Alþýðublaðið - 28.12.1943, Page 5

Alþýðublaðið - 28.12.1943, Page 5
/ Þriðjudagur 28. desember 1943 ALÞVDUBLAEMD 8 Torfærur hverfa. Myndin bér að ofan er frá herskóla einum í Bandaríkjunum, og sýnir hún hermenn æfa sig í skyndismíði brúar, sem ætluð er til flutninga á her og heigögnum yfir fljót. \ . t GREIN þessi, er f jallar um venjur og hætti dýr- anna er eftir A. W. Duncan og hér þýdd úr Englih Digest. Mun mörgmn þykja fróðlegt að kynna sér athuganir þær, er hún hefir að geyma. ¥ ÐULEGA kemur það fyrir, að náin vinátta takist með hundi og ljóni, ketti og kan- ínu og fleiri dýrum. Allir. sem dvalizt hafa í sveitum, munu hafa sannfærzt um þetta <j>g kunna frá því að greina. Þess eru dæmi að tígrisdýr, hlébarð- ar, birnir og önnur dýr, sem hneppt hafa veríð í búr, gerist góðvinir húsdýra. En venjulega hefir þó milligöngu mannsins þar við notið. Villidýrin efna og til vináttu sín í millum og við önnur dýr. Krókudílum og lóum kemur til dæmis mætável saman, og ló- urnar eru alls óhdæddar við að hætta sér inn í hin ferlegu gin þeirra. Það er og alkunna hversu fuglar af hegrakyni og vísund- ar eiga vel skap saman. Sennilega orsakast vinátta þessara dýra af því að báðir aðilar telja sér hag í henni. En er ekki áþekka sögu að segja um vináttu manna í millum oft- ast nær eða ávallt? Vísundarnir eru, eins og raun ar tígrisdýr og fleiri dýr, mjög lúsugir. Lúsin er einkum ágeng á innanverðum lærum þeirra. Hegrarnir f jarlægja lýsnar en ég er þess ekki fullviss, að vísund- arnir meti það ,eins og vert væri. Iðulega hefst vinátta millum villidýra upphaflega af því, að annar hvor aðilinn hefir hlotið einhvern áverka eða er miður sín einþverlra orsaka vegna. — Þau dýr, sem fyrir sliku verða, eru þá rekin úr samfélagi þeirra dýra, er þau hafa áður talizt tíl. En síðan leggja dyr af allt öðr- um flokki lag sitt iðuléga við þessa illa stöddu gripi og tekst með þeim náin vinátta oft og tíðum. Hungraður maður og hungr- að dýr eru oft sleg.n æði. Eigi að síður er hungrið tið'um vel / til þess fallið að temja dýr. Ung- ur tígirisdýrsungi, sem misst hafði móður sína, leit éði á náðir e.'ns fílsins í dýragarðinum Ilonum stóð enginn stuggur at mönnum og var hinn auðveld- asti viðureignar. Þess eru fjöl- mörg dæmi, að áþekkir atburðir gerist. Þótt undarlegt kunni að virð- ast, eru svanir einhver grimm- ustu dýr, sem getur. Grimmd þeirra er slík, að svo má að orði kveða, að þeir séu blóðþyrstir. Þeir drekkja iðulega öndum og öðrum vatnafuglum svo og smá dýrum, er þ.eir telja sig við ráða og þeir geta komið að óvörum. Dýr, sem annars eru ólíkleg til að gera mönnum mein, skjóta okkur oft, skelk í bringu. Ég minnist, að oft bar sh'kt fyrir mig á ferðalögum mínum, er ég kynnti mér líf og háttu dýra. Einhvérju sinni var ég næsta grátt leikinn af völdurn sólbruna og mýbits og kastaði mér því í sjóinn. Ég synti knálega, því að mér var það sönn unun. En ég hafði ekki þreytt sundið lengi, þegar mér fannst eitt- hvað vefja sig um annan fót- legg minn. Mér brá mjög í brún og hugði helzt, að hákarl væri hér að verki og myndi því ald- urstilastund mín upp runnin. Mór fötuðust sundtökin en fór þó ekki í kaf. Náði ég landi heilu og höldnu, án þess að sannfær- ast um, hvaða fyrirbæri hefði hér fyrir mig borið. En mér befir oft verið til þess bugsað, að ef til vill væri ótti sá er grípur mann á slíkri stundu lífshætta hin mesta. Villdýr eru oft undarleg í hátt um, enda tortryggin og varfær- m, þrátt fyrir áræði sitt og fimi. Ég læt hér getið skemmtilegs atviks, er um þetta efni* f jallar. Ég var einhverju sinni á ferða lagi í Indo-Kína með nokkru. förhneyti. —. Einn vina minna, sem var þátttiakandi í för þess- ari, hafði það fyrir sið að ríða út noikkra stund morgun hvern. Einhverju sinni kom hann aftur venju fyrr og var greinilega brugðið. Hann skýrði mér frá því að tígrisdýr hefði stokkið í veg fyrir hest hans alls þrisvar sinnum, en jafnan haldið brott. án þess að ráðast til atlögu. Það var því sízt að undra, þótt hon- um brygði í brún. En tígrisdýr eru varfærin og þau eru glögg á það, sem óvenjulegt er, og vilja jafnan hafa vaðið fyrir neð an sig. Flestir munu hafa séð hunda leika sér að þræði eða bolta og leggja sig alla fram um að varna því, að þetta verði af þeim tekið. Getur mönnum oft reynzt örð- ugt að svipta þá þessum leik- föngurn þeirra. Apar eru mjög líkir mönnum — eða ef til vill fremur börnum — í baráttum sínum öllum. Þeir hrinda hverjir öðrum til, toga í rófuna hver á öðrum og ég hefi og séð þá flengja minni bæður sína. Þeir eru einnig hrekkjóttir gagnvart öðnim dýrum, en þeim skiptum lyktar af þannig, að hlutur þeirra sjálfra verður næsta lítill, enda þótt, þeir séu fráir á fæti. Því fer alls fjarri, að dýr, sem annars lifa á jurtafæðu, geti ekki átt það tií að leggja sér /kjiöt til munns. Ég veit þess ýmis dæmi, að fílar gæði sér á manna keti, endia þótt. það sé eigi al- menn skoðun, að þeir séu mann- hættulegir. Það er með öllu ógerlegt að leika á fíl með því að látast vera dauður, enda þótt hægt sé að gera flestum öðrum dýrum — að vísundum þó undanskildum — þann grikk. Tvisvar hef ég séð mannýg naut þefa af mönnum, sem létust liggja dauðir, og hrokka því næst hrött, án þess að gera þeim minnsta grand. Ég minnist þess, hversu mér kom það mjög á óvart að nautin skyldu láta beita sig slíkum ibrögðum. Fróðlegt væri að gera tilraunir um það hvort önnur dýr láta blekkjast með þessum hætti. En það er ekki hlaupið að því að efna til slíkra tilrauna. Menn eru sem sé ófúsir að gefa kost á sér til slíkra ævintýra. Það má merkilegt heita, hversu menn geta hænt dýt að sór, ef þeim gefst færi á því og hafa um fram allt góðan tx'ma til þess. Ég. komst einu sinni í kunningsskap við eðlu, sém er sú feimnasta skepna, sem ég hefi til þekkt. Hún lærði einhvem veginn að þekkja mig sennilega af göngulaginu og kom þá jafn- an fram úr fylgsni sínu, er mig bar að. En væru vinir mínir á Frh. af 6. síðu. Ég komst ekki að. Éljamúsík. Maður utan úr veröldinni. Jólalög og styrjaldaróður. Hálmstráið, sem maður reyn- ir að trúa á og treysta. EG ÆTLAÐI a3 óska ykkur gleðilegra jóla, en komst ekki að’ fyrir öllum hinum. Það er margt sem ekki heyrist í ólátunum fyrir jólin — og það er mörgum sem finnst jafnvel þá að þeim sé ofaukið. Á aðfangadagskvöld lamdi haglélið ráðuna mína — og af því að ég missti af aftansöng síra Árna Sigurðssonar í útvarpinu vegna rafmagnsleysis — reyndi ég að bæta mér þetta upp með þess- ari ísienzku músik — éljamúsik. Hún minnti mig á gamla daga, Iitlu sírjálu býlin við hamrana og fell- in, sem kúrðu þar í vetrahríðunum einangruð og afskekkt. EN VAR EKKI OFT hlýtt í þeim, andlegur hlýleiki? Var þar ekki oft glaðzt yfir litlu? Var ekki gleðin þá enn heitari og innilegri yfir grjónalummunum og tólgar- kertunum —- en nú í hávaðanum og allsnægtunum? Það var einhver, sem sagði um þessi jól, að svo virt- ist sem við gætum ekki lengur glaðzt yfir litlu. Það má vera — en ég veit þó að margir gleðjast enn yfir litlu. . .ÉG HALLAÐI ■ MÉR að kaldri rúðunni sem haglélið lamdi á að- íangadagskvöld. Hver gluggi í ná- grenninu var uppljómaður. Á götu- horninu framundan sá ég svarta þúst. Hún var kyrr góða stund en svo fór hún að hreyfast og hún mjalcaðist að stórum uppljómuð- um glugga. Þá sá ég að þetta var sjóliði einhversstaðar utan úr ver- öldinni, svart klæddur með pottlok sitt á höfði í hríðinni. Hann stað- næmdist við gluggann — en svo fór hann að spígspora í snjónum með hendurnar í frakkavösunum, ókunnur maður — einmana. . . OG ÞARNA GEKK HANN fram og aftur færði sig af einu horni á annað, staðnæmdist við og við undir uppljómuðum glugga, skrif- aði stundum í snjóinn með tánni og þurkaði það jafnskjótt út, rölti svo aftur af stað •—- stuttan spöl. Það var að minnsta kosti einn mað ur sem fylgdist með þessari Gol- gatagöngu hans í ókunnu og köldu landi, þar sem hann var í stórri borg jafnvel enn meira einmana en þó að hann væri einn uppi á öræfum! SÁLMASÖNGUR, JÓLALÖG jólakveðjur og heillaóskir, barna- raddir,. og hugðnæm músik hljóm aði úr útvarpssalnum mest öll jól- in næstum viðstöðulaust, en svo rétt til að minna mann á vondan. og vitfirrtan heim heyrðust allt a£ við og við hrjúfar, kaldar og svip- lausar raddir þylja styrjaldaróð- inn. 300 sprengjuflugvélar réðust á ... . Barist er um hvert hús .. Skriðdrekum hefir verið komið fyrir í kjöllurum . . . . 6000 féllu í gærmorgun . . . . 2000 fallinna manna voru taldir á götum borg- arinnar eftir að óvinirnir höfðu yfirgefið hana . . . . — Já, menn- irnir hafa í mörg horn að líta! Þeir þurfa að stunda sálmasöngva, styrrjaldir og mannúðarhjal! En svona erum við öll: Ég og þú, al- veg eins, í ýmsum myndum — en þó eins! . . VIÐ HÖFUM SVO SEM ekki al miklu að státa. Það tekur því ekki að hreykja sér! Það er broslegt að sjá okkur hlaða á útlimina gulli — og silfurstássi! Olckur tekst ekki að falsa innnihaldið! það seg- ir til sín! Ófullkomleiki okkar er mikill í sinni eymd og þó hafa beztu menn trú á að heldur sæki á brattann fyrir okkur, þráin eftir því góða og mikla er svo rík I mannsandanum — að það hljóti að lokum að skapa úr þessum brotabrotum, sem við erum, mennt aðar og mannúðarfullar vitsmuna- verur. Mannsandinn hefir allt a£ sótt fram, segir van Loon, eða eitt hvað á þessa leið — og maður grípur svona setningu allshugar feginn, eins og drukknandi maður grípur hálmstrá! ÞIÐ VERÐIÐ að fyrirgefa, þó að predikunarnáttúran hafi nú gripið mig. Það er búið að predika svo mikið yfir mér um þessi jól, að það er von að ég hafi lennt í þessu. Þetta getur hent hestu menn! ÞAÐ ER SKRÍTIÐ hvernig Ijós skilningsins getur allt í einu runn- ið upp fyrir heimskum mönnum. Ég hef aldrei skilið hvers vegna að kaþólskar kirkjur eru allt a£ opnar — og hvað kaþólskir menn eru að gera í þær, þegar ekki er messað. En þegar tilkynnt var í útvarpinu á aðfangadagskvöld að Páll ísólfsson léki á Dómkirkju- orgelið, þá skyldi ég þetta. Mér datt í hug, að gott ætti Páll að mega vera einn svolitla stund þarna í kirkjunni og leika jóla- lög. Mig langaði til að labba til kirkjunnar og læðast inn, án þess s að Páll vissi. Hannes á horninu. á ð v ö r u n SiS útsvangjaldenda í leflfaii. Við niðurjöfnun útsvara árið 1944 verður tekið tillit til þess, hvort gjaldendur hafi greitt að fullu útsvarið 1943 fyrir áramót. Þetta tekur ekki til þeirra gjaldenda, sem greiða út- svör sín reglulega af kaupi. Allir aðrir aðvarast um að greiða útsvarsskuldir sínar að fullu nú fyrir áramót. , SkrSfst©fa borgarstjórans í Reykjavík-

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.