Alþýðublaðið - 21.12.1943, Qupperneq 5
l>riðjudagur 21. des. 1943
ALÞYÐUBLAÐIÐ
«
*
Bækur og rithöfundar.
Duff Cooper: Talleyrand.
Útg. Finnur Einarsson, Rvík
1943.
ASÍÐARI ÁRUM hefir ævi-
söguritun færzt mjög í
yöxt og fulikomnazt, svo að
kalla má, að hún sé orðin sér-
;stök bókmenntagrein. Nokkrar
þessara nýju ævisagna hafa
verið þýddar á íslenzku hin
síðustu ár, og eru þær allar hin
prýðilegustu rit, en þó þykir
mér þessi stórum bezt allra
þeirra, er ég hefi lesið, og veld-
ur því bæði list höfundarins og
sögupersónan sjálf.
Höfundurinn. Duff Cooper,
stendur framarlega í stjórnmál-
um Breta, og var útbreioslumála
ráðherra í öndverðri þessari
styrjöld. En hann er auk þess
— eða jafnframt — gagnmennt
aður maður og rithöfundur
forkunnarsnjall. Svipar honum
þar til meistarans sjálfs,
Churchills, og raunar fleiri
stjórnmálamanna á Bretlandi.
Sögupersónan, Talleyrand
■fursti, er einn hinn furðuleg-
asti'maður, sem veraldarsagan
.segir frá, marglyndur og þó ein-
rænn, reikull og þó markvís,
veraldarmaður og þó einmani,
■eigingjarn og þó fórnfús, glæsi-
legur, gáfaður og snjall, létt-
úðugt undra'barn átjándu ald-
arinnar, sem villist gegnum
igróðurþrunginn þokubeim hinn
ar nítjándu. Allir undrast hann.
margir hata hann, fáir skilja
hann. Örlög hans verða mikil
og furðuleg, og hann teflir við
þau sjálfur til hins síðasta.
Hann elzt upp við glæsileik og
léttúð hins gullna Rókókóaðals,
orpinn skini frá hirð sólarkon-
ungsins sjálfs. Hann er haltur,
afskiptur um atgervi og karl-
mennsku, dæmdur af ættmenn-
um sínum í ánauð munklífsins.
Þá haslar hann sér völl á sviði
andans og vinnur þar óteljandi
einvígi og orustur. Þannig hefn-
ir hann helti sinnar á lífinu, á
meðbræðrum sínum og samtíð.
Hann er aðalsmaður, en .kemst
þó þurrum fótum yfir blóð-
svað byltingarinnar, gengur
Napóleoni á hönd að sýnd, en
ekki réynd, gerist utanríkis-
ráðhierra hans og náinn sam-
starfsmaður, yfirgefur hann eða
svíkur í tæka tíð og verður
utanríkisráðherra í þeirri stjórn
■er við tók, „þegar mikli keisar-
Inn gegn örlögum hjörvi hjó,
• hjá Waterló, og flýði fyrsta
sinni“. Á Vmarfundinum vann
þessi meistari allra milliríkja-
refja ótrúlegt þrekvirki Hann,
fulltrúi gersigraðar þjóðar og
aðframkominnar, varð ofjarl
keisara, konunga og ráðherra,
sundraði þeim, lék sér með þá
alla, deildi og drottnaði með
ofurvaldi vitsmuna sinna,
bragðvísi, samræðusnilli og
■glæsileiks. Þannig bjargaði
’hann ekki aðeins landamærum
Frakklands, heldur og hagsmun
tn.m þess og stórveídisstöðu. Það
sem hersveitir keisarans höfðu
tapað, vann hann aftur, þessi
halti ábóti og aðalsmaður, einn
síns liðs.
Það er vdssulega fróðlegt að
kynnast slíkum undramanni og
ævi hans. Hann er aldrei leið-
inlegur, ratar sífellt í einhver
ævintýri, ástarævintýri sem
Kvenveski
Seðlaveski
Buddur
Bridge-sett
H.TOFT
SkiMrðnstlg 5 Stml 1035
önnur,fram á elliár og leikur
hina háskalegu refskák um met-
orð og völd með nærri því
spámannlegri framvísi, svo að
sjaldan skeikar um hársbreidd.
En yfir hraðstreymum og ís-
köldum vötnum ævi hans svíf-
ur svipur Frakklands. Það er
hinn eini herra, á himni og jörðu
sem hann virðist þjóna af
fölskvalausri dyggð.
Leiksviðið sögunnar, tíminn,
sem hún gerist á, er einnig
ævintýralegt og æsandi. Þar
mætast tvær aldir, tvær menn-
ingar, tveir heimar, og í þeim
ljósaskiptum getur að líta furða
lega atburði og menn, glæsi-
legan aðal, þjakaða alþýðu, sem
brýzt til valda með æðisgengn-
um ofsa, er svikin, tapar og er
hneppt í ánauð, rís aftur upp í
óhagganiegri, hamslausri trú á
hugsjón lýðræðisins, hugsjón
frelsis, jafnréttis og bræðra-
lags. Utan við hinar glæstu
hállir, í hálfrökkri sögunnar,
getur að líta hið líðandi og stríð
andi mannkyn, hinn þyrni-
krýnda manns son sjálfan.
Sigurður Einarsson dóserú,
hefir þýtt bókina. Málið er lip-
urt, en stíllinn ekki eins glitr-
andi og litauðugur eins og á
frummálinu. Bókaverzlun Finns
Einarssonar hefir gefið bókina
út, prýtt haná allmörgum
myndum og á annan hátt vand-
að til hennar, eins og annrra
bóka þeirra, er þetta forlag hef-
ir gefið út.
Pálmi Hannessov.
Afmælisbókin. Útgefandi
Fjallkonuútgáfan. Reykjavík
1943.
FMÆLISDAGABÆKUR
geta verið einhver skemmti
legasta eignin í bókaskápnum,
ef vel er í þær valið og útgáfan
vönduð að frágangi. Ein hin
vandaðasta slík útgáfa, sem ég
hef séð, er Födselsdags Album,
safnað af Vilhelm Bergsöe, en
sá Ijóður fylgir þó, að safnand-
inn hefir verið fullríflegur að
velja kvæði eftir sjálfan sig í
bókina. Afmælisdagar Guðmund
ar Finribogasonar . voru hin
vandaðasta útgáfa á sínum tíma
á íslenzkum mælikvarða; vís-
urnar vel valdar og smekklega,
svo sem við mátti búast af jafn
smekkvísum bókmenntamanni
og Guðmundur Finnbogason er.
En sú bók er uppseld fyrir
lörigu.
Fyrir örfáum dögum kom á
markaðinn ný afmælisdagabók,
Afmælisbókin og er Fjallkonuút
gáfan útgefandi. Bók þessi er
vægast sagt dálítið hæpið
fyrirtæki — að minnsta kosti
frá bókmenntalegu sjónarmiði.
Það er einna líkast, sem safn-
andinn hafi párað niður á miða
— eftir mjög ótraustu minni —
allar þær vísur sem hann kunni,
bundið síðan fyrir augun og
dregið úr vísnahrúgunni, hvaða
vísa ætti að koma á hvern mán-
aðardag. Og ekki hefir heppnin
alltaf verið honum hliðholl. Af
tilviljun hefir þannig lent ára-
mótavísa á miðju sumri, og
pólitísk óyndisvísa eftir Her-
mann Jónassori á jóladaginn.
Margar vísnanna eru illa úr
lagi færðar og prófarkalestur í
einu orði sagt hræðilegur. Og
þá eru höfundarnir ekki af lak-
ari endanum. Það er kunnugt
að sumir menn hafa gaman af
að pára nafnið sitt, en að setja
nafnið sitt í afmæiisdagabók
undir andríki Sölva Helgasonar
virðist til of mikils mælzt. Og
er hann þó hreint ekki sá versti
í þessu óglæsilega safni. Reit-
irnir fyrir hvern mánaðardag
eru einna líkastir óútfylltum
pöntunarseðlum, og gyllingin á
því eintaki, sem undirritaður
fékk í hendur, var dottin af eft-
ir tvo daga, svo- al’lt virðist
þar á sömu bókina lært.
Karl ísfeld.
Tókum upp í gær
•'íi ’ ' ' ”'1
Tókum upp
á laugardag
Fjölbreytt irval
af amerfskum
Siraujárn
Vegglampa,
fjölda fegunda
Borð- og glugga-
viftur
Þeytara, 3 fegundir
Vibrafora
B9RDLÖMPUM
í stofu
I
í._ ,í ri
Ennþá er efftir nokkuð aff ódýrum borðlömpum, skrifstofu-
lömpum og cigarettukveikjurum
\ , v ' , ^
Haffið hugfast, þegar þið kaupiö jóla-
gjöfina, aö hun sé sem nytsömust
ftAPTÆKJAVBRZIitN & VINNKSTOFA
liAUOAVBO 46 SÍMI 6858
I
kemur út á morgun (miövikudaginn 22. des.)
Blaöiö er selt á götunum fyrir hádegi og útsölustáðir eru þessir:
Blaöasalan, Kolasundi,
BókahúÖ KRON í Alþýöuhúsinu og
Bókaskemmunni, Klapparstíg.
ÁSKRIFTARSÍMI er 5550.
Á MORGUN birtast eftirfarandi greinar í „BóndanumM:
1. Hyers vegna við þurfum nýjan stjórnmálaflokk, eftir Egil G.
Thorarensen.
2. Tvö sjónarmið, G. B.
3. Þakkað fyrir þakklæti, eftir Jónas Jónsson frá Hriflu.
4. Sex menn í mjólkurmálin, eftir Ólaf í Brautarholti.
5. Gjafir eru yður gefnar.
6. Fjólukrans um skemmdan mát, eftir Jónas Jónsson frá Hriflu.