Alþýðublaðið - 08.03.1944, Síða 7
Mi3víkudag«r 8. marz 1944.
m »
r1 ■ jj
\Bœrinn í dag.í
Næturtekrár er í nótt I Laekna-
varðstotunrii, sími 5030.
Næturvörður er i Reykjavíkur
apóteki.
Næturakstur annast Aðalstöðin,
sími 13 8S..
ÚTVARPIÐ:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
18.30 Islenzkukennsla, 1. flokkur.
19.00 Þýzkukennsla, 2. flokkur.
19.25 Þingfréttir.
19.50 Auglýsingar.
20.00 Fréttir.
20.20 Föstumessa * í Fríkirkjunni
(sr. Árni Sigurðsson).
21.15 Xvöldvaka: a) Kvæði kvöld-
vökunnar. b) Kristín Jakobs
dóttir húsfreyja, Símonar-
húsx á Stokkseyri: Ferð til
Reykjavíkur og Akraness
fyrir 50 árum (Hélgi Hjörv-
:ar ffytur).
21.50 Fréttir.
Xiagskrárlok.
Föstumcssa
er í fríkirkjunni í kvöld kl. 8.15.
Séra Átiíí Sigurðsson..
Hallgrimsprestákall.
Föstumessa í Austurbæjarskól-
anum kl. 8.15. Séra Sigurbjörn
Einarsson.
STÚKAN EINING nr. 14^
Fundur í kvöld kl. 8. — Syst-
urnar annast, Yenjuleg fundar
störf. Kosið í húsráð. —
Skemmtun að loknum fundi.
Kl. 9.30 hefst sjónleikur. TJpp-
lestur. Dans.
Félagslíf.
SKÍÐADEILD K. R.
Þeir skíðamenn og konur K.
R., sem ætla að taka þátt í
keppni skíðamóts Reykjavíkur
eru beðnir, ef mögulegt er, að
mæta til viðtals á skrifstofu
Sameinaða kl. 6—7 í kvöld.
Unglingar í aldursflokki 13—
15 ara erú sérstaklega beðnir
að koma.
Skemmtinefndin.
TILKINNING frá Í.R.R.
Leikmót, sem heyra undir í-
þróttaráð Reykjavíkur, fara
fram í sumar sem hér segir:
Víðavangshlaup ÍR 20. apríl
(sunmard. fyrsta). Drengjahlaup
Ármanns; 23. apríl. Flokkaglíma
Ármanns 26. apríl. Hnefaleika-
meistaramót í. S. í. 29. apríl.
Tjarnarboðhlaup KR 21. mgí.
slandsglíman 1. júni. íþrótta-
mót KR 4. júní. 17. júní-mótið
17. júní. Drengjamót Ármanns
3.—4. júlí. Boðhlaup Meistara-
mótsins 24. júlí. Drengjameist
aramót í. S. í. 29.—30. júlí.
Fimmtarþraut Meistaramótsins
3. ágúst. Meistaramót í. S. í.
(aðalhluti) 12.-—13. ágúst. Tug
þraut Meistaramótsins 21.—22
ágúst. Öldungamótið 27. ágúst.
Septembermót í. R. R. 3. sept.
Loks heldur KR glímukeppni
fyrir drengi seint í marz.
íþróttaráð Reykjavíkur.
BALDVIN JÓNSSON
HÉRAÐSPÓMSLÖGMABUR
MÁLFLUTHINGUR —- INNHEIMTA
VESTURGÖTU 17 SÍMI 5545
Sýrslan um Þormóðsslysið.
Frh. af 2. síðu.
fram ræðu sinni. Því var haldið
út hér í tvö ár.. Á þessum tveim-
ur árum kom þrettán sinnum
leki að skipinu og í fjórtánda
skiptið, þegar það fórst, samkv.
skýrslu þeirri, sem birt hefir ver
ið. Sjódómnum var sérstaklega
fálið að rannsaka ástand skips-
ins og var í þeim rannsóknum
m. a. stuðzt við rekald úr skip-
inu. Það hefir verið gerður upp-
dráttur af skipinu eins og það
virðist hafa verið og eins og
það hefði átt að vera, ef upp-
fylltar hefðu verið þær kröfur,
sem skipskoðuninni hér ber að
gera, sagði Finnur. Ég hefi þessa
uppdrætti hér fyrir framan mig.
Þeir leiða eftirfarandi í ljós: '
ByrSingur skipsins hefir ver-
ið úr 2 tommu borðum í stað
234.
Styrktarplarikar voru 2 Vi
tomma í stað 3 ¥2.
K'jolur var 10X12 tommur i
stáð 113/4xlh%.
Innri súð var úr 2 tommu borð
um í stað 2%.
. .Bil millí handa var lOká
tomma í stað 8.
. .Böndin vor.u 3V2X3V2 tomma
í stað 5X5.
Ég tél, sagði Finnur Jónsson,
að skýrsla sú, sem hirt hefir ver
ið í blöðunum, gefi ekki rétta
hugmynd um niðurstöður rann-
sóknarinnar, og styðst.þar við
ummæli manna úr sjódómnum.
Þetta mun vera í fyrsta sinn,
sem hér hefir verið látin fara
fram rannsókn slík sem þessi,
þar sem reynt er að grafast fyr-
ir rætur hörmulegs sjóslys. Ég
tel illa farið, að rýrt skuli gildi
slíkrar rannsóknar með því að
gefa almenningi villandi upplýs
ingar um niðurstöður hennar.
Og það hefir vissulega ekki
hvetjandi áhrif á þá merin, sem
síðar kunna að verða kvaddir til
slíkra rannsókn, að leggja sig
fram við þær. Þetta skip virðist
alltaf hafa verið að sökkva síðan
það kom fyrst til landsins.
Skýrslan, sem birt hefir verið, er
ekki hin rétta skýrsla sjód. og
gefur því ekki rétta hugmynd
um niðurstöður rannsóknarinn-
ar — enda þótt þar sé raunar
fullkomlega rakin sorgarsaga
skipsins.
Eg vil því eindregið skora á
dómsmálaráðherra að afhenda
skýrslu sjódómsins orðrétta til
birtingar í blöðunum, sagði Finn
ur að lokum. Það er illa viðeig-
andi, að launung sé viðhöfð í
þessu máli. Ég vil því fastlega
vænta; að dómsmálaráðherra,
hlutist til um að skýrsla sjódóms
ins verði birt í heild.
*
Svör ráðiserriinna.
Dómsmálaráðherra, Einar
Arnórsson, kvaddi sér hljóðs,
þegar Firinur Jónsson hafði lok-
ið máli sínu. Hann játaði, að
skýrslan, sem send var blöðun-
um hefði verið gerð í dómsmála-
ráðuneytinu —• „en auðv. ekki
af mér,“ sagði ráðherrann, „enda
hefði ég ekki haft iíma til þess“.
Hann kvað útdráttinn haf a verið
sendan borgardómara til álits
og hefði hann hreyft lítilsháttar
athugasemdum, sem teknar
hefðu verið til greina, eftir því
sem ráðherran kvaðst bezt
vita. — Það er langt f-rá því, að
ég hafi nokkuð á móti því, að
skýrsla sjódómsins sé birt, sagði
ráðherran. En það verður ekki
gert nema að fengnu samþykki
sjodómsins. Samþykki atvinnu-
málaráðuneytisins þarf einnig
að ileita, þar eð því var, send
skýrslan. Ég vil mjög gjarna, að
því er til mín kemur, verða við
þeirri ósk fyrirspyrjendanna að
birta skýrslu sjódómsins. Það
er alveg rótt, að í skýrslu þá,
sem send var út, vantar álit
hinna dómkvöddu manna um
styrkleika skipsins. En úr því
er hægt að bæta og það verður
væntanlega gert mjög bráðlega.
Vilhjálmur Þór: í tilefni af
ummælum dómsmálaráðherra
vil ég taka þetta fram: Það hef-
ir aldrei staðið á atvinnumála-
ráðuneytinu með það, að þessi
skýrsla væri birt. Éf dómsmála-
ráðherra telur sig þurfa sam-
þykki þess, þá er það fyrir
hendi og hefir aldrei á því
staðið.
Finnur Jónsson: Þeir tveir
ráðherrar, sem um þetta mál
fjalla, hafa nú lofað hvor í sínu.
lagi og haðir saman, að skýrsla
sjódómsins skuli birt. Ég vil
því vænta þess fastlega, að svo
verði gert hið allra fyrsta.
Vilhjálmur Þór: Það er ekki
á mínu valdi, að aðstoða fyrir-
spyrjandann í þessu efni. Þetta
er mál. sem dómsmálaráðherra
hefir algerlega á sinu valdi.
AÐALFUNDUR Hins ísl.
prentarafélags var haldinn
síðas.tliðinn sunnudag í Alþýðu-
húsinu við Hverfisgötu. Lagðir
voru fram endurskoðaðir reikn-
ingar félagsins og voru þeir
samþykktir. Eignir félagsins
nema nú skv. reikningnum kr.
347.521,51, og er þar með tal-
in húseign félagsins við Hverfis
götu 21 hér í bæ og jörðin Mið-
dalur í Lausrardal. Þar hafa
prentarar reist fjórtán sumar-
bústaði, sem teknir voru í notk-
un í sumar er leið.
Þá skýrðí formaður frá gerð-
um stjórnarinnar á liðnu ári.
Lýsti hann og stjórnarkosn-
ingu, sem nýlega er lokið inn-
an félagsins.
Að þessu sinni áttu að ganga
úr stjórninni þrír menn:
Magnús H. Jónsson form.,
Sigmar Björnsson gjaldk. og
Baldur E. Eyþórsson, 1. með-
stjórnandi.
Höfðu þeir allir skorazt
undan endurkosningu. Magnús
H. Jónsson, hinn fráfarandi for-
maður, hefir óslitið að heita
má gegnt trúnaðarstörfum fyr-
ir félagið síðan á árinu 1919 —
og nú um tíu ára skeið verið
formaður þess'.
Hin nýkjörna stjórn er þannig
skipuð: Formaður: Stefán Ög-
mundsson. Gjaldk.: Magnús
Ástmarsson. 1. meðstj.: Helgi
Hóseasson. Fyrir voru í stjórn-
inni: Ellert Magnússon ritari og
Gunnar Sigurmundsson, 2. með-
stjórnandi.
Endurskoðendur voru kosn-
ir: Guðmundur Halldórsson og
Meyvant Ó. Hallgrímsson. —
Einnig var kosið í ýmsar nefnd-
ir. Þá var og gengið frá nokkr-
um smávægilegum lagabreyt-
ingum.
Rafseyri.
Frh. af 2. síðu.
ur sögustaður á Vestfjörðum
að fornu og nýju og þannig í
sveit sett, að þangað munu marg
ir sækja, þegar samgöngur
batna. Þyrfti þar að vera gisti-
hús, sem gæti verið skóli á vetr-
um. Athuga mætti, hvort byggða
safn fyrir Vestfirði væri þar
ekki vel sett, og fleira mætti til
nefna. En það telja flutnings-
menn skylt að sýna . staðnum
sóma vegna þeirrar helgi, sem
á honum hvílir.“
Leikfélag Reykjavíkur
sýndi leikritið „Ég hef komið
hér áður“, eftir J. B. Priestley,
síðastliðinn sunnudag, íyrir fullu
húsi. — Aðgöngumiðarnir seldust
upp ó skammri stundu. — Næsta
sýning verður annað kvöld, og
hefst sala aðgöngumiða kl. 4 í dag.
X
Innilegar þakkir til allra hinna mörgu einstaklinga og félaga,
sem sýnt hafa okkur samúð og hluttekningu við andlát og útíör
Jéns IVðagnússonar skálds.
Borgfirðingum í Reykjavík og Þingvellingum þökkum við
höfðinglegar minningargjafir.
Guðrún Stefánsdóttir og dætur.
Þökkum hjartanlega sýnda samúð og vináttu við andlát og
jarðarför móður okkar,
GuÖfojargar Guðbrandsdóttur.
Einnig biðjum við guð að launa góða hjúkrun, heimsóknir og aila
vinsemd, er henni var auðsýnd.
Guðrún Gunnarsdóttir. Guðjón Gunnarsson og aðrir vandamenn.
Minningarorð
Ingibiðrs Þorsteinsdðttir
TM' ÉR kom á óvart, þegar ég
■*L las í þlöðunum fyrir nokkr
um dögum dánarfregn Ingibjarg
ar Þorsteinsdóttur. Hún andað-
izt 28. febrúar s. 1. eftir fárra
daga legu. Síðast, þegar ég sá
hana var hún hress og heilbrigð
og í blóma lífsins, en gestur-
inn með djáinn lætur ekki ævin-
lega bíða eftir sér til efri ára,
eins og okkur er kunnugt.
Við, sem vorum á Alþýðuskól
anum á Eiðum fyrsta áratuginn,
sem hann starfaði, erum nú á
fertugs eða fimmtugs aldri. Ingi
björg heitin var aðeins rösk-
lega hálf fertug, þegar hún dó.
Állir, sem verið hafa á fjöl-
mennum sveitaskóla, kann-ast
við þann einkennilega blæ, sem
lífið ber á slíkum stað. Vonir og
fögnuður hins -upprennandi lífs
mi-nnir á vormorgun og bland-
ast með seiðþrungnum höfga
önnum náms og annarra starfa.
Unglingarnir taka þátt — meiri
eða minni — hver í -annars von-
um og störfum, jafnvel sorgum,
ef svo ber undir, og ef til vill er
það þessi samhæfing, sem mótar
svip lífsins á slíkum stað meira
en nokkuð annað. — Frá þess-
um tíma á Eiðum rriinnist ég
Ingibjargar heitinnar bezt. Ég
minnist góðvildar þeirrar, sem
kom fram í öllti viðmóti hennar
og viðhorfi til skólasystkinanna
og annarra, sem hún var sam-
vistum við, og glaðværðarinn-
ar, sem alls staðar fylgdi henni
ei-ns og sólin vorinu. Og minning
in um hana er mór kær eins og
flestum — liklega öllum skóla-
systkinum hennar. Við finnum
nú, að þessi góðvild og lífsgleði
hennar, sem við urðum ósjálf-
rát-t hluttakendur í, var hvort-
tveggja rneðal þess, sem gerði
okkur lífið svo dýrmætt á þessu
tímabili n-ámsáranna, að okkur
finndist við myndum vera miklu
fátækari, ef við hefðum ekki
notið þess. — Þa-nnig er minn-
ingin um Ingibjörgu heitina,
fögur og fölskval-aus.
Ingibjörg Þorsteinsdóttir var
fædd í Gilsárteig í Eiðaþinghá
3. desember 1907. Þar ólst hún
upp hjá foreldrum sínum þang-
að -til h-ún fór í Eiðaskóla haust-
ið 1925. Eftir námið á Eiðum
fluttiz-t hún hingað suður og
dvaldi lengst af hér í Reykjavík
ef tir það. Á þessu tímabili stund-
aði hún um tíma nám við Kunst
flidskolen í Kaupmannahöfn og
gat sér þar -góðan orðstír. Að
öðru leyti vann hún -len-gst ýmis
störf fyrir „Barnavinafélagið
;Sumargjöf“, síðustu þrjú árin
sem forstöðukona dvalarheimilis
ins í Vesturborg.
Hún vann öll sín störf á þanm
hátt, sem -bezt verður kosið, og
ekki er auðgert að fylla sæti
hennar meðal munaðarlausu
barnanna í Vesturborg.
Að lokum vil ég aftur renna
huganum til áranna, þegar við
vorum >í hópi nemandanna á Eið
um og ljúka þessum f-átæklegu
minningarorðum með þessu
stefi, sem túlkar svo vel þann
söknuð, sem grípur menn, þeg-
-ar þeir kveðja góða kunningja
og félaga í síðasta sinn:
„Að hry-ggi-ast og gleðjast hér
um fáa daga
að heilsast og kveðjast, það er
lífsi-ns saga“.
S. H.
Krýsuvíkurvegurinn
Frh. af 2. síðu.
víkinga, Bjarni Benediktsson
-borgarstjóri, sat hjá við atkvæða
-greiðslúna, eftir að hafa beitt
misheppnuðum lagakrókum til
að reyna að koma -í veg fyrir það„
að atkvæðagreiðsla færi fram
um -tillöguna. Þeir láta sér víst
í létt-u rúmi liggja, þessir á-gætu
fulltrúar Reykvíkinga, þótt
mjólkurskortur skapi vetur eftir
vetur alvarlegustu vandræði í
höfuðstaðnum.
, iö
Leikfélag Menntaskóians.
Hviklynða ekkjan
eftir Holberg.
Menntaskólanem-
ENDUR' ætla að sýna
upp úr miðjum þessum mán-
uði, gamanleikinn „Hviklynda
ekkjan“, eftir Holberg. Hefur
þetta leikrit aldrei verið sýnt
hér áður. Er það í þremur þátt-
um og bráðskemmtilegt.
Þeir Þorsteinn Ö. Stephen-
sen og Lárus Pálsson, hafa leið-
beint Menntaskólanemendunum
við uppsetningu leiksins, en
þeir leika að sjálfsögðu öll
hlutverkin.
Leikritið er þýtt af tveimur
nemendum skólans, þeim Sveini
Ásgeirssyni og Ásmundi Sigur-
jónssyni.
Leikendurnir eru 10 að tölu:
Hólmfríður Pálsdóttir, Stefán
Hilmarsson, Einar G. Kvaran,
Einar Pálsson, Dóra Haralds-
dóttir, Kristín Helgadóttir, Jón
Emils, Guðjón Steingrímsson,
Álfheiður Kjartansdóttir og Ás-
mundur Sigurjónsson.