Alþýðublaðið - 04.02.1944, Side 3
Fostudagur 4. febrúar 1M4.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
f'
3
Hernaðarsvæðið á Kyrrahafi.
FV
I.&
i'íl *
•'M
■ m
Marshalleyjar, þar sem Bandaríkjamenn hafa nú sett lið á land, sjást á kortinu lítið eitt
til hægri, neðan við bvítu örina.
Raymond Clapper
ferst í flugslysi
---- 5
^ IMITZ flotaforingi, yfir-
maður Kyrrahafsflota
Bandaríkjanna, tilkynnti í gær,
að Raymond Clapper, fréttarit-
ari Scripps-Howard-blaðasam-
bandsins, hefði farizt, er tvær
flugvélar rákust saman yfir
Marshalleyjum. Clapper var í
flugvél, sem flugsveitarforingi
úr flotanum stjórnaði. Rakst
jhún á aðra flugvél flötans, og
steyptust þær báðar í hafið.
Enginn þeirra, sem í flugvélun-
uun voru, komst lífs af.
Clapper hafði dvalizt síðustu
vikur á vígstöðvunum í Kyrra-
bafinu og kom þá til aðalbæki-
stöðva McArthurs hershöfð-
ihgja, Nýju-Guineu og annarra
vígstöðva. Clapper hafði ferð-
azt um allan heim sem frétta-
ritari.
Clapper hóf blaðamannsstarf
sitt árið 1916. Árið 1933 gerðist
hann stjórnmálafréttaritari
Scripps-Howard blaðasambands
ins. Varð hann brátt þjóðfræg-
ur maður fyrir það starf sitt.
Hann naut mikilla vinsælda
allra flokka og félaga sem
blaðamaður fyrst og fremst
vegna þess, að aldrei varð um
heiðarleik hans efazt. Hahn
naut mikilla áhrifa meðal
Bandaríkjamanna vegna hinna
glöggu og greinagóðu frásagna
sinna á því, sem fram fór í
Washington.
Eins og lesendur Alþýðu-
blaðsins muna, birtust yfirlits-
greinar um stríðið eftir Ray-
mond Clapper hér í blaðinu um
hríð.
ÍTALÍA:
Sókn bandamanna í álfina lil
Róm miðar vel áfram
Talið að Cassino falli þá og þegar
FRAMSÓKN 5. HERSINS í áttina til Rómaborgar og
við Cassino heldur áfram með miklum árangri. Gjálda
Þjóðverjar mikil afhroð í átökum þessum. Er talið, að þess
muni skammt að bíða, að Cassino falli bandamönnum í hend-
ur. Franskar og amerískar hersveitir nálgast Cassino óðum
þar sem þær sækja fram í fjöllunum norðan við víglínu
Þjóðverja. Hersveitir þær, sem rofið hafa Gustavlínuna,
hrinda frækilega öllum gagnárásum Þjóðverja.
Mestar er.u orrusturnar í
námunda við Rómaborg á hin-
um svonefndu Cisterna- og
Campo Leone-vígstöðvum. —
Þjóðverjar sprengja allar brýr
í loft upp á þessum slóðum, þar
sem bandamenn sækja fram,
en bandamenn vinna ótrauðir
að því að leggja nýjar brýr,
þrátt fyrir grimmilegar árásir
óvinanna.
Loftsókn bandamanna á ítal-
íu og við Miðjarðarhaf heldur
áfram með miklum árangri. Á
Ítalíu hafa miklar árásir ver-
ið gerðar á samgögumiðstöðv-
arnar Albano og Marino. Einn-
ig hafa flugvélar bandamanna
lagt til atlögu við stöðvar Þjóð-
verja í hafnarbæjum í Júgó-
slavíu og Albaníu. Einnig hafa
mi-klar árásir verið gerðar á
höfnina í Formia.
Dagárás
á Wilhelmshaven
T OFTSÓKNINNI gegn Evr-
^ ópuvirkinu heldur linnu-
loust áfram enn sem fyrr, svo
Max Reinhardt
og á staði í Þýzkalandi. Ame-
rískar Liberatorflugvélar og
fljúgandi virki, sem nutu full-
tingis mikils fjölda orrustuflug-
véla, gerðu í gær mikla dagárás
á hina mikilvægu þýzku
hafnarborg Wilhelmshaven.
Alls tóku meira en 1100 flug-
vélar þátt í árás þessari, og
varð tjón af völdum 'hennar
geipilegt.
Hinn heimsfrægi þýzki leik-
hússtjóri Max Reinhardt, lést
fyrir nokkrum vikum, 70 ára
að aldri, vestur í New York.
Hann hafði eins og svo marg
ir aðrir mætir Þjóðverjar
orðið að flýja land fyrir naz-
istinn eftir valdatöku þeirra
fyrir 11 árurn.
RÚSSLAND:
Rússar sækja fram fil Narva
í stórkosflegri tangarsókn
ÞjóSverjar hvarvetna á hröðu undanhaldi
4(f^.
C ÓKN RÚSSA heldur áfram af sömu hörku og fyrr. Eru
^ hersveitir þeirra nú á næsta leiti við hina mikilvægu
samgöngumiðstöð Narva. Láta Þjóðverjar undan síga og
reka Rússar flótta þeirra af miklu harðfengi.
Rauði herinn hefir náð borg-
inni Vanakula á vald sitt og
sækir fram til Narva í stórkost-
legri tangarsókn. Er talið, að
Þjóðverjar séu í þann veginn
að hörfa brott úr Narva svo og
af gervallri hinni nær fimmtíu
kílómetra breiðu víglínu milli
Finnlandsflóa og Peipusvatns.
Hersveitir Rússa, sem sækja
fram eftir járnbrautinni frá
Leningrad til Pskov eiga nú að-
eins nokkra kílómetra ófarna
til samgöngumiðstöðvarinnar
Bateskaya. Þýzkar fréttir greina
frá miklum bardögum suður af
Luga og segja, að Rússar dragi
að sér mikið varalið á þeim
slóðum.
Hersveitir Rússa, sem sækja
fram til landamæra Lettlands
suður af Leningrad, hafa náð á
vald sitt átta borgum og þorp-
um á hinum svonefndu Novo-
sokolnikivígstöðvum.
Þjóðverjar tilkynna, að her-
sveitir þeirra hafi hörfað brott
úr borgunum Rovno og Luck á
Pripetmýrunum, að því er segir
í því skyni að taka sér stöðu
þar, sem skilyrði til að heyja
varnarorrustur eru betri.
Rússar hafa einnig hafið
nýja sókn í Dnieprbugðunni, og
greina fréttir frá því, að þeim
hafi þar tekizt að innikróa
hundrað þúsunda manna þýzk-
an her.
Almennt viðnám gegn
nazistum í Noregi —
segir Ragnar Micolay-
sen, prófessor
ÝLEGA náðu blaðamenn
* frá Minneapolis Tribune
tali af dr. Ragnar Nicolaysen,
fyrrverandi prófessor í lífeðlis-
fræði við Ohioháskólann, en
prófessorinn komst undan frá
Noregi í desembermánuði árið
1942. Kvað hann þannig að
orði, að nazistum sé enn al-
mennt viðnám veitt í Noregi.
Nicolayseri sagði meðal ann-
ars: „Nær því öll norsk börn
á skólaskyldualdri taka þátt í
viðnáminu og hinni andlegu
skemmdastarfsemi gegn nazist-
um, sem gerir Þjóðverjum her-
nám Noregs svo erfitt sem raun
ber vitni. Unglingar innan við
tvítugsaldur annast dreifingu
leyniblaða að næturlagi og
halda uppi skemmdarstarfsemi,
þótt þeim sé um það kunnugt,
Tvær Marchalleyja á
valdi Bandaríkja-
manna
• - 4 1 :■
IVIiklar loftárásir á
Rabaul ©g
Hansaflóa
OÓKN Bandaríkjamanna á
^ Marshalleyjum gengur
greiðlega og hafa þeir þegar
tvær eyjanna á valdi sínu.
Halda þeir uppi stórkostlegri
stórskotahríð á stöðvar og her-
sveitir Japana á þessum slóðum
og hafa einnig teflt fram skrið-
drekum.
Bandaríkjamenn halda uppi
vasklegri sókn eftir að hafa
náð Roi á vald sitt. Hafa þeir
nú gengið á land á Namur, sem
er örskammt fxá Roi. Ágætur
flugvöllur er á Roi og halda
Bandaríkjamenn uppi grimmi-
legri loftsókn gegn Japönum á
Marshalleyjum þaðan. Gjalda
Japanir mikil og tilfinnanleg af-
hroð í loftárásum Bandaríkja-
manna og gerist aðstaða þeirra
æ alvarlegri með hverjum degi,
sem líður.
Enn ein stórárás hefir verið
gerð á Rabaul á Nýja-Bretlandi.
Var fimmtán flugvélum Japana
grandað í árás þessari, en nítján
aðrar urðu fyrir miklum
skemmdum.
Önnur stórárás var gerð á
Hansaflóa við norðurströnd
Nýju-Guineu. Var fimm þúsund
smálestum sprengna varpað í
árás þeirri. Ástralskar hersveit-
ir hafa brotizt gegnum varnar-
stöðvar Japana í Ramudalnum
á Nýju-Guineu, og felldu þar
margt manna af liði óvinanna.
að nazistar myndu ekki
hika við að kvelja þá og drepa,
ef þeir gætu haft hendur í hári
þeirra.“
Prófessorinn skýrði frá því,
að í einum skóla Noregs hafi
tilkynning um hina nýju nazist-
isku fræðslustarfsemi verið rif-
in niður. Er skólastjórinn, sem
var quislingur, krafðist þess,
að sökudólgurinn gæfi sig fram,
bærði enginn hinna fimm
hundruð nemenda á sér. En er
skólastjórinn lét svo um mælt,
að hann myndi velja gisl úr
hópnum, réttu öll börnin, sem
voru á aldrinum 12—18 ára,
upp hendurnar samtímis, til
þess að játa á sig verkið.