Alþýðublaðið - 18.01.1944, Page 7
ALÞYÐUBLAÐIÐ
JÞrið'udagur 18. (anúar lrÍ4
iBœrinn í dag.í
Næturlæknir er í nótt í Lækna-
varðstofunni, sími 1530.
Næturvörður er í Iðunnarapó-
teki.
ÚTVARPIÐ:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
18.30 Dönskukennsla, 2. fl.
19.00 Enskukennsla, 1. fl.
19.25 Þingfréttir.
19.50 Auglýsingar.
20.00 Fréttir.
20.30 Erindi: Andleg heilsuvernd
(dr. phil. Símon Jóh. Ágústs
son).
20.55 Tónleikar Tónlistarskólans:.
Sónata í A-dúr, fyrir fiðlu
og píanó, eftir Cesar Franck
(fiðla: Björn Ólafsson; pí-
anó: Árni Kristjánsson).
21.25 Hljómplötur: Endurtekin
lög.
21.50 Fréttir.
Kveldúlfur gefur 150
þúsundir krona fil
dvalarheimilis sjó-
manna
TT LUKKAN 11 f. h. í gær
voru formaður, gjald-
keri og ritari fjársöfnunar-
nefndar Dvalarheimilis aldr-
aðra sjómanna, kvaddir til
viðtals hjá útgerðarfélagini
Kveldúlfur h.f. Voru þar fyr-
ir þeir Thorshræður: Ric-
hard, Haukur og Kjartan. . .
Eftir að hafa ávarpað við-
stadda, afhenti Richard Thors
fyrir ^hönd eigenda Kveldúlfs,
formanni nefndarinnar, Sigur-
jóni Á. Ólafssyni, sparisjóðsbók
með 150 þúsund króna inn-
stæðu ásamt eftirfarandi bréfi,
er lýsir bezt tildrögum og til-
högun gjafarinnar:
„í nokkuð á 4 áratug höfum
vér átt óslitið, náið samstarf
við íslenzka sjómenn.
Eftir þessa löngu viðkynn-
ingu berum vér mikla virðingu
fyrir þessari tápmiklu stétt, og
hlýjan hug til hennar, enda
stöndum vér í margvíslegri
þakkarskuld við sjómenn.
Sem lítinn vott þessa þakk-
lætis höfum vér ákveðið að
senda Byggingarsjóði Dvalar-
heimilis Sjómanna — kr. 150-
000.00 —, að gjöf,. en byggingu
dvalarheimilis teljum vér hið
mesta hagsmunamál sjómanna.
Engar kvaðir fylgja framlagi
þessu, aðrar en þær, að vér
óskum eftir, að 13 herbergjum
í væntanlegri byggingu dvalar-
heimilisins verði gefin þessi
heiti:
Skallagrímur, Þórólfur, Egill
Skallagrímsson, Snorri Goði,
Snorri Sturluson, Arinbjörn
Hersir, Gulltoppur, 1 Gyllir,
Hekla, Borg, Mjölnir, Huginn,
Muninn.
Og að sjómenn, sem starfað
hafa hjá oss, njóti forgangs-
réttar til dvalar í þeim, að öðru
jöfnu.
Ef ætlað er, að andvirði
hvers herbergis sé kr. 10 000.0Q,
— skal verja þeim kr. 20 000.00
sem umfram eru, upp í kostnað
við kaup á innanstokksmunum
í herbergin, í samráði við oss.“
Sigurjón Á. Ólafsson, þakk-
aði f. h. nefndarinnar, með
stuttu ávarpi, þar sem hann gat
þess, að það væri alkunnugt
hve rausnarlega þeir Thors-
feðgar gæfu, en samt sem áður,
hefði sér komið svona há fégjöf
á óvart, og væri þetta stærsta
gjöf, sem dvalarheimilinu hefði
borizt frá einu fyrirtæki, þó
margir aðrir hefðu gefið stór-
höfðinglegar gjafir.
Lýðveldisstjórnarskráin.
Frh. af 2. síðu.
um það, að hún skuli ganga
í gildi.
Ég tel það yfirleitt hyggileg-
ast, að í lýðveldisstjórnar-
skránni verði ekkert ákveðið
um gildistökudag hennar og að
honum verði fyrst um sinn
frestað þar til hægt hefir verið
að ná sambandi við konung og
gefa honum tækifæri til þess að
segja af sér af frjálsum vilja.
Vildi hann það ekki, væri í öllu
falli engu spillt, og enn nægur
tími til þess að gera einhliða
samþykkt um gildistöku lýð-
’eldisstjórnarskrárinnar, sem að
mínu viti gæti farið fram á full-
komlega löglegan hátt engu að
síður.
Þetta vill Alþýðuflokkurinn
aðeins bjóða til samkomulags,
enda þótt hann telji það, eins
og ég hefi áður sagt hér á al-
þingi, bæði eðlilegast, öruggast
og drengilegast, að fresta af-
greiðslu stj órnarskrárfrumvarps
ins alveg eins og afgreiðslu
þingsályktunartillögunnar um
niðurfellingu sambandslagasátt-
málans, þar til sambandsþjóð
okkar hefir aftur fengið frelsi
sitt, og frjálsar umræður getað
farið fram við hana. En þó að
samkomulag gæti tekizt á þeim
grundvelli, sem ég hér hefi lýst,
þá sannfærist ég betur og
betur um það, með hverjum
degi, sem líður, hve varhuga-
vert það er, að slá því föstu
upp á dag, langt fram í tím-
ann, hvenær stofnun lýð-
veldisins skuli fara fram, á
slíkum tímurn og nú eru.
ir um það, að forsetinn skuli
þjóðkjörinn og ekki þingkjör-
inn, þá ætti það mál ef til vill
ek)ci þurfa að verða mikið deilu
mál.
Síaöfestinffin.
Þá vil ég minnast á þá skoð-
un, sagði Stefán Jóhann, sem
fram hefir komið í ræðu, sem
Bjarni Benediktsson flutti síð-
astliðið sumar, að lýðveldis-
stjórnarskráin geti og eigi að
taka gildi án þess að hún sé
staðfest af handhafa konungs-
valdsins.
Þessari skoðun vil ég alger-
lega mótmæla og vara við, að
slík aðferð og lögleysa verði við
höfð. Ef ganga ætti á snið við
þá grundvallarreglu í stjórn-
skipunaflögum okkar, að lög-
gjafarvaidið sé hjá alþingi og
konungi í sameiningu, og að
engin samþykkt alþingis geti
náð lagagildi nema hún hafi áð-
ur verið staðfest af handhafa
konungsvaldsins, þá yrði það að
hafa verið orðað skýrt og ótví-
rætt í lögum; en það hefir
hvorki verið gert í stiórnar-
skránni né í því viðbótará-
kvæði við hana, sem samþykkt
var á haustþinginu 1942 vegna
fyrirhugaðrar breytingar á
stjórnarskipun landsins úr kon-
ungsríki í lýðveldi.
Lýðveldisstjórnarskráin get-
ur því ekki gengið í gildi á lög-
legan hátt, nema að undangeng
inni staðfestingu handhafa
hins ET-ÍÁta valds.
Samkomulag ?
Getspakir menn ætla, að blóð
ugri átök fari nú í hönd í styrj-
öldinni en nokkru sinni áður.
Hvar þau verða veit enginn. En
•ég efast um, að það væri hyggi-
legt eða glæsilegt fyrir íslenzku
þjóðina, að vera þá að halda há-
tíðlega stofnun lýðveldisins hjá
sér.
Foi*setak|@rið.
Ég vil svo, sagði Stefán Jó-
hann, að endingu endurtaka
vilja Alþýðuflokksins til sam-
komulags í þessu máli á grund-
velli ótvíræðs réttar og full-
komins velsæmis gagnvart sam
bandsþjóð okkar og konungi. Ef
því samkomulagi verður vísað
á bug, þá er það ekki sök Al-
þýðuflokksins þó að meiri deil-
ur hljótist af en orðið er.
IJt af einstökum ákvæð-
um stj órnarskrárfrumvarpsins,
kvaðst Stefán Jóhann vilja
taka það fram, að á nýlega af-
stöðnu þingi Alþýðuflokksins,
hafi verið gerð samþykkt þess
efnis, að flokkurinn væri fylgj-
andi því, að forseti lýðveldisins
yrði þjóðkjörinn, en ekki kos-
inn af alþingi, sem myndi hafa
það í för með sér að hann yrði
meira og minna háður því.
Af þessu leiðir, sagði Stefán
Jóhann, að Alþýðuflokkurinn
mun beita sér fyrir breytingum
á þeim ákvæðum fyrirliggjandi
tjórnarskrárfrumvarps, sem for
setakjörið varða. En með því að
heyrzt hefir, að fleiri séu ásátt-
Eæöur Mnna.
Á eftir Stefáni Jóhanni töl-
uðu Gísli Sveinsson af hglfu
Sjálfstæðisflokksins, Eysteinn
Jónsson af hálfu Framsóknar-
flokksins og Einar Olgeirsson
af hálfu Kommúnistaflokksins.
Fullvissuðu þeir allir, að flokk-
ar þeirra stæðu óskiptir að því,
að lýðveldisstjórnarskráin yrði
látin taka gildi 17. júní, og sam
tímis því, að sambandsslitin
færu fram, en voru ósammála
um ýmislegt annað.
Eysteinn Jónsson kvað Fram-
sóknarflokkinn myndu verða
viðmælandi um það, að lýðveld
isforsetinn yrði þjóðkjörinn;
Dagsbrúnarmenn samþykktu upp-
sögn samninga við atvinnurekendur
------«—------
1308 sögfki |á af 1522, sem greiddu afkv.
DAGSBRÚNARMENN samþykktu við allsherjaratkvæða-
greiðsluna með yfirgnæfandi meirihluta að segja upp
samningum félagsins við atvinnurekendur.
Alls tóku þátt í atkvæðagreiðslunni 1522 félagsmenn af
2980, sem á kjörskrá voru, en þess ber að gæta, að af þeim,
sem á kjörskrá voru, eru mjög margir utanbæjar við ýmis
konar vinnu.
Atkvæðin voru talin í gærkveldi. Já sögðu 1308, en nei
188. 20 seðlar voru auðir og 6 ógildir. Mun stjórn Dags-
brúnar nú tilkynna atvinnurekendum þessi úrslit og segja
samningunum upp með hinum tilskilda fyrirvara.
7
Sonur minn,
ÞorvarÖur Guðmundsson,
fulltrúi frá Litlu-Sandvík, andaðist í Landakotsspítala laugard.
15. jan. Kveðjuathöfn fer fram í Dómkirkjunni þriðjudaginn 18.
jan. kl. 11 f. h.
Sigríður Lýðsdóttir.
Tökum upp í dag
og frakka
allar stærðir, einnig nokkrar stórar.
Laugavegi 33.
Einar Olgeirsson kvað flokk
sinn vera því ákveðið fylgj-
andi; en Gísli Sveinsson virtist
eftir sem áður vera því hlynnt-
astur að hann yrði þingkjör-
inn, að minnsta kosti fyrst um
sinn.
Gísli Sveinsson og Einar Ol-
geirsson stóðu fast á því, að lýð
veldisstjórnarskráin yrði látin
taka gildi án undangenginnar
staðfestingar hins æðsta valds,
en Eysteinn Jónsson leiddi það
mál alveg hjá sér.
Kefndarkosning.
Umræður héldu áfram til kl.
7 og tóku þeir Stefán Jóh.
Stefánsson, Gísli Sveinsson og
Eysteinn Jónsson aftur til máls,
en þá var umræðunni lokið og
. stjórnarskrárfrumvarpinu vís-
að til annarrar umræðu með 22
samhljóða atkvæðum.
Þá var enn fremur samþykkt
einnig með 22 samhljóða at-
kvæðum, að vísa málinu til 7
manna nefndar, og hlutu þessir
kosningu í nefndina: Stefán
Jóh. Stefánsson, Eysteinn Jóns-
son, Sveinbjörn Högnason, Ein-
ar Olgeirsson, Gísli Sveinsson,
Gunnar Thoroddsen og Ólafur
Thors.
Ni nBingarathðfH ð
aipinii í iær.
Frh. áf 2. síðu.
ið undirorpin áföllum, og ís-
lenzkur sær hættulegur þeim,
er hann hafa stundað. En hvort
um sig ber þó í skauti gróður
og aflaföng, til vöggugjafar
börnum þessa lands. Af því öllu
hefir þjóðinni átt að hlotnazt
þrek og þor og þrautseigja, en
einnig örlög um dýrar fórnir.
„Stríðsmenn hafsins“, sjómenn
irnir, hafa verið þar í farar-
broddi. Og allt, sem þurft
hefir til fullnægingar lögmáli
lífsins í þessu landi, hefir ís-
lenzka þjóðin staðizt fram á
þennan dag, og eiga þar einnig
þakkir skyldar hinar hugprúðu
hetjur heimilanna. Svo mun og
enn verða um ókominn aldur,
ef enginn æðrast, þótt á dynji
stormar og hregg. Uppbirta
fylgir öllum éljum og skin
skúrum.
Nú á hér margur um ,sárt að
binda vegna þessara síðustu
slysfara, eins og oft áður og
ætíð, er ‘slíkt ber að höndum.
Því að missirinn er stórkostleg-
ur. Hann er næsta tilfinnan-
legur þjóð vorri allri, sem þarf
á að halda öllu sínu, er til nyt-
semdar og vegs horfir, ekkí
sízt dugandi mönnum og gegn-
um, í hvaða stétt sem eru. En
sér í lagi er missirinn mikill í
hinni ötulu sjómannastétt vorri,
sem segja má um hvorttveggja,
að getið hafi sér giæsilegan orð-
stír með öllum, er til þekkja og
bærir eru um að dæma, og eins,
að hún hefir unnið og vinnur
dyggilega, í erfiðri og hættu-
legri stöðu, að þeim lífsnauð-
synlegu störfum fyrir þjóðar-
heildina, sem óneitanlega færa
einna áhrifamesta björg í bú,
eins og nú er háttað. En mest-
ur er þó missirinn og sárastur
söknuðurinn ,,heima“, þar sem
eru aðstandendur og ástvinir,
og eru orð vart nægjanleg tií
huggunar þeim.
Vér þökkum fyrir unnin
afrek hinna ötulu sona þjóðar-
innar, sem nú eru fallnir í val
með sviplegum hætti.
Vér skulum láta gott for-
dæmi þeirra verða oss til örv-
unar á braut frama og starfa.
Vér biðjuvi Guð almáttuqan
um styrk oss öllum til handa.
Hann blessi mimiingu hinna
látnu, og líkni þeim er syi^ja.
Ég bið þingheim að rísa úr
sætum.“ í
Hjónaband.
Á laugardag voru gefin saman í
hjónaband af sr. Árna Sigurssyni,
Ólöf í. Björnsdóttir úr Skagafirði
og Magnús A. Magnússon, bifreiða
stjóri frá Vestmannaeyjum. Heim-
ili þeirra er að Laugavegi 86.
Lögregian leilar að
4 ára felpu
Híin hvarf í gærkveSdi
FRÁ LÖGREGLUNNI bár-
ust blaðinu þau tíðindi
eftir miðnætti í nótt, að hún
ásamt skátum væri að leita að
4 ára gamalli telpu hér í bæn-
um, sem tapaðist í gærkveldi.
Telpan á heima á Barónsstíg
39,, en var að leika sér í næsta
húsi og fór þaðan kl. 8V2 í gær-
kveldi. Hefir síðan ekki orðið
vart við hana.
Telpan var í blárri kápu og
gúmmístígvélum. Ef einhver
skyldi verða var við hana, er
þess vænzt, að hann tilkynni
það lögreglunni.