Alþýðublaðið - 01.04.1944, Page 3
ilia^uiimr I. aprí! 1944.
Galiziu
A LMENNINGI í Þýzka-
•** landi er nú smám saman
að verða ljóst, að bandamenn
hljóta að vínna sigur í styrj-
öldinni. Að vísu segja ráða-
menn landsins annað, en
þrátt fyrir allar fullyrðing-
ar Göbbels og dr. Dietrichs,
sem stjórnar blaðakosti Þjóð
verja, er bersýnilegt, hvert
stefnir. Stundum má sjá í
þýzkurn blöðum ýmislegt
það, sem sýnir, hvernig
reynt er að stappa stálinu í
þjóðina, draga úr óförum
Þjóðverja og auka baráttu-
þrek þeirra, sem heima sitja
og nú verða að þola ógnir
loftárásanna, ógnir sem taka
fram öllu því, sem Göring
hugðist steypa yfir íbúa
Coventry, Plymouth og
fleiri enskra borga, sem harð-
ast úrðu úti árin 1940 og
1941.
SIJM BLÖÐIN eru ótrúlega
opinská um þessa hluti. All-
mörg blöð hafa byrjað áróð-
ur gegn þeim, sem svartsýn-
ir eru á sigur Þýzkalands.
Blað eitt í Westfalen skrifaði
ekki alls fyrir löngu, að „í
einni herdeild væru ekki
eintómar hetjur og ekki bæri
að vanmeta tölu þeirra, sem
væru vantrúaðir á sigur
Þýzkalands“, Síðan ræðir
blaðið um þann hóp manna
í Þýzkalandi, sem talinn er
hættulegri en svartsýnis-
mennirnir „hinir veiku
sálir, sem segja í uppgjafar-
tóni ,að það gerði ekki svo
mikið til, þótt Þýzkaland
tapaði í styrjöldinni“.
MEÐAL ANNARS segir blaðið
svo: „Sumir eru svo barna-
legir að halda, að Bretar og
Bandaríkjamenn leyfi Rúss-
um ekki að sækja inn í
Þýzkaland, og sumir halda
því meira að segja fram, að
Rússar séu ekki nándar
nærri eins slæmir og haldið
er fram í opinberum, þýzk-
um fregnum“, ,Hér er enn
beitt því vopni, sem skæð-
ast hefir þótt í Þýzkalandi í
baráttunni um sál hinnar
stríðandi þýzku þjóðar:
Óttinn við Rússa, sem taldir
eru vera óvinir alls mann-
kynsins, einhverskonar
] Belzebubar í mannsmynd,
1 sem öllu muni tortíma ef
* færi gefst.
ANNAÐ ÞÝZKT blað greinir
frá því, að Þýzkaland í dag
sé fullt af alls konar fólki,
sem „halda að það sé Bis-
marck eða Moltke“, „menn
i þessir“, segir blaðið „fyrir-
finnast á hverju götuhorni
og í hverri bjórstofu, þar
sem þeir ræða hernaðará-
standið. Þeir eru sannfærðir
um að við séum þegar ger-
sigraðir og stjórnin dylji þá
sannleikans.“
WLÞYPUBUOCTI
Jf
Bukovinu og
oq áður.
Rússar byrjaðir að skjóla á olíubæinn Sfanis-
lawow við ræiur Karpaíaljalla.
..-...-■«»-—....
ð gær heirlóku þ@Ir hafnarbæinn Hchakov
vi@ Svai*ta8iafB
SÍÐDEGIS í gær birti Stalín enn dagskipan, þar sem
tilkynntur var mikill sigur Rússa. Þeir hertóku hafn-
arborgina Ochakov, sem er á strönd Svartahafs, um það
bil 65 km. fyrir austan Odessa og miðja vegu milli Nikolaev
og þeirrar borgar. Rússar nálgast óðum olíubæinn Stanis-
lawow í Póllandi og Lundúnafregnir hermdu í gærkvöldi,
að þeir væru farnir að skjóta á hana af langdrægum fall-
byssum. Þjóðverjar hafa sjálfir að segja í útvarpi sínu, að
barizt sé á götum borgarinnar, en sú fregn hefir ekki verið
staðfest í Moskva'. Þá er sagt, að Rússar séu komnir að
norðurlandamærum Rúmeníu og flýja; menn sem óðast
lengra inn í landið.
Vestast á austurvígstöðvun-
um eiga hersveitir Zhukovs í
bardögum við þýzkan her, sem
hefir tekið sér stöðu í. Jablon-
Sá maður, sem einna mest hef-
ir borið á í fréttum að undan-
förnu er Zhukov hershöfðingi.
Hersveitir hans hafa hvað eft-
ir annað rekið Þjóðverja á
flótta og sókn hans þessa dag-
ana virðist lítt stöðvandi.
ÚTBREIÐSLUMÁLAFULL-
TRÚI nazista í Stettin,
Buschmann að nafni, sagði
nýlega eftirfarandi spak-
mæli: „Við vitum vel, að
orðatiltæki eins og skipulegt
undanhald og að yfirgefa
vissar stöðvar samkvæmt
fyrirfram gerðri áætlun, eru
næsta ógeðfelld í eyrum al-
mennings. En þeir sem
brjóta heilann um hluti, sem
þeir botna ekkert í, verða að
vera þolinmóðir og spyrja
að leikslokum.“ Geta má
nærri um það, hvemig þetta
heilræði Buschmanns orkar
á fólk almennt í Þýzkalandi.
LOKS M'Á GETA þess hér,
sem blaðið „Leipziger Neu-
este Náchrichten“ skrifaði í
haust. Neínist greinin Haust
stemning. Segir þar meðal
annars svo: „Sumarið er lið-
ið haustvindarnir næða um
láð og lög. Vindarnir verða
að fárviðri, sem mun nísta
ica-skarði í Karpatafjöllum, en
þar munu Þjóðverjar hafa hugs
að sér að veita Rússum viðnám.
Til þessa hefir þetta engan á-
rangur borið og sóknarþungi
hins rússneska hers á þessum
slóðum virðist óbijaður með
öllu. Samkvæmt síðustu fregn-
um hafa Rússar brotizt inn í
fyrrnefnt skarð og eiga þar í
höggi við þýzkar og austurrísk-
ar Alpahersveitir, sem eru sér-
staklega þjálfaðar í fjallhern-
aði.
Tilkynnt er í London, að þeg-
ar Rússar tóku Czernowitz, höf-
uðborg Búkovínu-héraðs í Rúm
eníu, hafi þeir náð á sitt vald
40 þýzkum flugvélum á flug-
velli einum þar í grennd. Voru
þær óskemmdar mð öllu.
Hersveitum Konevs verður
einnig vel ágengt. í fyrradag
sóttu þær fram um 20 km. vega-
lengd í áttina til Kichinev, höf-
uðborgar Bssarabíu. Rúmensk-
ar hersveitir, sem þar voru til
varnar, gáfust upp fyrir Rúss-
um, svo til bardagalaust. Nú er
svo komið, að bilið milli herja
Zhukovs og Konevs er ekki
nema um 15 km. breitt og má
vænta mikilla tíðinda er þeir
ná saman.
þjóð vora. Ef til vill eigum
við eftir að deyja og falla til
jarðar eins og visin laufin á
trjánum, en tréð sjálft má
aldrei falla.“ Hvað er nú
orðið af sigurvissunni og
hrokanum, sem áður var út-
varpað frá öllum stöðvum
Þýzkalands? Er ekki söngur-
inn „Wir fahren gegen
Engelland“ orðin hjáróma
bergmál ráðþrota manna,
sem steypt hafa þjóð sinni út
í ógæfuna?
ORÐ HITLERS um, að Þjóð-
verjar myndi aldrei upplifa
annað 1918, eins og það var
orðað, virðast hafa misst
sannfæringarmátt sinn og
handan Ermarsunds bíður ó-
vígur her skipunarinnar um
að ráðast inn í Evrópuvirki
hins málóða kúgara. En hver
veit hvenær? Um það brjóta
Hitler og hershöfðingjar
hans heilann um þessar
mundir. • .
Á myndinni sést Dwight Eisenhower, hinn emeríski hershöfð-
ingi, sem stjórna á innrásinni úr vestri. Eisenhower stjórnaði
einnig hinni sigursælu sókn bandamanna í Áfríku á sínum
tíma. Þykir hann mjög vel til þess fallinn að:samræma aðgerðir
Breta og Bandaríkjamanna.
Bandamenn gerðii
helffarlega árás á
Mmtssrg f lyrrinófi
í FYRRINÓTT var enn gerð
* stórárás á þýzka borg. Að
þessu sinni varð borgin Niirn-
berg fyrir aðalárásinni. Skil-
yrðin voru hagstæð tli árásar-
innar, himinn heiður og tungl-
skin. Miklir loftbardagar voru
háðir og misstu Bretar mikinn
fjölda sprengjuflugvéla. Voru
það einkum Halifax- og Lan-
caster-flugvélar, sem hér voru
að verki og ollu þær geypilegu
tjóni. Talið er, að Þjóðverjaar
hafi telft fram fleiri orrustú-
flugvélum en nokkru sinni fyrr
en samt tókst þeim ekki að
hindra loftárásina. Miklir eld-
ar komu brátt upp víða í borg-
inni og breiddust hratt út.
Nurnberg er mjög þýðingar-
mkiil iðnaðarborg og eru þar
framleidd feiknin öll af diesel-
vélum, skriðdrekum, rafmagns
vélum og brynvörðum bifreið-
um. Er því mjög tilfinnanlegt
tjón fyrir Þjóðverja, ef borgin
fær svipaða útr-eið og Hamborg
og Frankfurt.
Áframhaid árásaiina á
flugvei í Hellasidi.
LOFTÁRÁSUM var enn
haldið uppi á flugvelli
Þjóðverja í Hollahdi í fyrradag.
Lítið var um mótspyrnu af hálfu
Þjóðverja. Þá réðust flugvélar
af Beaufighter-gerð á þýzkt
hafskip undan Noregsströndum.
Tókst þeim að koma tveim tund
urskeytum á skipið, en tvö
fylgdarskip urðu fyrir skemmd
um. Ein þýzk flugvél var skot-
in niður við þetta tækifæri. Tal-
ið er, að það hafi verið skipið
Monte Rosa, sem er um 14 þús-
und smálestir að stærð, og var
áður í förum milli Hamborgar
og Suður-Ameríku, sem fyrir
tundurskeytunum varð.
Djarfleg árás Banda-
ríkjamanna á Kyrra-
ANDARÍKJAMENN hafa
enn ger.t djarflega árás á
japanskar eyjar á Kyrrahafi.
Síðastliðinn miðvikudagsmorg-
un réðust öflugar flotadeildir
á Palaueyjar, sem eru vestast
í Karolin-eyjaklasanum. Hern-
aðgerðum er enn ekki lokið
og erfitt að fá nákvæmar fregn-
ir áf þeim, enn sem komið er..
Herskipin, sem þátt tóku í bar-
dögunum, munu ekki geta not-
að senditæki sín, fyrr en hern-
aðaraðgerðunum er að fullu
lokið.
Fréffalífið af jfalíu.
ÁTT hefir borið til tíðinda
á Anzio-svæðinu undan-
gengið dægur. Stórskotalið
beggja aðila hefir skifzt á skot-
um, bæði þar og við Cassino.
Þjóðverjar sendu um 40 flug-
vélar til árása á kaupskip banda
manna undan Anzio, en þeim
tókst ekki að granda neinu
þeirra. Átta þýzkar flugvélar
voru skotnar niður í árás þess-
ari.
Það er nú tilkynnt í London,
að í árásinni á Sofia í fyrradag,
sem var hin mesta, sem gerð
hefir verið á borginia til þessa,
hafi margar sprengjur fallið á
járnbrautarstöðina þar og komu
upþ miklir eldar.
90 fiúsund Dámamenn
í vgrlfsiii í EngSandi.
1C5 NN HEFIR ekki tekizt að
•®“* koma á sáttum í verkfalli
kolanámumanna í Yorkshire í
Englandi. Talið er, að um 90
þúsund námumenn í 70 nám-
um séu í verkfalli í þess héraði.
Þá hafa borizt fregnir um, að
3000 námumenn í Skotlandi
^ hafi lagt niður vinnu.