þ. m. klukkan .7
síðdegis gerðist sá atburð
ur, að eldingu laust niður í í-
búðarhús á Brokey á Breiða-
firði. Eyðilagðist viðtæki, sem
eldingunni laust í, gersamlega,
og munaði minnstu að kviknaði
í húsinu.
Enginn var staddur í her-
berginu, þegar atburður þessi
skeði, en spjöll urðu mikil.
þegar viðtækið eyðilagðist. Var
herbergið veggfóðrað, og mátti
því merkilegt heita, að eldur
skyldi ekki verða þar laus.
Drengur verður
fyrir voðaskoii
O YRIR NOKKRUM DÖG-
UM voru þrír drengir að
Vogum við Mývatn að leika sér
með byssu fyrir utan túngarð,
og var hún hlaðin. Allt í einu
hljóp skot úr byssunni og í einn
drengjanna, Pétur Jónasson,
sem er 14 ára að aldri, og særð-
ist hann hættulega.
Var þegar hringt til læknis
að Breiðumýri, og kom hann
eins fljótt og auðið var og bjó
um sár drengsins. Var drengur-
inn síðan fluttur í sjúkrahús á
Akureyri og liggur hann þar.
Lögreglan biður þá, sem
kunna að hafa orðið varir við
grunsamlega mannaferð aðfara
nótt sunnudags við Ingólfsapó-
tek, að láta hana vita.
Merkur bókmenntaviðburður:
LjósprentuO útgáfa á hinnm frægu
írbóknm Espólíns er m hafin.
IFj/reta deltdira koaie M i da§f með
formála eftir Án*na préf. Páisson.
AÐ MÁ TELJAST einn merkasti bókmennta viðburður,
** sem gerzt hefir á þessu ári að hafin er útgáfa á Árbókum
Espólins, þessa stórmerka heimildarrits. Er ritið ljósprentað
í Lithóprent, erl það hefir áður hafið ljósprentaða útgáfu á
Fjölni.
Hjónaband.
16. október síðastliðinn voru
gefin saman í hjónaband í Kaup-
mannahöfn Jóhann Kr. Jónsson
(Jóhannssonar skipstjóra Stýri-
mannastíg 6) garðyrkjunámsmað-'
við Landbúnaðarháskólann — og
Birta Sörensen, dóttir Frode Sör-
ensens lektors við sama skóla.
Hjónaefni.
Nýlega opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Áróra Helgadóttir, Laufás-
vegi 58 og Jóhannes Árnason sjó-
maður, Bragagötu 33 a.
Fyrsta deild Árbókanna kem^
ur í bókábúðirmar í dag. Er
þessi deild 182 blaðsíður að
stærð, með formála eftir Árna
prófessor Pálsson, og' er hann
34 blaðsíður. Gerir prófessor-
inn í formála sínum grein fyrir
ævi og starfi Jóns Espólíns
sýslumanns á mjög skilmerki-
legan hátt.
í»essi fyrsta deild Arbókanna
var gefin út í Kaupmannahöfn
árið 1821 og íylgir henni for-
máli, bæði á íslenzku og
dönsku, en síðan hefst hið eig-
inlega rit og segir frá viðburð-
um allt frá árinu 1262 og til
ársins 1405.
Árbækurnar verða 12 deildir
alls, og verða þær geínar út í
7 bindum. Er mjög vel gengið
frá þessari fyrstu deild af hendi
útgefanda.
Alþýðublaðið spurði Einar
Þorgrímsson forstjóra Litlio-
prents að því í gær, hva'ða
verð yrði á þessu riti, en hann
gat ekki svarað því, þar sem
hann beið eftir úrskurði verð-
lagsstjóra um það efni.
— Hvernig hefir þessi út-
gáfustarfsemi yðar gengið?
,,Ég get ekki annað en verið
ánægður með undirtektir þjóð-
arinnar. Fræðimenn og þjóðin
öll hefir tekið Fjölnis-útgáf-
unni tvéimu'r höndum og ég
,vona, að sú verði einnig raunin
,um útgáfu Árbóka Espólíns.
Annars er aðstaða okkar mjög
erfið við ljósprentunina. Okkur
vantar vélar af fullkomnustu
gerð og ýmis tæki. Þetta hefir
verið keypt í Ameríku — og
ég ætlaði utan fyrir nokkru, en
komst ekki. Ég hefi í hyggju
að halda áfram ljósprentunar-
útgáfum á ýmsum merkum rit-
um og mér virðisí að þjóðin
hafi mikla löngun til að fá þessi
rit í hendurnar í sínum upp-
runalega búningi.“
— Viljið þér segja nokkuð
sérstakt ! um útgafu Árbók-
anna?
„F.kki annað en það, að þessi
útgáfa okkar, (íyrsta deildin)
er ljósprentuð eftir emtaki
Sigurðar kaupmannS Sveinsson
ar hér í oænum, en )iæstu 11
deildirnar verða gefnar út eftir
eintaki, er Espólín sjálfur átti,
en síðar komst í eigu Stefáns
skólameistara — og er nú í eigu
Valtýs ritstjóra, sonar hans.
Eru skrifaðar athugasemdir
Espólíns sjálfs á spássiunar —
og fylgja þær að sjálfsögðu í
hinni ljósprentuðu útgáfu.“
Það ber að fagna því að þetta
merka rit kemst nú í hendur al-
mennings.
JólablaÖ AiþýSublaðs-
ins kenrar á morgun
Stórt og vaaidað með
. fjjölda greina eg
sagna
ÓLABLAÐ Alþýðublaðs-
ins kemur út á morgun,
og verður selt á götunum þann
dag. Hins vegar verður það bor-
ið heim til kaupenda snemma
á aðfangadagsmorgun.
Blaðið er mjög vandað, og
er það að þessu sinni 64 síður.
Á forsíðu þess er fögur vetrar-
mynd af snæviþöktu fjalli, en
þar stendur skíðamaður með
skíði sín. Lesmál blaðsins hefst
á grein eftir séra Sigurbjörn
Einarsson, er hann nefnir:
„Heilög nótt.‘.‘ Næst er brot úr
kvæði séra Einars Sigurðssonar
frá Eydölum: „Kvæði af stall-
inum Kristí, er nefnist vöggu-
kvæði.“ Þá er falleg sjómanna-
saga, sem nefnist: „Jól kyndar-
ans“, eftir Adolf Krey. Gils
Guðmundsson kennari ritar
bráðskemmtilega grein um
Bjarna riddara Sívertsen og
fylgja henni nokkrar myndir.
Finnur Jónsson alþingismaður,
skrifar um Hornstrandir og eru
birtar margar myndir frá þess-
um útkjálka. Jóhann Sveinsson
magister ritar mjög fróðlega
grein um alþýðuskáldið Þórð á
Strjúgi, og eru birtar nokkrar
stökur hans. „Til móður minn-
ar“ heitir gullfallegt kvæði
eftir Helga S^smundsson, blaða
mann. Þá skrifar Thorolf Smith
blaðámaður um Tahiti —
sælustað á jörð, en hann hef-
IBœrinn í
®<*<&<»<>0<><3><3><&O<><>3<O0OO<3K3KX5<3X3XX2
Næturlæknir er í nótt í Lækna-
varðstofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Lyfjabúðinni
Iðunni.
ÚTVARPIÐ:
20.00 Fréttir. Jólakveðjum frá
Danmörku verður endur-
varpað kl. 20.00 — og breyt
ist dagskráin' samkvæmt
því.
20.20, Tónleikar Tónlistarskólans:
Strengjasveit leikur undlir
stjórn dr. Urbantschitsch: a)
Hádel: Hirðingjasöngur úr
,,Messías“. b) Corelli: Jóla-
konsert í g-moll.
20.45 Erindi: IndverSk trúarbrögð
Yfirlit (Sigurbjörn Einars-
son prestur).
Drengjablaðið „Úti“
kom út um síðustu helgi og er,
eins og jafnan áður, mjög vandað
að frágangi. Helzta efni blaðsins
er þetta: Pálmi Hannesson rektor
skrifar um Bláskógá, örnefni og-
athuganir. Agnar Kofoed-Hansen,
lögreglustjóri, um einkaflug í fram
tíðinni. Halldór Jónsson ritstj.
skrifar um ung sjómannaefni og
nefnist grein hans: „Út vil ég á
æginn blá.“ Þá skrifar Gísli
Gestsson bankafulltrúi um ljós-
myndavélina og notkun hennar.
Auk þessa efnis birtast tvær góðar
sögur í blaðinu og fjöldi mynda,
m. a. frá tjaldbúðum á Langjökli.
,,,Úti“ er prentað á myndapappír,
er 42 síður að stærð og er selt á
4.00 kr. Ritstjóri er Jón Oddgeir
Jónsson.
Blaðasölubörn,
sem ætla að selja drengjablaðið
„Úti“ í dag (þriðjudag) eru beðin
að mæta við afgreiðslu Morgun-
blaðsins kl. 2 e. h. Óvenjugóð
sölulaun eru greidd, eða ein króna
fyrír hvert blað.
ir heimsótt þann staS fyrir
nokkrum árum. Bræðurnir er
smásaga, eftir norska skáldið
Arnulf Överland, sem nú dvel-
ur í fangabúðum Þjóðverja.
Benjamín Sigvaldason þjóð-
sagnaritari skrifar þátt um
„Hlaupa-Manga“, sem hann
kallar: „Við verðum að bjarga
manninum.“ Enn fremur tvær
þýddar smásögur, Asarhadon
konungur í Assýríu, eftir Leo
Tolstoy, og Friður á jörðu eftir
Jörgen Rosendal. Þá er í blað-
inu skák og smælki. Blaðið
verður selt á götunum á morg-
un og fá börnin 10 verðlaun
fyrir hæstu sölu, auk ágætra
sölulauna.
Garðyrkjuráðunaufur
Bæjarráð hefir ákveðið að ráða í þjónustu bæjar-
ins frá vori komanda garðyrkjuráðunaut, sem m.
a. geti leiðbeint beejarbúum um gróðurhúsa-
ræktun.
Árslaun eru kr. 4800,00, auk verðlagsuppbótar og
kaupuppbótar, samsvarandi því, er öðrum starfs-
mönnum bæjarins verður greitt.
Umsóknarfrestur er til 15. janúar 1944 og tekur
skrifstofa mín við umsóknum.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 20. desember 1943.
Bjarni Benediktsson
Eikarskrif borð
fyrirliggjandi.
T résmíða vi n nustofan
Mjölnisvegi 14.
Sími 2896.