Alþýðublaðið - 30.01.1944, Síða 7
Sunnudagur 30. janúar 1S44.
ALÞYDUBLAÐIÐ
7
ÍBœrinn í dag.|
Næturlœknir er í nótt í Lækna-
varðstofunni, simi 5030.
Næturvörður r í Laugavegsapó-
teki.
Helgidagslæknir er Sveinn Pét-
ursson, Garðarstræti 34, sími 5511.
ÚTVARPIÐ:
11.00 Messa í Dómkirkjunni
(sér Bjarni Jónsson). 14.30—16.30
Miðdegistónleikar (plötur). 18.40
Barnatími: Leikrit „Naglasúpan"
(Gunnþórun Halldórsdóttir, Þorst.
Ö. Stephensen). 19.25 Hljómplötur
Fantasía í C-dúr eftir Schubert.
20.00 Fréttir. 20.20 Einleikur á
fiðlu (iÞórir Jónsson): La Folia eft-
ir Corelli. 20.35 Erindi: Frá Krím
(Jón Rafnsson erindreki). 21.00
Bindindismálakvöld: Samband
bindindisfélaga í skólum. 21.50
Fréttir. 20.00 Danslög.
Á morgun.
Næturlæknir er í nótt í Lækna-
varðstofunni, símj. 5030.
Næturvörður r í Laugavegsapó-
teki.
ÚTVARPIÐ:
20.00 Fréttir, 20.30 Þýtt og end-
ursagt: Úr ævisögu Byrons eftir
André Maurois (Sigurður Einars-
son dósent). 20.55 Hljómplötur:
Lög leikin á harpsicord. 21.00 Um
daginn og veginn (Sigurður Bjarna
son alþingismaður). 21.20 Útvarps
hljómsveitin: íslenzk alþýðulög. —
Einsöngur (Ólafur Magnússon frá
Mosfelli). 21.50 Fréttir.
„Óli smaladrengur".
Sýningar á þessum
vinsæla barnaleik
hefjast að nýju.
Óli smaladrengur og prinsessan
Leikfélag Rvíkur hefir þrátt
fyrir hin erfiðu skilyrði,
sem félagið á við að búa, reynt
að bæta, af fremsta megni úr
þeirri þörf, sem er á hæfilegum
barnaskemmtunum, og sýnt
nokkur sérstök barnaleikrit,
sem voru sýnd með það fyrir
augum að bæði áhofendur og
leikendur séu börn.
Hefir þessi viðleitni félagsins
hlotið almennings hylli og varð
t. d. að hætta að leika Óla smala
dreng á s. 1. vori þótt þörf fyrir
mikið fleiri sýningar væri fyrir
hendi.
Af þeim ástæðum hefir fé-
lagið nú horfið að því ráði að
taka leikinn aftur til sýningar
og verður hann sýndur í fyrsta
skipti í dag ltl. 5 e. h. — Það
Seru, eins og í fyrra, þær syst-
urnar frk. Emelía Borg og frú
Þóra Borg Einarsson, sem hafa
allan veg og' vanda af sýning-
um leiksins. Eru þær leikstjór-
ar og hafa einnig unnið sleitu-
laust að öllum undirbúningi,
saumað að einhverju leyti hina
skreutlegu fatnaði, búið út
skraut það og skart, sem á leik-
sviðinu er notað og er þeim því
fyrst og' fremst að þakka þá á-
nægju, sém væntanlegir leik-
húsgestir fá að njóta, jafnt
fullorðnir og þá ekki síður
hinir ungu, þakklátu, sem í
leiknum sjá hylla undir drauma
lönd ævintýra sinna og sem !
Sbjaldarglíma Ar-
manns ð priðjndagS'
kvðld.
16 Dðtttakendsr frá 4 félög-
nm.
SKJALDARGLÍMA ÁR-
MANNS fer fram á
þriðjudagskvöld og verður að
þessu sinni sem einn liður í
afmælissýningum félagsins.
Þátttakendur verða 16 að
tölu: 5 frá Ármanni, 5 frá KR.
5 frá ÍR. og 1 frá Ungmennafé-
laginu Trausti undir Eyjafjöll-
um. Eru flestir af beztu glímu-
mönnum landsins meðal þátt-
takenda, svo sem glímukonung
ur íslands, Guðmundur Ágústs-*
son, sem sigraði í síðustu
Skjaldarglímu og keppir nú
fyrir Ármann. Aðrir keppendur
frá Ármanni eru Andrés Guðna
son og Sigurður Hallbjörnsson.
KR-ingar senda fram m. a.
Kristmund Sigurðsson, sem
varð annar á síðustu Islands-
glímu, Ragnar Sigurjónsson og
Olaf Sveinsson. ÍR-ingarnir
fimm munu ókunnir með öllu,
um Umf. Trausti hefir 1 kepp-
anda, Guðmund Guðmundsson,
sem æft hefir hjá Ármanni í
vetur.
Keppnin verður eflaust mjög
skemmtileg, því að margir
g'límumannanna eru mjög snjall
ir. Leikur mörgum forvitni á
að vita, hvort glímukóngurinn
og glímusnillingurinn Guð-
mundur Ágústsson verður eins
ósár nú og á síðastl. ári, en þá
hlaut hann aðeins tvær byltur:
fyrir Kristjáni Jósteinssyni á
Flokksglímu Ármanns og Davíð
Guðmundssyni á landsmóti U.
M. F. í. á Hvanneyri. Hvorug-
ur þessara kóngabana er með
nú og er það skaði, en þeir
keppendur, er nefndir voru að
framan, geta líka nokkuð, svo
að eflaust verður Guðmundur
ekki of viss.
Glíman fer fram í íþrótta-
húsi Jóns Þorsteinssonar við
' Lindargötu og hefst kl. 9 síðd.
AðaiMnr Iðjn íé
legs verksmiðRfðlks.
SamDykkir beimild til að vera
Dátttakaudi i stórasjóðí.
fk ÐALFUNDUR IÐJU, fé-
lags verksmiðjufólks var
haldinn síðastliðið föstudags
kvöld.
í stjórn félagsins voru kosin:
Björn Bjarnason, formaður,
Halldór Pétursson, ritari, Guð-
munda L. Ólafsdóttir, gjald-
keri, Guðlaug Vilhjálmsdóttir,
varaformaður, Sigríður Erlends
dóttir, meðstjórnandi, Ingibjörg
Jónsdóttir, meðstjórnandi.
Úr stjórninni gengu og báðust
undan endurbosningu, Sigríður
Bæringsdóttir, Sigurlína Högna
dióttir og Jón Ólafsson.
Á fundinum var samþykkt að
gefa stjórn félagsins heimild til
að gerast aðili að 11. maí sjóði
verkalýðsfélaganna.
í Iðju eru nú 650 félagar.
Laugarnesprestakall
Messa í samkomusal Laugarnes-
kirkju í dag kl. 2 séra Björn O.
Björnson predikar. Barnaguðs-
þjónusta kl. 10 f. h.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir Vopn guðanna kl. 8 í kvöld
og barnaæfintýrið Óla smaladreng
kl. 5 í dag. Aðgöngumiðasalan er
opin frá kl. 1 í dag.
klappa því leiknum og leikend-
unum lof í lófa ,í þeirrí einlægu
ósk að mega sjá „meira, meira“.
<5. S.
Hátíðleg samkoma
r r
Skora$ á æskulýðinn
að heiðra íslenzka
fánann.
O TJÓRN í. S. í. hafði boð
^ inni á föstudag í tilefni
af 32 ára afmæli sambands-
ins. Voru gestir sambandsins
Amerísk
Kjólaefni
tefein upp í dag.
Hafnarstræti 11. — Sími 4473.
ýmsir íþróttafrömuðir og í-
þróttamenn, er sett höfðu
met á síðasta ári. Fengu þeir
metmerki í. S. í., en þau veit
ir sambandið árlega á afmæli
sínu, 28. janúar. Hófið var í
Oddfello'whúsinu og var sal-
urinn skreyttur ísl. fánanum
og fána sambandsins, en á
vegg hékk mynd af Jóni Sig-
urðssyni, sem íþróttafrömuð
ur hafði gefið í. S. í. í tilefni
af afmælinu.
Silfurmerki fékk Gunnar
Huseby úr KR fyrir 4 met á
árinu (eitt í kringlukasti og 3 í
kúluvarpi), og Sigurður Jóns-
son úr sama félagi fékk eirmerki
fyrir 2 met, en aðrir fengu eir-
merki fyrir eitt met. Þeir voru
þessir: Sigríður Jónsdóttir, KR
(50 m. bringusund), Hekla Árna
dóttir, Á. (100 m. hl.). Jóhann
Bernhard KR (60 m. hl.),
Brynj. Ingólfsson K.R. (300
m. hl.), Skúli Guðmundsson,
KR (þríst. án atr.), Ólafur
Erlendsson, KV og Guðjón
Magnússon, KV (stangarstökk),
og Rafn Sigurvinsson, KR (50
m. sund, frj. aðferð). — Vest-
manneyingarnir gátu því mið-
ur ekki mætt þarna.
Þá fær KR skjal fyrir met í
5X80 m. boðhlaupi kvenna og
4x200 m. boðhlaupi karla, og
Ármann fyrir met í 4x50 m.
bringuboðsundi og 8x50 m. boð-
sundi, frjáls aðferð.
Á meðan kaffi var drukkið
afhenti forseti í. S. í., Bene-
dikt G. Waage, merkin og hélt
síðan stutta ræðu. í tilefni af
sextugsafmæli Kristjáns Ó.
Skagfjörð fyrir skemmstu af-
henti forseti honum æðsta heið-
ursmerki sambandsins, gull-
merki með stjörnu fyrir hans
þjóðkunnu störf íþróttunum til
heilla. Aðrir ræðumenn voru
Erlendur Pétursson og Kristján
Ó. Skagfjörð.
Því næst sýndi Kjartan Ó.
Bjarnason íþróttakvikmynd, en
á eftir skemmtu íþróttamenn
með söng og píanóleik.
Hófið var skemmtilegt og fór
hið bezta fram.
Stjórn í. S. í. hélt fund í til-
efni afmælisins og samþykkti
þar eftirfarandi tillögu:
„Afmælisfundur íþróttasam-
bands íslands haldinn 28. jan.
1944 í Reykjavík samþykkir að
skora á öll sambandsfélög í. S.
í., að auka og efla virðingu
æskulýðsins fyrir íslenzka fán-
anum, með því að hafa hann við
hún á öllum hátíðisdögum sín-
um, og á íþróttamótum og fé-
lagsfundunl.“
Glímulélagið Ármann
Frh. af 2. síðu.
— En hvað segir þú um há-
tíðahöldin!
„Við höfum hug á áð láta sem
allíra flesta af félögum okkar
koma á einhvern hátt fram í
sambandi við 5I5 ára afmæli okk
ar. Einnig stöndum við í skuld
við almenning — og viljum því
gefa honum sem beztan kost á
■að fylgjast með starfsemi okkar.
Við efnum til hiátíðahalda,
sem hefjast í dag (laugardag)
og eiga að standa í 9 daga. Þau
hefjast með reisugildi í hinum
endurreista skíðaskála okkar í
Jósefsdal. Hann er að vísu ekki
alveg fullgerður — og vígslu-
hátíðin verður seinna. Þetta hóf
sækja ó annað hundrað manns
og verður þar hvert rúm skipað \
í nótt. Þarna eru fyrst og fremst i
allir þeir, sem unnið hafa að end !
urbvggingu skálans til þessa. i
Á sunnudag verður skíðakapp
mót í Jósefsdal. Þar keppa fé-
lagar allra flokka í svigi.
Á mánudaginn verður svo-
kölluð opnunarhátíð í íþrótta-
, húsi Jón Þorsteinssonar —
og verður þar margt boðsgesta.
Þar verða sýndar íþróttir —
og kama þar fram á einhvern
hátt allir, sem starfa við þessi
hátíðahöld okkar. Á þriðjudags
kvöld verður svo Skjaldarglím-
an háð og taka þátt í keppninni
16 glímumenn frá 4 íþróttafé- j
lögum. Á miðvikudagskvöldig
verða sýningar fyrir almenning
og verða þá endurteknar sýn-
ingarnar, sem verða hafða á
opnunarhátíðinni. Á fimmtu-
dagskvöld verða hafðar íþrótta-
skemmtanir fyrir ibörn —. og
verður þar ýmislegt til skemmt
unar. Á föstudagskvöld verður
handknattleiksmót og keppa þá-
meistaraflokkar karla og kvenna
úr Ármanni, KR. og Val. En auk
iþess verða sýndir sýningaleikir.
Á laugardagskvöld verður hnefa
leikameistaramót Ármanns háð.
Verður þá keppt í 7 þyngdar-
flokkum.
En hátíðahöldum þessum lýk
ur síðan með afmælishófi í
Tjarnarkaífi, sem hefst með
.borðhaldi kl. 7 laugardaginn 12.
febrúar.
3 nýir skattstjórar.
Frh. af 2. síðu.
Jóhannsson, ísafirði. Ingólfur
Arnason, ísafirði, Árni Helga-
son, Stykkishólmi.
Um Hafnarfjörð: Eggert
Bachmann, Reykjavík, Þórhall-
ur Pálsson, Reykjavík, Jóhann
Þorsteinsson, Hafnarfirði, Stein
dór Gunnlaugsson, Reykjavík,
Þorleifur Jónsson, Hafnarfirði,
Jón Arinbjörnsson, Reykjavík,
Sigurður M. Helgason, Bolunga
vík, Páll Magnússon, Reykjavík,
Sigurður Guðjónsson, Reykja-
vík, Hinrik Jónsson, Vestmanna
eyjum, Friðþjófur G. Johnsen,
Vestmannaeyjum.
Skattst j órastaðan í Vest-
mannaeyjum hefir enn ekki ver
ið veitt.“
Frh. af 2. síðu.
þrátt fyrir þetta myndi það gera
allt sem í þess valdi stendur
td þess að fá þessu breytt.
Eins og kunnugt er skýrði
Viðskiptaráð blaðamönnum svo
frá í vikunni, að von væri á
gúmískófatnaði í marzmánuði.
En skeytið í gær hermdi að ekk
ert yrði sent fyrr en í maí — og
það síðasta myndi koma í júlá.
Þetta eru slæmar fregnir fyrir
almenning. iþví að mikill skortur
á gúmískófatnaði hefir verið all-
lengi undanfarið og ágerizt að
sjálfsögðu stöðugt — Iþó að þetta
sé slæmt fyrir heimilin er það þó
enn vérra fyrir sjómennastétt-
ina. \
30. janúar.
Frh. af 3. síöu.
varlega, m. a. einn brezkur
þingmaður, sem virtist koma
óþyrmilega við kaunin á
Baldwin forsætisráðherra og
öðrum ráðamönnum í stjóm
hans. Þessi maður var sí og
æ að kveðja sér hljóðs og
vekja athygli á því, sem væri
að gerast handan Rínar, en
honum var svarað út í hott,
eða þá hann var jafnvel tal-
inn stríðsæsingamaður, en
það orð var mjög notað í
ræðum Hitlers um þá, sem
ekki* kunnu við hinn dulda
vopnagný. Þessi maður var
Winston Churchill. ,
1 SVO’ GERIST hver atburður-
urinn af öðrum með leiftur-
hraða. Hvert ríkið af öðru er
yfirbugað af hinum þaulæföu
og harðneskjulegu boðberum
hins nýja tíma. Og einn góð-
j an veðurdag í' maímánuði
1940 standa tugþúsundir
brezkra hermanna á strönd-
inni við Dunkirk í miskunn-
arlausri vélbyssuskothríð
þýzkra flugvéla. Með snar-
ræði og fórnfýsi, sem mun
nær einsdæmi í sögunni —
varð þessum mönnum bjarg
að, og nú sækja .þessir sömu
menn norður Via Appia, í
áttina til Róm.
ÞAÐ, SEM HITLER hafði í
huga, þegar hann þrýsti
hönd Hindenburgs fyrir ná-
kvæmlega 11 árum, er að
engu orðið. Sigursöngvar
hins ósigrandi þýzka hers
hafa breytzt í sorgaróð, og
i Sieg-hrópin, sem Hitler foi*ð-
um heyrði þruma á móti sér,
er hann stóð við glugga
kanzlarahallarinnar, munu
brátt breytast í bölbænir.
! Rennilésar
| 18 og 19 cm.
! BARNAKOT
i nýkomin.
Unnur
; fhomi Grettisgötu og
Barónsstígs)
VIKUR
HOLSTEINN
EINÁNGRUNAR-
PLÖTUR
Fyrirliggjandi.
PÉTD8 PÉTDRSSON
Glerslípim & speglagerð
Sími 1219. Hafnarstrœti 7,
Útbreiðið Alþýðublaðið.