Alþýðublaðið - 21.12.1943, Page 3
ALÞYÐUBLAÐIÐ
a
lissar hefja stérséki við
Hevel á 80 km. breiðo svæði
20 þús. Pjöðverjar féilu Í5 dagaorrustum
FRÁ RÚSSLANDI berast þær fregnir, að Rússar hafi byrjað
nýja stórsókn á Nevel-svæðinu. Sækja Rússar fram á 80 km.
breiðu svæði og hafa á sumum stöðum hrakið Þjóðverja um 30
km. vestur á bóginn. Þjóðverjar hafa yfirgefið Kherson við mynni
Dniepr-fljót.
Þriðjudagur 21. des. 1943
Claustrophobia.
LMANNARÓMUR SEGIR,
að fyrir nokkrum mánuð-
um hafi maður nokkur hér í
i bæ verið dæmdur í tíu daga
varðhald fyrir að aka bifreið
undir áhrifum áfengis. En
manni þessum gazt ekki að
tilhugsuninni um fangelsis-
vist, þótt hún sé ekki ýkja
ströng, að því er kunnugir
segja. Hann lagði fram vott-
orð um það, að hann þyldi
ekki að vera lokaður inni.
Mun hann hafa þjáðzt af því,
sem á læknamáli heiir claus-
trophobia, sem ef til vill
mætti nefna innilokunar-
geggjun. Ekki er vitað, hvort
vottorðið kom að notum, né
hvort sagan er sönn, enda
skiptir hún ekki máli. En það
eru fleiri en maðurinn í þess-
ari sögu, sem þjást af þess-
ari undarlegu veiki. Fullyrt
er, að hinn kunni loddari
Benito Mussolini, fyrrver-
andi duce og einvaldur á ít-
alíu og núverandi Gauleiter
í þriðja ríkinu, hafi einnig
verið haldinn þessari brjál-
semi, svo landi okkar er í
fínum félagsskap og þarf
ekki að skammast sín þess
vegna.
HINN SKRINGILEGI arftaki
Cæsars mun um eitt skeið
hafa setið í fangelsi. Það var
í þann mund, er mark var
takandi á orðum. hans og
hann átti hugsjónir, en það
er svo langt síðan, og hann
hefir verið viðriðinn svo
mörg fólskuverk síðan það
gerðist, að hula gleymskunn-
ar hefir sveipazt því, sem
hann kann að hafa áorkað til
þess að skapa betri og rétt-
látari heim.
SKRIFSTOFA MUSSOLINI
mun hafa verið einhver sú
stærsta í heimi, tugir metra
á lengd, há til lofts og víð til
veggja. Þar var eitt stórt
skrifborð í öðrum enda, and-
spænis dyrum, en lítið um
annan húsbúnað. Þetta var
sem sé eins koriar mótvægi,
sálfræðilega séð, við þröngan
fangaklefann, sem eitt sinn
geymdi hinn hlægilega mann.
ÞARNA SAT HANN ár eftir
ár og lét blaðamenn og er-
lenda fulltrúa labba þessa
óraleið, frá dyrunum og að
skrifborðinu. Það var eins
konar Canossa-ganga, módel
20. aldarinnar. Þarna kom
fuUitrúi Bretlands, Frakk
lands og margra annarra
landa, til þess að fá að líta
augum þetta andlega ofur-
menni, hinn sterká mann,
sem ógnaði friðinum í álf-
unni með 8 milljónum byssu-
stingia, að sögn hans sjálfs.
Mussolini hafði mjög gaman
af ýmsum leikaraskap, svo
sem títt er um einvalda.
Stundum lézt hann vera
öskuvondur, blés sig allan út,
blánaði í framan og meira
að segja stóð upp og stapp-
aði niður fætinum. og öskraði
meiningarlausar setningar.
Eða þá hann setti upp ein-
! hvern leyndardómsfullan,
dreymandi svip, studdi hönd
undir kinn og horfði dulráð-
um augum út í einhvem óra-
fjarska. Þá átti hann líka til
að látast véra hugsuður, og
máttu Schopenhauer, Hegel
og Kant öfunda hann af því,
hversu vel honum tókst
þetta, enda mátti í sumum
blöðum og timaritum lesa
langhunda um skarpskyggni
Mussolini, fjarhygli Musso-
lini, heiðarleik Mussolini og
mannúð Mussolini.
BENITO MUSSOLINI er í
ýmsu lærifaðir Hitlers, og
má segja, að það sanni að
nokkru leyti öfugmælið um,
að eggið kenni hænunni. Hin
fáránlega kveðja (rómverska
kveðjan) svartstakka Musso-
lini varð strax að fornger-
manskri kveðju, þegar hún
hafði verið flutt norður yfir
Alpana og meira að segja hý-
enan í norðri, Vidkun Quisl-
ing, þurfti að láta óþjóðalýð
sinn taka hana upp og þá var
hún orðin forn-norræn. —
Skrautlegir einkennisbúning-
ar voru einkar handhægir til
þess að skapa hina réttu
stemningu meðal fáfróðs al-
mennings. Engir þóttu eins
glæsilegir og ítalskir liðsfor-
ingjar, — á friðartímum. En
einkennisbúningarnir komu
ekki að haldi, þegar tötraleg-
ir hermenn Grikklands ráku
afkomendur Scipios öfuga út
úr landi sínu.
EN SVÖ VIKIÐ SÉ aftur að
innilokunargeggjuninni. Þeir
eru orðnir margir nú, sem
ætla má að hafi tekið þessa
sýki. Mussolini var ekki
seinn á sér að koma andstæð-
ingum sínum fyrir á örugg-
um stöðum, svo sem á hinum
illræmdu Líparí-eyjum. —
Þarna voru menn hafðir í
haldi svo árum skipti, fyrir
engar sakir. Pyntingar, and-
legar og líkamlegar, voru al-
gengir hlutir, og skósveinar
Mussolini þóttu slyngir til
slíkra starfa, þótt þeir öðluð-
ust aldrei slíka leikni sem
handbendi Himmlers hins
þýzka, en þar varð kvala-
starfsemin að vísindum, sem
lögð var alúð og natni við, að
þýzkum sið.
NÚ HAFA fangabúðirnar á
Líparí-eyjum verið opnaðar
og þeir, sem þar kvöldust,
draga nú aftur að sér andann
sem frjálsir menn. En hvort
öll þessi döpru fangelsisár
hafa ekki markað spor sín í
sál þessa fólks, þaðær önnur
saga. Hjól tímans verður
ekki stöðvað. Þeir, sem áður
vörpuðu saklausum í dýfliss-
ur, munu uppskera eins og
þeir sáðu.
Undanfarna daga hafa Þjóð-
verjar greint frá hörðum árás-
um Rússa við Nevel, en ekkert
hefir verið látið uppi í Moskva
um viðureignir þessar fyrr en
í gær. Tefla Rússar fram miklu
liði, þar á meðal hersveitum frá
Síberíu. Stefna þeir hersveitum
sínum til járnbrautarmiðstöðv-
arinnar Polotsk, um 30 km. frá
landamærum Lettlands. Rússar
hafa náð á Vald sitt um 500
þorpum og byggðum bólum í
þessari nýju sókn og fellt um
Voru þetta flugvélar af Messer-
schmitt- og Focke-Wulfgerð.
Bandamenn skutu niður 37
þeirra og ef til vill 22 að auki,
en misstu sjálfir 11 sprengju-
flu.gvélar. Flugvélar band'a-
manna nutu fylgdar Lightning-
orrustuflugvéla. Síðast var
gerð árás á Augsburg í apríl
s.l. og voru það Lancaster-flug-
vélar frá Bretlandi, sem árásina
gerðu.
í fregnum frá London á mið-
nætti í nótt var sagt, að amerísk-
ar flugvélar frá Bretlandi hefðu
ráðizt á Bremen og valdið miklu
tjóni. Örrustuflugvélar voru
sprengjuflugvélunum til vernd-
ar. Kom til harðra átaka við
þýzkar flugvélar. Alls misstu
Þjóðverjar 5Ö flugvélar í gær,
en bandamenn 33. Þá var greint
frá því, að loftárás hefði enn
verið gerð á Sofia, höfuðborg
Búlgaríu.
20.000 Þjóðverja í fimm daga
orrustum. Um 2000 Þjóðverjar
voru teknir höndum, en geysi-
mikið herfang féll Rússum í
hendur, þar á meðal 106 skrið-
drekar og miklar matvæla- og
skotfærabirgðir.
Herstjórn Rússa skýrir einn-
ig frá því, að 4 þýzkum her-
fylkjum, samtals um 60 000
mönnum hafi verið stökkt á
flótta.
iTALfAl
Orsopa og San Pietro
á vaidi bandamanna
A ÍTALÍUVÍGSTÖÐVUNUM
eru bandamenn í sókn,
bæði 5 og 8. herinn. Útvarpið
í Algier greinir frá því, að 8.
herinn hafi tekið Orsogna, sem
var mikilvægur liður í varnar-
belti Þjóðverja. Þá er þorpið
Consalvi í höndum 8. hersins,
sem. sækir fram, þrátt fyrir
hÖrð gagnáhlaup Þjóðverja.
5. herinn hefir einnig sótt
fram og tekið bæinn San Pi-
etro. Stefnir herinn nú í áttina
til San Vittore. Amerískar her
sveitir hafa tekið bæinn Ag-
none, sem er vestur af Filign-
ano-svæðinu.
Harðar iofiðrásir banda-
maana á Snöur-Þýzkaland.
■ »-----
Flpgvélar frá Afrfkn ráöast ú
Aisgskárg ©n Innsbrnek.
BANDAMENN hafa nú byrjað loftsókn að nýju á hendur Þjóð-
verjum. í fyrradag fór mikill f jöldi fjögurra hreyfla sprengju
flugvéla til árása á Innsbruck í Austurríki og Augsburg í Suður-
Þýzkalandi. Voru það amerískar flugvélar, sem þar voru að verki.
í gær réðust brezkar flugvélar á stöðvar Þjóðverja í Norðvestur-
Þýzkalandi og Norður-Frakklandi. Þjóðverjar sendu margar orr-
ustuflugvélar til móts við flugvélar bandamanna, en fengu ekki
að gert.
Það voru Liberator-flugvél-
ar, sem hafa bækistöð í Norð-
ur-Afríku, sem réðust á Augs-
burg, sem er mjög þýðingar-
mikil iðnaðarborð í Bayern.
Þar eru miklar efna verksmiðj-
u, og þar eru smíðaðir kafbáta-
hreyflar og ýmisleg tæki til
kafbáta. Augsburg er fyrsta
borgin í Þýzkalandi sjálfu, sem
verður fyrir loftárás flugvéla
frá Afríku. Samtímis þessari
árás fóru mörg flugvirki, einnig
frá Afríku, til árása á Inns-
bruck, sem er skammt norður
af Brenner-skarði. Innsbruck
er mjög mikilvæg samgöngu-
miðstöð og um borgina flytja
Þjóðverjar hermenn og birgðir
til vígstöðvanna á Ítalíu.
Þjóðverjar tefldu fram um
100 orrustuflugvélum til þess
að hrekja flugvélar banda-
manna á brott, en árangurlaust.