Alþýðublaðið - 28.04.1944, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 28.04.1944, Blaðsíða 8
ö Fastudagur 28. april 1844. iTiARNARBlðBS Fjórar dæfur (Four Doughters) Amerísk músikmynd Prascilla Lane Rosemary Lane Lola Lane Gale Page Jeffrey Lynn John Garfiels Claude Rains Síðar verður sýnd myndin í’jórar mæður, sem er áfram ■hald þessarar og leikin af Isömu leikurum. Sýnd kl. 5, 7 og 9. EKKI SVO SLÆMT HÚSFEYJAN: „Það er útlit fyrir storm og óveður. Þér ætt- uð að vera um kyrrt og borða með okkur.“ Gesturinn: „Oh, þakka yður fyrir, en svo slæmt er nú út- Utið ekki.“ * * *, VANDAMÁL MEÐAN JÓN, sem áður er getið, var enn þá ungur, var verkfræðingur nokkur að leggja nýjan veg fyrir bíla um sveit- ina hans Jóns. Verkfræðingurinn kemur að máli við Jón og segir m. a.: ,JHvað tekur það ykkur langan tíma núna að fara lestaferð í kaupstaðinn ? “ Jón svarar honum því til, að það muni taka þrjá daga að minnsta kosti. „Já, þama sérðu“, segir verk- fræðingurinn, „en eftir þessum vegi í bíl, tekur það ykkur ekki meira en einn dag, og ekki nærri því það kannske, að fara í kaupstaðinn og komast heim aftur.“ „Það er auðvitað gott og blessað“, svarar Jón með sömu hægðinni, „en hvað eigum við þá að gera við hina tvo dagana, sem eftir verða.“ * * * SÁ, SEM ELSKAR aga, elsk- ar þekkingu, en sá, sem hatar umvöndun, er heimskur. Salómon. * * * ÖREIGI VERÐUR SÁ, sem sólginn er í skemmtanir, sá, sem sólginn er í vín og olíu, verður ekki ríkur. Salómon. nna Stundum kom hún með gítar- inn sinn og söng fyrir hann við- kvæm og sakleysisleg ljóð kúa- smalanna í fjallahéruðum lands ins. Hún hafði fíngerða, hása, unga rödd. Einnig Ikenndi hún 'Mikael að nátónumúrstrengjum gítarsins. Til endurgjalds kenndi hann henni ensku, og þau lifðu 'í 'gleðiheimi fullum af leyndar- máluim, sem voru sögð í hálfum Ihljóðum, hlátri og gagnkvæm- um skilningi. Renate myndi verða góður kennari, ef Mikael Iþyrfti að læra hlindraletur, greip ég mig í að hugsa. Það var hugsun, sem sveið undan, og ég gaf sjálfri mér ströng fyr- irmæli xun að láta ekki neina svartsýni ná valdi yfir mér, af því að iþað væri slæmt fyrir Mik ael. Aðra vikuna, sem við vorum í Vínarborg, var Florian Rieger mjög órór og eirðarlaus, og gamli vagninn hans bar alltaf ný og ný merki um árekstra. Klara ræddi um mann sinn af mikilli viðkvæmi og blíðu. — Hann er svo mikill kjáni. Hann slítur sér út fyrir málstað, sem 'þegar er tapaður. En hann er gæddur þeim eiginleika, sem fátíðastur er í Austurríki: heil- steyptri skaphöfn. Það er þess vegna sem ég elska hann. — Meðal þeirra manna, sem ég hefi kynnzt og gæddir hafa verið heilsteyptri skaphöfri, eru nokkrir Austurríkismenn, and- mælti ég. — Já, svaraði Klara. — Undir eins og við erurn flutt í ófrjórri jarðveg vegnar okkur vel. Hér heima fyrir kemst kyrkingur í ökkur fyrir of miklar kræsing- ar, sjálfsmeðaumkun og fegurð- ardýrkun. Flori thefir samt ekki beðið tjón af þeim sökum. Það er allt í lagi með hann. Hann er ekki baráttumaður samkvæmt eðli sínu, en hann berst þrátt fyrir það. Það er ekki hægt að ætlast til meira af karlmanni, eða finnst þér það? Barátta Florian Rieger þessar örlagaþrungnu og hitasóttar- kenndu febrúarvikur stóð í sam bandi við þann úrskurð, sem austurrísku þjóðinni var falið að kveða upp eftir að kanslari hennar Schuschnigg var kominn heim aftur frá hinni illræmdu ráðstefnu hans til Berchtes- gaden. í borginni hafði mikil æsing gripið um sig. í augum gestsins, eins og til dæmis mín, minnti ástandið í borginni meira á undiribúning undir kaupstefnu en það, hvort Austurríki skyldi framvegis vera sjálfstætt og ó- háð ríki eða gerast hluti Þriðja ríkisins. Þegar hætti að rigna, var borgin næstum því of mikið litum skreytt, og baráttan bar svipmót hinnar gamalkunnu Viínaróperettu. Á götunum gat að líta fjölda manna búna að hinum ævaforna sið fjallabú- anna: hvítir, þykkir sokkar, ber hné, stuttar heimaofnar buxur. Það var fremur hlægileg aðferð til að- auglýsa hollustu sína við Hitler. Það var naumast nokk- urt kragahorn, sem ekki var í merki, annað hvort hakakross- inn eða rautt og hvítt merki hinna þjóðhollu Austurríkis- manna. Fólk hafði tekið upp þann skrýtna sið að Mta á kraga horn manns áður en það leit framan í mann. Það var stöðugt farið fylktu Mði um götumar og árekstrar voru aUtíðir á báða bóga. Báðir aðilar voru sannir Austurríkismenn og höfðu því mikla trú á áhrifavaMi hljóm- ■listarinnar. Það voru því sífellt iþeyttir lúðrar og bumbur barð- ar. Fylkingarnar voru brosandi út að eyrum, og þetta virtist vera eintómt gaman og ánægja. í augum þeirra, sem utan við þetta stóðu, virtist það vera saklaust gaman allt saman. Florin Rieger var önnum kaf- inn dag og nótt við að skrifa blaðagreinar, flytja ræður, kyssa á hendur áhrifamikilla kvenna og tala fyrir karhnönnum, sem ekki voru sömu skoðunar og hann sjálfur. Hann tiUieyrði Austurríki Söhusdhniggs af Mfi og sál. Hann hafði alla eiginleika hins rótgróna Austurríkismanns, góða ög vonda, og var vaxinn upp úr erfðavenjum embættis- stéttarinnar. Bæði afi hans og faðir höfðu verið háttsettir em- bættismenn, og faðir hans hafði skamma hríð komizt til þess vegs að vera samgöngumálaráð- herra. Sjálfur gegndi Flori ein- hverjum starfa í dómsmálaráðu neytinu, en virtist Mta á hann sem aukaatriði og hafði einkum helgað sig ritstörfum. Þetta var gömul, austurrísk siðvenja. í stjórnarskrifstofunum unnu einkum menn, sem notuðu vinnu tímann til ýmislegra ritstarfa. Þeir gerðu uppköst að leikrit- um og sömdu sonnettur. Florian Rieger var sannfærð- ur um, að minnsta kosti átta- tíu af hundraði greiddra at- kvæða myndu verða með sjálf- stæðu Austurríki. Klara var hins vegar fremur svartsýn á niðurstöður þjóðaratkvæða- 'greiðslunnar. HeimiM hennar var dyravörðurinn, samnefnari og imynd almúgans. Dyravörður inn ætlaði að greiða atkvæði með Schuschnigg og sjálfstæð- inu, ef allir aðrir gerðu það. Hann ætlaði að greiða atkvæði með Hitler og sameiningunni, ef meirihlutin gerði !það. — En Jesú, María, meirihlutin af þeim eru dyraverðir, hrópaði Klara reiðilega. — Hver ætlaði aö hafa áhrif á sköðanir þeirra? Húsvörð urinn hafði játað fyrir Klöru í einlægum trúnaði, að hann léti j sér á sama standa, hver niður- I NYJA BIO Arabiskar nætur (Arabian Nights) Litskreytt æfintýramynd úr 1001. nótt. Aðalhlutverk: Jón Hall Maria Montez Leif Erikson SABU Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð börnum yngri en 12 ára. 6AMLA BIO Vaskir drengir (Gallant Sons) Jackie Cooper Bonita Granville Gerie Reynolds Sýnd kl. 7 og 9. Hundurinn minn (The Biscuit Eater) Billy Lee og Helene Millard Sýnd kl. 5. staðan yrði. En hann var eng- inn heimskingi, húsvörðurinn. Enda ,þótt hann kysi fremur sjálf stætt Austurríki, og helzt und- ir keisarastjórn, ef unnt væri, hafði hann gerzt leynilegur fé- lagi á Nazistaflokknum — svona til vonar og vara. En hann hafði ekki heldur — og Klara hló mik inn, þegar hún sagði mér frá frá því — gengið úr Jafnaðar- manriaflokknum, sem hafði átt drýgstan þátt í stjórn landsins til ársins 1934. — Hvers er hægt að vænta af svona fólki? sagði Kiara með þessum nýja láhyggjusvip. sem ;.u orðið gat svo oft að Mta á andliti hennar. — Vesalings Fiori. Ég efast um, að hann geri sér grein fyrir, hvað^ leik hann er að ieika. Á köldum og bjortum föstu- degi fékk ég iánaðan vagn Flori og ók Mikael út úr borginni í átt til fjallanna í suðri, til þess að koma honum fyrir til dvalar í Alpenhof. Renate fór með til að gera ferðina skemmtilegri fyrir piltinn og vera mér til MEÐAL BLÁMANNA EFTIR PEDERSEN-SEJERBO Wilson skoðaði steininn í krók og kring, vóg hann í hendi sér og brá hníf sínum ó hann. — Já, svaraði hann að lokum. — Þessi steinn myndi vera margra þúsunda króna virði í Evrópu. — Þá erum við ríkir, hrópaði drengurinn, — því að það eru margir svona steinar þar sem ég fann þennan. Og hann hljóp aftur sömu leið og hann hafði komið. Wilson og Páll fylgdu honum eftir. Áhugi þeirra félaga var nú enn meiri, en þegar Páll fann perluna forðum. Það var líka sízt að undra', því að nú voru allar líkur á þvi, að frelsis þeirra myndi skammt að bíða. Þess vegna skipti hinn fundni fjársjóður erin meira máli fyrir þá nú en þá. Þeir fundu marga gimsteina, en þó var enginn þeirra jafn stór þeim, sem Hjálmar hafði fundið fyrstan. Hér var líka gull fyrir. Hinn rauðlita gullsand gat þar að líta í uppþornuðum lækjarfarvegi. En þeir létu gullið eiga sig og tóku aðeins gimsteinana. Þegar þeir höfðu tekið nokkrar handfyllir sínar, sneru þeir aftur þangað, sem þeir höfðu slegið tjöldum sínum. Þegar þeir nokkrum klukkustundum síðar, lögðu út á eyðimörkina, mátu þeir ekki gimsteinana meira en það, að þeir voru geymdir í litlum poka, sem Bob bar á baki sér ásamt fleiri hlutum. Það var aðeins stóri gimsteinninn, sem farið var var- lega með. Hjálmar hafði stungið honum í belti sitt, og hon- um var unun að því að finna hvernig hvassar brúnir hans rispuðu húð hans, þegar hann gekk. WE'RE SUPP05ED TO ÍWEET THEArt BACICOF THE 5TAGE AFTER. THE LA5T fewr SHOW/ 'mmsá Dci DID FIVE SHOWS TODAY, —’INK DEY’LL 5TILL BEABLE TO 5EE U5 ? GEE/I'MAS NERVOUS AS A FIRST KJIGHT/ y HANK: „Það ætlast til þess að við hittum þær bak við hús- ið eftir að skemmtuninni er lokið.“ SAMMY: „Þær hafa haldið ¥GOT YOUR COUPONS 7 OKAY/ WAIT HERE UNTILTHE&ALS COM.E OUT...YA LUCKY STIFFS/ FIRST TIME I WAS EVER. WON IN A RAFFLE/ FEEL LIKE ATURKEY l.BUTI HOPE I’M NOT GOING- fimm skemmtanir í dag, bara að þær séu nú ekki orðnar svo þreyttar að þær geti ekki hitt okkur.“ VARÐMAÐURINN: „Hafið þið miðana ykkar? — Allt í lagi. Bíðið þar til þær koma út. Ég öfunda ykkur, strákar.11 KATA, Glöð: „Ég er svo spent, alveg ægilega. Næstum eins og í fyrsta skipti þegar ég fór út. Þá var ég unnin í spil- um — bara að það verði ekki svoleiðis núna.“

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.