Alþýðublaðið - 28.04.1944, Page 3
Festudagu* 28. apríl 1844.
Æ3J* y awaJLAttigL
f:
1 • •' ' ■ 1 '.!•■' •
Fyrfrmyndanrernd-
arríkið.
'LEST VOPN virðast ætla
að snúast í höndum Þjóð-
verja í viðleitni þeirra til
þess að vinna hylli þeirra
þjóða, sem þeir hafa tekið að
sér að „vernda“ (gegn hverj-
um?) og mennta. Hinar nýst-
■árlegu skoðanir þeirra um
yfirþjóðir og undirþjóðir,
kynþáttafirrur þeirra og
fleira, sem þróast hefir í
heilabúi ,,vísindamanna“
nazista virðast ekki hafa
fengið nægilegan hljóm-
grunn í hinum herteknu
löndum Evrópu. Það var að
vísu viðbúið, að Tékkar og
Pólverjar kynnu ekki að
meta hina föðurlegu forsjá
Hitlers, enda beitti hann til
þess þeim aðferðum, sem
tæpast eru til þess fallnar að
auka vinsældir Þjóðverja.
L^xerolíugjafir og barsmíðar
þaðan af verra hafa yfir-
leitt ekki reynzt sérlega
heppileg ráð til þess að
vinna hylli meðbræðra sinna.
EN UM NOREG OG DAN-
MÖRKU, sér í lagi Dan-
mörku, var öðru máli að
gegna. Þar ætluðu Þjóðverj-
ar að verða vinsælir með
skipulegum hætti, eða eins og
þeir orðuðu það sjálfir: Wir
werden uns systematisch
beliebt machen. Meira að
segja datt Þjóðverjum í hug,
að Danmörk gæti orðið eins
konar Modelprotektorat, eða
fyrirmyndarverndarríki. En
það fór eins og við mátti
búast, en Þjóðverjum gat ó-
mögulega dottið í hug, að
Danir kærðu sig ekki vitund
um að gerast fyrirmyndar-
verndarríki og ekki er vitað,
að sendimönnum Göbbels
hafi tekizt að ná vinsældum
almennings, hvorki með
„skipulegum“ né öðrum
hætti.
ÞETTA ER OFUR SKILJAN-
LEGT. Fáar þjóðir munu
jafnfrábitnar hinum heimsku
lega, prússneska hroka og
. Danir. Þeir skildu ekki hið
fáranlega rugl hinna þýzku
sendimanna um, að til væri
í landinu eitthvert „Gyðinga-
vandamál“, sem endilega
yrði að leysa, að sjálfsögðu
með vinsamlegri samvinnu
Þjóðverja og hinni alkunnu
nákvæmni og myndarskap,
sem einkennt hefir aðgerðir
Þjóðverja í /slíkum efnum.
Danir höfðu það í ríkum
mæli, sem þeir nefna á tungu
sinni Gemytlighed. Þeir voru
hverjum manni vinsamlegri,
hjálplegri og glaðlyndari. En
yfirdrepsskapinn og hrokann
sem virðist einkenna vissa
manntegund þriðja ríkisins
varð maður ekki var við.
ÞAÐ GAT ÞVÍ ENGUM kom-
ið á óvart, sem eitthvað
þekkir til skaplyndis og
sögu Dana og Norðurlanda-
þjóðanna yfirleitt, hvernig
fór. Og atburðir síðustu daga
í Kaupmannahöfn eru engin
tálviljun. Telja má víst, að
Ðanir eigi örðuga tíma fram
wndan, en þeir hljóta virð-
Hlífðarlausum ráðslöf-
unum verður beitf,
segir þýzki sendi-
herrann.
; i
Nýlega téku Þjóðverj
ar 20® gisla, einkum
æskuonenn.
"Cp REGNIR eru enn sem
fyrr af skornum skammti
um það, sem er að gerast í
Banmörku, en í sænskum
fregnum er sagt frá því, að
harðhentar aðgerðir Þjóð-
verja til þess að bæla niður
skemmdarstarfsemi, hafi
reynzt með öllu árangurs-
lausar. Sagt er, að um 100
Danir bíði dauðadóms fyrir
þáttöku í spellvirkjum, og að
Þjóðverjar hafi nýlega hand-
tekið um 200 manns, aðallega
ungt fólk, og hafi það í haldi
sem gisla, ef ske kynni, að
með því væri hægt að hræða
danska frelsisvini.
Werner Best, sendiherra
Þjóðverja í Kaupmannahöfn
hefir lýst yfir því, að Þjóðverj-
ar muni bæla hlífðarlaust nið-
ur allar tilraunir til skemmd-
■
arstarfsemi. Haldið er áfram
húsrannsóknum víða í landinu
og hefir mikill fjöldi Gestapo-
manna verið sendur á vettvpng
til þess að aðstoða við slíkar
aðgerðir. Ferjusambandi milli
Kaupmannahafnar og Málmeyj
ar í Svíþjóð hefir aftur verið
komið á, en einungis Þjóðverj-
ar fá að fara á milli landanna.
í Svíþjóð líta margir svo á, að
húsrannsóknir Þjóðverja í Kaup
mannahöfn og víðar séu ekki
gerðar eingóngu vegna þesS, að
búizt sé við, að neitt grunsam-
legt finnist, heldur meðfram
til þess að æsa fólk upp og hafa
þannig hendur í hári forystu-
manna frelsisvina, svo að þeir
væru geymdir á öruggum stað
ef til innrásar kæmi.
Þjóðverjar hafa flutt allmarg
ar flv.gvélar til Danmörku að
undanförníu og styrkt mjög
setuliðið og landvamir allar. Þá
telja sumir Svíar, að liðssafn-
aður Þjóðverja handan Eyrar-
sunds geti verið dulbúinn hót-
un við Svía um að láta ekki að
tilmælum bandamanna um að
hætta að selja kúlulegur til
Þýzklands.
FRA BURMA er enn sem
fyrr fátt fregna. Á landa-
mærum Indlands er aðeins um
dreifðar hernaðaraðgerðir að
ræða, en engin breyting virð-
ist hafa orðið á afstöðu herj-
anna þar. Kínverskar hersveitir
Stillwells, sem sækja úr norðri,
halda áfram hægt en örugglega.
Vbnir hinna undirokuðu þjóða eru tengdar við Eisenhower
hershöfðingja, sem á að stjórna innrásinni, sem búist er við
þá og þegar. Þetta er ein nýjasta myndin af honum.
I fyrrinótt réðusf 1000 brezkar
flugvélar á Þýzkaland, einkum
Essen.
SchweiBifurt og IHfaniborg uréu einnig fyrir
skæðum árásum.
\7r MSAR helztu iðnaðarstöðvar Þýzkalands haía enn orð-
ið fyrir skæðum árásum Breta. í fyrrihótt fór mikill
fjöldi þeirra til árása á Essen, verksmiðjuborgina miklu í
Ruhr-héraði. Einnig var ráðizt á kúluleguverksmiðjurnar í
Sdhweinfurt og járnbrautarskiptistöð skammt frá París.
Mosquito-flugvélar gerðu snögga en harða árás á Hamborg.
Það voru hinar stóru Lan-
caster- og Halifaxflugvélar, sem
réðust á Essen og Schweinfurt.
Áður höfðu um % hlutar Krupps
verksmiðjanna í Essen verið
lagðar í rúst, en Þjóðverjar
höfðu byrjað á gagngerðri við-
gerð þeirra og er talið, að nokk
ur bið verði á þeirri viðgerð
eftir árásina í fyrrinótt. Flug-
menn, sem fluigu yfir Essen síð-
ar segja, að feikilegir eldar hafi
logað í borginni. 29 stórar flug-
vélar fórust í árásunum og 3
Mosquito-flugvélar. í Schwein-
furt urðu enn miklar skemmdir,
en Þjóðverjum ríður mikið á,
að kúlulegusmiðjur þeirra geti
starfað af fullum 'krafti.
I gær fóru fjölmargar amer-
ískar flugvélar til árása í Norð
ur-Frakklandi. Stundum voru
um 500 flugvélar í einu yfir
sama skotmarkinu. Einnig var
ráðizt á flugvelli í Belgíu.
ingu umheimsins, sem mun
reynast þeim haldbetra vega-
nesti, en sæmdarheitið „fyr-
irmyndarríki“, sem Þjóðverj
ar hugðust gefa þeim.
SPRENGINGARNAR, sem
danskir föðurlandsvinir eru
valdir að, munu ekki ein-
ungis kveða við í borginni
við Eyrarsund, þær munu
einnig kveða við hjörtum
allra þeirra, sem unna Dön-
um og öðrum Norðurlanda-
þjóðum frelsis og friðár.
Þýzkar flugvélar gerðu árás
á staði í Suður-Englandi og
voru 3 þeirra skotnar niður.
Tjón varð óverulegt.
LANDABRÉFAMÁLIÐ:
Danskir Srelsisvinir
sendu bréfln til
Svíþjóðar.
|kT Ú HAFA iborizt nánari fregn
* ir um landabréfsendingar
Þjóðverja til Noregs, en fyrir
skemmstu ‘ var lagt hald á um
23 þúsund landabréf af sænsk-
um héruðum.
í lok fyrra mánaðar kom all-
stór sending slíkra landabréfa
sjóleiðis til Oslo. Voru þetta
100 þúsund landabréf. Síðasta
sendingin kom til Oslo með
þýzku skipi, sem kom við í
danskri höfn og er talið víst,
að bréfin hafi verið flutt með
dönskum járnbráutarlestum,
eins og þau sem Svíar lögðu
hald á í Helsingjahorg. Er sú
skýring gefin á því, að danskir
frelsisvinir hafi látið hréfin fara
til Sváþjóðar, í stað þess að þau
• V
Forsælisráðherrar
Bretaveldis koma l
sáman á fund í
London.
T> RÁÐLEGA hefst fundur
forsætisráðhejra Breta-
veldis í London. Þegar eru þeir
komnir til London, forsætisráð-
herrar Kanada og Nýja-Sjálanda
þeir MacKenzie King og Peter
Frazer. Á næstunni koma þeir
Smuts marskálkur, forsætisráð-
herra og Curtin. forsætisráð-
herra Ástralíu.
Attlee, varaforsætisráðherra
Breta, sagði í gær, að McKenzie
King myndi ávarpa báðar deild
ir brezka þingsins. Var þess
jafnframt getið, að Churchill
hefði ávarpað Kanadaþing í
Ottawa í hitteðfyrra.
Von Papen á leiS fíl
Berlínar.
\T ON PAPEN, sendiherra
® Þjóðverja í Ankara er sagð
ur á leið til Berlinár til þess
að gefa stjórn sinni skýrslu.um,
afstöðu Tyrkja viðvíkjandi
þeirri málaleitan Bandamanna,
að þeir hætti að senda Þjóð-
verjum ýmis hráefni til her-
gagnaiðnaðar. Er búizt við yf-
irlýsingu frá þýzku stjóminni
um þetta mál, þegar eftir heim-
komu Papens.
Rússar sagðir í sékn
í Bessarabíu.
ÞJÓÐVERJAR hafa enn til-
kynnt, að Rússar séu í
sókn í Bessarabíu, einkum £
grennd við Kichinev. Segja þeir
þó, að hér sé um staðbundnar
hernaðaraðgerðir að ræða. Rúss
ar hafa ekkert látið uppi um
þetta.
í fregnum frá Moskva segir,
að hroðalegt hafi verið um að
litast í Taropol er þeir höfðu
náð borginni úr höndum Þjóð-
verja. Meðal annars var greint
frá því að Þjóðverjar hefðu skil-
ið eftir ósjálfbjarga særða her-
menn, sem hefðu svo dáið
drottni sínum.
Tíðindalitið er enn af Krím-
skaga. Rússar halda áfram að
þjarma að hinu þýzka setuliði
og eru komnir það nálægt borg
inni, að þeir geta í sjónauka
greint götvirkin, sem Þjóðverj-
ar hafa komið sér upp. Rússar
draga að sér öflugt sóknarlið
og fjölmargar fallbyssur og láta
stórskotahríðina dynja á borg-
inni.
áttu að fara með skipi til Nor-
egs.
Þetta er í annað skiptið sem
komizt hefir upp um slíkar
landabréfasendingar í Oslo. í
fyrra skiptið var það um vorið
1942. Voru það um 300 stórir
bögglar með um 1000 landabréf
um í hverjum.
(Frá norska iblaðaíulltrúan-
um). ,,,