Alþýðublaðið - 28.12.1943, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 28.12.1943, Qupperneq 6
 Þriðjudagur 28. desember 1943 Vopn guðanna: Lárus Pálsson í hlutverki Barlams og Ævar R. Kvaran sem Jósafat ríkisarfi í 5. þætti leiksins Leikhúslð : Uopnguðanna Sjónleikur í fimm páttum, eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. FfVAÐ SEGJA HIN HLOEHHY Frh. af 4. síöw.,. að Framsólknarmömxtiiia á þlnjgjL sé ekki einu mfyrir það þakk- andi, að hrúndið var því, sem þeir eru einhuga um að kalla „ofsóknarherferð“ gegn bænda stéttinni. Jónas telur, Jónas að ekki íberi að þakka þetta Framsóknarmönnum jrirnwm] Hann segir: „Veruleikinn er sá, að til þess a8 geta stöðvað hinar illkynjuðu árásir á bændur og samtök þeirra, þarf „tvenna fjórtán.“ Það þarf, að minnsta kosti, jafn marga Sjálf- stæðismenn, eins og Framsókn á menn á þingi, til að hindra það, að Emil í Gröf og aðrir sunnlenzk- ir þændur verði af Alþingi sviptir eignum og atvinnu, að þoði upp- lausnarliðsins í landinu. Sama varð raunin á þegar Alþingi veitti nýlega dýrtíðaruppbót til bænda, samkvæmt viðurkenndum út- reikningi sex manna nefndarinnar, þá stóðu að þeirri samþykkt 27 menn úr báðum stærstu flokkun- um. Ottesen lá í sjúkrahúsi. Hann var sá 28. og hefði látið flytja sig veikan í þingið til þess að greiða þar atkvæði með rétti framleiðenda ef með hefði þurft.. Ég vona að Emil í Gröf sjá nú, að hann verður líka að þakka DAVÍÐ STEFÁNÖSON FRÁ FAGRASKÓGI er hinn mikilvirkasti rithöfundur. Fyrir tveimur árum sendi hann frá sér sjónleikinn Gullna hliðið og og árið áður stórt skáldrit í tveimur bindum, Sólon Island- us. Með fyrstu ljóðabók sinni, Svartar.f jaðrir, sem kom út árið 1919 varð hann þegar vinsæl- asta ljóðskáld þjóðarinnar. Fyrsta leikrit hans, Munkarnir á Möðruvöllum, kom út árið 1925, hlaut talsverðar vinsæld- ir en stendur þó talsvert að ibaki hinum síðari leikritum hans, að minnsta kosti sem sjónleikur. Þetta síðasta leikrit Davíðs, Vopn guðanna, er sam- ið af djúpri, þjóðfélagslegri alvöru og er römm ádeila á valdabrölt einræðisherranna. Vopn guðanna er krossmarkið, tákn friðarhugsjónarinnar, sem teflt er fram gegn sverði ein- ræðisins og sigrar friðarhug- sjónin í lok leiksins. Leikritið er innlegg Davíðs í þá baráttu, sem nú geisar í heiminum, og er hann hvergi myrkur ,í máli, enda hefir Ðavíð aldrei lagt í vana sinn að hvísla skoðunum sínum í þlýhólk. Leikritinu er hvorki markaður tími né staður, en getur gerzt hvar sem er og hvenær sem einhver skottu- pólitíkusinn reyndr að þröngva þjóðum heimsins undir valdboð sitt. Má teinnig telja þetta til kosta leikritsins, gefur því al- mennara gildi. Davíð hefir, sem betur fer, ekki tekið sér fyrir að raða saman spakmælum í leikritsformi, svo sem háttur er sumra leikritahöfunda, heldur lagt megináhersluna á að semja sjónleik, og það hefir honum tekizt. Þeim, sem fara í leikhús til þess eins að heyra hávaða, þykir ef til vill ;ekki nægilegur stígandi í leikritinu, en hann er þar samt og felst í öðru en hávaðanum. Ef til vill mætti helzt finna það að leikritinu, að sumar setningarnar væru óþarf lega óheflaðar, en það stafar ekki af skorti höfundarins á smekkvísi, heldur skapþunga hans. Gengi þessa leikrits á sviði er mjög komið undir tjöldum og öðrum útbúnaði, og er hann alveg sérstaklega vandaður, og þeim Lárusi Ingólfssyni, sem sá um tjöld og búninga, og Hall- grími Backmann ljósameistara til mikils sóma. Lárus Pálsson Ihefir annast leikstjóm og náð furðanlegu samræmi í meðferð leikritsins, svo margir sem við- vaningarnir eru í aukahlutverk unum, en sem heild virðist leik- urinn vera fullsterkur. Auðvit- Konungurinn: Jón Aðils og einkaráðgjafi hans Theódas Haraldur Björnsson. að er það mikill kostur að fá að heyra hverja setningu, sem sögð er á sviðinu, en Lárus virðist skorta ofurlítið þann næmleika, sem til dæmis Indriði Waage hefir í rikum mæli, á hin smá- gerðari blæbrigði. Jón Aðils var röggsamlegur í gervi konungsins, einræðisherr ans, og talsverður persónuleiki í leiknum. Meðferð Ævars Kvaran á Jósafat konungssyni var smekkleg, en fremur að- sópslítil, enda hlutverkið ekki tilefni til mikilla átaka. Leikur Þorsteins Ö. Stephensen í hlut verki Zardans var viðkunnan- legur. Valdimar Helgason hafði í ógáti fallið út úr hluverkaskrá leikskrárinnar, en hann lét því hressilegar heyra til sín á svið- inu í hlutverki eins af ráðgjöf- um konungs, sem hann lék af vandvirkni. Haraldur Bjömsson lék Theódas, einkaráðgjafa kon ungsins, hinn illa anda einræð- isherrans, Mefistófelis þessa aumkunarverða Faust, og skil- aði hlutverkinu með prýði. Gervi og leikur Lárusar Páls- sonar í hlutverki Barlams frið- arpostulans var hvortveggja gott, og Brynjólfur Jóhannes- son var ágætur garðyrkjumaður og lífsspekingur. Lárusi Ingólfs syni heppnaðist að gera skemmti lega fígúru úr hirðmeistaranum. Smærri hlutverk voru vel af hendi leyst af þeim Indriða Waage, Öldu Möller, Þóru Borg Einarsson, Gunnþórunni Hall- dórsdóttur, Gesti Pálssyni, Val Gíslasyni og Tómasi Hallgríms syni, en á aukahlutverkunum voru viðvaningarnir fremur við vaningslegir sem vonlegt er og hægt er að fyrirgefa. Svo að talað sé í sömu and- ránni um listir og fjármál, skal mönnum úr öðrum flokkum rétt- mætar varnir í málum framleið- enda. Hann mun nú nýverið hafa séð heima í sínum hreppi, að bænd ur skilja, að þeir verða að standa sama móti kommúnistum, án tillits til flokkaskiptingar. Á bænda- fundi í Hrunamannahreppi aiveg nýverið, þar sem nálega allir bú- endur sveitarinnar nema Emil í Gröf voru mættir, var samþykkt einróma áskorun til útgefenda Bóndans, að halda blaðinu áfram og hika hvergi, þó að andblástri væri að mæta.“ Það leynir sér ekki, að hér er stefnt í sömu átt og í skrifum Egils í Sigtúnuim. Vesjur og teítir dýranus. Frh. af 5. sí&u. ferð, lót hún hins vegar sem minnst á sér bera. Það er alkunna að hundar bera kennsl á bifreiðir eigenda sinna. En frændi minn, sem er flugmaður, segir mér, að hvutti hans þekki flugvél hans frá öíl- um öðrum ílugvélum, þótt hún sé hátt í lofti uppi. Hann tekur þá á sprett út á flugvöllinn til þess að fagna komu húsbónda síns. Það er hægt að fá dýrin til þess að breyta mjög um lifnað- arhætti, og það mun mikið gert að því í framtíðinni. Það er hægt að kenna þeim að neyta hvaða matar, sem er — jafnvel að una því að borða heitan mat, enda iþótt slík kennsla kosti mikinn tíma og fyrirhöfn. Jólablað Símablaðsins er nýkomið út. Af efni þess má nefna: Áramótahugleiðingar eftir Ágúst Sæmundsson, Jól eftir Unn- dór Jónssoní Gleymdir þröskuldar eftir Jes A. Gíslason, Framtíð jarðlífsins eftir Ásgeir Magnússon, og Varðveittu vopn þitt eftir Maríus Helgason. Einnig flytur rit- ir kvæði eftir Jón Óskar, er nefn- ist Húsbygging. þess getið, að sýning Leikfé- lagsins á þessu leikriti mun vera mjög kostnaðarsöm, svo mjög sem til hennar er vandað. En sé íslenskum leikhúsgestum það nokkuð metnaðarmál að íslenzk list sé túlkuð á íslenzku leiksviði, vita þeir, hvað þeim ber að gera. Karl ísfeld. Félag íslenzkra hljóðfæraleikara. KAUPTAXTI S Ci'i- félagsins fyrir lausavinnu skal vera sem hér segir: Hinn fasti laugardagstaxti kr. 40.00. Tímavinna: Kr. 8.00 pr. klst. Sé unnið eftir klukkan 3 f. h. hækki kauptaxtinn um 100%. Ákvæði um hvíldartíma hljóðfæraleikara skulu vera þau sömu og gilt hafa. Sé sérstakur hvíldarmaður ráðinn, skal hann hafa sama kaup og aðrir hljóðfæraleikarar. Enda leiki hann hvíldarlaust einn. Sé aftur á móti ekki ráðinn sérstak- ur hvíldarmaður, en hljómsveitin skiptir og leiki þannig hvíldartímana einnig, skal greiða hverjum manni kaup fyrir 1 tíma aukatekju. Annist hljóðfæraleikari viðlagasöng, skal greiða sérstaklega kr. 2.50 pr. klukkustund. Á Gamlaárskvöld greiðist 100% álag á allt kaup. Full dýrtíðaruppbót greiðist á kaupið samkvæmt vísitölu hagstofunnar á hverjum tíma. Hljóðfæraleikari skal fá kaup frá þeim tíma, er hann mætir til vinnu, enda fari kvaðning eigi síðar fram en klukkan 23. Taxti þessi gildir frá og með 28. des. 1943 og þar til annað verður ákveðið. Reykjavík, 27. desember 1943. Stjórnin. S S s s s s s s s s s s c s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s Um „Álfasióðir Frh. af 4. síðu. elskað og vonað og misst, heldur en tómleiki hins, sem hefir aldrei eygt himin ástar og vonar og engu hefir haft að tapa? Svo að lokum: Frú Svanhildur Þorsteins- dóttir sér og skilur margt, sem ýmsir ganga fram hjá eins og ljós augna þeira hafi slokknað. Hún á líka dýrgrip smekkvís- innar og hófseminnar. Hún ætti því ekki að þurfa að brenna neinn til óbóta, þó að hún blési nokkuð frekar að glóðum mannlegra ástríðna og tilfinn- inga en hún gerir í þessari bók, svo að eldurinn teygðj sig hærra, yrði heitari og varpaði bjarma yfir víðara svið og inn í fleiri króka og kima, þar sem hún hefir sitthvað séð. Þá virð- ist hún og vera svo nærfærin, að hún ætti ekki að þurfa að meiða neinn, þó að hún neytti til djarflegri átaka þess styrks sem henni áreiðanlega er gef- inn, og sízt mundi hún laða okkur að hinu ljóta, þó að hún skeytti nokkuð á því skapi sínu með því að draga það fram í dagsins ljós sem andstæðu fegurðarinnar. Já, hve höfugt hefðu þær ekki ilmað, og hve skært hefðu þær ekki skartað, dalaliljurnar, sem áður hefir verið á minnzt, ef í okkur hefði setið ógn og uggur frá því heim kynni lasta, harma og ágæfu, sem sögukonan hafði gist, þeg- a rhenni voru gefnar þær? Það er margsagt, þetta, en þó tek ég mér það í munn í þessu sam- bandi: Þar sem er ljós, þar er líka skuggi. (Niðurl. á morgun). Tónsnilliagaþættir. Theódór Árnason: Tónsnill- ingaþættir 1. Útg.: Þorl. Gunnarsson, Rvík 1943. HÉR eru æfiágrip merkilegra manna. Fáa menn er meiri ástæða til að dá en þessa furðulegu völunda, sem hafa hlustað eftir symfóníu himn- anna og gefið okkur, sem erum daufir á eyrum, hlutdeild í þessari skynjun sinni. Hljóm- listin er list listanna. Þar lyft- ist skapandi andi mannsins hsést, eða öllu heldur: Þar kemst eilífðin næst listskynjun hans. Þessi bók Theódórs Árnason- ar verður kærkomin íslending- um. Ber tvennt til þess. Islend- ingar eru' næmir á tónlist og þeir hafa mikinn áhuga fyrir mannfræði. Útvarpið hefir stuðlað að því, að almenningur hefir getað kynnst æðri tónlist, í fjrrsta sinn í fyrsta sinn í sögu íslands, og virðast þeir, sem stjórnað hafa músikdagskrá Ríkisútvarpsins undanfarin ár, eiga miklar þakkir inni hjá þjóðinni fyrir það tónlistarupp- eldi, sem þeir hafa reynt að láta útvarpið annast. Nú gefst mönnum kostur á að kýnnist æfisögum þeirra manna, sem þeir hafa oftast heyrt nefnda í sambandi við æðri tónverk: Bach, Mozart, Beethoven, Schu- bert . . þetta er fallegur hópur. Það hefir verið ánægjulegt verk fyrir Theódór Árnason að skrá þessa þæti. Honum lætur vel að halda á penna, enda kunn ur orðinn fyrir ritstörf, og hann hefir tignað frú Misiea alla æfi af nærfærnum skiln- ingi. Bókin er fallega úr garði gerð hið ytra. Sé þeim báðum þökk fyrir verkið, höfundi og útgefanda. Siguxbjörn Einarsson. \F reiau-fiskfars)

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.