Alþýðublaðið - 27.02.1944, Qupperneq 3
Stmnudagur 27. febrúar 1944.
ALPYÐUBLAOIÐ
3
Menningarba rátfa
Norðmanna.
'EGAÍR saga iþessarar styrj
aJdar verður skráð mun
einn kafli hennar f jalla um
flótt'amannastjórnir hinna
kúguðu landa, sem aðsetur
hafa í London, og að kaflinn
verður ef til vill einna eftir-
tektarverðastur. f>að má með
sanni segja, að London hafi
verið elheimsborg undanfar-
in f jögur ár. Þaðan er málefn
um Belga, Hollendinga, stríð-
andi Frakka, Norðmanna og
fleiri þjóða stjórnað eftir því,
sem unnt er. Flóttamanna-
stjórnirnar hafa orðið að
skipulegja margháttaða starf-
semi, koma á fót skólum fyrir
landflótta æskumenn, gefa út
'blöð og ibækur, auk hinna
venjulega starfa og hernaðar-
undirbúnings.
IÞEJDR, sem kunnugastir þykja
í þessum málum fullyrða, að
'Norðmönnum hafi tekizt að
skipuleggja starfsemi sína á
mjög iskynsamlegan hátt. Frá
London er hinum mikla skipa
■ flota Norðmanna stjórnað, en
brezkir áhrifmenn hafa látið
svo um mælt, að bandamönn-
um sé meira gagn í honum
en milljón manna her. En
ekki er síður athyglisvert,
hvernig Norðmönnum hefir
tekizt að viðhalda menningar
lífi sínu í útlegðinni, enda
þótt skilyrði sé að ýmsu leyti
hin erfiðustu. Hins vegar hef-
ir samvinna Breta og Norð-
manna verið með ágætum og
hefir það létt mikið undir í
menningarstarfi Norðmanna.
ÝMSiIR kunnustu fræði- og vís-
indamenn Norðmanna kom-
ust undan frá Noregi og hafa
idvalið í Bretlandi um nokk-
urt skeið. Meðal þeirra er dr.
Jacob S. Worm-iMúller, sem
kunnur er hér á iandi fyrir
snjalla fyrirlestra ekki alls
fyrir löngu.Prófessor Worm-
Múller hefir mjög orðið fyrir
, barðinu á hinum nazistísku
menningarfjendum, svo sem
við var að búast, enda er naz-
istum vel ljóst, að skæðasta
vopnið gegn þeim er frjáls
hugsun og snjöll fræði-
mennska. Enda hafa nazistar
unnið markvíst að því, að
clrepa í dróma menningarvið
leitni þeirra þjóða, sem þeir
hafa undirokað; er skemmst
að minnast aðfara þeirra við
háskólann í Osló, þegar mörg
hundruð stúdentar voru hand
teknir og fluttir til fangabúða
(Himmlers hingað og þangað
í Þýzkalandi og Elsass.
GLÖGGT dæmi um menningar-
starfsemi Norðmanna í Bret-
láhdi er tímaritið „The Norse
man“, sem kemur út í London
undir ritstjórn prói'. Worm-
Múllers. Það er læsilegt
rit, sem f jallar um bókmennt
ir og stjórnmál, enda nýtur
það mikilla vinsælda í Bret-
ladi. Nýlega ibarst hingað til
lands fyrsta hefti annars ár-
igangs og er þar mikinn fróð-
leik að finna og fjölmargar
afbragðs góðar greinar eftir
norska fræðimenn, svo og
Árás á Þýzkaland í vændum.
Mynd þessi sýnir brezkar sprengjuflugvélar á flugvelli „einhvers staðar í Bretlandi“, áður
en þær hefja sig til flugs til árása á Þýzkaland. Svo sem fréttir hafa borið með sér að und-
anförnu, hafa loftárásir bandamanna á iðnaðarborgir Þýzkalands farið mjög í vöxt undan-
gengna mánuði og líður vart sá dagur, að ekki berist fregnir um skæðar loftárásir á ein-
hverja þýzka borg og að þúsundum smálesta af sprengjum hafi verið varjað á skotmörk í
Þýzkalandi.
Fri@®ri£mieitasiir Fifiitraa:
SænsSsi Mai birfir v@pna
Efifi frétt þess er enn óstaðfest»
ISÆNSKUM fregnum segir nokkuð nánar um viðræður
Finna og Rússa um væntanlega friðarskilmála. Segir
þar, að Rússar hafi ekki krafizt meiri lands en þeir únnu af
Finnum árið 1940, en hins vegar hafa þeir krafizt þess, að
þýzki herinn í Finnlandi verði kyrrsettur og bjóðast þeir til
þess að aðstoða Finna í baráttunni við Þjóðverja, ef hersveitir
Dietls hershöfðingja kjósa þann kostinn að berjast til þrautar.
Það er blaðið „Dagens Nyheter“, sem borið er fyrir frétt-
um þessum, sem ekki eru opinberar, en sem komið er. Segir
ennfremur, að Rússar hafi tekið fram, að þeir vilji engin
afskipti hafa af innanlandsmálum Finna og að Finnum sé í
sjálfsvald sett, hvort þeir þiggi aðstoð Rússa til þess að af-
vopna hinn þýzka her. Þá munu Rússar einnig hafa lofað því
að hverfa á brott úr Finnlandi þegar að ófriðnum loknum, ef
Finnar æskja samvinnu þeirra til þess að ráða niðurlögum
hersveita Dietls.
1 London hafa fregnir þessar vakið mikla athygli og
telja menn þar, að skilmálar Rússa séu sanngjarnir, eftir at-
vikum. Sumir fregnritara telja, að greinilegt sé, að Bretar og
Bandaríkjamenn hafi haft sín áhrif í sambandi við þessi mál
og þess vegna séu kröfum Riissa stillt í hóf. Bíða menn með
mikilli óþreyju þess, sem koma skal í samningaumleitun-
um, en ákvarðanir um þær munu verða teknar næstu daga,
svo sem fyrr getur.
Rússar faka Porkhov fyrir
aysfars Pskov.
enn
lO ÚSSAR hafa
mikilvægan sigur.
náð
unnið
Hafa
þeir náð á sitt vald borginni
Porkhov, 70—80 km. austur af
Pskov. Á einni viku hafa Rúss-
ar sótt fram um 40 km., þrátt
fyrir hin erfiðustu skilyrði. Er
fall Pskov talið yfirvofandi, og
hefir Þjóðverjum mistekizt
| með öllu að stemma stigu við
* framsókn Rússa. Sunnar á víg-
stöðvunum hefir Rússum enn
orðið vel ágengt í sókninni frá
Rogachev og nálgast Bobruisk.
í fréttum frá Moskva segir að
barizt sé um Vitebsk, norðvest-
ur af Smolensk
Engar breyfingar á af-
sföðu herjanna á Ífalíu.
E
NN er hlé á. bardögum á
Ítalíu, en talið er, að
skammt muni að bíða mikilla
átaka. Við Anzio hefir komið til
nokkurra átaka og hefir öllum
árásartilraunum Þjóðverja ver-
ið hrundið við mikið manntjón
í liði þeirra. Hafa Þjóðverjar
haldið uppi mikilli stórskota-
hríð við Anzio og bandamenn
svarað í sömu mynt, en engar
verulegar breytingar hafa orðið
á afstöðu herjanna.
Á vígstöðvum fimmta hers-
ins eru veðurskilyrði óhagstæð.
Þar hafa franskar hersveitir
hrundið árásum Þjóðverja. í
fyrradag fóru bandamenn í 800
flugleiðangra. Meðal annars
réðust steypiflugvélar á tvær
birgðastöðvar Þjóðverja við
Cassino, sem stórar sprengju-
flugvélar fóru til árása á flug-
völl í Suður-Austurríki. Einnig
var ráðizt á skipakost Þjóð-
verja undan ströndum Júgó-
Bandamenn afhafnasamir
á Kyrrahafi.
O ANDARÍKJAMENN haf a
enn hleypt af stokkunum
nýju flugvélaskipi. Nefnist það
„Bennington" og er 27 þúsund
smálestir að stærð. Fyrir örfáum
dögiun var öðru flugvélaskipi
hleypt af stokkunum. Var það
af sömu stærð og heitir „Shangri
La.“ iSkip þessi munu hafa um
80 flugvélar innanborðs. Hafa
Bandaríkjamenn nú smíðað 84
flugvélaskip samtals. Mun engin
þjóð í heimi eiga jafnmörg flug
vélaskip og Bandaríkjamenn.
Breíar gera ívær stórárásir á Augsburg
og varpa niður 1700 srnál. sprengna.
Á8ur höfðu Bassdsríkjamsnn ráðiz! á Regensburg eg Sfutfgarf.
ýmsa snjöllustu rithöfunda
Breta og annarra banda-
manna Norðmanna.
FRÓFESiSOR Worm-Múller var
áður ritstjóri hins kunna
tímarits ,,Samtiden“, sem
þótti einna læsilegast allra
tímarita á Norðurlöndum.
Það tímarit "flutti óvenju
skeleggar greinar um þjóð-
félags- og menningarmál og
var glæsilegur fulltrúi
frjálsrar hugsunar á Norður-
löndum. Tímaitið „The Norse
man“ er nokkurs konar arf-
taki „Samtiden“, enda þótt
það sé gefið út með nokkrum
öðrum 'hætti og undir breytt-
um1 kringumstæðum, en
handbragðið er hið sama,
skýr og hleypidómalaus frá-
sögn um menn og málefni,
glæsilegur stíll og frágangur
MEÐAL þeirra, sem rita í þetta
hefti. tímaritsins er prófessor
A. H. Winsnes og fjallar
grein hans um háskólann í
Oslo. Greinin er fróðleg, eins
og vænta mátti, og er þar
rakin saga þessarar æðstu
menntastofnunar Norðmanna
með tilliti til hinna síðustu
og verstu tíðinda. Höfundur
bendir á, að það sé engin til-
viljun, að háskólinn sé stofn-
aður um líkt leyti og Norð-
menn fengu stjórnarskrána
1814, en háskólinn vgr stofn-
aður þrem árum áður. Það
var þjóðernisvakning lands-
manna, sem var driffjöðurin
í hvorttveggja. Þar hafa starf
að ýmsir mætustu menn Nor-
Framhald á 6. síðu.
B
orrustuflugvélar.
Þar
REZKAR flugsveitir hafa enn gert harða hríð að skot-
mörkum í Þýzkalandi. í fyrrinótt réðust mjög öflugar
flugsveitir á Augsburg í Suður-Þýzkalandi og vörpuðu niður
um 1700 smálestum sprengna ýmissa tegunda. Áður höfðu
amerískar flugvélar ráðizt á borgina í björtu og' valdið veru-
legum spjöllum. Bretar gerðu tvær árásir á bogina og er tal-
ið, að tjón hafi orðið mjög mikið. Könnunarflugmenn hafa
skýrt svo frá, að glöggt hefði mátt sjá, að tjón hafi orðið mik-
ið, enda var skyggni gott og auðvelt að sjá staði þá, sem á-
kveðið hafði verið að ráðast á. Þá var og ráðizt á ýmsa staði í
Suðvestur-Þýzkalandi, Hollandi og Belgíu. Voru það eink-
um Mosquito-flugvélar, sem þar voru að verki.
í Augsburg eru verksmiðjur,
sem framleiða hinar frægu
Messerschmitt-flugvélar og
ýmsa varahluti til flugvéla og
kafbáta. Samtímis árásum þess-
um þessum var og ráðizt á staði
við Ermarsund og dufl voru
lögð á siglingaleiðir Þjóðverja.
24 brezkar flugvélar komu ekki
aftur úr árásum þessum.
Var þetta sjötti dagurinn í
röð, sem Þýzkaland verður
hart úti í lofárásum. í fyrradag
réðust amerískar flugvélar í
björtu á borgirnar Regensburg
og Stuttgart, svo og flugvéla-
smiðjur í grennd við Núrnberg.
Kom til ákafra átaka í lofti og
voru ^skotnar niður um 140
þýzkar
af voru 93 flugvélar skotnar
niður af amerískum flugvélum,
sem komu frá bækistöðvum á
Ítalíu, en flugvélar frá bæki-
stöðvum í Bretlandi grönduðu
mörgum flugvélum í snörpum
bardögum. Bandaríkjamenn
urðu einnig fyrir verulegu tjóni
og misstu 68 sprengjuflugvélar
og 8 orrustuflugvélar. Þjóðverj
ar hafa orðið fyrir gífurlegu
tjóni síðan á sunnudag. Hafa
bandamenn skotið niður yfir
600 flugvélar á tæpri viku, og
er það meira tjón en dæmi eru
til fram að þessu. Engar þýzkar
flugvélar komu til árása á
Bretland í fyrrinótt.