Alþýðublaðið - 19.02.1944, Side 7
^LÞYÐUBUÐtP
Konan mín, móðir okkar og dóttir
Anna Guðsnundsdótti
andaðist í gær.
Lárus Jónsson og bör*.
Júliana Sveinsdóttir. GuSmxmdur Jónsson.
Baugsveg 29.
Laugardagur 1§. febrúar 1944
| Bœrinn í dag^
®000000O000O000000®00«®00e
Næturlæknir er í nótt í Lækna-
varðstofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Iðunnarapó-
teki.
Næturakstur annast Bifreiða-
stöð Steindórs, sími 1580.
ÚTVARPIÐ:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
18.30 Dönskukennsla, 2. fl.
19.00 Enskukennsla, 1. fl.
1925 Hljómplötur: Lög úr „Gullna
hliðinu“ eftir Pál ísólfsson.
19.50 Auglýsingar.
20.00 Fréttir.
20.20 Leikrit: „Pygmalion" eftir
B. Sihaw. (Leikstjóri. Soffía
Guðlaugsdóttir.)
21.50 Fréttir.
22.00 Danslög.
24.00 Dagskrárlok.
Frjálslyndi söfnuðnrinn.
Messað á morgun kl. 5. Séra
Jón Auðuns.
Fríkirkjan í HafnarfirSi.
Messað ó morgun kl. 2. Séra
Jón Auðuns.
Hallgrímsprestakall.
Kl. 2 e. h. messa í Austurbæjar-
skólanum, séra Jakob Jónsson. Kl.
11 f. h. barnaguðíþjónustur, séra
Sigurbjörn Einarsson. Kl. 10 f. h.
Sunnudagaskóli í Gagnfræðaskól-
anum við Lindargötu. Kl. 814
Kristlegt ungmennafélag heldur
fund í Handíðaskólanum að
Grundarstíg 2 A.
Leikfélag Reykjavíkur.
sýnir Vopn guðanna annað
kvöld og hefst sala aðgöngumiða
kl. 4 í dag. Óli smaladrengur
verður sýndur kl. 4.30 á morgim.
Aðgöngumiðasala hefst á morgun
kl. 1.
Skíðafélag Reykjavíkur
ráðgerir að fara skíðaför næst-
komandi sunnudagsmorgun kl. 9
frá Austurvelli. Ekið að Lögbergi.
Farmiðar hjá Muller í dag til fé-
lagsmanna til kl. 4, en til utan-
félagsmanna kl. 4 til 6, ef afgangs
er.
Minningargjöf
til Barnaspítalasjóðs Hringsins,
kr. 1500.00, til minningar um frú
Sigurveigu Guðmundsdóttur, á 80
ára fæðingardegi hennar, 19. febr.
1944, frá manni hennar Jóni E.
Jónsyni, prentara, börnum og
tengdabörnum.
íálMt: S. R. kr. 100.00. Kærar
þakkir.
Stjórn Kvenfélagsins Hringurinn.
Félagar
ungmennadeildar Slysavarnafé-
lags Islands, sem ælla áð hjálpa
til með merkjasölu Kvennadeild-
ar Slysavarnafélagsins eru beönir
um að mæta á skrifstofu félagsins
kl. 9—10 árdegis á sunnudag.
Laugarnesprestakall.
Bárnaguðþjónusta kl. 10. f. h.
í samkomusal Laugarneskirkju.
Fé I a § s I í f.
SkíHafertlir U.
um helgina. Farið verður í dag
kl. 2 e. h. og í kvöld kl. 8. Far-
ið verður frá Kirkjutorgi. Far-
seðlar seldir í Skóverzlun
Þórðar Péturssonar. Þátttak-
endur í kl. 2 ferðinni verða að
sækja farseðla fyrir kl. 12 í
dag. Vegurinn að Bugðu er
greiðfær.
Innafélagsskíðamót K. R.
verður haldið við skála félags-
ins um aðra helgi eða 27. febr.
Keppt verður í svígi og bruni
í öllum flokkum og stökki og
göngu ef veður og tími leyfir.
Skíðamenn og konur K. R.
fjölmennið nú og látið skrá
ykkur í innanfélagsmótið.
Leadiogarbætnr f
Bðfnoffl.
Frh. af 2. síðu.
ið að notast við opna báta, fyrst
árabáta, síðan trillubáta. Stærri
báta hefur ekki verið hægt að
hafa þarna vegna lendingarínn-
ar og vegna legunnar. Hefur
þetta orðið til hins mesta tjóns
fyrir hreppinn og bókstaflega
staðið honum fyrir þrifum.
Hefur það komið fyrir hvað eft
ir annað, að nægur afli hefur
verið fyrri hluta vertíðar á
gtunnmiðum, en, síðari hluta
vertíðar engin afli þar, en næg-
ur á djúpmiðum. A grunnmið-
um hefur verið hægt að nota
opnu bátana, en ekki á djúp-
miðin, og hafa Hafnamenn því
iðulega orðið að vera í landi
vegna ófullnægjandi skipa-
kosts, þegar nægur afli hefur
verið á djúpmiðum, en lítill eða
enginn á grunnmiðum. Hafna-
menn 'hafa mikinn áhuga fyrir
því að bæta úr þessu og skapa
sér skilyrði til betri afgreiðslu,
þegar að landi er komið, og
möguleika á að hafa stærri
báta, en þess er ekki hvað sízt
þörf nú, þegar hraðfrystihús
hefur verið byggt í hreppnum.
Á þessu eru ekki svo miklir erf-
iðleikar, að ekki sé hægt við þá
að ráða, ef eðlilegur stuðning-
ur hins opinbera kemur til. t
Hafnahreppi er einhver sú
bezta og öruggasta smábáta-
höfn, sem frekast verður á kos-
ið, gerð af náttúrunnar hendi,
en með þeim galla, að bátarnir
komast þar hvorki út né inn
nema með háum sjó. Til þess
að þessi höfn verði notuð, þarf
því að grafa rás inn í leguna.
Vitamálastjóri hefur athugað
nokkuð möguleikana á þessu
og kostnað í sambandi við slíka
dýpkun, og segir svo í áliti
hans:
„Gerð hefur verið athugun
um dýpkun þannig, að rás verði
grafin eða sprengd inn í gegn-
um grynningarnar, sem eru á
milli landsins annars vegar og
Varpeyja og Eggja hins’ vegar.
Er botnin þar ýmist sandur eða
þang og þari á grjóti eða þá
samfelld klöpp. Ef dýpkað yrði
niður í 1 m dýpi, miðað við
stórstraumsfjöruhorð, yrði
lengd þeirra rásar, sem dýpka
þyfti, um 860 m. Ef gert yrði
ráð fyrir 10 m breiðri rás, nem-
ur öll dýpkunin um 10000 m3,
en með 8 m breiðri rás um 8000
m3.
Erfitt er að segja að svo
stöddu um, hvað kosta mundi
að dýpka miðað við rúmmetra,
enda þyrfti áður að fara fram
tilraunadýpkun á staðnum og
nákvæm athugun á öllu svæð-
inu. Ef gert yrði ráð fyrir kr.
50.00 kostnaði að meðaltali,
miðað við hvem rúmmetra,
sem dýpkað yrði, mundi öll
dýpkunin kosta 400 þúsund til
500 þúsund krónur.“
Er það von íbúa Hafna-
hrepps, að mannvirki þetta
komist í framkvæmd áður en
langt um líður.
Frumvarp þetta er borið
fram í þeim tilgangi að greiða
fyrir því, að sú von megi ræt-
ast, enda sjálfsagt að afgreiða
lög um lenöingarbætur fyrir
Hafnahrepp, þar eð.hann hefur
þegar fengið fjárveítingu til
lendingarbóta. “
Húnvetningamót. ■
Þeir, sem ekki taka pantaða að-
göngumiða geri áðvart í síma 2841
eða 1325 frá kl. 12—1 í dag.
Nesprestakall.
Messað ,í Mýrarhússkóla kl. 2%
á morgun.
Fríkirkjan í Reykjavík.
Messað á morgun kl. 2, sr. Ámi
Sigurðsson.
Unglingafélagsfundm- í kirkj-
unni kl. 11. Framhaldssagan byrj-
ar o. fl.
MiBBingarorð:
Pétur Mapússoo
bifreiðarstjöri.
F. 3. júni 1895 - D. 10. febr.
1944.
17 YRHt nokkrum dögum
barst mér andlátsfregn
Péturs Magnússonar, bifreiða-
stjóra, 'Krosseyrarvegi 4, Hafn-
arfirði. Hafði hann árum sam-
an háð harða baráttu við heilsu-
leysi, og að lokum — samkvæmt
hinni röngu almennu kenningu
— borið lægra hlut. Hinsveg-
ar lítur sá svo á, er þetta ritar
að það ern fleiri en þeir, er
yfirstíga sjúkdóma, sem sigr-
ast á þeim, hitt er ennbá meira
■umvert að sigrast á ólæknandi
sjúkdómi þannig, að hinn innri
■maður bíði. ekki tjón, að láta
aldrei hugfallast og ganga gunn
reifur til baráttu við örlaga-
völdin, hver svo sem þau ann-
ars eru. Og eftir þeim kynn-
um, sem ég haíði af Pétri Magn-
ússyni tel ég hann hiklaust í
hópi þeirra, sem sigrast á sjúk-
dómi sínum með stöku þolgæði,
og þjartri trú á nútíð og fram-
tíð.
Ég kynntist honum fyrir
nokkuð mörgum árum, og tel
mér það ávinning að hafa not-
ið hans góða kunningsskapar
tun nokkur ár. Það var bjart-
sýni á lífið og glaðværðin, sem
dró hugi okkar saman þannig,
að við urðum við fyrstu kynn-
ingu góðir vinir og á þarrn
vinskap skyggði ekkert.
Aðalstarf hans var bifreiða-
akstur og var hann einhver
sá traustasti og bezti bílstjóri,
sem ég hefi setið í bíl hjá. —
Stundaði hann starf sitt með
mestu alúð eftir því s,em kraftar
leyfðu og stundum býst ég við
að hann hafi ofboðið heilsu
sinni, sem jafnan var nokkuð
veil, einkum hin síðari ár.
Pétur heitinn Var vaxinn upp
úr jarðvegi vestfirzkrar alþýðu
og var sannur alþýðumaðúr í
beztu merkingu þess orðs. Hann
skipaði sér þar í sveit þeirra
manna, sem fundu að ranglátt
þjóðskipulag heldur til baka
rétti þeirra minni máttar og var
jafnan traustur liðsmaður hafn-
firzkra alþýðusamtaka. Og við,
sem þar unnum með honum,
eigum þaðan ýmsar bjartar og
■góðar endurminningar.
í dag verða jarðneskar leifar
Péturs Magnússonar bílstjóra
huldar moldu, en við sem eftir
lifum, sendum honum þakklæti
fyrir samverustundimar, og
sendum hlýjar hugsanir til eft-
irlifandi ekkju og barna.
Vinur.
Hehniitg norska kaup-
kaupskipasíóisins
sökkt.
^ ILKYNNT er í London,
■*- að um það bil helming
norska kaupskipaflotans hafi
verið sökkt síðan styrjöldin
hófst. Þegar Þjóðverjar réðust
inn í Noreg í apríl 1940 voru
um það bil 1000 skip, sem voru
í förum fjarri Noregi. Þessi
skip hafa síðan siglt á vegum
hinna sameinuðu þjóða en nú
munu um 500 eftir, samtals
um 3,6 milljónir smálestir. Auk
þeirra eiga Norðmenn skip í
smíðum í Svíþjóð og 10 skip
hafa þeir fengið leigð hjá
Bandaríkjamönnum meðan á
styrjöldinni stendur.
„Hlufleysi" Ipánar.
Frh. af 3. síðu.
ekki örgrannt um, að slík
starfsemi væri rekin með vit-
und og vilja Francos og
falangista hans. Ekki alls
fyrir löngu bar svo við, að
sprengjur fundust í skipi eða
skipum, sem fluttu appelsín-
ur frá Spáni til Bretlands.
Vinsældir Francos í herbúð-
um bandamanna munu ekki
hafa aukizt við þetta, enda
þótt þýzkum flugumöimum
hafi verið kennt, um. Þá
hafa borizt fregnir um, að
hveiti, sem brezk skip fluttu
til Spánar, hafi verið flutt
til Þýzkalands, enda þótt
flutningur þess til Spánar
hafi verið því skilyrði buncþ
inn, að það yrði ekki flutt
aftur úr landi.
FRANCESCO FRANCO hefir
fetað* dyggilega í fótspor
meistaranna, Hitlers og
Mussolini. Hann apar eftir
MusscHni í klæðaburði, geng-
ur hnakkakertur í vel sniðn-
um einkennisbúningum og
lætur kalla sig caudillo, sem
þýðir svipað og duce eða
Fuhrer. Hann hefir breitt
sömu fantatökunum við
þjóð sína og þessri sálufélag-
ar hans undir yfirskyni ætt-
jarðar og guðrækni, eins og
einvalda er háttur. Sam-
tímis , hefir svo verið fitjað
upp á því, að glæsileg fram-
tíð bíði Spánar, nýtt Spánar-
veldi myndi rísa af grunni.
MARCT BENDIR TIL ÞESS,
að tímabil hinna einkennis-
klæddu bófa sé senn á enda.
Það kemur að því að ræðu-
höld og skrúðgöngur muni
ekki reynast einhlít ráð til
þess að kúga heilar þjóðir.
Nú hefir verið komið á fót
Mexikó spánskri frelsisnefnd
Einn helzti áhrifamaður í
þeirri nefnd er Indéilecio
Prieto, sá er var hermála-
ráðherra lýðveldisstjórnar
Spánar meðan á borgarstyrj-
öldinni stóð og fleiri forystu-
manna spánska lýðveldisins.
Þessir menn vinna að því, að
koma aftur á lýðveldi á Spáni
samkvæmt stjórnarskránni
frá 1931. Og ekkert er senni-
legra en að það takist, þótt
síðar verði. Leirbákn Fran-
cos mun hrynja til grunna
og á rústum þess mun rísa
betra og réttlátára þjóðfélag
í þessu hrjáða landi.
r
Frh. af 3. síðu
ríkjamanna við Cisterna, en
þeim var hrundið. Yfirleitt
hefir Þjóðverjum hvergi tekizt
að rjúfa varnarbelti banda,
manna, að því, er sagt var í
Lundúnafregnum í gærkvöldi
Þjóðverjar hafa orðið fyrir
geysilegu manntjóni í árangurs
Arás á Trak.
Frh. af 3. síðu.
þeir komið sér upp góðum flug-
völlum og ramgeru virkjakeríL
Hafa sumir nefnt Truk „Gi-
braltar Kyrrahafsins“ og mun
það sízt rangnefni. Truk er
mjög vel í sveit komið og vel
til þess fallin að trufla þaðau
siglingar um vesturhluta Kyrra
hafs með loftárásum og her-
skipum. Ef þessi þýðingarmikla
bækistöð gengur Japönum úr
greipum, stórversnar enn að-
staða þeirra á þessum slóðum,
enda má segja að eyjamar séu
útvirki Japans sjálfs. Má þv£
gera ráð fyrir, að Japanir verji
hvert fótmál á eyjum þessum,
áður en yfir líkur.
Frh. af 3. slðu.
til hjálpar. Allmargir herflokk-
ar Þjóðverja, sennilega nokkr-
ar þúsundir, hafast við í skóg-
um þarna nálægt og er verið
að eyða þeim. Eisenhower hers
höfðingi hefir sent rauða hern-
um heillaóskaskeyti í tilefni af
26 ára afmæli' hans í næstu
viku.
Þjóðverjar segjast hafa yfir-
gefið Starayarussa, fyrir sunn-
an Ilmenvatn, er þejr höfðu
eyðilagt allt, sem Rússum
mátti að gagni koma. Segjast
þeir hafa yfirgefið borgina ó-
áreitíir. Starayarussa var eitt
öflugasta varnarvirki Þjóð-
verja á norðurvígstöðvunum
og mun fall borgarinnar hafa ó-
fyrirsjáanlegar afleiðingar í
för með sér. Rússar herða nú
sóknina til Pskov og Lettlands.
7000 Horðmenn í
þýzkom fangeban
og fangabúðum.
¥ T M það bil 7000 Norðmenn
sitja nú í þýzkum fang-
elsum og fangabúðum. Þar af
eru um 1200 liðsforingjar, flest
ir í fangabúðum í Posen, 3000
óbreyttir borgarar, þar af 100
—200 konur, flestir þeirra í
hinum illræmdu fangabúðum
Oranienburg. Yfir 700 manns
eru í fangelsum í Þýzkalandi
eftir að hafa verið dæmdir af
þýzkum her- eða lögreglurétti,
um 700 Gyðingar eru í fanga-
búðum í Efri-Slésíu eða Pól-
landi. Loks eru hinir 700
stúdentar, sem voru fluttir úr
Iandi í desember og janúar s. L
en þeim hefir verið komið fyrir
í fangabúðum víðsvegar í
Þýzkalandi.
lausum árásum sínum á stöðv-
ar bandamanna. Minna hefir
verið um loftárásir.